Morgunblaðið - 06.02.2000, Page 1
31. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Flugrnaður EgyptAir
óskar eftir hæli í
Bretlandi
Kveðst hafa
upplýsing-
ar um
flugslysið
Kaíró. AFP.
FLUGMAÐUR EgyptAir hefur
óskað eftir hæli í Bretlandi sem
pólitískur flóttamaður og kveðst
hafa upplýsingar um hvers vegna
þota flugfélagsins hrapaði í At-
lantshafið undan austurströnd
Bandaríkjanna 31. október með
þeim afleiðingum að 217 manns
fórust.
Stjórnarformaður EgyptAir,
Mohammed Fahim Rayyan, skýrði
frá því að flugmaðurinn hefði ósk-
að eftir hæli í Bretlandi á föstudag
en fullyrti að hann tengdist á eng-
an hátt flugslysinu og hefði enga
vitneskju um orsakir þess.
Talsmaður breska innanríkis-
ráðuneytisins staðfesti að Egypti
hefði óskað eftir hæli í Bretlandi á
Heathrow-flugvelli en greindi ekki
frá ástæðu beiðninnar. „Innflytj-
endayfirvöld hafa tekið beiðnina
fyrir,“ bætti hann við.
Kvartaði yfir því að viðhaldi
vélanna væri ábótavant
Flugmaðurinn heitir Hamdi
Hanafi Taha, er 49 ára og hefur
flogið Airbus þotum. Hann var í
áhöfn þotu sem kom til Heathrow
á föstudagsmorgun og hafði sam-
band við flugumferðarstjóra þegar
hann var einn í flugstjórnarklefan-
um til að óska eftir því að lög-
reglumenn tækju á móti honum á
flugvellinum þar sem hann hefði
upplýsingar um hvers vegna þotan
hrapaði í Atlantshafið.
Egypska ríkisfréttastofan
MENA sagði að flugmaðurinn
hefði átt í deilu við EgyptAir og
lagt fram „ákveðnar kröfur um
peninga og starf“. Eiginkona flug-
mannsins sagði að hann hefði
hegðað sér undarlega og verið
taugaóstyrkur síðustu daga. Enn-
fremur var haft eftir henni að hann
hefði kvartað yfir því að viðhaldi
flugvéla EgyptAir væri ábótavant.
Bandarískir og egypskir rann-
sóknarmenn hafa ekki komist að
niðurstöðu um hvað olli því að þota
EgyptAir hrapaði í sjóinn á leið frá
New York til Kaíró. Bandaríkja-
menn hafa rannsakað þá tilgátu að
flugmaðurinn hefði stýrt þotunni
niður til að svipta sig lífi en Egypt-
ar segja að enginn fótur sé fyrir
henni.
Veðjað á
vísindin?
Fjölmenn mótmæli á Torgi hins himneska friðar í Peking
Hundruð félaga í Fal-
un Gong handtekin
Peking. AFP.
KÍNVERSKA lögreglan var í gær sögð hafa hand-
tekið hundruð félaga í andlegu hreyfingunni Falun
Gong, sem hefur verið bönnuð í Kína, þegar þeir
söfnuðust saman á Torgi hins himneska íriðar í
Peking til að mótmæla barininu með friðsamlegum
hætti.
Fjölmennt lið lögreglumanna var á torginu
vegna mótmælanna. Lögreglumenn gengu í
skrokk á öllum þeim sem hófu hugleiðsluæfingar,
sem félagar í Falun Gong iðka. Þeir hrópuðu á
ferðamenn, sögðu þeim að skipta sér ekki af bar-
smíðunum og kröfðust þess að þeir afhentu filmur
með myndum af handtökunum. Ljósmyndurum er-
lendra fjölmiðla var hótað handtöku ef þeir færu
ekki af torginu.
Mótmælin hófust skömmu fyrir miðnætti í fyrra-
kvöld þegar Kínverjar fögnuðu því að nýtt ár væri
gengið í garð samkvæmt kínverska tímatalinu.
