Morgunblaðið - 06.02.2000, Page 6
6 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
I
ERLENT
Kosningavél Bush
er farin að hökta
BAKSVIÐ
Næstu forkosningar repúblikana eru í
Suður-Karólínu eftir hálfan mánuð, en
demókratar takast ekki á að nýju fyrr en í
mars. A1 Gore þykir enn mun líklegri til að
ná útnefningu demókrata en Bill Bradley,
en Ragnhildur Sverrisdóttir segir að
George W. Bush verði að spýta í lófana ef
hann ætli sér að koma í veg fyrir að John
McCain steli útnefningu repúblikana
við nefíð á honum.
BILL Bradley heldur áfram að berjast fyrir útnefningu Demókrata, eft-
ir að hafa tapað naumlega fyrir A1 Gore varaforseta í New Hampshire.
Morgunblaðið/Ragnhildur Sverrisdóttir
GEORGE W. Bush á veitingahúsinu Madden’s í New Hampshire, daginn
áður en hann laut í lægra haldi fyrir John McCain.
EGAR John McCain, öld-
ungardeildarþingmanni frá
Arizona, tókst að leggja
krónprins repúblikana,
George W. Bush ríkisstjóra í Texas,
að velli í forkosningunum í New
Hampshire sl. þriðjudag kom í Ijós að
Bush er ekki jafn öruggur og talið var
með útnefningu flokks síns sem fram-
bjóðandi í forsetakosningunum næsta
haust. Með hverjum deginum saxast
á forskot Bush í Suður-Karólínu, þar
sem næstu forkosningar repúblikana
verða haldnar 19. febrúar. Innan
Repúblikanaflokksins hafa tvær
grímur runnið á stuðningsmenn
Bush, sem gagnrýna hvemig hann
hefur hagað baráttu sinni hingað til.
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum eru hins
vegar ekki eins uppteknir af slagnum
á miili A1 Gore varaforseta og Bill
Bradley, fyrrverandi öldungardeiid-
arþingmanns frá New Jersey, því
þrátt fyrir að Bradley hafi náð að
velja Bush undir uggum í New
Hampshire er varaforsetinn enn tal-
inn mikiu sigurstranglegri. Þar að
auki er mun lengra þar til þeir takast
á að nýju í forkosningum; það verður
ekki fyrr en þriðjudaginn 7. mars,
svokallaðan Super Tuesday, þegar
gengið verður til forkosninga í 15
ríkjum, þar á meðal því fjölmennasta,
Kalifomíu.
F orskotið í Suður-Karólínu horfið
Staðan hjá repúblikönum er sú, að
Bush sigraði í forkosningum í Iowa,
þar sem MeCain lagði enga áherslu á
að ná árangri og uppskar samkvæmt
því. Hann sigraði hins vegar Bush
léttilega í New Hampshire, en allar
skoðanakannanir hafa hingað til bent
tii þess, að Bush gæti gengið að sigri
vísum í Suður-Karólínu. I desember
mældist hann með 45 prósentustiga
meira fylgi í ríkinu en McCain, í jan-
úar hafði að vísu dregið nokkuð sam-
an með þeim, því þá var munurinn 20
prósentustig, en á sl. fimmtudag vom
birtar kannanh-,_sem sýna að forskot-
ið hefur horfið. í annarri könnuninni,
sem gerð var daginn eftir sigur
McCain í New Hampshire, reyndist
hann hafa fylgi 44% kjósenda, en
Bush 39%. Hin könnunin sýndi Bush
með 41% fylgi, en McCain 40%. í báð-
um könnununum vora skekkjumörk-
in um 4%, svo óhætt er að fullyrða að
keppinautamir standi hnífjafnt að
vígi. Fjölmiðlar höfðu eftir Bush að
hann hefði engar áhyggjur af þessum
könnunum, enda væri hann þess
fuliviss að hann myndi sigra.
