Morgunblaðið - 27.01.2000, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 27.01.2000, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Vandi blaðanna Hæfileikaríkt og metnabarjullt fólk festist ekki í blaðamannastétt. Eftir að hafa verið búsettur í mörg ár í Englandi sakna ég sárt enskra fjöl- miðla. Hvergi í heiminum er að finna jafngott úrval góðra dagblaða og tímarita - og breska ríkisútvarpið BBC hefur löngum þótt bera af öðrum ljósvakamiðlum. A hverjum sunnudegi var veisla því sunnu- dagsútgáfur blaðanna eru sér- lega vandaðar, uppfullar af fjöl- breyttu og skemmtilegu lesefni. I Englandi vandist maður á að lesa dagblöð- VIÐHORF inafþvíað ----- þau voru Eftir Jakob F. skemmtileg Asgeirsson ogvelskrif- uð. Hér á landi flettir maður blöðunum hálfpartinn hugsunar- laust því maður á ekki von á að rekast á vel skrifaða grein sem mann þyrstir í að lesa. Margt skilur auðvitað á milli fjölmiðlun- ar í stóru engilsaxnesku löndun- um og á Islandi, svo sem eðlilegt er í ljósi stærðarmunar, en stundum finnst manni megin- munurinn einmitt vera vald fjölmiðlamanna á tungu sinni. í Bretlandi eru blaðamenn orðsins menn, þeir skrifa í blöðin vegna þess að þeir njóta þess að tjá sig í rituðu máli. I Bandaríkjunum fyrir þrjátíu árum var því jafnvel slegið föstu að góðir blaðamenn væru almennt orðnir betri penn- ar en flestir skáldsagnahöfund- ar: mannlífslýsingar bandarísku stórblaðanna væru fyllri og myndrænni en þær mannlífslýs- ingar sem finna mætti í skáld- sögum úr samtímanum. í ofan- álag keppast blöð í þessum löndum við að laða til sín fræga rithöfunda til að skrifa greinar. Blöðin vilja vera spegill samtíð- arinnar og til að svo geti verið þurfa þau auðvitað að hafa snjalla penna á sínum snærum. í Bretlandi eru t.d. skáldsagnahöf- undamir Martin Amis og Julian Barnes öðrum þræði blaðamenn í lausamennsku. Þeim er borgað hátt verð fyrir greinar þeirra vegna þess að þeir skrifa vel og hafa aðra og skarpari sýn á veru- leikann en fastir starfsmenn blaðanna. Á íslandi hefur á hinn bóginn tíðkast að greiða rithöf- undum sem vilja birta efni í dag- blöðum eftir lengd greina þeirra en ekki eftir gæðum! Islensk dagblöð eru full af mikilsverðum upplýsingum og fróðleik, en blaðamenn þeirra temja sér almennt ekki sjálfstæð vinnubrögð sem reynir á ritfærni þeirra. Sárasjaldan sér maður t.d. í íslensku blaði frásögn blaðamanns af fréttaviðburði þar sem reynt er að setja atburðar- ásina í rétt samhengi með því að styðjast við marga heimildar- menn og lýsa andrúmslofti með hæfilega myndrænum hætti. Yf- irieitt er gangurinn sá að viðtöl við sjónarvotta eru birt, hvert of- an í annað, og þannig er atburði kannski lýst á heilli opnu sem blaðamaðurinn gæti, með því að leggja dálítið á sig, sagt frá skil- merkilegar í sjálfstæðri frásögn á hálfri síðu. Blöðin endurspegla ekki samtíð sína eins og best verður á kosið ef blaðamennirnir sjálfir reyna ekki að lýsa mann- lífinu. Einn meginvandi íslenskrar blaðamennsku er að hæfileikar- íkt og metnaðarfullt fólk festist ekki í stéttinni. Undanfarna 2-3 áratugi hafa fjölmargir hæfi- leikamenn fengist við blaða- mennsku en stoppað stutt við. Þeir virðast ekki hafa fengið metnaði sínum svalað og því leit- að á önnur mið. Vafalaust eiga