Morgunblaðið - 06.02.2000, Page 12

Morgunblaðið - 06.02.2000, Page 12
12 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 MORGUNBL.^ÐIÐ FRETTIR Finnska vísindaundrið VIÐMÆLENDUR Morgun- blaðsins nefndu margir gríðarlegar framfarir Finna í visindaheiminum á undan- förnum árum. Töldu þeir einsýnt að Islendingar gætu Iært margt af frændum vor- um, sem í miðri efnahag- skreppunni, sem hðfst skömmu áður en Sovétríkin liðuðust í sundur, hefðu ákveðið að margfakla fram- lög til vísindastarfsemi, einkum þó grunnrannsókna, og við það hefði allt vísinda- starf í landinu tekið vaxtar- kipp. Stórfyrirtækið Nokia er líklega besta dæmið um há- tæknifyrirtæki sem sprottið er upp úr þeim fijóa jarð- vegi sem verið hefur í finnskum grunnrannsókn- um síðasta hálfan annan áratug eða svo. Stórfyrir- tækið, sem áður var einkum þekkt fyrir stígvélafra- mleiðslu sína, hefur á allra sfðustu árum þanist út á heimsvísu, einkum vegna þeirrar þekkingar og þess forskots sem finnskir vís- indamenn tóku í heimi fjarskiptanna. Nokia- farsfma þekkja nú flestir og aðra hátækniframleiðslu fyrirtækisins. Finnar hafa einnig tekið stórt stökk fram á við í lyfja- iðnaði svo eftir hefur verið tekið. Finnsk fyrirtæki eru nú mörg í fararbroddi í rannsóknum og þróun nýrra lyíja. Islenskir læknar telja finnska dæmið kjörna ám- inningu til stjórnvalda hér á landi. Hugsanlegur ávinn- ingur þess að auka framlög til rannsókna sé mikill og fjárhagslegt mikilvægi öfl- ugra vísindastofnana og fyr- irtækja muni aukast enn frekar á komandi árum. í öðru lagi má nefna sérstöðu okkar á ýmsum sviðum sem gefur í sjálfú sér mjög verðug rannsóknarefni. Ekki þarf að fjölyrða um erfðafræðina, en fleira mætti nefna, t.d. rann- sóknir í faraldsfræði. Á því sviði eru ýmis tæki- færi vegna þess að með tiltölulega auðveldum hætti er unnt að ná til þorra þjóðarinnar og án þess að velja úr einhverja sérstaka hópa er unnt að rannsaka útbreiðslu og gang sjúkdóma í þjóðfélaginu eins og það leggur sig, leita að orsakavöldum og meta árangur meðferðar. Síðan mætta telja hinn almenna áhuga og vilja almennings til þátttöku í ýmiskonar rann- sóknum. Þetta hef- ur verið talsvert nýtt, t.a.m. við prófanir á nýjum lyfjum og þar hefur verið eftir því tekið hversu tiltölulega auðvelt hefur reynst að fá Islend- inga til þátttöku. Greinilegt er að áhugi er fyrir heil- brigðisvísindum og að fólk er tilbúið að leggja sitt af mörk- um.“ Sem styrkleika nefnir Guðmundur einnig til sögunnar almenna tölvuvæð- ingu hér á landi. Hún hafl rofið einangrun ís- lensks vísindasamfélags. „Fyrir fimmtán árum hefðu hin litlu og vanmáttugu bókasöfn hér á landi verið talin alvarleg hindrun. í dag held ég að áhyggjur af slíku séu óþarfi. Tölvutengsl við gagnabanka og erlend bókasöfn leysa þetta mál og í raun má fullyrða að öll landamæri séu úr sögunni.“ Að síðustu nefnir Guðmundur til sögunnar lífsviðhorf íslendinga sem lýsi sér í viðkvæðinu „Þetta reddast“. Þetta lífsviðhorf hefur e.t.v. stuðlað að árangri í íslenskum rannsóknum þrátt fyrir litla fjármuni og takmarkaða að- stöðu.