Embættismaður í Xaio Tangshan-fangelsinu í
norðurhluta Peking staðfesti að félagar í Falim
Gong væru þar í haldi en vildi ekki greina frá því
hversu margir þeir væru.
Frank Lu, leiðtogi mannréttindahreyfingar sem
er með höfuðstöðvar í Hong Kong, kvaðst hafa
fengið upplýsingar um að a.m.k. 300 félagar í Falun
Gong hefðu verið handteknir, þeirra á meðal
nokkrir Vesturlandabúar.
LangQ ölmennustu
mótmælin frá því í október
Þetta eru langfjölmennustu mótmæli félaga í
Falun Gong frá því um miðjan október þegar þús-
undir manna voru handteknar fyrir að mótmæla
nýjum lögum um hert eftirlit með hreyfingunni.
Hannah Li, sem tók þátt í mótmælum Falun
Gong, sagði að tugir félaga hreyfingarinnar frá
Bandaríkjunum, Ástralíu og Hong Kong hefðu
komið til Peking í því skyni að mótmæla banninu
við hreyfingunni. Að minnsta kosti einn bandarísk-
ur ríkisborgari, Auo Yan, hefði verið handtekinn á
flugvellinum í Peking og talið væri að honum hefði
verið vísað úr landi.
Kínversk yfirvöld hafa viðurkennt að 35.000 fé-
lagar í Falun Gong hafi verið handteknir frá því í
júh' og þar til í nóvember þegar hreyfingin var
bönnuð. Tugir forystumanna hreyfingarinnar hafa
verið dæmdir í allt að 18 ára fangelsi.
Leiðtogar kínverska kommúnistaflokksins hafa
sagt að honum stafi meiri hætta af Falun Gong en
nokkurri annarri hreyfingu í Kína frá mótmælum
lýðræðissinna í Peking árið 1989.
Ar drekans gengið í garð
ÁR drekans gekk í garð í gær sam-
kvæmt kínverska tímatalinu og
mikil hátíðahöld voru því í Kína og
fleiri löndum Asíu. Fögnuðurinn
var þó lfklega mestur meðal kín-
verskra íbúa Indónesfu sem fengu
að fagna nýju ári utandyra í fyrsta
sinn í þrjá áratugi. Suharto, fyrr-
verandi einræðisherra landsins,
setti lög sem kváðu á um að Kín-
verjar mættu aðeins halda upp á
áramótin samkvæmt kinverska
tfmatalinu heima hjá sér eða í hof-
um sínum. Lögin hafa nú verið
afnumin og fbúar Jakarta gátu því
fylgst með ýmsum kynjaverum á
götum borgarinnar, eins og þessu
dansandi ijóni.
Einn af frum-
kvöðlum grænu
byltingarinnar
Hótar að
lama ESB
Klagenfurt. AFP.
JÖRG Haider, leiðtogi Frelsis-
flokksins í Austurríki, ýjaði að því í
gær, að hann myndi koma í veg fyrir
að Evrópusambandið (ESB) gæti
tekið ákvarðanir ef aðildarríki þess
héldu áfram refsiaðgerðum gegn
Austurríki.
„Stefna ESB er aðeins ákveðin í
ráðherraráðum, þar sem ákvarðanir
þurfa að vera samþykktar einróma,"
sagði hann og bætti við að ESB
myndi fljótt komast að því hvemig
það væri að hafa ráðherra Frelsis-
flokksins í ráðunum. „Þeir eiga eftir
að sitja með okkur á fundum, og ef
ekki, verða engar ákvarðanir teknar
í ESB.“
I-------------:-----------H
Sumarhúsa-
eigendur
á Spáni
Alicante _
um Madríd
fyrir aðeins
32.500kr^
Beint flug til Madrid
allamánudaga
fiá 12. júní ul 4. sept
*Innifalið: flug báðar leiðir og
flugvallarskattar.
www.icelandamís
iCELANDAIR jfii''
MORQUNBLAÐK) 6. FEBRÚAR 2000