Morgunblaðið - 27.01.2000, Blaðsíða 80
OLI.VER
Á MYNDBANDI 3. FEB.
PlnrgwMnMlí
iy\ I TraustsHá
|fSLGC& íslenskam
r\/ múrvörur1
Síðan 1972
Leitið tilboða! ■■ StBÍnprýöÍ
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA S691122, NETFANG: RITSTJ{S>MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTII
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Sameinað mjólkursamlag í Eyjafírði og S-Þingeyjarsýslu
Bændur eignast
þriðjung' hlutafjár
SAMVINNUFÉLAG mjólkur-
framleiðenda í Eyjafirði og S-Þing-
eyjarsýslu mun eignast allt að 34%
í félagi sem yfirtekur eignir og
rekstur mjólkursamlaganna á Ak-
ureyri og á Húsavík. Ekki er full
samstaða meðal framleiðenda um
niðurstöðuna, meðal annars vegna
þess að KEA skerðir eigið fé mjólk-
ursamlags síns um hálfan milljarð.
Lengi hefur verið deilt um eign-
arhald á mjólkursamlögunum á Ak-
Vureyri og Húsavík. Fyrirtækin hafa
verið skráð eign kaupfélaganna en
bændur gert kröfu um beinan eign-
arhlut. Fyrirhugað er að stofna eitt
hlutafélag um reksturinn og hafa
staðið yfir viðræður við kúabændur
um aðild þeirra.
500 milljónir teknar
Stjórn KEA samþykkti í gær að
heimila stjórnarformanni og kaup-
félagsstjóra að ganga frá samning-
um við bændur um allt að 34%
eignaraðild framleiðendasamvinnu-
félags kúabænda að hinu nýja
mjólkurfélagi, á móti 66% eign
KEA, gegn viðskiptasamningum
sem skuldbinda þá til að leggja alla
mjólk í samlagið í fimm ár.
Jafnframt verður gert hluthafa-
samkomulag þar sem bændum eru
tryggð jöfn áhrif á við kaupfélagið
á stjórnun félagsins, um kauprétt
bænda að hlut KEA og að greiðslur
á samkeppnishæfu hráefnisverði
hafi forgang fram yfir arðgreiðslur
til hluthafa.
Ekki er full samstaða meðal
mjólkurframleiðenda um ágæti
þessa samkomulags. Hópur bænda
krefst meirihlutaeignar bænda að
mjólkurfélaginu. Þá gera menn úr
hópnum athugasemdir við að KEA
muni taka til sín 500 milljónir af
eigin fé mjólkursamlags síns, áður
en það verður lagt inn í nýja félag-
ið.
■ KEA skerðir/40
Varavöllur í
Keflavík fyrir
geimskutluna
f NÆSTU ferð geimskutlunnar
bandarísku verður Keflavíkur-
flugvöllur einn af tíu varaflugvöll-
um fyrir hana á norðlægum slóð-
um. Sérstakt námskeið var haldið
hjá varnarliðinu í gær af því til-
efni.
Geimskutlan flýgur í upphafi
ferðar sinnar um norðlægar slóðir
áður en hún kemst út fyrir gufu-
hvolfið. Eru þá tilteknir nokkrir
varaflugvellir fyrir hana ef eitt-
hvað fer úrskeiðis í skotinu og
hún þarf að lenda skyndilega.
Friðþór Eydal, blaðafulltrúi varn-
arliðsins, tjáði Morgunblaðinu að
fulltrúi björgunarliðs geimskutl-
unnar hefði komið hingað til
lands og farið yfir ýmis atriði með
vamarliðinu og slökkviliði þess.
Geimskutlan þarf 8.500 feta
langa flugbraut en brautir Kefla-
víkurflugvallar eru 10 þúsund
feta langar og búa yfir öllum
nauðsynlegum aðfiugsbúnaði fyrir
geimskutluna. Farið var yfir ýmis
atriði er varða sjálfa móttökuna,
svo sem hvernig geimfararnir eru
aðstoðaðir við að komast út úr
skutlunni og hvernig þeim er
einnig hjálpað úr búningum sín-
um.
Á myndinni er Doug Hutten-
locker, framkvæmdastjóri björg-
unar geimskutlunnar, að ræða við
slökkviliðsmenn og starfsmenn
vamai-liðsins og þjálfa þá í við-
brögðum við móttöku geimskutl-
unnar ef til lendingar kemur á
Keflavíkurflugvelli.
