Morgunblaðið - 27.01.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.01.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR __ Vilja kaupa vetni af Aburðarverksmiðjunni ABURÐARVERKSMIÐJAN í Gufunesi hefur að undanförnu átt í samningaviðræðum við þýska fyrir- tækið Hamburger Wasserstoff-Ag- entur um sölu vetnis til Þýskalands. Hér er um tilraunaverkefni að ræða sem þrettán fyrirtæki í Þýskalandi eiga aðild að. Hugmyndin er sú að í fyrstu verði keypt nægjanlegt vetnismagn af Áburðarverksmiðjunni til að knýja áfram sex bifreiðir á vegum fyrir- tækjanna. Bjarni Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Áburðarverksmiðj- unnar hf., segir Þjóðverjana hafa leitað til fyrirtækisins síðastliðið haust og að síðan þá hafí verið unnið að því að útfæra hugmyndir þeirra. Hjá Áburðarverksmiðjunni væru menn m.a. að reikna út hugsanlegt verð á vetninu en Þjóðverjamir Yfir 50 þúsund hafa séð Engla alheimsins RÍFLEGA fímmtíu þúsund manns hafa séð kvikmyndina Engla alheimsins, en fjórar vikur eru nú frá frumsýningu hennar. Myndin hefur vermt toppsæti að- sóknarlista kvikmyndahúsanna fjórar vikur í röð. Friðrik Þór Friðriksson, sem leikstýrir kvikmyndinni eftir verðlaunasögu Einars Más Guð- mundssonar, segist vera himinlif- andi með viðtökurnar. „Annað er ekki hægt,“ segir hann. „Mynd- inni hefur verið gríðarlega vel tekið, það er nánast uppselt á hverju kvöldi og ekki annað hægt en að fyllast þakklæti yfír slíkum viðtökum.“ Friðrik Þór segir að fyrirfram hafi hann ekki átt von á slíkum viðtökum. „Myndin er byggð á verðlaunasögu sem var sjálf geysivinsæl og er þeirrar gerðar að allir hafa á henni skoðun, ekki ósvipað Djöflaeyjunni á sínum tíma. Myndir eftir slíkum sögum eru jafnan óútreiknanlegar; erfítt er að sjá fyrir hvemig fólk tekur yfirfærslunni á hvíta tjaldið.“ Alls sóttu um 85.000 manns Djöflaeyjuna í kvikmyndahúsum fyrir nokkrum ámm og var það mesta aðsókn á íslenska kvik- mynd um árabil. Friðrik Þór seg- ir þó ekki unnt að slá því föstu sem meti, aðsókn á Stuðmanna- myndina „Með allt á hreinu" hafi verið gríðarleg á sínum tíma, enda þótt miðasala hafi ekki ver- ið tölvutengd eins og nú og tölur yfir heildaraðsókn því ekki jafn aðgengilegar. væm að athuga flutningskostnað og annað þess háttar. Málið komið töluvert áleiðis Bjarni sagði málið komið töluvert áleiðis þótt of snemmt væri að segja til um hvenær vetnisflutningar til Þýskalands gætu hafist. Sagði hann að ekki yrði um ýkja stóran samning fyrir Áburðarverksmiðjuna að ræða, a.m.k. ekki í upphafi, enda vetnismál stutt á veg komin og hér um tilrauna- verkefni að ræða. Markmiðið væri hins vegar það, að auka sem mest notkun endurnýjanlegra orkugjafa og að vonast væri til að sú þekking, sem fengist með þessu verkefni, nýttist vel í framtíðinni í þeim efnum. Jafnframt stæðu vonir til þess að þetta verkefni leiddi til frekari við- skipta fyrir Áburðarverksmiðjuna gefi tilraunin góða raun. Þrjátíu ára strákafélag HANDKNATTLEIKSFÉLAG Kópavogs, HK, varð þrjátíu ára í gær, en það var stofnað hinn 26. janúar árið 1970 af nokkrum strákum í 6. bekk Kársnesskóla í Kópavogi sem ekki töldu nægilega vel staðið að þjálfun handbolta í Kópavogi. Si'ðan þá hefur félaginu vaxið fiskur um hrygg, en í því eru nú hátt á þriðja þúsund félag- ar og er það með starfsemi í fjöl- mörgum greinum íþrótta. Haldið var upp á þrjátíu ára af- mælið í íþróttahúsinu í Digranesi í gær. Fjöldi félagsmanna mætti til að fagna tímamótunum og bárust félaginu margar góðar kveðjur og gjafir í tilefni afmælisins. Morgunblaðið/Porkell Topp 20 listi á Net- inu og í sjónvarpi Rúmlega 600 manns tóku þátt SKJÁR 1 og mbl.is standa fyrir nýj- um vinsældalista með heitinu Topp 20 þar sem gestir mbl.is geta tekið þátt í vali á lögum á listann. Allir sem fara inn á mbl.is geta tekið þátt í að raða og velja lög á listann og nýttu rúmlega 600 manns sér þennan möguleika á þeirri einu viku sem lið- in er frá því listinn var opnaður. List- inn er á stöðugri hreyfingu í heila viku en á hádegi á miðvikudögum er staðan tekin og á fimmtudögum sýn- ir Skjár 1 þátt með sama heiti. í þættinum eru lög listans kynnt og sýnd myndbönd af