Morgunblaðið - 27.01.2000, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Barak bjartsýnn
á nýjar viðræður
Jerúsalem. AP, AFP, Reuters.
FRIÐARVIÐLEITNI ísraela og
Sýrlendinga beið hnekki í gær er
báðir aðilar tilkynntu að þeir hygð-
ust ekki senda séfræðinga til samn-
ingaviðræðna í Washington í næstu
viku eins og ráð var fyrir gert. Á
sama tíma sagði Ehud Barak á
fréttamannafundi í Stokkhólmi, þar
sem hann var staddur á alþjóðlegri
ráðstefnu um helförina, að hann
væri bjartsýnn á að viðræður
mundu hefjast á næstu vikum.
Sýrlendingar krefjast þess enn að
ísraelar fallist á að skila þeim aftur
Gólanhæðum óskiptum, sem ísrael-
ar náðu á sitt vald árið 1967. Stjórn-
völd í Sýrlandi neita að ræða aðra
þætti í hugsanlegu fnðarsamkomu-
lagi ríkjanna fyrr en ísraelar fallast
á þetta. Ehud Barak, forsætisráð-
herra Israels, hefur sagt að hann sé
reiðubúinn að afhenda Sýrlending-
um mestan hluta hæðanna en ein-
ungis eftir að samið hafí verið um
öryggis- og varnarmál. Stefnt var að
því að sérfræðingar ríkjanna færu
til Washington í næstu viku til að
ræða vinnuplagg sem bandarísk
stjómvöld tóku saman í upphafi
mánaðarins þegar vikulöngum frið-
arviðræðum ríkjanna lauk án telj-
andi árangurs. Vonast hafði verið til
þess að vinnuplaggið gæti orðið
grundvöllur frekari viðræðna.
Ehud Barak sagðist í gær vera
þess fullviss að friðarviðræður gætu
hafist að nýju innan nokkurra vikna.
„Ég held að viðræður muni hefjast á
næstu vikum. Ég veit ekki hvenær,
e.t.v. eftir þrjár eða fjórar vikur,“
sagði Barak. „Ég er enn fullviss um
að Assad er sterkur og áreiðanlegur
leiðtogi," bætti hann við og átti þar
við Hafez al-Assad Sýrlandsforseta.
Friðarviðræður ríkjanna hófust
að nýju eftir fjögurra ára hlé í des-
ember á síðasta ári. Ríkin hafa
formlega verið í stríði allt frá stofn-
un ísraelsríkis árið 1948.
Krefst þess að Sýrlendingar
stöðvi árásir í Líbanon
Aðstoðarvarnarmálaráðherra
ísraels, Ephraim Sneh, krafðist
þess í gær að Sýrlendingar beittu
áhrifum sínum til þess að stöðva ár-
ásir Hezbollah-skæruliða á stöðvar
ísraelska hersins í Líbanon. ísraelar
halda því fram að Sýrlendingar geti
í krafti stöðu sinnar í Líbanon knúið
skæruliða til að hætta árásum. „Ef
Sýrlendingum er alvara með friðar-
viðræðunum, er ekki nema eðlilegt
að við ætlumst til þess að þeir stöðvi
árásirnar,“ sagði Sneh í samtali við
útvarpsstöð ísraelska hersins.
Einn ísrelskur hermaður lést í
átökum við Hezbollah í Líbanon á
þriðjudag.
Palestínumenn sagðir
leggja fram tillögur
Fjölmiðlar í ísrael skýrðu frá því
að aðalsamningamenn Israela og
Palestínumanna hefðu komið saman
í Jerúsalem í gær.
Áður hafði ísraelskt dagblað sagt
að Palestínumenn hefðu lagt fram
tillögur um endanlegt friðarsam-
komulag við ísraela sem gengju út
það að Israel fengi þau svæði á vest-
urbakka Jórdanár þar sem gyðingar
hafa tekið sér búsetu. Blaðið
Haaretz sagði að tillögurnar hefðu
verið kynntar á fundi leiðtoga Pal-
estínumanna, Yassers Arafats, og
Bills Clintons Bandaríkjaforseta í
Washington í síðustu viku.
Náinn aðstoðarmaður Arafats
neitaði því í gær að nokkuð væri
hæft í fréttinni, en bandarískir emb-
ættismenn, sem ekki vildu láta
nafna sinna getið, sögðu fréttina að
hluta til sanna.
