Morgunblaðið - 27.01.2000, Side 40

Morgunblaðið - 27.01.2000, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUD AGUR 27. JANÚAR 2000 41 iMwgtwiMD&tti STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VERKLAGSREGL- UR OG VIÐ- SKIPTAHÆTTIR BANKAR og stærri verðbréfafyrirtæki hafa sett sér verk- lagsreglur, sem byggjast á lögum um verðbréfaviðskipti frá árinu 1996. Vera má, að verklagsreglurnar séu ekki ná- kvæmlega eins hjá fyrirtækjunum en ætla verður að mikið samræmi sé þar á milli m.a. vegna þess, að þáverandi banka- eftirlit yfirfór reglurnar hjá hverju þeirra fyrir sig. I 7. gr. verklagsreglna Búnaðarbanka íslands hf. segir svo: „Starfsmönnum bankans er óheimilt að eiga viðskipti með önnur verðbréf en þau, sem skráð eru á opinberum verðbréfa- markaði eða ganga kaupum og sölum á öðrum skipulegum markaði, sem starfar reglulega og er opinn almenningi." í svari við fyrirspurn frá Morgunblaðinu upplýsti Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbankans, hér í blaðinu sl. laugar- dag, að nokkur hópur starfsmanna bankans hefði keypt á síð- asta ári hlutabréf í móðurfélagi íslenzkrar erfðagreiningar og fengið til þess undanþágu frá ofangreindum reglum. Stefán Pálsson rökstuddi undanþágurnar með því, að ríkið sjálft hefði veitt starfsmönnum Búnaðarbanka og Landsbanka heimild til þess að eignast hluti í bönkunum í lokuðu útboði áð- ur en bankarnir tveir höfðu verið skráðir á Verðbréfaþing. Jafnframt kom fram, að ekki var um að ræða boð um undan- þágur til allra starfsmanna bankans heldur var undanþága veitt þeim starfsmönnum, sem höfðu frumkvæði um að leita eftir því. I framhaldi af svörum bankastjóra Búnaðarbanka Islands beindi Morgunblaðið sömu spurningu til annarra banka. Hall- dór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka íslands, upplýsti að í einu tilviki, snemma á síðasta ári hefði starfsmönnum Landsbréfa verið veitt „afmörkuð undanþága gegn mjög stíf- um skilyrðum um langtímaeignarhald á viðkomandi bréfum". Bjarni Ármannsson, forstjóri FBA, sagði í samtali við Morgunblaðið, að fyrirtækið hefði ekki veitt slíkar undanþág- ur nema í örfáum tilvikum, þar sem starfsmönnum hefði verið leyft að kaupa hluti í íþróttafélögum fyrir litlar fjárhæðir. Hann sagði jafnframt: „Við teljum okkur hreinlega ekki í stakk búin til þess, þar sem verklagsreglurnar eru staðfestar af Fjármálaeftirlitinu og sú stofnun hefur ekki staðfest neinar undanþáguheimildir frá þeim.“ í Morgunblaðinu í gær er upplýst, að íslandsbanki hafi veitt undanþágur frá þessari reglu. I Morgunblaðinu í dag kemur fram, að hvorki Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis né Sparisjóður Hafnarfjarðar hafi sett verklagsreglur og þar af leiðandi hafa starfsmenn þeirra ekki þurft að leita eftir undan- þágum. Hins vegar séu stífar verklagsreglur hjá Kaupþingi og ekki vitað til þess, að undanþágur hafi verið veittar frá þeim. í september sl. leitaði FBA eftir samþykki Fjármálaeftir- litsins við því að verklagsreglum bankans yrði breytt og starfsmenn gætu stundað viðskipti með óskráð bréf. Þeirri ósk var hafnað. Hins vegar virðist Fjármálaeftirlitið ekki hafa gert athugasemdir við undanþágur, sem aðrir bankar hafa veitt án þess að leita samþykkis þess. Þessi mismunun gagn- vart einstökum fjármálafyrirtækjum vekur óneitanlega at- hygli. Af þessu má ljóst vera, að