launakjörin hér nokkra sök, en meginástæðan er skortur á sam- keppni á blaðamarkaði. Blöðin finna ekki hjá sér knýjandi þörf til að halda í öflugt fólk því þau eiga það ekki á hættu að þeir fari til keppinauta. Þannig hverfur hæft fólk úr blaðamannastétt nánast á ári hverju. Eftir sitja vissulega nokkrir sem eru blaða- menn að náttúru, en líka margir sem hafa minni metnað og minni hæfileika en þeir sem fóru - ásamt ungu fólki sem finnst gaman að takast á við blaða- mennsku stuttan tíma áður en það finnur sér framtíðar- starfsvettvang. Afleiðingin er m.a. sú að blöðin eru almennt ekki nógu vel mönnuð, sem sýnir sig t.d. í því að víða er sláandi munur á getu og hæfileikum rit- stjóra blaðanna og annarra blaðamanna. Það hefur síðan í för með sér föðurlega stjórnun sem öðrum þræði er dragbítur á sjálfstæð vinnubrögð. Ekki er Iíklegt að samkeppni aukist á íslenskum blaðamarkaði á næstu áratugum. Fjölmiðla- markaðurinn er í nokkuð föstum skorðum, þ.e. sá hluti markaðar- ins sem byggist á að selja neyt- endum áskrift. Útgjöld vegna fjölmiðlanotkunar eru fyrir flesta u.þ.b. 10.000 kr. á mánuði - sem gerir það að verkum að fólk getur ekki bætt við sig nýj- um fjölmiðli. Nýir fjölmiðlar sem vilja hasla sér völl bjóða því upp á ókeypis notkun, svo sem Skjár 1, ýmsar útvarpsstöðvar og vef- síður á Netinu. Ef nýtt alvöru dagblað liti dagsins ljós þyrfti það að höggva stórt skarð í les- endahópa Morgunblaðsins og DV til að eiga sér tilverugrund- völl; það gæti m.ö.o. ekki þrifist við hliðina á Morgunblaðinu og DV jafnöflugum og þau eru nú. En þrátt fyrir viðvarandi sam- keppnisskort er það engu að síð- ur trú mín að íslensk blöð muni í framtíðinni líkjast meir engil- saxneskum blöðum og leggja aukna áherslu á góðan texta og skarpar greiningar. Netið mun ýta undir þessa þróun. Smám saman mun mikið af upp- lýsingaflóðinu sem blöðin eru uppfull af núna fara beina leið á Netið og blöðin verða þá í aukn- um mæli að útskýra og túlka það sem gerist. Það aðsenda efni sem blöðin birta nú mun líka í fram- tíðinni að miklu leyti fara á Netið og aðeins það besta verður prentað í fullri lengd. Barátta umhverfisverndarsinna mun leggja lóð á vogarskálina, aðeins verulega góður texti mun rétt- læta allt það skógarhögg sem þarf í pappír blaðanna. Þróun í þessa átt er afar brýn fyrir fram- tíð íslenskrar tungu. Fái ungt fólk ekki svalað þörf sinni fyrir hágæða lesefni og skarpar grein- ingar á þjóðfélagsmálum og nú- tíma mannlífi í íslenskum dag- blöðum mun það í enn meiri mæli en orðið er leita á vit enskunnar. Að svo mæltu slæ ég botn í þessa Viðhorfspistla mína og þakka lesendum góðar viðtökur. SIGURGEIR ÞORS TEINSSON + Sigurgeir Þor- steinsson fæddist í Háholti í Gnúp- verjahreppi 11. júlí 1904. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 17. