Morgunblaðið - 27.01.2000, Side 68

Morgunblaðið - 27.01.2000, Side 68
'38 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF ÍDAG Sorg og sorgar- viðbrögð Safnaðarstarf Næstkomandi sunnudagskvöld 30. janúar kl. 20 mun sr. Sigfinnur Þor- leifsson sjúkrahúsprestur vera með erindi um sorg og sorgarviðbrögð á fræðslukvöldi í safnaðarheimili Langholtskirkju. Þriðjudaginn 1. febrúar hefst síðan starf sorgarhóps/nærhóps í fram- haldi af fræðslukvöldinu. Nærhópar eru litlir hópar einstaklinga sem mynda trúnaðarsamband, helst ekki fleiri en 8-10 manns. Komið er sam- an einu sinni í viku í tíu skipti. Hóp- jt starfinu lýkur með erindi sr. Sigfinns þar sem horft er fram á veginn. Sóknarprestur og djákni hafa um- sjón með starfinu og leiða hópinn. Askirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14-17. Ný öld, nýtt árþús- und. Fræðslusamvera í safnaðar- heimiii Áskirkju í kvöld kl. 20.30. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Æskulýðsfélagið fyrir ungl- inga í 8. bekk í kvöld kl. 19.30 í félags- miðstöðinni Bústöðum. Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 14-16 í safnaðarheimil- inu. Æskulýðsfélag Neskirkju og Dómkirkju. Sameiginlegur fundur í safnaðarheimili Neskirkju kl. 20. Grensáskirkja. Mæðramorgunn kl. --r 10-12. Allar mæður velkomnar með lítil böm sín. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Fluttar verða fjórar kirkjusónöt- ur eftir Mozart. Ihugun, bæn. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Ljós lífsins, þagnar- íhugun kl. 20. Taize-messa kl. 21. Fyrirbæn með handaryfirlagningu og smurning. Tómas Sveinsson. Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorgunn kl. 10-12. Fræðsla: Afbrýði eldri systkina. Sigríður Jó- ' hannesdóttir hjúkrunai-fræðingur. Söngstund með Jóni Stefánssyni kl. 11. Svala djákni les fyrir eldri börn. Langholtskirkja er opin til bæna- gjörðar í hádeginu. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45. Kyrrðarstund kl. 12.00. Orgel- leikur til k 1.12.10. Að stundinni lok- inni er léttur málsverður á vægu verði í safnaðarheimilinu. Neskirkja. Félagsstarf eldri borgara nk. laugardag kl. 13. Farið verður í heimsókn í Oháða söfnuðinn. Þáttaka tilkynnist í síma 511-1560 milli kl. 10 og 12 í síðasta lagi á föstudag. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs- son. Seltjamameskirkja. Starf fyrir 6-8 ára böm kl. 15-16. Starf fyrir 9-10 ára börn kl. 17-18.15. Árbæjarkirkja. TTT starf fyrir 10- 12 ára í Ártúnsskóla kl. 16.30-17.30. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn á föstudögum kl. 10-12. Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10-12 í umsjá Fjólu Grímsdóttur og Bjargar Geirdal. KI. 11.15 leikfimi aldraðra. Kl. 18 bænastund. Fyrir- bænaefnum má koma til prests eða kirkjuvarðar í síma 554-1620, skrif- lega í þar til gerðan bænakassa í and- dyri kirkjunnar eða með tölvupósti (Digraneskirkja@simnet.is). Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11- 12 ára drengi kl.17-18. Grafarvogskirkja. Foreldramorgn- ar kl. 10-12. Fræðandi og skemmti- legar samvemstundir, heyram guðs orð og syngjum með bömunum. Kaffisopi og spjall. Alltaf djús og brauð fyrir bömin. Æskulýðsstarf fyrir unglinga kl. 20-22. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30. Kópavogskirlqa. Samvera aldraðra í safnaðarheimilinu Borgum kl. 14-16. Seljakirlqa. Strákastarf fyrir 9-12 ára á vegum kirkjunnar og KFUM kl. 17.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra kl. 10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið hús fyrir 8-9 ára böm í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bibl- íulestur kl. 21. