Morgunblaðið - 06.02.2000, Side 22
22 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
h
LISTIR
Dúntekja á Islandi
MYIVDLIST
Listasafn fslands
RONIHORN
LJÓSMYNDIR
Sýningfin er opin alla daga nema
mánudaga frá 11 til 17 og stendur
til 5. mars.
ÞAÐ ER gaman að sjá á Lista-
safni íslands sýningu á verkum
Roni Horn því hún er orðin þekkt
um víða veröld fyrir ljósmynda-
verk sín frá íslandi. í um tuttugu
og fímm ár hefur hún komið hing-
að og myndað og síðan birt myndir
sínar á sýningum og í röð bóka
sem gefnar eru út beggja vegna
Atlantshafsins. Myndröðin sem nú
er til sýnis nefnist PI og er skrá-
setning á því sem listakonan upp-
lifði á nyrstu annesjum Islands,
rétt undir heimskautsbaug, þar
sem samband mannsins og villtrar
náttúrunnar er nánara en annars
staðar. Þar myndar hún í landi
æðar- og dúntekjubænda og sýnir
eins og áður tilgerðarlausar og
beinskeyttar ljósmyndir af náttúru
og fólki í langri röð
sem hengd er hring-
inn í kringum sýning-
arsalinn en myndar í
raun óendanlegan hring því
með endurtekningum á
myndum og myndefni er
röðin látin vinda upp
á sig og snúast
um sjálfa sig og
efnið. Inn á milli
myndanna úr æðarvarpinu
og af dúntekjubændunum
má svo sjá myndir af ljós-
hærðri bandarískri leikkonu
úr einni af sápuóperunum
sem nú eru sýndar daglega í
sjónvarpi hér á íslandi.
Verk eftir Roni Horn hafa áður
sést á Islandi, á Nýlistasafninu, í
sýningarsalnum Annari hæð, sem
því miður er ekki lengur til, og í
Galleríi i8 í Ingólfsstræti, en þetta
er í fyrsta sinn sem hún er tekin
til sýningar í stóru safni hér á
landi með tilheyrandi textaútgáfu
og kynningu. Verk hennar hafa
hins vegar verið sýnd í
þekktustu sýningar-
sölum í Bandaríkjun-
um og í Þýskalandi og
verið valin á samsýningar
á borð við Documenta í
Kassel og tvíæringana í
Feneyjum
og í Sydn-
ey. Um
þessar mynd- ir hefur líka
mikið verið fjallað í bókum og
tímaritum þar sem gjarnan er
rætt um hið nána samband sem
listakonan hefur myndað við Is-
land, Islendinga og íslenska nátt-
úru. Það er ekki gott að segja hvað
dregur Roni frá fjölbreytilegu
menningarlandslagi New York
hingað norður í fásinnið en það er
óhætt að segja að í myndröðum
sínum og bókum hafí hún birt nýja
sýn á umhverfið hér, sýn sem okk-
ur Islendingum sjálfum hefði lík-
lega annars aldrei birst. En þrátt
fyrir það er Island aðeins vett-
vangur þessara mynda, en ekki
raunverulegt viðfangsefni þeirra.
Myndirnar eru teknar hér á ís-
landi og Island myndar eins konar
ramma utan um myndraðir Roni
Horn, en það sem heillar fyrst og
fremst í verkum hennar er hin
formræna skynjun og agaða fram-
setning þar sem hugmyndalist og
naumhyggja mætast. Þannig hafa
verk hennar inntak og aðdráttarafl
óháð myndefninu og ná að tala til
fólks hvar sem það er í heiminum.
Sýningin í Listasafni íslands er
gott dæmi um það og löngu tíma-
bær framsetning á þessari merki-
legu listakonu sem svo lengi hefur
unnið hér.
Jón Proppé
Stríð og
friður í
nýrri út-
gáfu
Moskvu. AP.
STRÍÐ og friður, eitt þekktasta verk
rússneskrar bókmenntasögu, er nú
fáanlegt í nýrri og styttri útgáfu sem
er ekki nema um 800 síður að lengd.