fjármálafyrirtækin standa með mjög mismunandi hætti að þessum málum. Og augljóslega er mikill munur á því, hvort starfsmenn fá, væntanlega af tilfinn- ingaástæðum, heimild til að kaupa hlutabréf í íþróttafélögum, þar sem hagnaðarvon sýnist vera mjög takmörkuð ef nokkur, eða hvort um er að ræða viðskipti með hlutabréf í fyrirtæki á borð við Islenzka erfðagreiningu. Þeir sem haft hafa aðstöðu til að kaupa hlutabréf í því fyrir- tæki hafa augljóslega hagnast verulega og í sumum tilvikum um háar fjárhæðir. Augljóst er, að óheppilega hefur verið staðið að þessum mál- um. Það er mikilvægt að reglurnar, sem settar eru séu skýrar og að þeim sé fylgt. Undanþágur vekja tortryggni. En jafn- framt er þýðingarmikið, að reglurnar séu raunsæjar þannig að þær bjóði ekki heim tilraun til misnotkunar eða að fram hjá þeim sé farið. Bersýnilegt er, að þessum umræðum er ekki lokið. Fyrir Al- þingi liggur frumvarp, sem ætlað er að styrkja stöðu Fjár- málaeftirlitsins. Ætla má, að Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra verði beðin um að gefa þinginu ítarlega skýrslu um þessi viðskipti. Jafnframt er ljóst, að fyrirtækin sjálf vinna að endurskoðun þessara reglna. Þar þarf að vera fullt sam- ræmi á milli þannig að starfsmönnum innan einstakra fyrir- tækja finnist ekki að þeim sé mismunað eða að mismunur sé á milli fjármálafyrirtækja, þannig að starfsmönnum finnist ekki að starfsfélagar þeirra í öðru fyrirtæki njóti forréttinda um- fram þá. I þessum efnum þarf að ríkja jafnræði, sem jafnframt stuðlar að trausti út á við. Samið um allt að 34% eign bænda í sameinuðu mjólkursamlaffl á Norðurlandi eystra KEA skerðir eigið fé mjólkur- samlagsins um hálfan milljarð Samkomulag er að nást í deilu kaupfélaga og mjólkurframleiðenda um eignarhald mjólkursamlaganna á Akureyri og Húsavík. Samkvæmt drögum eignast félag mjólkur- framleiðenda allt að 34% í hlutafélagi um rekstur mjólkurstöðvanna gegn fimm ára inleggsskyldu. Aður mun KE A taka til sín 500 milljónir kr. af eigin fé mjólkursamlags- ins á Akureyri. Ekki er full samstaða meðal mjólkurframleiðenda um þessa niðurstöðu, að því er fram kemur í grein Helga Bjarna- sonar, en hópur bænda gerir kröfu um meirihlutaeign bænda. Morgunblaðið/Kristján Formaður KEA og samningamenn bænda fara yfir drög að samningi um aðild bænda að nýju mjólkurfélagi, f.v. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Sig- urgeir Hreinsson og Haukur Halldórsson. Landeigendur óánægðir á fjölmennum fundi vegna kröfu- gerðar um þjóðlendur í afréttum Arnessýslu Landeigendur íjölmenntu á fund í fyrrakvöld, þar sem kröfugerð ríkisins um þjóðlendur í Árnessýslu var rædd. Kröfugerð ríkisins þvert á landamörk STJÓRN Kaupfélags Eyfirð- inga samþykkti í gær að heimila stjórnarformanni og kaupfélagsstjóra að ganga frá samkomulagi við viðræðunefnd mjólkurframleiðenda í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu um eignaraðild framleiðenda að mjólkursamlögunum á grundvelli samningsdraga sem liggja fyrir. Stofnuð hafa verið einka- hlutafélög um mjólkursamlögin, MSKEA ehf. um samlagið á Akureyri og MSKÞ ehf. um samlagið á Húsavík og á KEA félögin að öllu leyti. Félög- in verða sameinuð í eitt félag. Framleiðendasamvinnufélag kúa- bænda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu mun eignast allt að 34% í hinu nýja fé- lagi, á móti að minnsta