Morgunblaðið - 06.02.2000, Page 10

Morgunblaðið - 06.02.2000, Page 10
10 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Veðjað á vísindin? Margt bendir til þess að rannsóknir í læknisfræði standi vel hér á landi. Þrátt fyrir að fjármagn sé af skornum skammti gefur alþjóðlegur samanburður tilefni til bjartsýni, en mjög skortir þó á að grunnrannsóknum sé nægilegur gaumur gefínn. Þetta er meðal þess sem fram kemur í úttekt Björns Inga Hrafnssonar, en þar er rætt við tólf prófessora og þrjá dósenta í læknadeild Háskól- ans um aðstæður og horfur í læknisfræðirannsóknum hér á landi auk þess sem rifjaðar eru upp niðurstöður nýlegrar skýrslu um stöðu grunnvísinda hér á landi. THYGLISVERÐAR niðurstöður rannsóknar um stöðu grunnvísinda á íslandi voru kynntar á ráðstefnu Rannsóknarráðs íslands (Rannís) skömmu fyrir áramót. Þórólfur Þórlindsson og Inga Dóra Sigfúsdóttir kynntu þá skýrslu sína um stöðu íslenskra grunnvísinda þar sem m.a. kom fram að ef litið er á birtingar íslenskra vís- indamanna í ritrýndum erlendum tímaritum og hversu oft er vísað til íslenskra vísindamanna í öðrum greinum kemur í Ijós að íslenskir vís- indamenn standa nágrannaþjóðunum ekki að baki miðað við höfðatölu. Á sama tíma er ís- lenskt fjármagn til rannsókna mun minna en hjá nágrannaþjóðunum. Morgunblaðið greindi frá fundinum á sínum tíma og kom þar m.a. fram að þessi niðurstaða hefði virst koma ýms- um fundarmönnum á óvart og reynt hefði verið að leita skýringa á því hvers vegna íslenskir vísindamenn stæðu svo framarlega sem raun ber vitni. Meira fjármagn íVísindasjóð Á fundinum kom m.a. fram að sá mælikvarði sem notaður hefði verið til að meta árangur vís- indamanna væri að rannsaka fjölda og gæði birtra greina í ritrýndum tímaritum og eins til- vitnanir í vísindamenn. Við slíkt árangursmat hefði verið stuðst við gögn úr NSI (National Seience Indicators Database) gagnagrunninum en þar kom fram að ef litið væri til birtingar greina eftir íslenska vísindamenn í ritrýndum tímaritum kæmi fram að íslenskir vísindamenn væru í tólfta sæti væri miðað við höfðatölu, næst á eftir Bandaríkjunum og Noregi. Þegar litið er til tilvitnana í íslenska vísindamenn er árangurinn enn betri. I skýrslunni eru einnig skoðuð afköst ís- lenskra vísindamanna í einstökum fræðigrein- um og kemur þá í ljós að vísindagreinamar standa með mismunandi hætti. Fjöldi birtra greina í erlendum fagtímaritum er mest í klín- ískri læknisfræði og jarðvísindum en engar í lögfræði svo dæmi sé tekið. Ástæða þess er meðal annars að fagleg umræða í lögfræði eins og mörgum hugvísindum fer frekar fram í ís- lenskum tímaritum en erlendum. Þegar niðurstöður skýrsluhöfunda voru kynntar sagði Þórólfur Þórlindsson m.a. að for- gangsatriði væri að veita meira fjármagn í Vís- indasjóð, mótuð yrði stefna í grunnvísindum þar sem Háskólinn legðí meiri áherslu á að vera rannsóknarháskóli og mikilvægi mennt> unar ungra vísindamanna og að þeim væri gef- inn kostur á að hefja rannsóknir hér að námi loknu. Þá lagði Þórólfur áherslu á mikilvægi þess að stjórnmálamenn kæmu að stefnu- mörkun í þessum efnum án þess þó að skerða akademískt frelsi. Skortir vísindalega þekkingu á gagnsemi úrræða Viðmælendur Morgunblaðsins virðast flestir þeirrar skoðunar að rannsóknir í læknisfræði standi betur hér á landi en vænta mætti í ljósi skorts á aðstöðu og fjármagni. „Sagan hefur kennt okkur að margt af því sem talin var góð og gild læknisfræði hér áður fyrr reyndist það alls ekki þegar betur var að gáð,“ segir Jóhann Ágúst Sigurðsson, prófess- or og forseti læknadeildar Háskólans. Hann segir að í sumum tilvikum hafi meðferð sjúkl- inga alls ekki verið studd neinum vísindalegum rökum, svo sem blóðtaka við nær öllum sjúk- dómum hér fyrr á öldum. I öðrum til- vikum höfðu mönn- um yfirsést hugs- anlegar aukaverkanir lyfja- meðferðar svo sem lyfsins thaledomid, sem notað var sem svefnlyf, en olli vanskapnaði á fóstrum ef þungað- ar konur tóku lyfið snemma í með- göngunni. Jóhann segir að rannsóknir lækna hér á landi verði t.d. að reyna að finna orsakir þess að um 30% barna á aldrinum 1^4 ára eru með rör í eyrum. Það er miklu stærra hlutfall en erlendis. Þá er stórt hlutfall fullorðinna á þunglyndislyfjum. Orsaka við slíku verður að leita.