Með sigrinum í New Hampshire
náði McCain að vekja athygli á sér
svo um munaði. Hann sópar að sér
fylgi og fjárstuðningi, til dæmis söfn-
uðust um 70 milljónir króna á netsíðu
hans innan tveggja sólarhringa frá
því að kjörkiefum í ríkinu var lokað.
Bush hefur bragðist við þessari
ógnun með því að ráðast harkalegar
gegn McCain en hann hefur gert
hingað tfl. Stuðningsmenn hans era
ánægðir með þá þróun mála, enda
hafa heyrst óánægjuraddir úr þeirra
hópi með frammistöðu Bush, sem
þykir hafa tiplað um í varkámi. Sumir
hafa reyndar gengið svo langt að
segja hann hafa verið svo öraggan um
útnefningu flokks síns að hann hafi
ekki talið sig þurfa að leggja neitt á
sig, aðeins hafa sig hægan, þiggja út-
nefninguna og vonandi embætti for-
seta í haust. Að vísu hafa engir áhrifa-
menn innan flokksins lýst því yfir,
enn sem komið er, að þeir séu hættir
að styðja hann, en McCain heldur því
fram að á síðustu dögum hafi hann
fengið fjárframlög í kosningasjóði frá
mönnum, sem áður studdu Bush.
í gagnrýni Bush á McCain felst
meðal annars, að sá síðamefndi hafi
enga þekkingu hafa á varnarmálum
og að hann væri of fijálslyndur fyrir
kjósendur Suður-Karólínu. McCain
varð ekki seinn til svara og stakk upp
á að þeir myndu hittast í sjónvarpssal
og ræða varnarmál og utanríkis-
stefnu. Bush þyrfti bara að velja stað
og stund, sjálfur væri hann tilbúinn
að greiða útsendingarkostnaðinn.
Bush hefur enn engu svarað, en svör
McCain náðu tilgangi sínum, að rifja
upp klaufalega tilburði Bush í um-
ræðum um utanríkismál, þar sem
margir telja hann ekki upplýstan sem
skyldi. Fréttaskýrendur segja einnig,
að hann ætti að fara varlega í að
daðra jafn opinberlega við flokks-
menn yst til hægri í flokknum og
hann hefur gert undanfama daga í
Suður-Karólínu, því það yrði áreiðan-
lega rifjað upp í slagnum um forseta-
embættið og hann myndi þá missa
kjósendur af miðjunni tii demókrata.
Bush hefur einnig verið gagnrýnd-
ur fyiár að stinga höfðinu í sandinn
eftir slæma útreið í New Hampshire.
Hann og fylgismenn hans kenni flestu
öðra um tapið en sjálfum sér, sem
þýði að þeir geti ekki fundið lausn á
vandanum og fylgið haldi því áfram
að hrynja af ríkisstjóranum. Los
Angeles Times hefur eftir Tony Fa-
brizio, sem starfaði að misheppnuðu
framboði Elizabeth Dole, að Bush
hefði ekki enn gefið kjósendum góða
ástæðu til að kjósa sig. Frambjóða-
ndinn gæti ekki eingöngu sent frá sér
þau skilaboð að hann hefði nægt fé,
fjölda stuðningsmanna innan flokks-
ins og væri því óhjákvæmilegur kost-
ur.
McCain hleypt að í New York
Þrátt fyrir að kosningavél Bush sé
farin að hökta er of snemmt að reikna
með að hún stöðvist á næstunni.
Hann hefur enn Repúblikanaflokkinn
á bakvið sig, þótt stuðningur flokks-
ins hafi á stundum gert honum meira
ógagn en gagn. Sú er a.m.k. raunin í
New York, þar sem flokkurinn reyndi
að koma í veg fyrir að nafn McCain
birtist á kjörseðlum. Vegna flókinna
reglna flokksins um skráningu fram-
bjóðenda og tímamörk tókst McCain
ekki að fá því framgengt að vera á
kjörseðlum nema í 14 af 31 kjördeild.