kosti 66% hlut KEA, gegn því að leggja fram bind- andi viðskiptasamninga við framleið- endur um að leggja inn í samlagið að minnsta kosti 99% af þeirri mjólk sem framleidd er á svæðinu. Verða þeir að skila inn þessum innleggsloforðum í ágúst. Fyrir hvert prósentustig mjólkurframleiðslunnar, sem ekki næst samkomulag um, minnkar eign- araðild bænda um 1%, þannig að ef lagðir verða fram bindandi viðskipta- samningar fyrir 95% mjólkurmagns- ins mun framleiðendasamvinnufélag- ið eignast 30% í hinu nýja fyrirtæki. Eignaraðild bænda fer hins vegar aldrei niður fyrir tiltekið mark sem ekki hefur verið gefið upp hvert er. I hluthafasamkomulagi sem gert verður samhliða samningunum eru bændum tryggð jöfn áhrif á við kaup- félagið um stjórnun mjólkurfélagsins, bændur tilnefna tvo menn í stjórn og KEA tvo en að- ilar tilnefna fimmta mann- inn sameiginlega. Jafn- framt verða ákvæði um að framleiðendasamvinnufélagið eigi rétt á að kaupa viðbótarhlut á mats- verði. Kaupi það hins vegar meiri- hluta hlutafjár getur KEA krafist þess að framleiðendafélagið kaupi allt hlutaféð á sama verði. I þriðja lagi mun koma fram í hluthafasamkomu- laginu að eigendur félagsins séu sam- mála um að forsenda samninganna sé að hið nýja félag geti greitt bændum samkeppnisfært verð fyrir mjólkur- innlegg, það er að greiðsla á hæsta verði fyrir mjólk hafi forgang fram yf- ir arðgreiðslur til eigenda. Loks verða ákvæði um að litið sé svo á að með samningunum séu útkljáð ágreinings- efni um eignarhald á mjólkursamlög- unum. Fleinn í holdi KEA Lengi hafa verið deilur um eignar- aðild bænda að mjólkursamlögum sem að forminu til hafa verið í eigu blandaðra kaupfélaga. Bændur hafa gert kröfu um beina eignaraðild og hafa stutt þær margvíslegum sögu- legum rökum, meðal annars um fram- lög til uppbyggingar samlaganna. „Hér hefur þetta deilumál verið eins og fleinn í holdi kaupfélagsins og torveldað nauðsynlega vinnu við að ljúka endurskipulagningu KEA,“ seg- ir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, for- maður stjórnar KE A. „Það liggur fyr- ir að réttarstaða mjólkurframleið- enda er önnur en annarra félags- manna. Mjólkursamlögin höfðu meira sjálfstæði en aðrar deildir félaganna, Mjólkursamlag KÞ hafði til dæmis sérstaka kennitölu. Málið er hins veg- ar mjög flókið, jafnt félagslega sem fjárhagslega, og í raun flóknasta úr- lausnarefni sem ég hef staðið frammi fyrir. Inn í það blandast hagsmunir annarra félagsmanna og eigenda B-deildarbréfa í KEA. En nú er að hrökkva eða stökkva og ég tel að allir ættu að geta verið sáttir við niður- stöðuna,“ segir Jóhannes Geir. Bændur vildu meirihluta Viðræður hafa staðið yfir á milli fulltrúa stjórnar kaupfélagsins og við- ræðunefndar bænda sem vinnur í um- boði kúabændadeildar Búnaðarsam- bands Eyjafjarðar. Á síðari stigum hafa komið að málinu fulltrúar þing- eyskra kúabænda en þegar KÞ lenti í greiðsluerfiðleikum samþykktu bændur sölu mjólkursamlagsins til KEA gegn því að eignaraðild þeirra yrði tryggð. „Eg tel að samkomulagið sé viðun- andi, ef það gengur eftir sem stefnt hefur verið að, og hvet bændur ein- dregið til að taka þátt í þessu með okkur,“ segir Sigurgeir Hreinsson, for- maður Búnaðarsambands Eyjafjarðar. í upphafi stefndu bændur að meirihlutaeign í mjólkursamlaginu og hefur sú stefna verið samþykkt á fundi framleiðenda. Sigurgeir