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Þorsteinn Bjarnason, bóndi og fræðimaður og Ingi- björg Þorsteinsdótt- ir í Háholti. Þau eignuðust 14 börn og komust 13 þeirra á legg, en eftir lifa Sigríður og Bergþóra. Sigurgeir ólst upp í Háholti en eignaðist heimili I Stóru Más- tungu í sömu sveit 1924 þar sem Á1. áratug þessarar aldar voru bú- skaparhættir og híbýli fólks líkust því sem verið hafði frá upphafi byggðar í landinu. Sigurgeir Þor- steinsson var af þeirri kynslóð sem lifði það að alast upp við svipaðar að- stæður og böm höfðu gert um aldir og sjá veröldina breytast meira en hún hafði gert um þúsundir ára. Hann ólst upp í stórum systkinahópi, en hefur ungur þurft að fara að heim- an og vinna á öðrum bæjum eins og börn og unglingar gerðu. Heimilið hefur þó verið bjargálna og vel hugsað um bömin, því af 14 bömum dó aðeins eitt í bemsku. Þeg- ar Geiri var nítján ára dó Ingibjörg móðir hans frá fimm yngri systkinum hans og var tekið til þess hve kaldur og sorglegur dagur það var þegar hún var borin til grafar á sama tíma árs og við kveðjum Geira nú. Þó að námsgáfur Geira og systkina hans væm góðar og grúskarinn og far- kennarinn Þorsteinn í Háholti faðh- þeirra hafi eflaust haft skilning á löngun þeirra til að menntast, gáfu veraldleg efni ekki tilefni til þess. Þeir sem þekktu Geira fóm þess þó ekki duldir að vel hefði hann getað lært. Hann hélt námsgáfunum til hinstu stundar og oftar en ekki sló hann okkur við sem yngri vomm þeg- ar rætt var um málefni líðandi stund- ar. Þó að ekkert hafi orðið úr skóla- göngu nýttust meðfæddar gáfur hans og hagleikur vel. Geiri var kominn af smiðum og sagði faðir hans um föður sinn og afa, Bjama og Þorstein Jör- undsson í Brúnavallakoti, Illugason- ar Skálholtssmiðs, að þeir væm „þjóðhagasmiðir". Þorsteinn í Brúna- vallakoti var afi beggja foreldra Sig- urgeirs, því þau vora bræðraböm. Eg hygg að það hafi aldrei hvarflað að okkur sem ólumst meira eða minna upp í Gnúpverjahreppi upp úr miðri öldinni að Geiri væri ekki há- menntaður húsasmiður. Hvar sem verið var að byggja var Geiri Þor- steins smiðurinn og stjómaði smíð- um og steypulögn. Þannig var hann þátttakandi í því að umbreyta sveit- inni sinni úr miðaldasveit í byggðalag framtíðarinnar. Þegar ég heimsótti hann á Dvalarheimilið Ás ræddum við aldrei um það sem liðið var heldur spurði hann mig hvort ég hefði nokk- uð komið inn í Sandafell nýlega og séð hvemig gengi með virkjunina. Þó að svo bæri við að ég hefði farið þar um var það hann sem gat frætt mig um gang mála og stærð og mál mannvirkjana á Þjórsársvæðinu. Þannig horfði Geiri til framtíðarinn- ar. Sigurgeir var skráður til heimilis í Stóm Mástungu eftir að faðir hans brá búi í Háholti 1924 og má vera að tilviljun hafi ráðið, því frændsemi var ekki náin. í Mástungu eignaðist Geiri fjölskyldu og var alúð hjónanna Ragnheiðar og Haralds og bama þeirra slík við hann, að var hann þeim sem faðir og afi. Síðustu árin dvaldi hann á Dvalarheimilinu Ási við gott atlæti og hlýhug starfsfólks og sam- býlinga. Þorsteinn Ólafsson. Sigurgeir Þorsteinsson er látinn. Það er ótrúlegt hversu erfitt getur hann var skráður til heimilis til æviloka. Síðustu þrjú árin dvaldist hann á Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði. Um og upp úr 1940 starfaði hann um nokkurra ára bil í Reykjavík, meðal annars á trésmíða- verkstæði Kristins vagnasmiðs. Eftir það flutti hann aftur austur í Eystri Hrepp þar sem hann vann við húsasmíðar. Sigurgeir var ókvæntur og barnlaus. Utför Sigurgeirs fer fram frá Stóra-Núpskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. verið að kveðja 95 ára gamlan mann, saddan lífdaga. Kannski er það vegna þess að hann var alltaf