Morgunblaðið - 06.02.2000, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
V erkamannasambandið og Flóabanda-
Grétar vantar líka að fá mokað í skjóðuna sína.
NS-7 hljómflutningstæki
• 2x50W RMS-útvarpsmagnari meö 24 stöðva minni
• Einn diskur • Aðskilin bassi og diskant
• Stafræn tenging • Tvískiptur hátalari (2 way)
• Subwoofer • Hátalarar líka til í rósavið
Þau hrífa bæði
augu og eyru
NS-9 hljómflutníngstaeki
• 2x50W RMS-útvarpsmagnari með 24 stöðva minni
• Einn diskur • Aðskilin bassi og diskant
• Stafræn tenging • Tvískiptur hátalari (2 way)
• Subwoofer • Hátalarar líka til í rósavið
69»90Cí; kr.stgr.
NSDV-1 Hljómtækjablaðamenn voru ekki I vafa um
hverjum ætti að veita EISA verðlauninn þetta árið.
Pioneer NSDV-1 er fyrirferðarlrtil, glæsilega hönuð og
hugsuð fyrir þá sem eru kröfuharðir á hljóð- og
myndgæði. Pioneer NSDV-1 eru hijómtæki
framtíðarinnar og allt I senn: útvarp/cd og DVD, fimm
: hátalarar + djúpbassi. Dolby digital (AC-3) hljóði. 5X30
Rms W magnara
189.900
kr. stgr.
11 ||dolby|
dioital
Það <sr 3. áta ábyrgð á Píon&sr
hjá Bræðrunum Qrm&son,
þegar hljómtæki skipta máli
bræðurnir
tjlOKMSSON
Lágmúlo 8 • Slmi 533 2800
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
Ljóðasamkeppni Ibúasamtaka Vesturbæjar
Hægt að
velja um þrjú
yrkisefni
Ibúasamtök Vestur-
bæjar standa um
þessar mundir fyrir
ljóðasamkeppni meðal
Vesturbæinga. Þessi sam-
keppni er í tengslum við
Reykjavík, menningar-
borg árið 2000. Ása Helga
Ragnarsdóttir kennari er í
stjórn íbúasamtaka Vest-
urbæjar og hefur umsjón
með ljóðasamkeppninni.
„Við erum með þrjú við-
fangsefni til að yrkja um.
Þau er; Gatan mín, kirkju-
garðurinn og höfnin. Það
verður ljóðadagskrá við
þessa staði þegar úrslitin
verða tilkynnt. Vegleg
peningaverðlaun eru í
boði. Samkeppnin er ald-
ursskipt þannig að börn,
ungt fólk og fullorðið fólki
keppir innbyrðis. Verð-
launin eru sem fyrr sagði
peningar og eru upphæðirnar 30
þúsund krónur í hverjum aldurs-
flokki. Skilafresturinn rennur út
15. mars nk. og þeir sem vilja
taka þátt í ljóðasamkeppninni
eiga að setja ljóð sín í umslag og
merkja þau með dulnefni og fæð-
ingarári. Síðan eiga skáldin að
setja nafn, símanúmer, fæðingar-
ár og heimilisfang í annað umslag
sem er lokað og þetta umslag og
ljóðið setja skáldin síðan saman í
umslag sem merkt skal vera:
Vesturbæjarsamtökin pósthólf
438,121 Reykjavík."
-Er þetta í fyrsta skipti sem
samtökin standa fyrir Ijóðasam-
keppni?
„Já, þetta er í fyrsta skipti sem
staðið hefur verið að slíku, en við
höfum hins vegar verið með aðrar
uppákomur, svo sem alls konar
fjölskylduhátíðir, til að hlúa að
fjölskyldunni.“ •
-Áhúní vök að verjast í Vest-
urbænum?
„Nei, hreint ekki, þetta er bæði
grænt og vænt hverfí en það er
alltaf gott að minna á mikilvægi
þess að vera saman.“
- Eru þetta fjölmenn samtök?
„Já, allir eru í þeim sem búa í
vesturbæ Reykjavíkur, en auðvit-
að eru íbúarnir misjafnlega virk-
ir. Við höfum haldið fundi á Kaffi
Reykjavík og í Naustinu, þar sem
þeir staðir eru í okkar hverfi og
við fáum þar góða þjónustu."