segir að bændur hefðu vilj- að eignast stærri hlut í félaginu en ýmis atriði í hluthafasamkomulagi að- ila vegi það upp. „Við komumst ekki lengra í þessu skrefi,“ segir hann. „Þegar tveir aðilar eru að semja reyna þeir að komast að viðunandi niðurstöðu fyrir báða aðila,“segir Haukur Halldórsson, einn af samn- ingamönnum bænda, þegar hann er spurður að því af hverju þeir hefðu sætt sig við minna en meirihlutaeign eins og að var stefnt í upphafi. Bendir hann á að í hluthafasamkomulagi séu tryggð þau atriði sem bændur leggja mesta áherslu á, svo sem varðandi stjórnun félagsins og áherslur um for- gang bænda til greiðslna og ákvæði um kauprétt á viðbótarhlutafé. Telur Haukur að hagsmunir framleiðenda séu tryggðir með þeim hætti. Þá vek- ur hann athygli á því að ekki sé tilvilj- un að eignaraðild bænda sé miðuð við meira en einn þriðja því tvo þriðju hluta atkvæða á aðalfundi þurfi til breytinga á stofnsamþykktum félags- ins. Mjólkurframleiðendur í Þingeyjar- sýslu eiga aðild að samkomulaginu enda verða þeir þátttakendur í hinu nýja samvinnufélagi framleiðenda. Einn af forystumönnum þeirra, Kristín Linda Jónsdóttir í Mið- hvammi í Aðaldal, segir mjög mikils virði að ná samkomulagi við KEA um eignaraðild bænda sem á pappírunum eigi samlögin, til þess að skapa frið um mjólkurvinnslu á þessu land- svæði. Það hljóti að vera öllum til hagsbóta og skapi möguleika til að byggja upp öfluga mjólkurvinnslu. Hún tekur þó fram að út úr samning- unum verði að koma spennandi kost- ur, ekki síst ef til frekari sameiningar mjólkursamlaga ætti að koma. Verður bændum of dýrt Hópur eyfirskra kúabænda hefur verið óánægður með þá stefnu sem viðræðurnar við KEA hafa tekið og haft með sér óformlegt samstarf um að fá samningamenn inn á rétta braut. Aðalsteinn Hallgrímsson, bóndi í Garði, segist vera óánægður með þá niðurstöðu sem stefni í. „Þetta virðist hafa verið eina leiðin sem kom- ist hefur að. Við höfum viljað skoða fleiri möguleika," segir hann. Kveðst hann ósáttur við að bændur skuli ekki eignast strax meirihluta í mjólkurfé- laginu og telur að þær leiðir sem þeir hafi til að ná því marki séu bændum allt of dýrar. Reiknast honum til að þegar upp verður staðið geti bændur þurft að greiða kaupfélaginu tvo milljarða króna fyrir eignir mjólkur- samlagsins, tvöfalt raunverulegt verðmæti eigna þess. Með því móti væru bændur sjálfir að kaupa aðgang mjólkursamlagsins að kvóta bænda. Bendir hann í því sambandi á að mjólkurvinnslustöðin séu ekki mikils virði án hráefnisins sem bændur leggja til. Aðalsteinn er einnig óánægður með það hvernig að undirbúningi samn- inga hefur verið staðið. Hópur kúa- bænda hyggst óska eftir því að Is- lensk verðbréf hf. og endur- skoðunarskrifstofuna PriceWater- houseCoopers meti verðmæti mjólk- ursamlagsins og mjólkina sem eign framleiðenda í viðskiptum. Einnig óska þeir eftir að KEA veiti nauðsyn- legar upplýsingar um eignir mjólk- ursamlagsins og rekstur þannig að matið geti farið fram. Skerða eigið fé um 500 milljónir KEA mun minnka verulega eigið fé mjólkursamlagsins á Akureyri áður en það verður lagt inn í hið nýja hluta- félag. Nettóskuldir þess eru nú rúmar 200 milljónir en til viðbótar verður gefið út 500 milljóna króna skuldabréf til KEA þannig að nettóskuldir verða samtals um 700 milljónir kr. Hlutafé KEA verður rúmar 300 milljónir kr. og hlutafé