Morgunblaðið - 06.02.2000, Síða 28
28 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
h
að fá hann lánaðan í 3 ár. Hann
kveðst ekkert hafa langað til að fara
frá íslandi, það var svo margt
skemmtUegt að gerast hér á þeim
tíma, og hann var búinn að segja nei
við þá í Róm. Þá fóru þeir fram á það
við Pálma Jónsson landbúnaðarráð-
herra að fá Björn Sigurbjömsson
lánaðan í þrjú ár, því það vantaði for-
stjóra við þessa deild sem hann hafði
verið í. Honum var boðið leyfi frá
störfum hér í þann tíma og Gunnar
Ólafsson tæki við á meðan. Fyrir
þennan þrýsting sló hann tiL „Maður
ræður aldrei sínum næturstað,“ segir
Bjöm. Eftir þijú árin í Vín var sama
sagan, hann var aftur byijaður á svo
mörgu spennandi að hann gat ekki
farið heim. Og árin þijú urðu í það
sinn að 12 ámm.
Hvaða verkefni vom svona spenn-
andi? ,AHt milli himins og jarðar,
mikið í jurtakynbótum,“ svarar hann
að bragði. „Þá vom þessi afbrigði
með stökkbreytingum með geislum,
sem við höfðum verið að styðja við,
komin í nær öllum tegundum nytja-
plantna. Eg get t.d. nefnt að hvert
einasta byggafbrigði Evrópu sem
bjór er búinn til úr kemur frá stökk-
breytingu af völdum geisla, sem
styttir stráið. Nær allt pasta sem
framleitt er úr hveiti er af stökk-
breyttum genum. Piparmyntan í
tannkreminu var af plöntu sem þá
var að deyja út vegna sveppasjúk-
dóms, en við stökkbreytingu með
geislun kom fram algert ónæmi fyrir
sveppnum og á því byggist núna öll
framleiðslan. Við komum víða við.“
Þetta eru ekki erfðabreytingar og
Bjöm telur gott að það komi fram.
„Venjuleg þróun í náttúrunni byggist
á stökkbreytingum, úrvali og víxlun-
um. Þetta er bara eðlileg þróun,
Darwins-þróunin. Stökkbreyting
verður til að miklu leyti vegna geisla
frá sólinni. Meðan við erum að tala
saman eru stökkbreytingar í líkama
okkar fyrir áhrif frá sérstökum geisl-
um sólar eða utan úr geimnum. Þessi
aðferð okkar gerir ekki annað en að
herða á þessari þróun og gera hana
hraðari. Þessar stökkbreytingar eru
því fullkomlega eðlilegar.“
Erfðabreyttar lífverur
Erfðabreyttar lífverur komu til í
kjölfarið. „Þegar ég kom sem for-
stjóri til Vínar 1983 var að byrja
tækni sem heitir líftækni. Tvær
stofnanir voru að byrja á því hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Fyrir utan FAO
var það Alþjóðaiðntæknistofnunin
UNIDO. Ég man að 1984 flutti ég á
Filippseyjum fyrirlestra fyrir FAO,
UNIDO og IAEA-kjamorkustofnun-
ina um líftækni í plöntukynbótum.
Síðan var stofnuð sérstök líftækni-
nefnd innan FAO með öllum deildum
og ég var formaður hennar mörg
fyrstu árin. Þetta starf leiddi af sér
þessar erfðabreyttu lííverur. Rann-
sóknarstofunni okkar, sem er fyrir
utan Vín, var breytt frá að vera bara
með geisla og geislavirk efni í að vera
líka líftæknistofnun á vegum Samein-
uðu þjóðanna. Hún skipuleggur og
styður aðra um allan heim. Banda-
ríkjamenn er fremstir í þessum
erfðabreyttu lífverum, sem verið er
að deila um núna, en þær eru lítið í
Evrópu. Kemur til af því að svo dýrt
er að framleiða þær og koma á mark-
aðinn að það eru aðeins þessi risa-
stóru efnafyrirtæki, eins og Monsan-
to og Dupont og Pioneer, sem geta
kostað milljörðum til rannsóknanna.
Sameinuðu þjóðimar ráða lítið við
það. Hafa enga peninga í slíkt. Við
vorum með námskeið og styrktum
unga vísindamenn til að þróa þetta,
sem er reyndar notað á miklu fleiri
sviðum en til jurtakynbóta.11
Tvöfalda þarf
matvælaframleiðsluna
Hvernig líst Bimi þá á hvemig
þetta er að þróast? Mér líst vel á það
svo fremi að rannsakað sé hvaða áhrif
þetta hafi, svarar hann að bragði.
