Morgunblaðið - 19.01.2000, Page 29

Morgunblaðið - 19.01.2000, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000 29 LISTIR Stórstjörnur djassins fara fjöld TOJVLIST Geisladiskar ÞRENNINGIN JACKSON, PETERSON OG BROWN Milt Jackson víbrafón, Oscar Peter- son píanó, Ray Brown bassa og Karriem Riggins trommur. The Very Tall Band. Tekið upp á Blue Note í New York 24.-26. mars 1998. Telarc/12 tónar 1999. ÞEGAR Milt Jackson, Oscar Pet- erson og Ray Brown léku nokkur kvöld á Blue Note djassklúbbnum í New York ásamt ungtrommaranum Karriem Riggins í mars 1998 vöktu tónleikarnir heimsathygli. Það er ekki oft sem slíkar stórstjörnur leika á klúbbtónleikum, heldur eru tón- leikahallirnar þeh-ra vettvangur. Það er heldur ekki furða því greiðslur til manns á borð við Oscar Peterson nema nokkrum milljónum fyrir tón- leika, undir slíku stendur enginn klúbbur, en stundum leika menn fyr- h- ánægjuna eina saman einsog Son- ny Rollins gerði gjarnan í Montmar- tre í Kaupmannahöfn þegar Jazz-Kai rak staðinn. Tæknimenn Telarc útgáfunnar voru þarna með tól sín og tæki og þarna var í það minnsta einn Islend- ingur staddur og fann tónaangan hins fallandi stórveldishers djassins. Síðan þetta var hljóðritað hefur Milt Jackson yflrgefið þessa lífstjörnu, en það heyrir enginn á leik hans á plöt- unni að hann var heltekinn af krabbameini er hún var hljóðrituð og einnig þurfa menn að þekkja Peter- son til að merkja að vinstri hendi hans er hálflömuð eftir heilablóðfall. Brown var þó alheill, ekki síður en þegar hann heimsótti okkur á Jazzhátíð Reykjavíkur hálfu ári síðar ásamt trommaranum Riggins og píanistanum Geoff Keezer. Þegar karlar einsog þessir mætast á djassklúbbi eru þeir ekki að leika æfða dagskrá. Kvöldskipunin hljóðar uppá „djammsessjón“ en þeir sem ekki þekkja til halda að hér sé allt fullæft, svo vel fellur hver tónn að öðrum, því þessir kallar þekkja hvern annan út og inn ekki síður en verkin sem þeir leika. Ray Brown var bassaleikari Oscar Peterson-tríósins í fimmtán ár og þeir Milt Jackson léku saman með Dizzy Gillespie. Svo hafa þeir allir þrír spilað saman á ót- eljandi tónleikum og hljóðritunum fyrh- Norman Granz, oftast undir hatti Jazz at the Philharmonic. Efnisskráin samanstóð af klassísk- um verkum af efnisskrá djassmanna svo og frumsömdum - flestum blús- um. Þeir byrja á dixílandstríðssöngn- um Ja-da og enda á Caravan, sem básúnuleikari Ellingtons, Juan Tizol, samdi í samvinnu við meistarann. Það er kannski ekki mikið að segja um spilamennsku þeirra fjórmenn- inga í lögum sem þeir leika saman, þar kemur ekkert á óvart einsog við er að búast og bestir eru þeir í Blues for JR eftir Ray Brown. Það fer ekki milli mála að sveiflan er þessum meisturum í blóð borin. Það sem gef- ur disknum þó mest gildi eru einleiksverkin sem þeir félagar leika. Oscar leikur lag sitt When summer comes, sem hann frumflutti í Chicago þetta sumar, Milt Jackson túlkar Nature boy óviðjafnanlega og sýnir enn og sannar að hann er einn fremsti ballöðutúlkandi boppsins og Ray Brown vefur saman þrjá söngva og er einn þeirra guðspjall sálar- djassins fönkaða, Work song, eftir komettleikarann Nat Adderley, sem lést á annan í nýári sextíu og átta ára gamall eftir langvinna baráttu við sykursýki. Þetta er hin áheyrilegasta plata í anda Norman Granz - ekta klúbbspilamennska - en ef menn vilja heyra þessa drengi leika á list- rænustu nótunum verður að benda á diska með sveitum þefrra sjálfra. Og þó; Nature boy er fágætt listaverk og sýnir enn og sannar að Milt Jackson átti engan sinn líka við víbrafóninn nema þá kannski Lionel Hampton að leika Star dust eða Moonglow. Það voru fleiri djassleikarar en Milt Jackson sem kvöddu á síðasta áii. Viðar Alfreðsson trompetleikari var einn þeirra svo og ýmsfr stór- meistarar er heimsótt hafa Island: Bassaleikarinn Fred Hopkins, sem hér lék með Air, Richard Boone, sem hingað kom frá Kaupmannahöfn í tvígang og heillaði íslendinga uppúr skónum. Red Norvo sem lék með Hinum átta stóru í Gamla bíói, þá næstum heyrnarlaus og Ernie Wilk- ins sem lengi útsetti fyrii- Count Bas- ie og lét sig ekki muna um að stjóma Big bandi 81 á minningartónleikun- um um Gunnar Ormslev í Gamla bíói 1981. Art Farmer féll í valinn 71 árs, en Lester Bowie var aftur á móti í blóma lífsins þegar hann lést, 58 ára. Hann lék við hvern sinn fingur jafnt á sviði og baksviðs er hann lék á lista- hátíð 1996. Fjölmargir aðrir djass- meistarar létust síðasta ár og skulu örfáir þeirra nefndir. Djasssöngvar- ar eru ekki margir og þegar Joe Williams og Mel Torme deyja sama árið er skarð fyrir skildi. Svo lést ein af stjórstjörnum sveiflunnar, tromp- etkóngurinn Harry „Sweets" Edin- son, háaldraður, en því var ekki að heilsa um finnska trommarann Ed- vard Versala, einn frægasta fulltrúa hins frjálsa djass í Evrópu, hann varð 54 ára. Einn helsti snillingur Evi-ópudjassins, franski píanistinn Michell Petrucciani lést í byrjun ár- sins aðeins 36 ára. Með honum hvarf af sjónarsviðinu einn þeirra fáu djasspíanista er rufu jan-etísku hefð- ina og færðu hinn klassíska djass- píanóleik í endurnýjun lífdaga. Sem betur fer er tónlist þessara manna vel varðveitt á geisladiskum sem fá má í flestum betri hljómplötuversl- unum. Vernharður Linnet Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1220 ...sem lagar sig að þínu aksturslagi Renault Clio fæst með skynvæddri Pro-Active sjálfskiptingu sem lagar sig að þínu aksturslagi til að spara enn meira bensín. I þessari útgáfu er Renault Clio með einstaklega kraftmikilli 90 hestafla 1600 vél. Þegar við þetta bætist ótrúlega ríkulegur staðalbúnaður; 4 loftpúðar, ABS, ijarstýrð hljómtæki og samlæsingar er augljóst að Renault Clio er bíll sem þú átt að prófa. RENAULT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.