bænda metið á 100 til 150 milljónir, eftir því hvað þeim tekst að tryggja mikið mjólkurinnlegg. Jó- hannes Geir Sigurgeirsson segir eign- ir mjólkursamlagsins hafi verið end- urmetnar og skuldabréfið gefið út á móti hækkuninni. Þrátt fyrir endur- matið séu eignirnar mun meira virði en fram kemur í efnahagsreikningi mjólkursamlagsins, ef miðað er við endurstofnverð. Jóhannes segir að KEA muni áfram útvega mjólkur- samlaginu lánsfé á þeim bestu kjörum sem KEA nýtur. Þá hafi skuldabréfið eiginleika víkjandi láns, samkomulag sé um að afborganir og vextir af um- ræddu láni víki fyrir því markmiði að greiða bændum samkeppnishæft verð fyrir mjólkina. Sigurgeir Hreinsson segir að bændur séu nokkuð hugsandi yfir skuldsetningu fyrirtækisins. Þótt það sé ekki verr statt en fyrirtæki al- mennt yrði að hafa í huga að staða fyrirtækja mjólkuriðnaðarins á Suð- ur- og Vesturlandi sé mun öflugri. „Við hefðum viljað hafa efnahag mjólkursamlagsins óskertan og vor- um ósáttir við þessa breytingu," segir Sigurgeir. Hann segir að tryggt sé að uppgjör við bændur gangi fyrir greiðslum af umræddu viðbótarláni. Þá bindur hann vonir við verulega hagi'æðingu af sameiningu mjólkur- samlaganna á Húsavík og Akureyri í eitt félag. Félagi Aðalsteins í „óró- legu deildinni", Sigurgeir Pálsson í Sigtúnum, segir að Mjólkursamsalan í Reykjavík stefni að því að greiða bændum hæsta mögulega verð fyrir innlagða mjólk og séu til dæmis uppi hugmyndir um að greiða 4 króna álag vegna fram- leiðslu síðasta árs. MSKEA ehf. verði að greiða sama álag til þess að geta haldið því fram að það greiði sam- keppnisfært verð. Telur hann enga möguleika á því að það takist eftir að skulir þess hafi verið auknar um 500 milljónir kr. eins og til standi. Það þyrfti því að selja vörur sínar á hærra verði en aðrir og það myndi leiða til minni sölu og lægra greiðslumarks. Aðalsteinn og Sigurgeir Pálsson segja að yfirtaka KEA á 500 milljón- um kr. af eigin fé mjólkursamlags KEA sé enn eitt dæmið um það hvernig KEA hafi blóðmjólkað þessa mjólkurkýi- sína í gegn um árin. Fyrir nokkrum árum hafi KEA tekið 500 milljónir af eigin fé mjólkursamlags- ins auk þess sem árlega séu færðir tugir milljóna króna á milli vegna vaxta og fleiri þátta. „Ef bændur hefðu alltaf átt þetta fyrirtæki og rek- ið, eins og hugmyndin var í upphafi, væri þetta stöndugt fyrirtæki sem gæti greitt okkur hærra verð en aðrir fá og boðið neytendum vörurnar á lægra verði,“ segir Aðalsteinn. Ekki áform um að loka á Húsavík I hluthafasamkomulagi KEA og bænda eru ákvæði um að ekki sé hægt að selja hlutafé til þriðja aðila nema með samþykki beggja núverandi eignaraðila. Jóhannes Geir segir í því sambandi að rætt hafi verið um að álitlegt væri að tengjast erlendu fé- lagi, hugsanlega með eignatengslum. Það gæti auðveldað aðgang að erlend- um mörkuðum og hugsanlega veitt hinu nýja félagi tækifæri þegar og ef innflutningur mjólkurvara ykist. Býst hann við að yfírlýsing af þessu tagi muni verða gefin út samhliða undir- ritun samninga. Jóhannes Geir segir aðspurður að ekki séu áform uppi um að hætta mjólkurvinnslu á Húsavík. Hins veg- ar sé fyrirhugað að auka verulega sérhæfingu í vinnslu samlaganna. Kristín Linda í Miðhvammi segir að það hafí ekki verið áhersluatriði bænda hvar mjólkin yrði unnin heldur að það yrði gert á sem hagkvæmastan hátt til þess að