„Þetta er ekki spuming um að vera
jákvæður eða neikvæður. Ef maður
hugsar fram í tímann þá er búist við
að mannkynið, sem nú er 6 milljarð-
ar, verði árið 2050 orðið tíu milljarð-
ar. Þá segir FAO að verði að tvöfalda
matvælaframleiðsluna til að fæða
þetta fólk. Til að gera það þarf t.d. að
tvöfalda áburðarnotkun, tvöfalda
vatnsnotkun í áveitur og tvöfalda
notkun á skordýraeitri. Þannig er
framtíðarspáin.
Hættan er talin hggja í því að þeg-
ar tekið er gen frá skordýri eða bakt-
eríu eða nautgrip og sett yfir í hveiti-
plöntu, þá gæti genið hegðað sér
einhvem veginn öðm vísi þar. Fólk er
hrætt við það þegar gen er flutt milli
fánu og flóm, en ekki bara flutt innan
t.d. hveitiplöntunnar. Ég er það auð-
vitað líka. Ég get nefnt þér dæmi um
hvemig þetta virkar. Þegar tekið var
gen úr svonefndum glow-worm eða
eldflugu, sem kveikir á sér og lýsir í
myrkri, og sett í tóbaksplöntu, þá gat
maður séð hana í dimmu herbergi.
Þetta sýnir að genið úr skordýrinu er
orðið hluti af erfðaefni plöntunnar.
En þetta skaðar ekki. Menn em
hræddir við þetta, en það hefur ekk-
ert komið fram sem sýnir að ástæða
sé til. Gagnrýni fólks beinist að því
sem t.d. stórfyrirtækið Monsanto er
að gera. Þetta fyrirtæki framleiðir
roundup, öflugt illgresislyf og gott,
sem mikið er notað héma t.d. í skóg-
rækt. Það drepur allt en gufar strax
upp og skilur ekki eftir sig nein áhrif.
En ef maður er með sojaakur fullan
af Ulgresi og dreifii- þessu þá drepur
það allt, sojabaunimar líka. Það sem
þeir hafa gert er að setja gen úr ein-
hverju sem gerir sojaplöntuna
ónæma fyrir roundup. Það verður þá
eina plantan sem þolir roundup og
þeir geta selt miklu meira af því. Þá
ertu komin í genabreytta lífvem
ónæma fyrir roundup, eins og flestar
sojabaunir era nú í Bandaríkjunum.
Bóndinn sáir í akur sinn, setur lyf ið á
akurinn og allt deyr annað en soja-
baunimar."
Hver getur haft stjórn á þessu?
„Viðkomandi stjómvöld verða að
gera það,“ segir Bjöm. „Bandaríkm
gera það og hafa gefið leyfi fyrir
þessu. En þeir gera það fyrst eftir að
vera búnir að gera alveg gífurlega
viðamiklar rannsóknir og tUraunir og
finna ekki að það skaði eitt eða neitt.
Fólk bara trúir því ekki fremur en
geislun matvæla, sem hvergi hefur
sannast að hafi nokkur áhrif á heUs-
una. En sumt fólk heldur að eitthvað
sé að geisluðum matvælum og vUl
ekki borða þau. Fer þó með matinn
sinn í gegnum leitartækin á flugvöll-
um, þar sem þau em geisluð með
röntgengeislum. Ef gen er sett í
plöntu og hún framleiðir eitur gegn
skordýrum telur fólk hættu á að það
geti haft áhrif á heilsuna. En Banda-
ríkjamenn hafa gert miklar rann-
sóknir á þessu án þess að finna nokk-
uð hættulegt við það.“
Ef aðeins stóra risarnir ráða við
þessar viðamiklu rannsóknir vegna
erfðabreytinga, em þær þá bjargráð-
ið tU að geta aukið matvælafram-
leiðsluna í heiminum og bjargað kom-
andi kynslóðum frá hungri? „Þeir
selja auðvitað þetta fræ um allan
heim og hver sem er getur keypt það.
En það sem þeir gerðu núna, þessir
skrattar, var að setja inn í sumar af
þessum nytjaplöntum gen, sem gera
það að verkum að t.d. sojafræið hefur
þá eiginleika að hægt er að búa tU
sojasósu úr fræjunum en þau spíra
ekki. Það er kallað „terminator“-gen.