-Hver átti hugmyndina að
ljóðasamkeppninni?
„Hugmyndin kom upp á stjórn-
arfundi og við ákváðum að sækja
um styrk til Reykjavíkur menn-
ingarborgar og urðum satt að
segja hissa þegar við fengum
styrkinn. Við ákváðum þá að
reyna að standa veglega að þess-
ari keppni. Við vonumst til að fólk
opni skúffurnar sínar og dragi
upp ljóðin sem það hefur geymt
þar lengi.“
- Eru mörg Ijóðskáld búsett í
Vesturbænum?
„Já, þau eru nokkur, ________
Þórarinn Eldjárn er í
dómnefnd hjá okkur,
Sjón býr í okkar
hverfi, Didda og Þór-
unn Valdimarsdóttir
Ása Helga Ragnarsdóttir
► Ása Helga Ragnarsdóttir
fæddist í Reylqavík 1949. Hún
lauk kennaraprófi 1996 en hafði
áður lokið prófí frá Leiklistar-
skóla íslands 1976. Hún starfaði
sem umsjónarmaður barnatíma
Sjónvarps í þijú ár, hún var einn-
ig lengi dagskrárgerðarmaður
hjá Ríkisútvarpinu, hún hefur
einnig um árabil kennt leiklist en
starfar nú sem grunnskólakenn-
ari í Háteigsskóla. Ása er gift
Karli Gunnarssyni líffræðingi og
eiga þau samtals fjögur böm.
búa líka í Vesturbænum og marg-
ir fleiri, Ólína Þorvarðardóttir,
formaður samtakanna, hefur
einnig samið ljóð. Við í stjórninni
búumst við fjörugri keppni."
-Eru Ijóð farin að berast til
ykkar?
„Já, við höfum þegar fengið
mörg ljóð frá nemendum Vestur-
bæjarskóla, eldri borgum og
nokkur frá Menntaskólanum í
Reykjavík."
- Er Vesturbærinn góð upp-
spretta fyrir Ijóð og listir að þínu
mati?
„Tvímælalaust. Hér býr gott
fólk og umhverfið býður upp á
skemmtilega ljóðagerð. Hér í
Grjótaþorpinu sem ég bý er Unu-
hús þar sem helstu skáld þjóðar-
innar voru tíðir gestir. Fjalakött-
urinn sálugi var hér á næsta leiti
og margir hafa ort um hann.
Tómas Guðmundsson gekk hér
um götur og orti um Vestur-
bæinn. Vesturbærinn hefur lengi
verið skáldum hugleikinn."
__ -Hver eru helstu baráttumál
íbúasamtaka Vesturbæjar?
„Við höfum aðallega lagt
áherslu á verndun gamalla húsa,
umhverfismál, svo sem hraða-
hindranir, til að koma í veg fyrir
ógætilegan akstur. Við höfum
einnig viljað stuðla að skynsam-
legri nýtingu auðra lóða.“
-Er byggðin ekki afar þétt í
ykkar hverfi?
„Jú, en það þarf ekki að vera
verra. Það er í lagi að byggð sé
þétt, svo framarlega sem hún er
skipulögð af skynsemi, himinhá
steinhús sóma sér illa við hliðina
á litlum og sætum timburhúsum.
Það þarf að gæta samræmis í
byggðinni.“
- Hvernig hefurgengið að gera
Grjótaþorpið barnvænt?
________________ „Það hefur gengið
Áhersla lögð veL Grjótaþorpið er
á verndun lokaðra en áður var _
éamalla húsa minni ágangur og
gamana nusa færri 0pin svæði Hér
er yndislegt að búa,
náungakærleikur er í fyrirrúmi.
Þetta er raun lítið þorp þar sem
allir þekkja alla. Þegar maður
býr í miðbænum býst maður við
að þar sé meiri hávaði en í út-
hverfum og sættir sig við það.
Það er notalegt að búa í Grjóta-
þorpinu með öllum þess kostum
og göllum - ég vil hvergi annars
staðar vera.
www.ormsson.is