unnt yrði að tryggja bændum hæsta verð fyrir hráefnið. Á vegum viðræðunefndar bænda hefur verið unnið að undirbúningi stofnunar framleiðendasamvinnufé- lags kúabænda á svæðinu. Starfandi bændur á hverjum tíma, bæði í Eyja- firði og Þingeyjarsýslu, eru jafn rétt- háir aðilar að félaginu. Félagið sjálft mun eignast hlutabréfin í sameinaða mjólkurfélaginu, ekki einstakir bændur. Að sögn forsvarsmanna bænda er það ákvörðunaratriði síðari tíma hvernig farið verður með þann arð sem félagið hugsanlega fær greiddan út, hvort hann verði greidd- ur út í hlutfalli við mjólkurinnlegg eða hluti hans fari í stofnsjóð. Málaferli hugsanleg Á bændum sem eru óánægðir með samkomulagið er að heyra að ekki muni allir sætta sig við niðurstöðuna. Aðalsteinn Hallgrímsson býst við að einhver fari í mál til að krefjast hlut- deildar í eignum mjólkursamlagsins, til þess að fá þau mál á hreint í eitt skipti fyrir öll. Þá segir hann hugsan- legt að einhverjir framleiðendur kanni möguleika á viðskiptum við önnur mjólkursamlög. „Það yrði slæmt ef til þess kæmi og menn myndu örugglega ekki gera það fyrr en fullreynt yrði að viðunandi samn- ingar næðust við KEA,“ segir hann. Jóhannes Geir segir að menn verði að skilja að fulltrúar KEA hafi teygt sig eins langt og þeir mögulega hafi getað til móts við sjónarmið framleið- enda. Telur hann að hugsanleg mál- sókn einhvers framleiðenda myndi ekki raska áætlunum um stofnun fé- lagsins, því hún myndi beinast gegn KEA en ekki hinu nýja félagi. Hann tekur fram að KEA hafi boðið upp á það að úr ágreiningsefninu yrði skor- ið fyrir dómstólum en menn verði þá að skilja það að erfitt yrði fyrir KEA að ganga til samninga við bændur þegar félagið hefði unnið slíkt mál. „Við höfum talið betra að mæta fram- leiðendum með samningum," segir hann. Fyrir liggur að eign framleiðenda- samvinnufélagsins mun verða veru- lega minni en nú er áformað ef hópur framleiðenda fer í viðskipti við annað mjólkursamlag. Haukur Halldórsson segir mikilvægt að bændur standi saman um þetta mál. Með því móti hefðu þeir meiri áhrif í nýju félagi um rekstur mjólkurstöðvanna. LANDEIGENDUR í Árnes- sýslu fjölmenntu á fund í Aratungu í fyrrakvöld til að ræða kröfugerð ríkisins á hendur landeigendum í sýslunni. Krafa stjómvalda gerir ráð fyrir því að stór hluti afrétta og landsvæða, sem landeigendur í uppsveitum Ámessýslu hafa hingað til talið sína eign, skuli tek- ið í ríkiseigu sem þjóðlenda, skv. lögum um þjóðlendur nr. 58/1998. Óánægja ríkir meðal jarðeigenda vegna þeirra línu sem dregin hefur verið til að afmarka þjóðlendu og eign- arland. Með þeirri línu eignar ríkið sér um 87% af því afréttalandi sem um ræðir og telja landeigendur að ríkið hundsi aldagömul og þinglýst landa- mörk jarða í sýslunni. Mikið ber á milli þeirra landamarka, sem landeigendur telja að séu í fullu gildi, og þeirra þjóð- lendumarka sem nefnd á vegum fjár- málaráðuneytisins hefur gert kröfu til í nafni ríkisins. Ljóst var á fundinum að landeigend- um er heitt í hamsi vegna málsins og töldu fundarmenn tillögurnar ósvífnar og dæmi um stórfellda eignaupptöku, sem ekki ætti sér hliðstæðu hér á landi. Margeir Ingólfsson, formaður hrepps- ráðs Biskupstungnahrepps, setti fund- inn fyrir hönd undirbúningsnefndar og sagðist vera undrandi yfir kröfugerð ríkisins, sem gengi þvert á það sem menn hafi talið vera rétt