völdum lögum. Þeir sem vilja taka þátt í valinu geta farið inn á mbl.is, smellt þar á hnapp Topp 20 þar sem boðið er upp á að kjósa, skráð netfang sitt og fá þar með senda sérstaka kosninga- slóð. Þá er hægt að velja þau lög sem viðkomandi finnst að eigi að skipa fimm efstu sætin og einnig er mögu- legt að bæta við lögum á listann. Listinn er uppfærður á klukku- stundar fresti þannig að hægt er að fylgjast með breytingunum sem verða með því að smella á Topp 20- hnappinn. Sex fyrirtæki stofna markaðstorg á Netinu LANDSSIMINN, Morgunblaðið, Flug- leiðir, íslandsbanki, Landsbankinn og Sjóvá-Almennar hafa tekið höndum saman um stofnun markaðs- og upplýsingatorgs á Netinu, þar sem boðið verður upp á vörur og þjónustu af ýmsu tagi. Fyrirtækið nefnist Veftorg hf. og hefur Martha Eiríksdóttir verið ráðin fram- kvæmdastjóri þess, en áformað er að starf- semi á Netinu hefjist í apríl næst- komandi. Upplýsingamiðill fyrir vöru og þjónustu Martha, sem starfaði áður í höf- uðstöðvum Europay International í Belgíu, sagði í samtali við Morgun- blaðið að Veftorg yrði upplýsinga- miðill fyrir vöru og þjónustu, og að á vefsvæðinu veftorg.is verði að finna hagnýtar upplýsingar til að auðvelda almenningi aðgang að Netinu. Jafnframt verður lögð áhersla á að gera netviðskipti með vörur og Martha Eiríksdóttir þjónustu jafn örugg og þægileg og hefðbundin viðskipti. Hlutafé fyrir- tækisins hundrað milljónir Að sögn Mörthu er áætlað að starfsmenn Veftorgs hf. verði um tíu þegar fram líði stundir. Hins vegar verði einnig töluvert um aðkeypta vinnu vegna sérverkefna. Hlutafé fyrirtækisins verður hundrað milljónir króna og munu aðstandendumir sex væntan- lega nýta veftorgið sem vettvang til að koma á framfæri vöru sinni og þjónustu. Martha sagði aðspurð að Veftorg- ið yrði m.a. í samkeppni við vefinn Strik.is, sem nýlega var opnaður en sagðist trúa því að veftorg.is stæði- vel að vígi vegna reynslu þeirra fyr- irtækja, sem að Veftorgi standa. Kvaðst hún hlakka mjög til að tak- ast á við þetta verkefni, ekki síst vegna þess að Netið sé í stöðugri þróun og mótun og komi til með að eflast gífurlega í náinni framtíð. Hitasótt í unghrossum Grunur ekki staðfestur GRUNUR um að hitasótt sé komin upp í veturgömlum unghrossum á tveimur bæjum í Arnessýslu hefur enn ekki fengist staðfestur að sögn Sigríðar Bjömsdóttur dýralæknis. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær eru einkennin sem hrossin sýna hiti og lystarleysi en engar fregnir hafa borist um smit í unghrossum á öðmm bæjum í nágrenninu. Að sögn Sigríðar er eina leiðin til þess að greina hvort um hitasótt er að ræða sú að fylgjast með því hvort smits verði vart í öðmm hrossum. „Við bíðum því eftir því að eitthvert smit fari í gang. Það er okkar ömgg- asta leið til þess að vita hvort um hitasótt er að ræða eða ekki.“ Sekt ekki sönnuð á starfsmann 10-11 Piltinum greiddur uppsagn- arfrestur SÁTT náðist á milli lögmanns V erzlunarmannafélags Reykjavíkur og starfsmanna- stjóra 10-11-verslunar við Laugalæk í Reykjavík í máli starfsmanns, sem kærður var til lögreglunnar á dögunum og rekinn á staðnum eftir að eftir- litsmaður á vegum verslunar- keðjunnar taldi starfsmanninn hafa orðið uppvísan að því að hafa ætlað sér að stela pepsí- flösku er hann tók sér kaffihlé í vinnunni. Að sögn Péturs A. Maack, varaformanns VR, verður pilt- inum því greiddur viku upp- sagnarfrestur samkvæmt kjarasamningi því sekt hafi ekki sannast á piltinn. Pétur sagði það afar gott að í málinu hefði lögregla verið kölluð til enþað þýddi að tekin hefði verið skýrsla og bæði starfsmaður og vinnuveitandi þannig haft tök á að skýra sitt mál á vettvangi. Að sögn Péturs er þetta ekki í fyrsta sinn sem VR hefur af- skipti af ágreiningsmálum á vinnustað og meintum ásökun- um. Yfirleitt væri um afar við- kvæm mál að ræða, mál sem ekki alltaf ættu erindi í fjöl- miðla. Pétur vildi ekki tjá sig um þetta tiltekna mál að svo stöddu en sagði að almennt væri reglan vitaskuld sú að ef menn brytu af sér í starfi þá væri hægt að segja þeim upp fyrirvaralaust. Þá þyrfti sekt hins vegar að vera sönnuð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.