Harm höfðaði mál, þar sem hann taldi
reglumar ganga gegn stjórnar-
skránni, en á fimmtudag sendi flokk-
urinn frá sér tiikynningu þar sem
hann féll frá reglunum. Þessi hugar-
farsbreyting var ekki síst vegna þess,
að Bush og fylgismenn hans lögðu
hart að flokknum að hleypa McCain
að, enda umræða í fjölmiðlum öll á þá
lund, að baráttan væri óréttlát ef
menn skýldu sér á bakvið snúnar
flokksreglur af þessu tagi.
Þingmenn repúblikana, sem áður
fylktu sér að baki Bush, era nú marg-
ir á báðum áttum. Bush þarf að vinna
sannfærandi sigur í Suður-Karólínu,
ef honum á að takast að halda stuðn-
ingi þeirra og sannfæra kjósendur
um leið um sterka stöðu sína. Tapi
hann er líklegt að áhrifamenn innan
flokksins snúi við honum baki. Þá
myndi hann lenda í veralegum vanda
í forkosningum repúblikana í næstu
sex ríkjum og ekki síst á Super Tues-
day sjálfum, 7. mars. Miðað við skoð-
anakannanir hefur hann sterkari
stöðu en McCain í stærstu n'kjunum,
til dæmis Kalifomíu. Þar líður McCa-
in fyrir þá staðreynd, að eingöngu
flokksbundnir repúblikanar geta kos-
ið, en hann hefur náð miklu fylgi frá
óháðum kjósendum. Takist McCain
hins vegar að sigra í Suður-Karólínu
er líklegt að margir flokksmenn í Kal-
ifomíu og öðram stóram ríkjum
myndu hætta að líta við Bush og
kjósa hann í staðinn.
Róðurinn verður McCain ábyggi-
lega þungur, því kjósendur í Suður-
Karólínu era ekki eins ginnkeyptir
fyrh- einföram eins og honum og era
hallir undir þá skoðun Bush, að
McCain sé frjálslyndari en hollt sé.
Hlutfall óháðra kjósenda, sem veittu
McCain brautargengi í New
Hampshire, er mun lægra í Suður-
Karólínu og kristnir íhaldsmenn era
þar fjölmennari, eða um þriðjungur
kjósenda. Þeir era tvímælalaust hall-
ari undir Bush.
Gore sterkari en Bradley
herbúðum demókrata er stund
milli stríða. Þeir héldu að vísu for-
kosningar í Delaware i gær, laugar-
dag, en þær era ekki bindandi og
hvoragur frambjóðenda, A1 Gore eða !
Bill Bradley, lagði nokkra áherslu á
kosningabaráttu þar. Þeirra hugur er
bundinn við Super Tuesday, 7. mars.
Báðir héldu þeir frá New Hampshire
til New York, en gerðu stutt stopp
þar og fóra til Kalifomíu, Gore til Los
Angeles í suðurhlutanum og Bradley
til San Francisco 1 norðri. Líklega
verða þeir mikið á ferðinni í ríkinu
fram að forkosningunum, enda hefur
ekkert ríki fleiri fulltrúa á landsfundi
Demókrataflokksins í ágúst. Þessa !
fulltrúa slást þeir um, því landsfun-
durinn velur forsetaframbjóðandann,
líkt og hjá Repúblikönum.
Gore þykir enn mun sigurstrang-
legri hinn 7. mars en Bradley, sem
neitaði að gefast upp þrátt fyrir tap í
New Hampshire, enda var mjótt á
mununum. Varaforsetinn stendur
sérstaklega vel að vígi í Kaliforníu,
Ohio og New York og hæpið að Brad-
ley nái að vinna þann mikla mun upp.
í New Hampshire sótti Bradley fylgi
sitt að miklu leyti til hvítra, háskóla-
menntaðra kjósenda, sem hafa ekki
eins mikið vægi í mörgum öðram ríkj-
um. Gore á nánast allt fylgi hefðbund-
inna kjósenda Demókrataflokksins,
hvítra kjósenda í verkalýðsstétt og fé-
laga í stéttarsamtökum, til dæmis
kennara.