“ Smæð samfélagsins Helstu veikleika í íslenskum heilbrigðisvís- indum taldi hópurinn vera smæð samfélagsins, smæð stofnana, rannsóknarhópa og sjóða. Mjög oft standi peninga- og aðstöðuleysi nauð- synlegum framförum fyrir þrifum. „Hér á landi vantar dýrmæta hlekki í rann- sóknarhópana. Stór hluti af unga fólkinu, dokt- orsefni og unglæknar í framhaldsnámi, dvelja árum saman erlendis við nám og störf. Þetta er það verð sem við greiðum fyrir hina alþjóðlegu menntun og alþjóðlegu tengsl. Því eru tvær hliðar á því máli og í raun einnig í viðhorfinu „Þetta reddast“, það getur bæði verið veikleiki og styrkleiki.“ Sóknarfæri fyrir heilbrigðisvísindi voru nefnd til sögunnar, ekki síst þar sem við ís- lendingar værum rík þjóð og gætum aukið tals- vert framlög til rannsókna án þess að herða sultarólina. Næðist almenn viðurkenning á því að fjárveitingar til rannsókna væru góð fjár- festing og líklegar til að skila samfélaginu ríku- legum arði væri unnt að styrkja að mun mikil- vægustu vísindasjóðina. „Sú gríðarlega tækni- og iðnþróun sem er að verða í kringum heilbrigðisþjónustuna er jarð- vegur arðbærrar nútímalegrar atvinnu- sköpunar. Þetta sjáum við á nokkrum þeim fyr- irtækjum sem eru í örustum vexti og mest spennandi fyrir fjárfesta í dag, t.d. Islenska erfðagreiningu, Urði, Verðandi og Skuld, Flögu og Össur,“ segir Guðmundur. Vinnuhóp- urinn ræddi einnig hugsanlegar skipulags- breytingar innan heilbrigðiskerfisins sem fælu í sér ný tækifæri með stærri og öflugri stofnun- um, eflingu Háskólans og tengdra stofnana. Loks er ljóst að þverfaglegar rannsóknir bjóða upp á ríkuleg tækifæri í heilbrigðisvísindum því mjög fijór jarðvegur er á landamærum heilbrigðisvísinda og annarra vísinda. Þar mætti nefna sem dæmi læknisfræði og verk- fræði, sem t.d. fyrirtækið Flaga væri sprottið upp úr og eins samstarf erfðafræði og lyfja- fræði, sem erfðafræðifyrirtækin byggðu grunn sinn á. Hnignun vi'sindaþekkingar Andstætt þeirri trú sem almennt er talið að fólk hafi á framþróun vísindanna, segir Guð- mundur að athygli veki hversu erfitt sé að fá kennara til kennslu í stærðfræði og öðrum vis- indagreinum og sárafáir séu að búa sig undir kennslustörf í þessum greinum. Þetta eigi við nánast á öllum skólastigum. „Vissulega má kenna góðu atvinnuástandi hér um að ein- hveiju leyti, en þessi vandi einskorðast alls ekki við Island. Hér er því líklega einnig um að kenna þeim miklu kröfum sem gerðar eru í vís- indanámi og því miður gangi ekki öllum nægi- lega vel að standast þær. Nauðsynlegt er að styrkja þennan grunn því hann er jarðvegur allrar vísindastarfsemi." Guðmundur bætir því við að kostnaður stofnana og fyrirtækja við að vera samkeppnis- fær aukist sífellt. Kröfurnar séu að aukast og samkeppni eftir vinnuafli sé meiri nú en nokkru sinni. „Þetta kemur ungu fólki vel sem er að snúa heim frá námi í útlöndum. Hins veg- ar er ástæða til að bæta enn frekar aðstöðu þeirra sem vilja snúa heim og iðka vísindi sín hér,“ sagði Guðmundur. Of mikil vinnubyrði Brynjólfur Ámi Mogensen, dósent og for- stöðulæknir á slysa- og bráðasviði Sjúkrahúss Reykjavíkur, segir nauðsynlegt að styrkja bæði grunn- og klínískar rannsóknir. Brýnt sé einnig að sjá til þess að þeir sem áhuga og getu hafi til rannsókna fái að stunda þær. Slíku sé ekki að heilsa í dag þar sem of mikil vinnubyrði margra lækna á öðrum sviðum hamli nauðsyn- legri framþróun. „Það er áberandi hvað menn vinna mikinn hluta sinna rannsókna af vilja og áhuga í frítíma sínum. Þessu þyrfti að breyta svo enn meiri alvara færðist í rannsóknir," seg- ir Brynjólfur. Hann segir einkar