Þannig að bóndinn verður á hverju
ári að kaupa nýtt fræ. Þú getur
ímyndað þér að Greenpeace og marg-
ir aðrir em að springa af gremju. En
maður á samt kost á að kaupa þetta
fræ, sem kemur tU góða. Þeir sem
setja milljarða inn í þetta verða að fá
sína mUljarða tU baka. Annars
mundu þeir ekki gera þetta. Það get-
ur verið að það borgi sig, það kostar
líka að kynbæta. Og einkaréttur
þeirra á þessu rennur auðvitað út.“
Því má skjóta hér inn í að Bjöm
Sigurbjömsson mun flytja fyrirlestur
á ráðstefnu sem umhverfisráðuneytið
efnir til 9. mars um þessi efni og nefn-
ist fyrirlesturinn: Hugsanlegur
ávinningur af erfðabreyttum matvæl-
um. Verður það gott innlegg í þessa
umræðu sem nú fer fram frá manni
með svo mikla þekkingu á málinu.
Margar aðrar nytjaplöntur em
framleiddar eftir svokallaða kyn-
blöndun, svo sem allur maís. Þá er
víxlað tveim línum sem búið er að
skyldleikarækta og maður fær
þennan risamaís, sem má svo aftur
víxla og fá súperrisa. Þetta er bara
víxlun.
• En bóndinn verður engu að síður
að kaupa fræið á hverju ári því hann
er ekki með þessar línur. Hann fær
ekkert öðra vísi. Það em stöm fyrir-
tækin sem framleiða þessar skyld-
leikaræktuðu línur. Þannig er maís-
inn í dag. Þá em þeir alltaf að selja
árlega því bóndinn getur ekki not-
að sitt eigið fræ. Svona hrísgrjón
rækta Kínverjar líka.
Gegn sam-
eiginlegum
óvini
Dr. Björn á skjöld frá Gaddafí Líbýuforseta
sem þakklæti fyrir verkefni um útrýmingu
á skaðræðisflugum. Elín Pálmadóttir
spurði út í það forvitnilega mál, sem sýnir
hvernig hægt er að nota geislunartækni til
að gera meindýr ófrjó. Alíka aðstoð gat líka
þjappað saman í sátt öllum stríðandi þjóð-
um fyrir botni Miðjarðarhafsins gegn sam-
eiginlegum óvini, skæðri ávaxtaflugu.
Miðjarðarhafsávaxtaflugan
Skrúfuflugan verpir í sár.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Bjöm með skjöldinn sem Gaddafi Líbýuforseti veitti honum í þakklætis-
skyni fyrir útrýmingu á hinni hættulegu skrúfuflugu þar í landi 1989.
Ófijóar púpur f pappakössum settar um borð í flugvél, sem flytur þær
þangað sem þeim er dreift til ástarfunda við frjóu skaðræðisflugurnar.
ÞESSI aðferðafræði var þróuð fyrir
mörg meindýr. Aðferðin er að
byggja mjög stórar verksmiðjur,
sem framleiða flugur. Sú sem Bjöm
heimsótti síðast meðan hann var
forstjóri deildar FAO og IAEA um
notkun geisla og geislavirkra efna í
Vín, er í Mexíkó og framleiddi á
viku 7 tonn af lirfum af skæðustu
ávaxtaflugu sem til er í' heiminum.
Hún ræðst á alla ávexti, klekur þar
ormum sfnum, sem eta allt innan úr
ávöxtunum. Þarf þá kannski að
sprauta yfir þá baneitraðum skor-
dýralyfjum 10 sinnum yfir vaxtar-
túnann. Er bannað að flytja ávexti
til Bandaríkjanna, Kanada og
margra Evrópuríkja frá slíkum
svæðum. Ávaxtaflugan barst frá
Miðjarðarhafinu til Mið-Ameríku.
„Við fréttum fyrst af henni 1966,
þá í Costa Rica og stungum strax
upp á aðgerðum til að stöðva hana,“
segir Bjöm. „En allir töldu lítinn
vanda að losna við smásmit. Síðan
dreifðist hún um alla Mið-Ameríku
og var komin inn í Mexíkó. Þá sögðu
Bandaríkjamenn stopp, ekki meiri
innflutning þaðan, sem var millj-
arða dollara tap. Þá leituðu Mexík-
anar til okkar í Vín og báðu um
hjálp. Við sendum sérfræðinga til
þeirra og þeir byijuðu að reisa
verksmiðju og framleiða þessa
flugu. Þegar hún er komin á púpu-
stigið er hún sett í geislun. Notaðir
gammageislar til að gera hana
ófrjóa. Si'ðan er flugunum pakkað í
poka, settar upp í flugvél og sendar
á svæðið þar sem þetta meindýr er.