svolítið stór í sér, þó að htið bæri á. Það er eins og fjall sem maður hefur alltaf fyrir aug- unum sé horfið, þá fyrst sér maður hvað fjallið var fallegt og átti ríkan þátt í landslaginu. Margar minningar vakna við þessi leiðarlok; spilað við Kolla og Geira, teflt og samvinna við ýmis störf. Geiri hafði alltaf áhuga á öllum framkvæmdum, jafnt litlum sem stómm, það var sama hvort um var að ræða htinn skúr uppi í sveit eða virkjunarframkvæmdir á fjöllum uppi. Hann studdi alltaf framtak og fmmkvæði, hvemig sem það kom fram. Einhverju sinni skrifaði ég stjórn- málagrein í Moggann, Geiri var stóránægður, ekki endilega með greinina eða sjónarmiðin, heldur framtakið. Þrátt fyrir að vera mikill dugnaðarmaður og hafa unnið alla ævi eins og kraftar leyfðu kom hann á óvart með því að sættast við dvín- andi starfsþrek og elli. Geiri hafði gaman af skepnum og óhætt er að segja í fullri alvöra að hann hafi verið vænn við menn og málleysingja. Hann lifði í sátt við alla en var snjall að nýta tækifærin sem gáfust til að bregða birtu á daglega lífið. Hann þakkaði alltaf vel fyrir allt sem var gert fyrir hann en ætlaðist ekki til þakklætis fyrir það sem hann gerði fyrir aðra. Að lokum vil ég þakka allar minn- ingamar og samvemstundimar, hér hefur verið stiklað á stóm, Geiri var heldur aldrei fyrir tafir eða mála- lengingar, en vildi að allt gengi vel, helst glimrandi vel. Bjarai Haraldsson. Vammlausum hal og vítalausum fleina, vant er ei boglist, þarf hann ei að reyna. Þessar aldagömlu Ijóðhnur koma mér i hug þegar ég minnist Geira, eins og hann var jafnan nefndur af kunnugum. Á fyrstu áratugum aldarinnar var ekki mikið um skólagöngu hjá bam- mörgum fjölskyldum þar sem ekki var auður í garði. Farkennsla til fermingamndirbúnings og síðan ekki söguna meir. Geiri hefur notið góðs atlætis í bemsku og víst er að hann erfði mannkosti foreldra sinna. En fljótlega á unglingsámm fór hann að heiman og gerðist vinnumaður, stundum kaupamaður eða vetrar- maður á bæjum í Gnúpverjahreppi. Hann kom sér hvarvetna vel, var góður verkmaður og var sama að hveiju hann gekk, hvort sem það var heyskapur að sumrinu eða vetrar- gegningar. Einnig kom fljótt í ljós að hann var laghentur vel og úrræða- góður að lagfæra ýmislegt sem aflaga fór. En um 1940 breytti hann til, flutti til Reykjavíkur og stundaði almenna verkamannavinnu á tímabih, en undi því ekki vel, og réð sig á trésmíða- verkstæði Kristins vagnasmiðs sem var þekkt á sinni tíð og hafði á sér gott orð. Þar vann hann um árabil og líkað vel, enda áhugi á smíðum frá barnæsku. Þar fékk hann líka æfingu í meðferð véla þeirra tíma og ýmsu því öðm sem að trésmíði laut. Oft síð- ar minntist hann þess tíma með ánægju og bar bæði yfirmönnum og samstarfsmönnum vel söguna. Ann- ars held ég að Geira hafi aldrei falhð vel að búa í Reykjavík og þegar hann hætti að vinna á trésmíðaverkstæð- inu flutti hann aftur austur í Gnúp- verjahrepp. Það þykir kannski sum- um ótrúlegt í dag en upp úr þessu fór hann að taka að sér byggingar í hreppnum, íbúðarhús og útihús, oft- ast einn en einstöku sinnum með öðr- um. Það var mikið byggt á þessum tíma og ég hygg að Geiri hafi byggt meirihluta þeirra bygginga sem risu í Gnúpverjahreppi næstu þrjá áratug- ina eða fram á