og að alda- gömul landamerki væru ekki virt við- lits og ekki tekið mark á þinglýstum eignamörkum. Hann sagði landeigend- ur ekki sætta sig við slík málalok og því væri boðað til fundarins. Kröfuhna ríkisins verði dregin út fyrir þinglýst landamörk Seinna á fundinum steig Margeir í pontu á ný og sagði það einfalt í sínum huga, að annaðhvort héldi þinglýsing- arkerfið eða ekki. Einnig þætti honum það hálfneyðarlegt, nái kröfur ríkisins fram að ganga, „að það skuli vera þess- ir stjórnmálaflokkar sem ætli sér að standa að mestu eignaupptöku Islandssögunnar". Þá las hann upp ályktun fundarins sem undirbúnings- nefndin kom sér saman um: ,Almennur fundur um lög nr. 58/ 1998, þjóðlendislögin, haldinn 25. jan- úar í Aratungu, skorar hér með á fjár- málaráðherra íyrir hönd ríkisins að draga kröfulínu ríkisins út fyrir þinglýst mörk eignarlanda, enda sé það alls ekki í anda laganna að ganga þvert á þinglýstar eignarheimildir.“ Framsögumenn á fundinum voru fimm og fyrstur reið á vaðið Björn Sig- urðsson, bóndi í Úthlíð. Samkvæmt kröfugerðinni mun Björn missa um 98% af eign jarðarinnar á afréttaland- inu, sem er drjúgur meirihluti af heild- ai'jarðnæði Úthlíðar. Björn sagði í ræðu sinni að bændur væru reiðir vegna kröfugerðar ríkisins, enda væri enginn ágreiningur á milli manna í sýslunni um landamörk, vegna þess að vel væri frá landamerkjalýsingum gengið. „í haust fylgdi síðan kröfulýsing fjármálaráðuneytisins. Kröfulýsinga; plagg þetta á sér enga hliðstæðu. I kröfugerðinni, sem íyrst náði yfir 77 jarðeigendur, var farið ránshendi og þess krafist að stór hluti jarða yrði tek- inn undir þjóðlendur án nokkurra bóta. I slíkri kröfugerð kemur fram ótnáleg- ur hroki og virðingarleysi íyiir því sem mannlegt getur talist og því lífi og starfi sem eigendur þessara jarða hafa látið þjóðfélaginu í té um aldir. Margir hafa stritað alla ævi fyrir því að geta eignast jörðina sína og þá fyrst andað léttar þegar þeir hafa í höndum þinglýst plagg um að jörðin þeirra hafi verið keypt með gögnum og gæðum. Fylgir það sem fylgja ber og ekkert undanskilið!" sagði Björn og kvað fast að. Engin rök hniga að þessari niðurstöðu „Þar kemur líka til jafnréttisregla stjómarskrárinnar að allir landsmenn skuli jafnir að lögum. Og það fær að mínu mati ekki staðist, að einhver mis- munur sé á þinglýstum jarðeignum, hvort sem það eru efstu jarðir sveit- anna eða þær sem neðar liggja. Um aldir hafa fasteignir í sveitum landsins lotið sömu lögum og ég hygg að flestir landsmenn telji að jafnrétti á eignar- rétti fasteigna sé einn af hornsteinum lýðveldisins.“ Björn sagði að dómur óbyggða- nefndar væri ekki fallinn, og að krafa landeigenda til ríkisvaldsins væri ein- fold og fælist í því að kröfulína ríkisins yrði tafarlaust dregin út fyrir öll þinglýst landamerki í Árnessýslu. Olafur Bjömsson lögfræðingur var einn frummælenda og sagði að við framkvæmd laganna virtist sú nýlega skoðun koma fram, að lögbýli með þinglýstum landamerkjum kunni, a.m.k. að hluta til, að vera að granni til eign ríkissins, þó að landeigendur eigi þar takmörkuð réttindi í foirni beitar- réttar. „Með öðram orðum, að landa- merkjabréf jarða segi aðeins til um yf- irráðarétt en að þau séu ekki fullkomin heimild um eignarrétt. Þessari nýju kenningu, sem ég vil kalla svo, og kem- ur mjög skýrt fram í kröfulýsingu þjóðlendisnefndar