“ „Á síðustu áratugum hafa menn gert sér æ betur ljóst að það skortir vísindalega þekldngu á gagnsemi ýmissa úrræða sem beitt er í lækn- isfræði nútímans. Það hefur einnig komið í ljós að oft er beitt læknisaðferðum sem búið er að sanna með vísindalegum rannsóknum að geri ekkert gagn. Til eru fjölmörg dæmi af þessu tagi sem styðja nauðsyn þess að stunda rann- sóknir í læknisfræði," segir Jóhann. Framlag íslenskra lækna til fræðastarfa íslenskir læknar stíga sín fyrstu spor á vís- indasviðinu á 4 ári í læknadeild. Flestir fara síðan erlendis til frekara sérnáms. Jóhann seg- ir að þar haldi margir áfram fræðastörfum á virtum háskólastofnunum. Þeir afli sér mikil- vægrar reynslu og tengsla við erlenda vísinda- menn og margir þeirra haldi áfram fræðastörf- um eftir að þeir koma aftur heim. „Eg tel afköst íslenskra fræðamanna í lækn- isfærði í raun undraverð í alþjóðlegu samhengi og miðað við höfðatölu en þá tel ég með allt framlag þeirra til vísinda bæði innan lands og utan,“ segir hann. Forseti læknadeildar segir að margir hafi velt því fyrir sér hvort það sé eitthvert vit í því að stunda grunnrannsóknir hér á landi, þar eð í mörgum tilvikum sé mun ódýrara að gera slík- ar rannsóknir erlendis á stórum rannsóknar- stofum, útbúnum nýjustu og bestu rannsóknar- tækjum sem völ er á. „Þessu er auðvelt að svara. Fyrir utan sjálíar niðurstöður rannsókn- anna skapa umsvifin í kringum rannsóknar- starfsemina þekkingu og reynslu sem ekki er hægt að fá með öðrum hætti og nýtist einkum í því landi sem rannsóknimar eru stundaðar. Nýjasta og gleggsta dæmið hér á landi er stofnun og starfræksla fyrirtækisins Islensk erfðagreining (ÍE). Menn mega heldur ekki gleyma því að Island og íslendingar eru ein allsherjar rannsóknarstofa út af fyrir sig, með aðstöðu sem á sér enga líka erlendis. Þetta á einkum við um faraldsfræðilegar rannsóknir, vel afmarkaða íbúakjama, og gott þjóðfélags- kerfi sem oft leyfir úrvinnslu á tölvutækum gögnum sem þegar em fyrir hendi.“ Jóhann bendir á að akademískum störfum sé að jafnaði skipt í fjóra aðal þætti, þ.e. rann- sóknir, kennslu, stjómun og þróun fræðasviðs- ins. „Þessi samsetning er ekki nein tilviljun, heldur byggist hún á reynslu. Það er því vart hægt að tala um fræðastörf innan læknadeildar án þess að minnast á mikilvægi hinna þáttanna. Það er mjög mikilvægt að fræðimenn hafi eða fái tækifæri til þess að koma niðurstöðum sín- um á framfæri. Það geta þeir gert með kennslu eða fræðimennsku ýmiskonar og einnig með því að hafa ítök í stjórnum stofnana, bæði innan og utan háskólans. Þannig fara þessir þættir best saman eins og bland í poka,“ segir hann og leggur áherslu á nauðsyn þess að við höldum áfram á sömu braut og reynum að efla aðstöðu og afköst fræðimennsku í læknisfræði hér á landi með því að hlúa að þeim fræðimönnum sem fyrir eru og laða til okkar vísindamenn erlendis frá. Mjög fá rannsóknarteymi Þórður Harðarson, prófessor og sérfræðing- ur í lyflæknisfræði, segir rannsóknir í læknis- fræði standa með allmiklum blóma í dag. ,A þingi Rannís var talið, að mest rannsóknar- virkni hér á landi væri á sviðum jarðvísinda og klíniskrar læknis- fræði. Á þeirri hlið rannsókna, sem snýr að sjúkling- um eða heilbrigð- um einstaklingum eftir atvikum klín- iskum rannsókn- um, er góður skriður. Glögg dæmi um það eru rannsóknir tengd- ar Hjartavemd og Krabbameinsfé- laginu. Báðar þessar stofnanir hafa komið sér upp gagnagrunn- um, sem henta vel til faraldsfræði- rannsókna og erfðarannsókna, og báðar hafa nýlega laðað til sín alþjóðlega rannsóknar- styrki frá virtum aðilum í stærri stíl en áður hefur þekkst.“ Þórður bendir á að á sjúkrahúsunum í Reykjavík fari einnig fram klínískar rannsókn- ir í ríkum mæli. „Þær njóta óbeins stuðnings með vinnuframlagi ýmissa starfshópa og stuðningi stoðdeilda sjúkrahúsanna. Af þessu hlýst kostnaðarauki hjá sjúkrahúsunum, en slíkt hlýtur að teljast eðlilegt, og tíðkast alls staðar á háskólasjúkrahúsum nágrannaland- anna. Þar er víða talið að kennslu- og vísinda- hlutverk háskólasjúkrahúss auki útgjöld þess um 15-25%. Flestir læknar sjúkrahúsanna leggja hluta af launum sínum í vísindasjóð gegn mótframlagi spítalanna, en slíka sjóði þyrfti að efla. Þá leggja fyrirtæki töluvert af mörkum. Á sviði grunnrannsókna er annað upp á ten- ingnum. Mjög fá rannsóknárteymi hérlendis hafa náð þeirri stærð og styrk að niðurstöður þeirra nái alþjóðamáli. Meðal undantekninga má nefna rannsóknarstarfsemi á Keldum, nokkrar rannsóknarstofur Landspítalans og örfáar aðrar stofnanir.“ Að sögn Þórðar hafa styrkveitingar hins op- inbera hins vegar dregist saman með hverju ári. ,Aðgangur að erlendu styrkjafé er takmar- Þórður Harðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.