athyglisvert hve mikið af athyglisverðum rannsóknum hafi í raun komið frá læknadeild með hliðsjón af því hve fámenn deildin og raunar þjóðin sé. Þetta sýni hve framsæknin sé mik- il. „Við höfum alls ekki úr sama fjár- magni að spila og aðrar þjóðir en engu að síður hefur svo vel tekist til. Fjármögnun verk- efna er þó enn stærsti höfuðverkur íslenskra vísinda- manna, þótt það hafi sem betur fer breyst nokkuð til batnaðar hin síðari ár. Rannís hefur styrkst nokkuð og nú er einnig svo komið að góð verk geta fengið fé úr sjóðum Evrópusambandsins ef um fjölþjóða rannsóknir er að ræða. Einnig virðast einhveij- ir gluggar vera að opnast til Bandaríkjanna í þessum efnum,“ segir hann og telur framtíðina að nokkru leyti bjarta vegna þessa. „Við sem vinnum við slys og forvamir þeirra höfum mjög mikinn áhuga á að koma upp góð- um gagnabanka um slys sem nýtta mætti til að auka þekkingu á slysum og orsökum þeirra. Slík vinna er einn angi grunnrannsókna sem afar brýnt er að verði hafðar til vegs og virð- ingar hér á landi. Séu niðurstöður slíkra rann- sókna þróaðar áfram yfir í hagnýt gögn má fara að reikna ágóða af þeim í háum tölum. Heildarkostnaður vegna slysa hér á landi á ári er milli 20 og 30 milljarðar króna. Það er því auðvelt að sjá nytsemdina í rannsóknum til for- varna í þeim málaflokki,“ segir Brynjólfur. Frumkvæðið áfram í höndum fslenskra lækna Gunnar Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir lyflækningadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur, segir að þrátt fyrir aukna erlenda samvinnu, sem sé oft æskileg og nauðsynleg, hljóti frum- kvæði að læknisfræðilegum rannsóknum áfram að verða í höndum íslenskra lækna og vísinda- manna. „Læknadeild Háskóla íslands ætti að vera kjaminn í slíku rannsóknarumhverfi ásamt sjúkrahúsunum í Reykjavík og FSA. Sjálf- stæðar rannsóknarstofnanir gegna auðvitað af- ar mikilvægu hlutverki í þessu sambandi á af- mörkuðum sviðum, t.d. Rannsóknarstöð Hjartavemdar og Rannsóknastofa Krabba- meinsfélagsins. Sjálfstæð fyrirtæki koma væntanlega í vaxandi mæli inn á þetta svið eins pg við höfum séð með góðum árangri, t.d. hjá ÍE, Flögu, UVS og fleirum. Þessi fyrirtæki hafa einmitt undirstrikað að hingað til hafa rannsóknareiningamar verið of litlar og van- máttugar," segir hann og nefnir aukinheldur að íslenskur lyijaiðnaður gæti orðið mikilvægur þátttakandi í slíku samstarfi. Til að efla klín- ískar rannsóknir telur Gunnar nauðsynlegt að tvinna saman starfsemi sjúkra- húsanna við læknadeild Há- skóla íslands mun meir en verið hef- ur. Með því fengi rannsóknarvinna meiravægiídag- legt starf sjúkra- húsanna og betur yrði gert ráð fyrir slíkri vinnuí skipulagningu og áætlunum þeirra „Framhaldsnám íslenskra lækna hefur farið að mestu fram erlendis og mun gera það áfram vegna takmarkaðs sjúklingafjölda hérlendis. Hins vegar væri æskilegt að seinni hluti slíks framhaldsnáms sem oft er hluti af doktorsnámi flyttist hingað svo að þessi rannsóknarvinna ís- lenskra lækna og vísindamanna nýttist hér á landi og styddist við íslenskan efnivið. Til þess að svo verði þyrfti að stofna ákveðinn fjölda af rannsóknarstöðugildum, t.d. 10 stöður til 2-3 ára, sem ætlaðar væm til afmarkaðra rann- sóknarverkefna. Þessar stöður gætu verið kostaðar að hluta af einkafyrirtækjum eða vís- indasjóðum. Um þessar stöður gætu sótt ein- staklingar, stofnanir eða deildir og þær yrðu veittar af læknadeild eftir gæðum rannsóknar- verkefnanna. Slíkar stöður myndu án efa fylla talsvert upp í áberandi skarð í læknisfræðUeg- um rannsóknum á íslandi í dag.