áttunda áratug, þótt ekki hefði hann skólagöngu né meist- arabréf. En hann hafði eðlisgreind, gott verksvit og samviskusemi, og ég veit ekki til að þær byggingar sem hann byggði hafi staðið sig nokkuð verr en aðrar frá þessum tíma. Geiri hafði lögheimih í Stóra-Más- tungu frá 1924 þegar hann var þar vetrarmaður. Það atvikaðist svo, að þegar hann flutti í hreppinn eftir dvölina í Reykjavík, varð hann fastur heimilismaður í Mástungu, allt þar til hann flutti að Ási í Hveragerði fyrir þremur áram. Þegar börn okkar Rögnu uxu úr grasi hændust þau að Geira. Hann var þeim sannarlega betri en enginn í uppvextinum, og er þau fluttu að heiman fylgdist hann vel með hvemig þeim gengi. Þegar yngsti sonur okkar fór að vappa um var Geiri að mestu hættur smíðum utan heimilis og hafði því rneiri tíma til að sinna honum. Með þeim tókst sérstaklega náið og gott samband sem ekkert breyttist þó að Öm færi að heiman til náms og starfa, og það var engin tilviljun að hann sat við rúmstokk Geira á Landspítalanum þar til yfir lauk. Við þökkum af alhug öll handtök hans í Stóm-Mástungu, vináttu hans og hlýhug okkur til handa og bömum okkar. Ragnheiður og Haraldur Bjarnason. „Hann Sigurgeir lést í morgun" var mér sagt á Landsspítalanum þeg- ar ég ætlaði að líta til hans Geira mánudaginn 17. janúar síðastliðinn. Ég verð að játa að ég upplifði mig dá- htið eins og munaðariausa í nokkrar mínútur á eftir, svo sterkt er líf hans Geira samofið tilvem minni. Ég man ekki eftir mér öðmvísi en að Geiri væri til staðar, að minnsta kosti ein- hvers staðar nálægt. Hann átti lög- heimili heima í Stóm-Mástungu frá þvi ég var bam að aldri, vann áram saman við smíðar í sveitinni og dvaldi þá einungis heima á hátiðum og stundum í stuttum fríum. Þegar svo verkefni minnkuðu og aldurinn færð- ist yfir kom hann alfarið heim og bjó hjá foreldmm mínum á meðan heilsa og kraftar leyfðu, jafnvel örhtið leng- ur. Síðustu árin dvaldi hann á Dvalar- heimilinu Ási í Hveragerði og undi þar hag sínum vel. Geiri var sérstaklega bamgóður og þess naut ég og systkini mín öll ríkulega. Vanalega tók hann okkur að sér - mjög ákveðið - á vissum aldri. En lengi vel bættist í hópinn, við emm sjö talsins, þá minnkaði oft athyglin á þeim sem kominn var í skóla og næsti fékk að vera aðalnúm- erið. Þar til kom að þeim yngsta, þá var enginn til að taka við þannig að Geiri og Öm urðu svona eins og bræður, reyndar var 70 ára aldurs- munur á þeim, en það gerði nákvæm- lega ekkert til. Samband þeirra var alla tíð einstakt og er gott til þess að hugsa að einmitt Órn var hjá honum þegar hann kvaddi þennan heim 95 ára að aldri. Hugsun hans og minni var alveg skýrt til síðasta dags, það var raunar ótrúlegt hvað hann var glöggur og fylgdist vel með öllu því sem skipti hann máli. Því það var heilmargt: byggingar, landbúnaður, lestur góðra bóka, sjónvarp, Sjálf- stæðisflokkurinn o.fl.o.fl. Moggann las hann til síðasta dags þótt sjónin væri vissulega farin að daprast. Um ágæti þessa manns ætla ég ekki að fjölyrða frekar, en víst er að hann Geiri var góður sínum og okkur systkinum og foreldmm okkar alveg sérstaklega. Fyrir það er ég þakklát. Ég bið Geira allrar blessun- ar á nýjum slóðum. Vaka Haraldsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.