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrirl0-12 ára kl. 17-18.30. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára böm kl. 17-18.30. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 10 foreldramorgunn. Kl. 17.30 TTT- starf, tíu til tólf ára krakkar. Kl. 18 kyrrðar- og bænastund með Taize- söngvum. Koma má fyrirbænaefnum til prestanna með fyrirvara eða í stundinni sjálfri. Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 sam- koma í umsjón Hallelújakórsins. All- ir hjartanlega velkomnir. Lágafellskirlqa. TTT-starf fyrir 10- 12 ára börn frá kl.17-18. Umsjón Hreiðar og Sólveig. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Hvammstangakirkja. Kapella Sjúkrahúss Hvammstanga. Helgi- og bænastund í dag kl. 17. Fyrirbæna- efnum má koma til sóknarprests. ÞYSKUNAMSKEIÐ í GOETHE-ZENTRUM Vönduð þýskunámskeið sem leiða til hinna stöðluðu prófa Goethe-stofnunar er njóta viðurkenningar um heim allan. Aðeins við bjóðum hérlendis upp á próf sem jafngildir inntökuprófi í þýsku við þýska háskðla. Ailir kennarar hjá okkur hafa þýsku að móðurmáli. Upplýsingar í síma 551 6061 frá kl. 15.00 alla daga nema sunnudaga eða sendið beiðni um frekari upplýsingar á netfangið goethe@simnet.is Vorönn (febrúar - maí 2000): Þýskunámskeið fyrir byrjendur Grundstufenkurse Fur Teilnehmer mit mittleren bis guten Vorkenntnissen Mittelstufenkurse Fur Teilnehmer mit guten bis sehr guten Vorkenntnissen Oberstufenkurs Fúr Teilnehmer mit sehr guten Vorkenntnissen, Abschluss berechtigt zum Besuch deutscher Hochschulen Grammatikkurs / Málfræðinámskeið Kindersprachkurse / Barnanámskeið GOETHE-^ O INSTITUT Alfanámskeið mikil blessun ÉG vil koma á framfæri ánægju minni með Alfa- námskeið sem ég tók þátt í á vegum Hafnarfjarðarkirkju á síðastliðnu hausti og ég verð að segja að mér fannst það frábært. Við hittumst á fimmtudögum í 10 vikur og ég vildi ekki missa af einu einasta skipti. Ég hlakkaði til að hitta þessa ágætu leið- beinendur og þátttakendur og til okkar sameiginlega borðhalds, þar sem við kynntumst á mjög jákvæð- an hátt. Á eftir málsverði fór fræðslan fram. Ég verð að segja að ég hafði ekki mikið velt fyrir mér spurn- ingum um kristna trú, þótt ég hafi átt mína bamatrú og mitt bænah'f, en Biblían fannst mér ekki aðgengileg að fletta upp í, en úr þessu vildi ég bæta og tók því þessu námskeiði fegins hendi. Það hvemig leiðbein- endur leiddu okkur hver af öðram á sinn ljúfa og skemmtilega hátt í gegnum efni námskeiðsins og kenndu okkur að fletta upp í Biblíunni, og það hvernig hinum trúarlegu spuming- um var svarað um námsefn- ið í umræðuhópnum og hvernig við skiptumst á trúarlegri reynslu hvers og eins og hvernig hvert kvöld var endað með bæn og íyr- irbænum, þá fann ég að eft- ir því sem leið á námskeiðið hvemig trúarvissa mín jókst og að ég væri að eign- ast eitthvað dýrmætt, það er að segja lifandi trú á guð og það eflir vissulega innri styrk. Ég vil líka minnast á helgina sem við áttum sam- VELVAKAJVDI Svarað í sírna 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags an í Ölveri í Borgarfirði, samfélag okkar við guð í bæn var mjög áhrifaríkt, það má segja, að þessi helgi hafi verið ein allsherjar andleg og líkamleg næring- arveisla. Nú er að hefjast nýtt Alfanámskeið og vona ég að sem flestir beri gæfu til að taka þátt í þvi. Kona í Hafnarfirði. Til Ríkisútvarpsins UNDANFARNA sunnu- dagsmorgna hafa verið á dagskrá Ríkisútvarpsins þættir sem nefnast Öldin sem leið. Efni þeirra virðist hið fróðlegasta, en vegna þess, hve lestur höfundar- ins er óáheyrilegur (hraður og rykkjóttur), fer efni hans því