“ Gunnar bendir á að vissulega þyrfti þar fyrir utan að efla Rannís svo unnt yrði að veita rann- sóknarstyrki á sviði læknisfræði til nokkurra ára í senn. Slíkt gerði kleift að vinna markviss- ara en hingað til að áhugaverðum íslenskum verkefnum. Forsendur framfara Ásgeir Haraldsson, prófessor og yfirlæknir Bamaspítala Hringsins, segir að aldrei verði mikilvægi rannsókna í læknisfræði ofmetið. Grunnrannsóknir og klínískra rannsóknir era einfaldlega forsendur framfara í greininni, að hans mati, og varða því mannkyn allt. „Það er ekki svo langt síðan menn deildu um lögun jarðar, upprana tegundanna og tilvist himintunglanna. Það er líka skammt síðan menn áttuðu sig á að líf kviknar ekki af sjálfu sér, fundu bakteríur og áttuðu sig síðan á möguleikum á markvissri meðferð, t.d. með sýklalyfjum. Þetta tökum við sem eðlilegan sannleika í dag. Stöðugt vakna þó nýjar spum- ingar og ögrandi verkefni sem leita þarf lausna á,“ segir hann. Ásgeir segir að færa megi þrenns konar rök fyrir því að rann- sóknarstarfsemi á háskólasjúkrahúsi verði að vera öflug. „Fyrst verður að telja öflun þekking- ar. Grunn- og klín- ískar rannsóknir skapa grunninn að nýrri þekkingu sem bætir meðferð sjúkdóma. Á ís- landi má nefna rannsóknarstofn- anir eins og Keld- ur, IE, sjúkrahúsin og læknadeild. Okkur er nauðsyn að þekkja íslensk- ar aðstæður svo bregðast megi við á réttan hátt. Þannig verða menn t.d. að þekkja hvaða sjúkdómar era al- gengir á íslandi og hveijar era orsakir þeirra. Slíkar rannsóknir verða ekki beint yfirfærðar frá erlendum stofnunum þar sem aðstæður eru aðrar. Sem dæmi má nefna að okkur er nauð- Brynjólfur Mogensen Gunnar Sigurðsson synlegt að vita hverjar era algengustu bakter- íutegundir sem valda sýkingum hjá bömum og hvaða meðferð virkar best. Fjölmörg dæmi af svipuðum toga mætti nefna. Grunnrannsóknir um tilurð sjúkdóma eða viðhald heilsu era einn- ig mikilvægar. Okkur ber auk þess skylda til að stuðla að aukinni þekkingu í læknisfræði í hehninum þar sem því verður við komið,“ í öðra lagi nefnir Ásgeir til sögunnar mat á árangri og stöðu. „Rannsóknir í læknisfræði era öragg aðferð til að meta árangur starfsins, stöðu læknisfræði og þjónustu við sjúklinga á íslandi. Á þann hátt má bera árangur hér á landi saman við önnur lönd og grípa til viðeig- andi ráðstafana þegar nauðsyn ber til.“ Þriðjaog síðasta atriðið er svo kennsla og þjálfun. Ásgeir segir að ekki megi vanmeta þá þætti í læknisfræði og heilbrigðisvísindum. Rannsóknir séu mikilvægur þáttur kennslunn- ar enda þjálfist viðkomandi í öguðum og markvissum vinnubrögðum og verði betur í stakk búinn til að meta rannsóknarniðurstöður annarra. ,Á þann hátt má segja að rannsóknir séu einnig nauðsynlegar rannsóknanna vegna.