Demókratar hafa, líkt og
repúblikanar, fremur ama af jafnri
samkeppni um útnefninguna en hitt.
Flokksmenn beggja flokka h'ta svo á,
að því lengri túni sem líði án þess að
afgerandi iiiðurstaða fáist, þeim mun
minni líkur eigi frambjóðandinn á að
koma fram sem hinn sterki leiðtogi
flokksins að hausti. Þetta ætlaði
Repúblikanaflokkurinn að koma í veg
fyrir, með því að styðja við bakið á
Bush, en McCain hefur hleypt öllu í
uppnám. Nákvæmlega sömu sögu er
að segja af demókrötum, þar sem
varaforsetinn hefði af mörgum verið
talinn sjálfsagður arftaki Clintons, ef
Bradley hefði setið heima. Vissulega
voru svo ýmsir minni spámenn í báð-
um flokkum, sem vildu láta til sín taka
í slagnum, en Gore og Bradley vora
þeir einu sem héldu í forkosningar
demókrata og þeir repúblikanar, sem
börðust gegn Bush og McCain, eru
óðum að týnast á brott eftir misháðu-
lega útreið í forkosningunum.
Gore sækir að Bush
í könnunum
Þegar kjósendur hafa verið spúrðir
i skoðanakönnunum hvor þeir telji að
fari með sigur af hólmi í forsetakosn-
ingunum næsta haust, Bush eða
Gore, hefur Bush ávallt haft vinning-
inn. Það er ekki að ástæðulausu að
áhrifamenn í flokknum hafa fylkt sér
um hann, Bush hefur verið maðurinn
sem á að endurheimta Hvíta húsið.
Þessar kannanir gerðu það einnig að
verkum, að fjöldi demókrata ákvað að
styðja Bradley, af ótta við að Gore
myndi missa Hvíta húsið í hendur
repúblikana. En nú hefur Gore
styrkst mjög í hnífjafnri baráttunni
við Bradley í New Hampshire og sýnt
mikinn eldmóð og um leið unnið á í
skoðanakönnunum um næsta forseta.
I nýjustu könnuninni, sem unnin var
á vegum Wall Street Journal og
NBC, kom í ljós að Gore var aðeins
þremur prósentustigum frá Bush. Á
næstu vikum er líklegt að Gore sígi
framúr, eftir sigurinn í New
Hampshire þar sem Bush tapaði. Þá
fer nú fyrst að fara veralega um ríkis-
stjórann frá Texas og fylgismenn
hans.
Þrátt fyrir að landsfundur
repúblikana verði ekki haldinn fyrr
en í lok júlí í Ffladelfíu og landsfun-
dur demókrata í Los Angeles um
miðjan ágúst telja flestir, að um miðj-
an mars, eftir forkosningarnar á Sup-
er Tuesday, verði í raun Ijóst hverjir
verði frambjóðendur flokkanna í for-
setakosningunum í nóvember. Brad-
ley getur neitað að horfast í augu við
stöðu sína, eða öllu heldur haídið
áfram að vona, þar til niðurstöðumar
í ríkjunum fimmtán liggja fyrir, þar
sem allt bendir til að Gore varaforseti
fari með sigur af hólmi. Hvemig sem
fer hjá McCain og Bush í Suður-
Karólínu muni þriðjudagurinn 7.
mars endanlega skera úr um hvor
þeirra standi sperrtur á landsfundi og
þiggi útnefningu Repúblikanaflokks-
ins.
FLESTAR VERSLANIR
frá kl. 13.00 - 17.00
STJÖRNUTORG
skyndibita- og veitingasvæðið
frá kl. 11.00-21.00
alla daga.
KrÍKq(cKK
P H R 5 E MI J fl R T H Ð 5 L (E R
UPPlÝSINBRSlMI 5 B 8 7 7 8 B SKRIFSTDFUSlMI 5 6 8 8 2 8 8