Morgunblaðið - 27.01.2000, Side 51
f
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 51
MINNINGAR '
MARGRET
ÞORSTEINSDÓTTIR
+ Margrét Þor-
steinsdóttir
fæddist í Reykjavík
17. ágúst 1925. Hún
lést á Landspítalan-
um 19. janúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Jónína
Dagný Albertsdóttir,
f. 16. okt.1904, d. 18.
ág. 1973, og Þor-
steinn Þorvarðarson,
f. 12. júní 1899, d. 29.
ág. 1934. Systkini
hennar eru Steinunn
Henritte, búsett í
Bandaríkjunum, og
Þórir, búsettur í Reykjavík.
Hinn 16. nóvember 1946 giftist
Margrét eftirlifandi eiginmanni
sínum, Jóni G. Halldórssyni bif-
reiðasmiði, f. 31. júlí
1925, og eignuðust
þau þijú börn. Þau
eru: Guðríður, f. 17.
sept 1947, gift Gunn-
ari Kr. Sigurðsyni, f.
29. júlí 1945; Dagný,
f. 28. júní 1950, gift
Svavari Guðmunds-
syni, f. 1. nóvember
1946; og Þorsteinn,
f. 11. apríl 1954,
kvæntur Hjördísi
Guðmundsdóttur, f.
2. desember 1956.
Barnabörn eru átta
og barnabarnabörn-
in sex.
Útfór Margrétar fór fram í
kyrrþey að hennar ósk.
Sjáðu á himni
hátt yfír fjöllin
rísandi roða.
Ljós og litir
leikaumskýin,
birtingu boða.
Maðurinn sínum
sorgum gleymir
ogsefastlætur,
er dagsbrún dreifir
döprum skuggum
dimmrar nætur.
Mönnum er fjarlægt
í morgunsins veldi
myrkrið að kveldi.
(Á.G. Finnsson.)
Á kveðjustund leitar hugurinn
gjarnan til baka til þess sem löngu
er liðið. Þannig fer fyrir mér, er ég
kveð mágkonu mína, Margréti Þor-
steinsdóttur.
Minningar um ánægjulegar sam-
verustundir birtast ein af annarri.
Fyrstu búskaparár okkar Þóris
vorum við leigjendur hjá Möggu og
Jóni.
Það var hvorki hátt til lofts né vítt
til veggja í risinu í Langagerðinu.
En okkur leið vel þar og það var
ekki síst Möggu að þakka. Hún var
glaðlynd og jákvæð, alltaf tilbúin að
rétta hjálparhönd en gerði ekki
kröfur sjálfri sér tii handa.
Dætur mínar voru fljótar að átta
sig á því, þegar þær komust á legg,
að það var gott að skreppa niður til
Möggu frænku. Þar var þeim alltaf
tekið opnum örmum enda var hún
einstaklega barngóð.
Margrét var heimakær og fjöl-
skyldan, heimilið og fallegi garður-
inn var hennar heimur. Hvergi undi
hún sér betur.
Nokkur ár vann hún þó utan
heimilisins. En þegar langömmu-
börnin komu til sögunnar gerðist
hún dagmamma fyrir þau og gætti
þeirra meðan heilsan leyfði.
Síðastliðið ár var Möggu erfitt.
En hún stóð ekki ein. Fjölskyldan
öll gerði það sem í hennar valdi stóð
til að létta henni lífið. Jón hætti að
vinna þegar hún veiktist og annaðist
hana af einstakri nærgætni og um-
hyggju-
En það komu góðir tímar á milli
og þá fylltumst við bjartsýni og von-
uðum öll að hún fengi lengri frest.
Ég kveð Möggu með söknuði og
þakklæti og bið Guð að geyma og
styðja fjölskylduna hennar
Og því varð allt svo hljótt við helfregn
þína,
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðm.)
Blessuð sé minning Margrétar
Þorsteinsdóttur.
Anna Jóna Óskarsdóttir.
Elsku amma, nú ertu farin frá
okkur.
Þegar við minnumst þín koma
alltaf góðu stundirnar upp í hugann,
því við áttum svo margar saman. Þú
varst alltaf svo góð við okkur barna-
börnin og barnabarnabörnin. Okkur
fannst þú alltaf vera í svo góðu
skapi. Og það var alltaf gott að koma
í heimsókn til þín í Langagerðið, þú
varst alltaf komin á harðahlaupum
með eitthvað gott með kaffinu hvort
sem það voru smurðar brauðsneið-
ar, jólakaka eða pönnsurnar þínar.
Og þegar við komum þangað á mið-
vikudaginn fannst okkur vanta mik-
ið og hann Alexander leitaði mikið
að þér. Hann er búinn að hlæja mik-
ið í návist þinni og það sást alltaf að
honum leið vel þegar hann kom í
heimsókn, þótt hann sé ennþá mjög
ungur. Það var alltaf svo gott að
vera með þér.
Þegar mér var tilkynnt að þú
værir farin þá stífnaði ég allur upp,
þú varst svo hress þegar ég heim-
sótti þig á spítalann kvöldið áður, þú
sagðist vera á leiðinni heim. Og ég
trúði því alveg vegna þess að ég sá
að þér leið vel. Þú varst alltaf til
staðar þegar við þurftum á þér að
halda. Þegar við vorum veik varst
þú alltaf tilbúin að leyfa okkur að
verahjáþér.
Þegar við Ágústa systir komum
til þín eftir skóla varstu alltaf til í að
fara eitthvað með okkur og litlu
Gurrý .Það voru skemmtilegar
stundir þótt við löbbuðum bara nið-
ur í Hagkaup. Ég á eftir að sakna
þessara stunda með þér.