ASI vill ræða
, við ríkisstjórn
um skattamál
FORYSTUMENN landssambanda
og stærstu aðildarfélaga Alþýðusam-
bands Islands ákváðu í gærmorgun
að óska eftir fundi með ríkisstjórn-
inni til að kynna henni ýmis sjónar-
mið samtakanna varðandi skattamál.
Er óskað eftir slíkum viðræðum hið
fyrsta.
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
ASI, sagði að félögin innan ASÍ væru
sammála um að setja fram nokkur
atriði varðandi skattamál í tengslum
JKVÍð kjarasamninga sem í hönd fara.
Fá ætti fund með fulltrúum ríkis-
stjórnarinnar til að leggja fram kröf-
ur um hækkun skattleysismarka og
að dregið yrði úr tekjutengingu
barnabóta. „Við höfum ekki mótað
nákvæmar kröfur ennþá en hug-
myndin er að fara á fund stjórnvalda
og lýsa hugmyndum okkar,“ sagði
Ari í samtali við Morgunblaðið í gær.
Jafnframt ætti að ræða um full-
gildingu á einni samþykkt Alþjóða
vinnumálastofnunarinnar sem snýr
að reglum um uppsagnir. Kvaðst
hann vona að af þessum umræðum
gæti orðið einhvem næstu daga.
Samherji selur í
Skagstrendingi
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SAMHERJI hf. á Akureyri hefur
selt 40,5% eignarhlut sinn í útgerð-
arfélaginu Skagstrendingi. Kaup-
endur eru Burðarás, Búnaðarbank-
inn, Olís, Tryggingamiðstöðin og
Höfðahreppur sem höfðu samráð um
^Vvkaupin. samkvæmt heimildum
N T^Iorgunblaðsins. Kaupverð er um
1.334,5 milljónir. Söluhagnaður Sam-
herja eru tæplega 300 milljónir.
Eftir viðskiptin á Burðarás 33,4% í
Skagstrendingi og er stærsti hlut-
hafinn. Höfðahreppur á nú 26%,
Tryggingamiðstöðin 12,3%, Búnað-
arbankinn 10% og Olís 8%. Þorsteinn
Már Baldvinssson, forstjóri Sam-
herja, segir að Burðarás og Höfða-
hreppur hafi viljað halda Samheija
frá því að hafa eðlileg áhrif á rekstur
Skagstrendings miðað við eignar-
hlut. Fjármunum fyrirtækisins hafi
því verið betur borgið annars staðar.
■ Burðarás/B2
I
F(u&fr^(si
• Á I C I A M n l
A ISLANDÍ/
Við ftjúgum
til London og Kaupmannahafnar i allt sumar
- á daginn!
Netferðir eru á www.visir.is
f>ú getur bókað aUan sólarbringinn
Samvinnuferðir
Landsýn
Óttast að hafís færist
nær siglingaleiðum
HAFÍS er nú í um 23 til 29 sjómílna
fjarlægð frá landi á Vestfjörðum að
því er fram kom í ískönnunarflugi
Landhelgisgæslu íslands í gær.
Kom í ljós að ísinn er 23 til 29 sjó-
mílur norður af Hornströndum og
24 sjómílur norður af Skagatá. Þór
Jakobsson, veðurfræðingur og
verkefnisstjóri hafísrannsókna Veð-
urstofu íslands, segir að ísröndin sé
nær landi nú en í meðalári vegna
langvarandi vestanáttar undanfarn-
ar vikur.
Óhagstætt
veðurútlit
Hann segir útlit fyrir að ísinn
muni áfram berast austur á bóginn
með straumnum og varar við því að
hann geti borist nær siglingaleiðum
á laugardag vegna þess að líkur séu
á norðaustan hvassviðri á þessum
slóðum um helgina.
„Enn er hægt að sigla norður fyr-
ir Horn,“ segir Þór en vegna veður-
útlitsins um helgina sé spurning
hvort ísinn geti færst nær landi og
orðið sjófarendum til ama. Hann
bendir því skipstjórnarmönnum á
að fara að öllu með gát. „Það er full
ástæða til þess að vara við að sigl-
ingaleiðir geti orðið varasamar,"
segir hann.
Að sögn Þórs er ísinn undan Vest-
Q'örðum all þéttur en samkvæmt
mælingum Landhelgisgæslunnar
mældist þéttleikinn 7-9/10 næst ís-
brúninni að vestanverðu en eftir því
sem austar dró var brúnin gisnari
eða um 5-7/10 og allt niður í 2-3/10.