“ Ásgeir segir að þótt færa megi rök fyrir því að rannsóknir í læknisfræði séu nokkuð góðar á íslandi sé metnaður okkar þó miklu meiri og nauðsynlegt að nýta betur þau tækifæri sem hér era fyrir hendi. „Fjárskortur hefur þó ver- ið alvarlegur dragbítur á framgang rannsókna á íslandi. Augu manna hafa nú opnast fyrir því að rannsóknir geta einnig skilað miklum hagn- aði, bæði í auram talið sem og í bættum árangri lækninga," segir hann. Kostnaður vaxið en framlög staðið í stað Eiríkur Steingrímsson, rannsóknar- prófessor í lífefna- og sameindalíffræði, segir að mjög margt gott sé gert í rannsóknum í læknavísindum hér á landi og vísar m.a. í skýrslu Rannís máli sínu til stuðnings. „Það er því Ijóst að á íslandi starfa hæfi- leikaríkir og metnaðarfullir vísindamenn með menntun á við það sem best gerist. Þessi könn- un gerði að vísu ekki grein fyrir því hvernig rannsóknimar vora fjármagnaðar. Hins vegar er alveg ljóst að umfang þessara rannsókna er langt umfram það sem styrkir frá hinu opin- bera vísindastyrkjakerfi, t.d. Vísindasjóði, leyfa,“ segir Eiríkur og bendir á að kostnaður við rannsóknir hafi farið vaxandi að undan- fómu á meðan framlög til Vísindasjóðs hafi staðið í stað. „Það er hins vegar ýmislegt sem má betur fara í umhverfi íslenskra vísinda til að efla megi rannsóknir í læknisfræði enn frekar. Það þarf að bæta til muna það umhverfi sem íslenskir vísindamenn búa við til að skapa því möguleika á að ná árangri á heimsmælikvarða." Margfalda verður fjárframlög Eiríkur sejgir að að sínu viti þurfi einkum að laga femt. „I fyrsta lagi þarf að margfalda fjárframlög til Vísindasjóðs. Öll nágrannaríki okkar era að margfalda framlög hins opinbera til ftjálsra vísindarannsókna. Einnig er marg- földun í einkageiranum. Menn era að gera sér grein fyrir því að þær efnahagslegu framfarii’ sem orðið hafa undanfarin ár eiga upptök sín í þekkingariðnaði og því ber að styrkja hann með öllum ráðum. Sem dæmi má nefna að Bandaríkjastjóm hefur ákveðið að tvöfalda fjárframlög til Heilbrigðisstofnunar sinnar, National Institutes of Health, á fimm árum. Þeir hafa aukið framlögin um 15% nú í tvö ár í röð og það er engin smáaukning. Það kerfi sem Rannsóknarráð vinnur eftir við að útdeila styrkjum - jafningjamatið - virkar, og er besta leiðin til að tryggja gæði og eftirlit. Samkeppni um styrkina tryggir gæði rannsóknanna. En vegna þess hve Vísindasjóður hefur lítið fé milli handanna hefur verið vaiin sú leið að láta marga hafa litla styrki. Þetta er ekki rétta leið- in. Betra er að láta bestu verkefnin hafa fullan kostnað í lengri tíma og spyrja svo að leikslok- um. Það er afar mikilvægt að vísindamönnum sé gert kleift að vinna að rannsóknum þar sem mestar líkur era á að þeir nái árangri og leyfa þeim sjálfum að ráða hvers konar rannsóknir þeir stunda. Það hefur margoft sýnt sig að það boðar ekki gott að stýra rannsóknunum að of- an. I annan stað verður að afnema virðis- aukaskatt af rannsóknarvöram og tækjum sem notuð eru til rannsókna á rannsóknarstofnun- um á borð við Háskólann, Keldur, Hjartavernd og fleiri stofnunum sem ekki era reknar í hagn- aðarskyni, sem á ensku er nefnt non-profit. Það þekkist hvergi þar sem ég þekki til að stofnanir sem þessar greiði virðisaukaskatt. Samkeppn- isstaða okkar er erfið fyrir enda þurfum við að greiða flutningsgjöld og tolla af allri vöru.“ Fjárhagslegur ávinningur uppgötvana Þriðji þátturinn sem Eiríkur nefnir eru bókasafnsmálin. Ólíkt því sem vinnuhópur um heilbrigðisvísindi undir stjóm Guðmundar Þor- geirssonar hélt fram á þingi Rannís telur Eiríkur að úr málefnum bókasafna verði að bæta hið bráðasta. „Með tilkomu Netsins hafa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.