Morgunblaðið - 27.01.2000, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 27.01.2000, Blaðsíða 74
MORGUNBLAÐIÐ 74 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 stendur í stað ,{ nýtt á lista Vikan 26.01.-01.02. % 1. Sex Bomb Tom Jones 'f' 2. Dolphins Cry Líve 3. Bad Touch BloodhoundGang 'fr 4. Vínrauðvín Ensími fh 5. Okkar nótt Sálin hans Jóns míns v> 6. Sexx Laws Beck f 7. Crushed Limp Bizkit %■ 8. Born to make you happy Britney Spears 9. I Learned From the Best Whitney Houston f 10. WhataGirl Wants Christina Aquilera 11. Otherside Red Hot Chili Peppers ‘f' 12. The Great Beyond R.E.M f' 13. BreakOut Foo Fighters 't/ 14. Dusted Leftfield T 15. Jesus Online Bush / 16. Mixed Bizniz Beck 17. Into the Void Nine inch nails V 18. Parasito Molotov ;v- 19. Whatlam Tln Tin Out & Emma B. V 20. So long Everlast Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is. ® mbl.is TÚPP 5D skjAreinn FÓLK í FRÉTTUM Töfrar á N etinu VILTU vita allt um galdra, töfrabrögð og sjónhverfing- ar? Viltu verða töframaður og slá um þig með spilagöldrum í veislum og meðal starfsfélaganna? Þá ættirðu að nota Netið þér til fram- dráttar og kynna þér það fjölbreytta úrval af vefsíðum sem lúta að þessum málaflokki. Með því að ferðast um Netið undir leitarorðunum „magic+tricks“ opnast fyrir manni nýr heimur töfra og sjónhverfinga og í ljós koma spjallrásir, heimasíðuhring- ir, póstlistar, tímarit helguð töfrabrögðum og margt ann- að sem kemur upp um þann fjölda einstaklinga um heim allan sem lifir og hrærist í heimi töfra, galdra og sjón- hverfinga. Ungir sem aldnir töframenn hafa sínar eigin heimasíður sem gaman er að heimsækja og er í því sambandi nauðsynlegt að benda á þann besta og mesta í dag, sjálfan David Copperfield, en opinber heimasíða hans er á slóð- inni http://www.dcopperf- ield.com/. Hún er auðvitað töfrandi - eins og honum einum er lagið. Fyrir þá sem áhuga hafa á að læra einfalda jafnt sem flókna spilagaldra er úr mörgum skemmtilegum síðum að velja, en hér skal bent á http://www.web.sup- erb. net/cardtric/tricks. h tm og http://www.geocities,- com/TimesSquare/4608/ sem eru uppfullar af alvöru göldrum með spil og smá- peninga sem auðvelt og fljótlegt er að læra. Þar er hægt að finna spilagaldra fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna og einnig galdra þar sem aðrir hlutir eru notaðir til að koma spenntum áhorfendum á óvart. Einnig er síðan http://www.teleport.com/~jrolsen/ feykilega skemmti- leg, en á henni er að finna minnisgaldra af ýmsum toga og kemur Simpson-fjölskyldan þar meðal annars við sögu. Fyrir þá sem vilja kynna sér sögu töfrabragða er síðan http://www.uelectric.com/pasttimes/ tilvalin, en þar er farið yfir feril fremstu sjónhverfingasnillinga og töfra- manna sögunnar og er Houdini, meistarinn sjálfur, með- al þeirra. Einnig er hægt að skoða á Netinu margar síður sem sérstaklega eru tileinkaðar honum og hans brögð- um, en hann var uppi um síðustu aldamót og hefur eng- inn töframaður enn komið fram á sjónarsviðið sem kemst með tærnar þar sem hann hafði hælana hvað dulúð varðar. Voru það galdrar eða voru brögð í taíli? Þú gætir komist að því! A pasttímes-síðunni er einnig hægt að kíkja í töfrakassa gömlu meistar- anna og sjá hvaða hjálpar- tæki þeir studdust við á sínum tíma. Auðvitað er reynt að giska á leyndar- málin að baki töfrabrögð- unum sem mörg hver eru þó enn í dag óleyst ráðgáta. Síðan http://www.qtm,- net/~geibdan/magician/ links.html er góður upp- hafspunktur í ferðalagi um heim töfranna á Netinu því á henni er listi yfir margar verulega fróðlegar síður töframanna, verslana með töfrabækur og fleira ghmr- andi gaman. Byrjaðu að vafra! Forvitnilegar vefsíður Michel Colas förðunarmeistari og Helga Sigurbjörnsdóttir kynna vor- og sumarlitina 2000 ásamt nýju ilmvatni d'Amour Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Glæsibæ, ...............kl. 1 1.00 til Clara Kringlunni,....... kl. 1 1.00 til Snyrtistofan Guerlain, Óðinstorgi.............. kl. 1 1.00 til Oculus, Austurstræti, .. kl. 11.00 til Andorra, Hafnarfirði, .. kl. 11.00 til Tímapantanir. MYNPBONP Unglingamynd fyrir fullorðna Farðu (Go)____________ Gamanmynd ★★★ Leikstjóri: Doug Liman. Hand- ritshöfundur: John August. Kvik- myndataka: Doug Liman. Aðal- hlutverk: Sarah Polley, Demond Askew, Katie Holmes og Jay Mohr. (98 mín) Bandaríkin. Skífan, janúar 2000. Bönnuð innan 16 ára. ÞESSI frísklega glæpablandna gamanmynd er nýjasta aftn-ð leik- stjórans Doug Liman sem vakti mikla athygli með hinni frábæru kvikmynd Swingers. Myndin er í alla staði vel gerð og fer skemmtilega með hinn brotakennda frásagnarstíl sem Quentin Tarantino gerði frægan um árið. Farðu gerist í heimi ung- menna, sem basla í láglaunastörfum, skemmta sér og eru í mismiklum tengslum við undir- heima stórborgar- innar. Frásögnin skiptist í þrjá hluta sem hver um sig segir frá afmörkuð- um persónum sem síðan tengjast sam- an í lokin. Fléttan er skemmtileg, lipurlega unnin og gæðir heildina léttleika með því að slá á létta strengi í lokin. Þetta er því engin al- vöru glæpamynd, frekar mætti kalla hana unglingamynd fyrir fullorðna. Farðu skartar safni ungra og ferskra leikara, Sarah Polley úr úrvals- myndinni „The Sweet Hereafter“ leikur alvörugefna stúlku með ríka sjálfsbjargarviðleitni og Desmond Askew er bráðfyndinn í hlutverki Bretans Simon sem þjáist af krón- ískri óskynsemi. Farðu er athyglis- verð kvikmynd og því verður áhuga- vert að fylgjast með leikstjóranum Doug Liman í framtíðinni. Heiða Jóhannsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.