Dagblaðið Moscow Times sagði
útgáfuna vera fyrstu drög Leo Tolst-
oys að Stríði og friði, sem hann síðar
lengdi og endurskrifaði áður en hún
var gefín út. Bókin hefur lengi verið
misvinsæl skyldulesning rússneskra
skólabarna sem hafa þurft að stauta
sig í gegnum 1.600 síðna skáldverk,
gjarnan sem hluta af lokaprófi. En
Stríð og friður veitir yfirgripsmikla
mynd af rússnesku þjóðfélagi og
hruni þess á tímum Napóleonsstríð-
anna 1812.
Igor Zakharov, útgefandi nýju
bókarinnar, sagði hana taka hefð-
bundnu útgáfunni fram. Hún væri
styttri, það væru færri bardagasen-
ur í henni og þess utan væri endirinn
betri. „Þetta er ósvikinn Tolstoy sem
er hrein ánægja að lesa. Ég skil bara
ekki hvernig við gátum haldið áfram
að lesa hefðbundnu útgáfuna," sagði
Zakharov.
Þessi útgáfa bókarinnar er að
sögn Moscow Times sett saman úr
bréfum Tolstoys frá því í byrjun
níunda áratugar nítjándu aldarinn-
ar. Viðbrögð fræðimanna við bókinni
hafa þó verið misjöfn og segja sumir
hana meinlausa á meðan aðrir draga
í efa að um nákvæma endurgerð
fyrstu útgáfu bókarinnar sé að ræða.
------------------
Nýju ári
fagnað
LÍTIL stúlka í þorpinu Fengxiang í
Kína límir hér úrklippu á glugga.
Úrklippan er verk bóndans Li Ke
sem jafnframt telst meistari þessar-
ar fomu kínversku list.ar.
Úrklippur hans hafa getið sér svo
gott orð að verk hans hafa verið
sýnd bæði í Frakklandi og Japan.
Heima fyrir er hins vegar lítill
áhugi á að viðhalda úrklippugerð-
inni og fínnur Li Ke engan arfbera
að þessari fomu list.
Það er gömul kínversk hefð í
Shanxi-héraðinu að fagna nýju ári
með klippimyndum.
Húpurinn sem tekur þátt í sýningunni í íslensku úpemnni.
^Dans og tónlist í
Islensku óperunni
VEGNA áskorana verður menning-
ardagskrá Listdansskúla Islands og
Túnskúla Sigursveins D. Kristins-
sonar endurtekin í íslensku úper-
unni þriðjudagskvöldið 8. og mið-
vikudagskvöldið 9. febrúar kl.
20.30.
Nemendur í framhaldsdeild
Listdansskúlans og Hljúmsveit Tún-
skúlans flytja þar ballettinn Get-
urðu leikið? eftir Láru Stefánsdútt-
ur og John Speight.
Hljúmsveitarstjúri er Guðni Franz-
son. Ennfremur verður fluttur ball-
ett Margrétar Gisladúttur, Spcgill
sálarinnar, og túnlistarhúpurinn
Quintus Antiqua flytur túnlist frá
endurreisnartfmanum.
Ballettinn Geturðu leikið? er
samvinnuverkefni Listdansskúlans
og Túnskúlans og var saminn með
tilstyrk framkvæmdanefndarinnar
um Reykjavík - menningarborg ár-
ið 2000.
Aðgöngumiðar verða til sölu
samdægurs í íslensku úperunni.
Hvít, Blá
og Rauð
sýning í
Nýlista-
safninu
í TILEFNI menningarborgar-
árs verður efnt til þriggja
óvenju veigamikilla sýninga í
Nýlistasafninu, auk annarrar
dagskrár. Sú fyrsta, Hvít, verð-
ur opnuð í mars og er í umsjú
Ingólfs Arnarsonar, sem þar
mun sýna ásamt Andreas Karl
Schulze, Robin von Harreveld
og Hilmari Bjarnasyni.
Onnur í röðinni er sýningin
Blá, sem hefst í maí og verður
framlag Nýlistasafnsins til
Listahátíðar í Reykjavík. Um-
sjón með þeirri sýningu hefur
Pétur Arason en þar sýna
bresku listamennirnir Sarah
Lucas, Gillian Wearing, Mich-
ael Landy og Andy Fairhurst.
Þriðja sýningin, Rauð, verð-
ur opnuð í október og er tileink-
uð lífí og list Rósku. Umsjónar-
maður sýningarinnar er
Hjálmar Sveinsson.
—.-
Reuters
\