fjármálaráðuneytis- ins, er ég algerlega ósammála og ég tel að engin rök hm'gi að þessari niður- stöðu og ég tel jafnframt að hún verði heldur ekki studd fordæmum." Þinglýstar eignarheimildir verði næg sönnun fyrir eignarrétti Hann sagði landeigendur gera þá kröfu að hinn almenni skilningur á þessum eignum verði viðurkenndur, þ.e. að jörð með þinglýstum landa- merkjum sé eignarland. Ástæðan væri sú að eigandi jarðar á Islandi hefði öll eignarráð þessarar eignar í krafti hinnar þinglýstu eignarheimildar og gæti m.a. bannað öðram afnot hennar. I samræmi við þetta hafi eigendur jarða á Islandi ætíð fengið eignar- haldsbætm’, ef réttindi jarða þeirra hafa verið skert með sérstökum hætti, enda sé eignarrétturinn varinn í stjómarskrá. „Þannig tel ég einnig að það séu eng- in rök til þess að mismuna eigendum bújarða eftir því hvort jarðir þeirra liggja að hálendinu eða hvort þær séu á láglendinu. Það er því von að landeig- endur hafi verið rasandi hissa þegar því var haldið fram að þeirra jarðir væra ekki fullkomin eign þeirra, held- ur ættu þeir þar einungis takmarkaðan afnotarétt en landið væri að öðra leyti í eigu ríkisins.“ Að sögn Ólafs eru fræðimenn al- _ mennt sammála um það, að maður sem hefur þinglýsta eignarheimild yfir eign sinni sé talinn eiga tilsvarandi réttindi yfir eigninni þar til annað sannast. „Með öðrum orðum, sá sem vill vefengja heimild sem styðst við þinglýsingabækur, hann hefur sönnun- arbyrði fyrir þeirri staðhæfingu sinni.“ Að sögn Ólafs er meginkrafa land- eigenda sú að hinar þinglýstu eignar- heimildir verði metnar sem næg sönn- un fyrir beinum eignarrétti jarðareiganda, og að sá sem haldi öðru fram, í þessu tilviki ríkið, verði að sanna sitt mál. Hann telur að það verði ríkinu erfitt að færa sönnur á slíkt gegn framlögðum þinglýsingarskjöl- um, ekki síst vegna þess að jarðeigend- ur hafi farið með öll eignaumráð jarð- anna á grandvelli opinberra landa- merkjabréfa. Ríkið ber kostnað af mála- rekstri vegna landamerkja Á fundinn mættu þingmenn kjör- dæmisins ásamt Geir Haarde fjármálaráðherra. Geir sagði að málið snerist fyrst og fremst um lögfræðileg álitamál, sem menn hafi tekist á um ár- um saman, þrátt fyrir þinglýsingar og jarðamerkingar og heimildir þar um. Hann upplýsti einnig á fundinum að búið væri að koma málum þannig fyrir að ííkið myndi bera allan kostnað af málarekstri vegna deilna um landa- merki og kvaðst vonast til að viðunandi lausn fengist, sem menn gætu unað' sáttirvið. Ámi Johnsen alþingismaður sagði þær kröfulýsingar sem lagðar hafa verið fram af hálfu stjórnvalda, ganga of langt að sínu mati „Þær skapa ófrið, óöryggi, tortryggni og úlfúð sem er ekki farsælt til að vinna þetta mál á friðsamlegan og eðlilegan hátt.“ „Ef að framganga þessara laga verð- ur einhver óskapnaður sem raskar við- miðunum í sveitum í landsins, þá mun ég og eflaust fleiri alþingismenn berj- ast fyrir því að lögin verði tekin upp, hvort sem þeim verður kippt aftur eða ekki.“ í svipaðan streng tók Guðni Agústs- son landbúnaðarráðherra sem sagðist harma niðurstöður nefndarinnar sem kæmu fram í kröfuskýrslunni. Hann sagði þó mikilvægt að leiða til lykta gamlar deilur um hálendið og að mörk- in yrðu skýr á milli þjóðlendna og eign- arlands. Kaupréttur að viðbótareign KEA blóðmjóik- ar samlagið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.