miður fyrir ofan garð og neðan hjá mér. Það em til- mæli mín til útvarpsins að það vandi betur til upples- ara og eins viðmælenda í samtalsþáttum. En hvað þá varðar, væri ekki ráð að þurrka út þetta eilífa héma, sem sagt og sko, ófögnuð sem tröllríður flestum við- tölum. Er ekki hvort eð er allt það efni sent út af bönd- um? Um sjónvarpið ætla ég ekki að fjölyrða - það er sjálfusérverst. Siggi í Árborg. Raddir Evrópu - stór- kostlegur kór ÉG var einn þeirra fjöl- mörgu sem lögðu leið sína í Hallgrímskirkju á nýársdag til að njóta tónlistar og bæn- astundar. Þar söng kórinn Raddir Evrópu sig inn í hug og hjörtu þeirra er á hlýddu og voru bænir um frið lesn- ar á milli laga á mörgum tungumálum. Kórinn sam- anstendur af 90 ungmenn- um frá öllum menningar- borgum Evrópu, undir stjóm Þorgerðar Ingólfs- dóttur og fleiri. Það var kynngimagnaður kraftur í kirkjunni þetta síðdegi og áhrifamikið að hlusta á bænina „Faðir vor“ lesna á m'u tungumálum í lokin. Þessari stund iylgdi trú á framtíðina þar sem glæsileg ungmennin sam- einuðust í stórkostlegum söng sem engan lét ósnort- inn. Utvarpað var frá þess- um atburði en ekld er ólík- legt að margir hafi misst af útsendingunni sökum hátíð- arhalda. Það er þvi einlæg von mín að Ríkisútvarpið endurflytji þessa metnaðar- fúllu dagskrá. Hafi þeir, sem að undirbúningi stund- arinnar stóðu, hjartans þökk fyrir. Ánægður kirkjugestur. Málvenja og málfar MIKIL hörmung er að heyra hámenntaða menn í útvarpi og sjónvarpi tala um verðin á hinu og þessu. Það er eins og þeir átti sig ekki á því að orðið verð er aðeins til í eintölu líkt og orðið kaffi og fleiri orð. Ef til vill eigum við eftir að heyra þessa sömu menn tala um verð- lögin í landinu eða að kaffin séu ódýrust í Nóatúnsbúð- inni. Þá er mjög algengt að menn segi að jólatréin séu komin í staðinn fyrir að jóla- trén séu komin og er það af- ar slæm málvenja. Tökum á og vöndum málfarið. Skólasljóri. Tapad/fundíð Gullarmband týndist GULLARMBAND týndist í Mosfellsbæ, Fossvogi, Seltjamarnesi eða á Hall- veigarstíg 1, laugardags- kvöldið 8. janúar sl. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Kristínu i síma 581-4339. IVQótt gullarmband týndist MJÓTT gullarmband týnd- ist í síðustu viku. Líklega efst á Laugavegi, Rauðar- árstíg eða við Tryggvagötu. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 553-3365. Bamabútasaumsteppi fannst FYRIR u.þ.b. hálfum mán- uði fannst bamabútasaums- teppi við Bústaðaveg. Upp- lýsingar veitir Linda í síma 568-4872. Giftingarhringur í óskilum KARLMANNS-giftingar- hringur fannst í Laugarnes- hverfi. Upplýsingar í síma 568-5839. Dýrahald Læða týndist í Breiðholti BRUN, svört og hvít læða, inniköttur, eyrnamerkt, týndist sl. sunnudagskvöld frá Maríubakka í Breiðholti. Þeir sem hafa orðið hennar varir vinsamlega hafi sam- band í síma 567-3914. Víkverji skrifar... Kunningi Víkverja kom að máli við hann um daginn og sagði farir sínar ekki sléttar. Vegna vinnu sinnar hafði hann verið í sambandi við mörg þeirra fyrir- tækja, sem eru í fararbroddi nýj- unga í fjarskiptum og netvæðingu hér á landi. Kunninginn staðhæfði hins vegar að um leið og þessi ungu fyrirtæki sköraðu fram úr öðrum í nýjustu tækni virtist sem mörg þeirra vanræktu þá gamal- dags þjónustu að svara í síma. Kunninginn nefndi tvö dæmi. Hann hafði í þrjá daga reynt að ná sambandi við stjórnanda hjá fyrir- tæki sem selur neytendum tölvur, hugbúnað og fleira. Yfirleitt hringdi sími fyrirtækisins út en þá sjaldan svarað var tók ekki betra við. Kunninginn spurði um mann- inn og var gefið samband en síðan hringdi og hringdi svo lengi sem kunninginn