Bjarni, Margrét, Ágústa,
Aðalheiður og Alexander.
Við viljum í nokkrum línum
kveðja vinkonu okkar og góðan
granna, Margréti Þorsteinsdóttur.
Það er sannarlega mikill kostur að
búa í nábýli við gott fólk og þar sem
við þekktum Möggu og Nonna áður
en til flutnings í Langagerði 2 kom
vissum við að þarna myndi okkur
líða vel. Margrét var lánsöm í sínu
lífi er hún gekk að eiga sæmdar-
manninn Jón Halldórsson bifreiða-
smið. Saman byggðu þau afar
smekklegt heimili í Langagerði 4,
sem alla tíð hefur vakið aðdáun fyrir
snyrtimennsku, og ræktuðu svo vel
garðinn sinn í orðsins fyllstu merk-
ingu að þau hlutu opinberar viður-
kenningar fyrir. Fyrir fólk sem
sinnir þvi svo vel að rækta umhverfi
sitt er tíminn sem nú fer í hönd með
hækkandi sól einkar velkominn.
Nonni mun nú verða að sjá einn um
vorverkin en Magga verður með
honum í anda og hvetur hann áfram.
Hún Magga var hress og
skemmtileg kona, jafnframt því sem
hún var hrein og bein, ekkert til
þess að lesa á milli línanna. Það var
aldrei neitt mál þótt kvabba þyrfti
örlítið stundum, fá lánað þetta eða
hitt, ó, nei, alltaf vorum við velkom-
in. Þau hjónin hafa verið afar sam-
rýnd og lánsöm í hjónabandi sínu og
eignuðust þrjú mannvænleg börn,
Þorstein sem lengst af hefur starfað
með föður sínum í vélsmiðju þeirra
feðga, Dagnýju og Guðríði. Barna-
börnin eru átta talsins og barna-
barnabörnin sex.
Það er lán að eiga slíka samferða-
menn og minningin um Möggu mun
lifa með okkur. Veikindi hrjáðu
hana um nokkurt skeið, en svo bráði
af á milli og þær stundir notuðu þau
hjónin svo vel sem auðið var.
Við viljum þakka þér, Magga, fyr-
ir þitt jákvæða hugarfar á okkar
samferð, um leið og við sendum þér,
elsku Nonni, og öllum ættingjum og
vinum okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Þessar línur verða ekki að
neinum langhundi, það væri ekki
þinn stíll, og því setjum við punktinn
fljótlega. Þessi viðvera okkar á
jörðu er mislöng en síðan hittumst
við öll á efri stigum.
Esther, Halldór, Bergþóra
og Einar Bjarni.
t
Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför hjartkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
HILDAR GUÐNÝJAR ÁSVALDSDÓTTUR,
Gautlöndum,
Mývatnssveit.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinnar Húsavík sem
annaðist hana af alúð og hlýju.
Böðvar Jónsson,
Ásgeir Böðvarsson, Ólöf Ásta Ólafsdóttir,
Jóhann Böðvarsson, Ingigerður Arnljótsdóttir,
Jón Gauti Böðvarsson, Þórdis Jónsdóttir,
Sigurður Guðni Böðvarsson, Margrét Hólm Valsdóttir,
Björn Böðvarsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
SIGRÍÐAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
frá Hrauni, Tálknafirði,
Grófarseli 20,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Auðlín Hanna Hannesdóttir, Ólafur Gunnar Vigfússon,
Ólafía Kristín Hannesdóttir,
Þorsteinn Óli Hannesson, Ágústa Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN GUÐGEIRSDÓTTIR,
sem lést miðvikudaginn 19. janúar, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn
28. janúar, kl. 13.30.
Katrín Eyjólfsdóttir, Ármann Gunnlaugsson,
Vigdís Eyjólfsdóttir, Guðjón Elíasson,
Brynjólfur Eyjólfsson,
Guðgeir Eyjólfsson, Kristín I. Geirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
MAGNÚSAR DANÍELSSONAR
húsgagnasmíðameistara,
Sólheimum 23,
fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn
28. janúar kl. 10.30.
Margrét Kristinsdóttir,
Ólöf Guðrún Magnúsdóttir, Örlygur Þórðarson,
Katrín Arnbjörg Magnúsdóttir, Bragi Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÖNNU JÓNSDÓTTUR
frá Kaldárbakka,
Stigahlíð 12,
Reykjavík.
Ólafur Erlendsson, Helen Hannesdóttir,
Halla G. Eriendsdóttir, Trausti Kristinsson,
Pétur Erlendsson, Áslaug Andrésdóttir,
Agatha H. Erlendsdóttir
og fjölskyldur.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
MAGNÚSAR ÁRNASONAR
bakarameistara,
Björnsbakaríi.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Kristjana Elínborg Magnúsdóttir,
Margrét M. Ragnars, Ragnar Ragnars,
Árni Kristinn Magnússon, Margrét Jónsdóttir,
Guðrún Björg Magnúsdóttir, Árni Sverrisson,
Anna Sigríður Magnúsdóttir, Halldór Ragnar Halldórsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs sonar míns og bróður okkar,
GUNNARS BRAGASONAR,
Fannafold 178,
Reykjavík.
i f-
Sigríður Jóhannesdóttir,
Guðrún Bragadóttir,
Ragnheiður Bragadóttir, Jóhannes Karlsson,
Guðmundur Bragason, Anna María Karlsdóttir,
Dagur Bragason,
Unnur Bragadóttir
og fjölskyldur.