Áður er búið að mæla hve mikið af
meindýrinu er á svæðinu, t.d. 10
þúsund flugur á ferkílómetra. Þá
verður að dreifa 10-15 sinnum fleiri
ófrjóum flugum þar yfir. Ef dreift
er 100 þúsund flugum hvaða mögu-
leikar eru þá á því að fijó fluga hitti
aðra frjóa flugu? Þeim fækkar um
90% og eftir að hafa að 30 dögum
liðnum sleppt aftur ófijóum yfir
1.000 flugur og enn yfir 100 er eng-
inn möguleiki á að þær geti tímgast.
Það tekur ekki nema 5 kynslóðir á
einu ári að útrýma flugunni, þó að
haldið sé áfram til öryggis. Ekkert
eitur er notað, flugumar einfald-
lega hverfa.“
Miðj arðarhafsfulltrúarnir
íbræðralagi
Þegar Björn kom 1983 til Vínar-
borgar eftir að hafa starfað á ísl-
andi um hríð var búið að reisa fyrr-
nefnda verksmiðju og Mexíkóstjórn
tilkynnti árið 1986 að engin áva-
xtafluga væri Iengur til. „Við byij-
uðum að senda ófrjóar flugur til Los
Angeles, þar sem var vandræða-
ástand vegna þess að skordýraeitri
var dreift yfir borgina, því flugan
var ógnun við alla ávaxtaframleiðsl-
una í Kalifomíu. Fólk var ævareitt.
í Guatemala var byggð fluguverks-
miðja og búið er að hreinsa upp þar.
Þegar ég var í Vín í sumar frétti ég
að sama væri að segja um Chile og
Argentínu, sem voru að sligast und-
an þcssari plágu og verið að hreinsa
Perú án eiturefna.
„Það skemmtilegasta var að
1994, þegar ég kallaði saman í Vín-
arborg fund um að reisa verksmiðju
til að útrýma þessari flugu í löndun-
um fyrir botni Miðjarðarhafsins,
voru sérfræðingarnir frá Egypta-
landi, Gasa, Palestínu, ísrael, Jórd-
aníu, Líbanon og Sýrlandi allir eins
og bræður. Þeir áttu þarna allt í
einu sameiginlegan óvin. Talsmað-
ur þeirra var Israelsmaður, því allir
treystu honum. Ég hringdi út nú í
desember og var sagt að þetta
gengi mjög vel. Þeir væru að ná
samstöðu um að skipuleggja þetta
verkefni. Ekki var búið að ákveða
hvar verksmiðjan yrði, en líklega á
Kýpur. Flugan hefur líka fundist á
suðurströnd Tyrklands, grísku eyj-
unum og jafnvel á Kaprí á Ítalíu.
Hvað um það, þetta hefur sparað
milljarða dollara, því ef maður losn-
ar við fluguna þarf varla nokkurt
skordýraeitur.
En hvað sögðu framleiðendur
skordýraeiturs við þvf? Björn segir
þá hafa mætt gífurlegri mótstöðu,
fengu hvergi greiða götu. Aðal-
erfiðleikarnir við að koma þessu í
framkvæmd vora að komast fram
hjá áhrifum þessara framleiðenda.
Hann nefnir aðra skæða flugu,
skrúfufluguna, sem ræðst á dýr og
menn. Hún verpir í sár, jafnvel nafl-
astreng nýfædds barns. Lirfurnar
skrúfa sig inn í holdið og það versta
er að hún framleiðir um leið deyfi-
efni, svo manneskja verður ekki vör
við neitt nema smáþrota, fyrr en allt
er morandi í ormum undir. Kemur
fyrir að kinnin detti þá af mann-
eskju og skepnur falla unnvörpum.
Þessi skrúfufluga er landlæg í
Norður- og Mið-Ameríku. Tókst að
útrýma flugunni þar með ofan-
greindri aðferð. Líka í Mexíkó þeg-
ar verksmiðja hafði verið reist þar.
Svo gerðist það 1989 að geitur,
lömb og nautgripir fara að falla
unnvörpum í Líbýu og kemur í ljós
að skrúfuflugan hefur að öllum lfk-
indum borist þangað frá Mið-
Ameríku. Líbýumenn gerðu allt
sem í þeirra valdi stóð, en sjúkra-
húsin vora að fyllast af fólki með
orma. „Líbýa átti þá í stríði við