nennti að bíða, án þess að símsvarinn hefði nokkur frekari afskipti af því hvort samband hefði komist á. Éftir að hafa reynt af og til í þrjá daga gekk þó loks saman og samband komst á við stjórn- andann. Kunninginn þurfti svo að ná í starfsmann annars fyrirtækis hjá fyrirtæki í fararbroddi í tölvutækni og hugbúnaðargerð og þar hringdi síminn ekki út heldur var símtalinu eftir nokkrar hringingar beint til fyrirtækis úti á landi sem miðlar fjölþættri þjónustu í gegnum síma. Kunninginn hugði gott til glóðar- innar, spurði um sinn mann en þá kom símsvarinn af fjöllum og hafði ekki tiltækar upplýsingar um hvort maðurinn yfirleitt ynni hjá fyrir- tækinu, hvað þá að þarna úti á iandi vissu menn hvert væri innan- hússnúmerið hans. Ævintýrið fékk þó farsælan endi því eftir tíu hringingar og tvo daga náðu þeir saman í gegnum síma kunningi Víkverja og þessi starfsmaður eins tæknivæddasta fyrirtækis lands- ins. „Þetta sýnir mér að það er ekki allt fengið með tækninni,“ sagði kunninginn og Víkverji er ekki frá því að þar hafi hann rétt fyrir sér. xxx Yíkverji rakst nýverið á klausu í blaði sem hafði að geyma stutta kynningu á efni næsta blaðs. Þar sagði m.a. um efni blaðsins: „Leikkonan Jóhanna Vigdís léttir á sér og öryggismyndavélar borgar- innar eru til umfjöllunar.“ Víkverji gerir sér grein fyrir að umfjöllunarefni dagblaða er sífellt að verða fjölbreyttara og blaða- menn sífellt að færa sig lengra í skrifum um efni sem hingað til hef- ur ekki verið fjallað um í blöðum. Víkverji var því í fyrstu ekki alveg viss um hvað það væri sem leik- konan ætlaði að gera í blaðinu. Hann óttaðist að blaðið hefði feng- ið leikkonuna til að „létta á sér“ fyrir framan „öryggismyndavélar borgarinnar". Það var því með nokkrum kvíða sem Víkverji opn- aði blaðið daginn eftir, en þá kom í ljós að um var að ræða hefðbundið viðtal við unga og efnilega leik- konu sem sagði stuttlega frá því sem hún er að sinna þessa dagana í leiklistinni. Sem betur fer var hún ekki sýnd vera að „létta á sér“. Blaðamaðurinn reyndist bara ekki kunna að nota orðatiltækið. Þeir sem telja að „létta á sér“ þýði það sama og að létta á hjarta sínu, þ.e. segja frá, ættu að fletta upp í orða- bók. xxx Inýútkomnu tímariti Nýrrar sögu, sem Sögufélagið gefur út, er fróðleg grein eftir Sverri Jak- obsson sagnfræðing um Harald hárfagra. Haraldur er sagður hafa verið Noregskonungur á þeim ár- um sem ísland var að byggjast og gegnir lykilhlutverki í þeirri sögu- skoðun sem um áratugaskeið hefur verið haldið að nemendum sem læra íslandssögu. Hin hefðbundna söguskoðun er sú að ísland hafi farið að byggjast vegna þess að forfeður okkar hafi ekki þolað yfir- gang Haraldar hárfagra, sem gekk fram af mikilli hörku við að sam- eina Noreg undir einni stjórn. Haraldur á að hafa heitið því að skerða hvorki hár sitt né skegg fyrr en þessu markmiði væri náð. í grein Sverris eru skoðaðar þær heimildir sem til eru um Harald og sýnir Sverrir fram á að afar lítið er til af samtímaheimildum um kon- ung þennan. I konungatali frá þessum tíma er hans ekki getið. Konungs, sem kallaður er Lúffa, er hins vegar getið í dróttkvæðum, sem Sverrir telur ekki sjálfsagt að túlka með þeim hætti sem gert hefur verið, að átt sé við Harald hárfagra. Niðurstaða Sverris er að það sé það margt óljóst um Harald að ekki sé hægt að slá því föstu að hann hafi nokkru sinni verið til. Sumum kann að finnast ótrúlegt að þessi lykilpersóna í landnámi ís- lands sé aðeins þjóðsaga, en hvað um það; óhætt er að mæla með grein Sverris í Nýrri sögu. Þar eru settar fram ögrandi spurningar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.