Samkvæmt frétt blaðsins vilja
Palestínumenn að ísraelar fallist
formlega á að þúsundum palest-
ínskra flóttamanna, sem búa í
nágrannaríkjum ísraels, verði leyft
að snúa aftur heim. Einnig segir
blaðið að tillögurnar geri ráð fyrir
að Jerúsalem verði skipt og að Pal-
estínumenn fái yfirráð yfir austur-
hlutanum, þar sem þeir eru í meiri-
hluta.
Samkvæmt áætlun sem samþykkt
var síðastliðið haust áttu drög að
endanlegu friðarsamkomulagi þjóð-
anna að vera tilbúin 13. febrúar á
þessu ári. Undanfarna daga hafa þó
margir dregið í efa að það markmið
muni nást.
Mikill öryggisviðbúnaður var í Stokkhólmi í gær þegar ráðstefnan um helförina var sett í borginni.
600 manns sitja Helfararráðstefnu í Stokkhólmi
Fortíðar minnst með
augun á nútímanum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra,
norrænir starfsbræður hans og um
fimmtán aðrir þjóðarleiðtogar voru
í gær viðstaddir setningu ráðstefnu
sænsku stjómarinnar um helförina.
Ráðstefnan er sprottin af átaki
stjórnarinnar til að minnast helfar-
arinnar.
Hvorki Bill Clinton Bandaríkja-
forseti né Tony Blair, forsætisráð-
herra Breta, mæta, en meðal gesta
eru Ehud Barak, forsætisráðherra
Israels, Massimo D’AIema, forsæt-
isráðherra Italíu, Lionel Jospin,
forsætisráðherra Frakklands, Ger-
hard Schröder, kanslari Þýska-
lands, og Vaclav Havel, forseti
Tékklands.
Mikill viðbúnaður er í Stokkhólmi
vegna ráðstefnunnar, þar sem koma
saman fulltrúar frá 47 löndum, bæði
stjórnmálamenn, embættismenn,
fulltrúar félagasamtaka og fræði-
Þingflokkur Samfylkingarínnar
á ferð um Suðurland
í daq verða þingmenn Samfylkinqarinnar
á ferð um Suðurland
Fyrir hádegi verða þeir í Búrfellsvirkjun og á Flúðum.
12.30-13.30 Hádegisverður á Hótel Selfossi
þar sem fólki gefst kostur á að hitta
þingmennina að máli.
Síðdegis verður farið í
fyrirtæki á Selfossi og
Þorlákshöfn, m.a. Set,
Mjólkurbú Flóamanna,
Sjúkrahús Suðurlands og
Árnes í Þorlákshöfn.
17.00 Opinn þingflokksfundur
á Hótel Ork um stjórnmálaviðhorfið.
Samfylkingarfólk velkomið.
Þingflokkur Samfylkingarinnar.
C Samfylkingin
menn, alls um 600 manns. í sendi-
nefndum flestra landanna eru einn-
ig fulltrúar gyðinga í viðkomandi
löndum. Um 800 blaðamenn eru
skráðir á ráðstefnuna.
Auk 4.000 lögreglumanna, sem
gæta gestanna, hafa sænsk yfirvöld
í fyrsta skiptið leyft erlendum lög-
reglumönnum að athafna sig á
sænskri grund. Undanþágan var
veitt, þar sem ýmsar sendinefndir,
meðal annars sú ísraelska setti það
sem skilyrði að eigin lífverðir kæmu
með. Það eru því vopnaðir, erlendir
lögreglumenn á götum Stokkhólms
þá þrjá daga, sem ráðstefnan stend-
ur. Henni lýkur á föstudag.
Sögulegur sess
Perssons „dýrðlegur"
„Ég veit ekki hvern sess þú munt
skipa í sænskri sögu, en ég vona að
hann verði veglegur. En ég get sagt
þér forsætisráðherra að þinn sess í
sögu gyðinga verður dýrðlegur,"
sagði Élie Wiesel, þegar hann
ávarpaði Göran Persson, forsætis-
ráðherra Svía, og aðra gesti á
þriðjudagskvöldið á aðfarasam-
komu ráðstefnunnar í sýnagógunni,
samkunduhúsi gyðinga, í Stokk-
hólmi. Persson er almennt þökkuð
ráðstefnan, ekki aðeins vegna þess
að hann er húsbóndinn, heldur af
því hann hefur unnið markvisst að
því að helförin og lærdómur hennar
gleymdist ekki.
Það var þó ekki aðeins fjallað um
sögulegt efni í upphafi ráðstefnunn-
ar. Michael Melchior, ráðherra frá
ísrael, gerði framgang Jörg Haid-
ers í Austurríki að umræðuefni nú
þegar horfir í að flokkur Haiders
setjist í ríkisstjórn. „Þessi maður og
kenningar hans eru móðgun við
mannlega siðferðistilfinningu,“
sagði Melchior skjálfandi röddu.
A blaðamannafundi Göran Pers-
sons og Barak í gærmorgun spurði
fréttamaður ísraelska sjónvarpsins
Persson hvað hann hygðist segja er
hann hitti Viktor Klima, kanslara
Austumkis, einn gestanna á ráð-
stefnunni. Persson sagði að enn
væri óljóst hvernig færi með stjórn-
armyndunina í Austurríki, en
stefnuskrá flokks Haider væri
vissulega ekki í samræmi við stefn-
umið Evrópusambandsins um um-
burðarlyndi og mannréttindi.
Ábyrgð austurríska Ihaldsflokks-
ins, sem hugleiðir stjórnarsamstarf
við Haider, væri mikil. Á blaða-
mannafundi forsætisráðherranna
tveggja sagðist Barak bjartsýnn á
yfirstandandi friðarviðræður, bæði
vul Sýrlendinga og Palestínumenn.
í ávarpi Edgar Bronfmans, for-
manns Álþjóðasambands gyðinga,
hnykkti hann á að ekki ætti aðeins
að muna helförina, heldur beina
kröftunum að því að hindra atburði
eins og í Rúanda, Bosníu og Kamb-
ódíu. Auk fundarhalda eru haldnar
ýmsar sýningar tengdar helförinni,
meðal annars minningarsýning um
Raoul Wallenberg, starfsmann
sænsku utanríkisþjónustunnar, sem
bjargaði fjölda gyðinga frá útrým-
ingarbúðum Þjóðverja áður en hann
var handtekinn af Rússum. Örlög
hans hafa aldrei verið fullskýrð.
Athyglin beinist að
samstarfí Svía og Þjóðveija
Ráðstefnan og aðdragandi henn-
ar hefur ekki aðeins rifjað upp hel-
förina, heldur vakið upp miklar um-
ræður í Svíþjóð um tengsl Svía og
Þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni.
Fyrr í þessum mánuði sýndi
sænska sjónvarpið heimildamynd
um Svía, sem störfuðu fyrir þýska
herinn á stríðsárunum. Meðal ann-
ars var rætt við aldraðan Svía, sem
sagði frá starfi sínu sem fangelsis-
vörður í Treblinka-útrýmingarbúð-
unum, þar sem um 900 þúsund gyð-
ingar voru myrtir.
I þættinum sagði gamli maðurinn
að hann hefði aðeins átt að sjá til
þess að fangarnir strykju ekki og
lægju ekki aðgerðarlausir. Myndin
vakti mikla athygli, því eftir stríðið
var enginn gaumur gefinn að því í
Svíþjóð að töluverður hópur Svia
hefði starfað fyrir Þjóðverja. Svíar
huguðu ekki að því eftir stríð hvort
einhverjir sænskir þegnar hefðu
gerst sekir um stríðsglæpi og engin
slík réttarhöld voru haldin þar.
I kjölfar þessa þáttar hefur Pers-
son heitið því að sænskum lögum
verði breytt, svo hægt verði að
stefna mönnum fyrir stríðsglæpi í
síðari heimstyrjöldinni. I ávarpi
sínu í sýnagógunni sagði Persson að
ráðstefnan gæfi Svíum einnig tilefni
til að rifja upp sína sögu, en hann
hefur hingað til ekki fjölyrt um þau
efni.
Það hefur einmitt farið fyrir
brjóstið á mörgum Svíum hve mjög
Persson hefur lagt áherslu á hetjur
eins og Wallenberg í umræðum um
sænska helfararátakið. I leiðara í
Expressen nýlega sagði að þegar
Persson ávarpaði ráðstefnuna ætti
hann ekki aðeins að gera sér tíðrætt
um sænsku hetjurnar, heldur rifja
upp að sænska stjórnin fór fram á
það við þýsku stjórnina að hún
stimplaði G fyrir gyðinga í vegabréf
þeirra og þagði svo lengi þunnu
hljóði um helförina.
I ljósi þessa hafa margir Svíar
spurt undanfarið af hverju sænska
stjórnin hafi allt í einu nú svo mik-
inn áhuga á helförinni og sögu Svía
á stríðsárunum.