Morgunblaðið - 06.02.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2000 31
hverfi hér á íslandi. Sjávarútvegur-
inn stendur vel að vigi og útgerðar-
menn eru upp til hópa afar jákvæðir
gagnvart þróun framleiðslunnar.
Oflugt þróunarstarf fer fram í
nánu samstarfi fyrirtækisins og
sjávarútvegsins. Við tökum við hug-
myndum og ábendingum, þróum
vöruna, fáum sjómenn til að prófa
hvernig hún reynist, tökum við at-
hugasemdum, þróum vöruna áfram
og þannig koll af kolli þar til varan
er fullhönnuð," segir Hjörleifur og
bætir við að sér hafi komið
skemmtilega á óvart þegar hann
réðst til fyrirtækisins hversu öflugt
þróunarstarf færi fram innan þess.
„Hér hefur gjaman verið litið svo á
að vöruþróun dagsins í dag sé fjör-
egg framtíðarinnar. Okkur hefur
fundist að útgerðarmenn um heim
allan hugsi á svipuðum nótum og
geri sér grein fyrir því hve vöruþró-
un veiðarfæra er mikilvæg fyrir
rekstur þeirra."
Þantroll lofar góðu
Nýjasta afurðin frá Hampiðjunni
er svokallað þantroll. Þantroll
byggjast á svokallaðri þantækni.
„Þantæknin felst í því að kaðlar og
garn eru snúin með sérstökum
hætti í svokallað þannet sem síðan
er raðað eftir ákveðnu mynstri í
trollið. Með því þenjast möskvarnir
betur út og halda netinu stöðugra í
sjónum en ella,“ segir Hjörleifur og
tekur fram að rými í trollinu aukist
aftur að poka. I vélhnýttum hluta
trollsins sé netið hnýtt á þann hátt
að mótstaða í því verði allt að 20%
minni en í venjulegu neti.
„Þantroll til uppsjávarveiða hefur
verið fullhannað og er notað með
góðum árangri í þremur skipum.
Markaðssetning er að hefjast og
gengur ágætlega á Noregs- og
Shetlandseyjum."
Annað dæmi um einfalda og
hagnýta nýjung er yfirfléttun á fót-
reipiskeðjum Gloríanna. „Fótreipis-
keðjur Gloríanna hafa lengst af ver-
ið klæddar í slöngur. Þeim hefur
verið smokrað yfir keðjurnar með
talsverðri fyrirhöfn og hefur
tilgangurinn verið að verjast nún-
ingi og eins að koma í veg fyrir að
hlekkir narti og klípi í trollið. Við
sáum möguleika á því að nota nýja
fléttivél til að flétta yfir keðjurnar
með sterku garni. Yfirfléttun keðj-
anna hefur líkað ljómandi vel, fót-
reipið verður ekki eins stamt og
fyrr og rennur því betur eftir dekki
skipanna. Ennfremur virðist yfir-
fléttunin endast betur en slöngurn-
ar.“
Útlendingar í
grunnframleiðslu
Hjörleifur segir að sér líki mjög
vel að starfa hjá fyrirtækinu. „Ég
er heppinn að hafa komið hingað að
góðu búi og fá tækifæri til að vera
með í áframhaldandi vöruþróun og
stækkun fyrirtækisins. Eins hefur
mér líkað afar vel við starfsfólkið.
Hingað kom ég eftir að hafa starfað
hjá Eimskip í 15 ár. Hjá Hamp-
iðjunni ríkir jafnvel enn meiri stöð-
ugleiki í starfsmannahaldi. Nánustu
samstarfsmenn mínir hafa starfað
hjá fyrirtækinu á bilinu 15 til 30 ár.
Fyrir nokkru hætti hjá fyrirtækinu
sölustjóri þess eftir 59 ára starf.
Það er ánægjulegt að vita til þess
að fólk kýs almennt að eyða hér
starfsævinni og fyrirtækinu virðist
takast að nýta hæfileika þess.
Þegar frekar er spurt um grunn-
framleiðsluna viðurkennir Hjörleif-
ur að illa hafi gengið að ráða starfs-
fólk undanfarin ár. „Okkur hefur
gengið erfiðlega að fá fólk til starfa
upp á síðkastið. Með góðærinu á ís-
landi hafa sprottið upp alls kyns ný
atvinnutækifæri og svo virðist sem
fyrirtæki í frumframleiðslunni eigi
erfitt með að keppa við slíkt. Við
teljum okkur þó bjóða upp á
skemmtilegan vinnustað þar sem
aðbúnaður og öryggiskröfur eru til
fyrirmyndar.
Við höfum m.a. brugðist við
skorti á starfsmönnum með því að
ráða útlendinga til starfa. Núna
starfa um 25 útlendingar hjá fyrir-
tækinu á Bíldshöfða og eru Filipps-
eyingar um helmingur hópsins.
Fyrirtækið hefur flutt starfsmenn-
ina inn í samvinnu við Filippsey-
ingafélagið á íslandi." Hjörleifur
segir að þessir erlendu starfsmenn
hafi reynst fyrirtækinu einstaklega
vel. „Ljómandi góðir starfsmenn."
Randulfssjóhús á
Eskifirði friðað
SAMKVÆMT nýjum tillögum
húsafriðunarnefndar og ákvörð-
unar menntamálaráðherra hefur
Randulfssjóhús á Eskifirði nú
verið friðað.
Húsið var byggt árið 1890 og
er einlyft timburhús. Það var
flutt inn frá Noregi og er með
áfastri bryggju.
Að mati húsafriðunarnefndar
er húsið í sérfiokki sem vel varð-
veitt sjóhús frá 19. öld. Sjóhúsin
eru flest horfin í dag og hefur
þetta hús því mikið fágætisgildi. í
húsinu er nú starfrækt sjóminja-
safn.
Ljósmynd/Magnús Skúlason
Randulfssjóhús á Eskifírði.
mbl.is
__ALL.-na.f= £/TTH\SAO AJÝTT
Gegnheill kirsuberjaviður með fulningum
*
Rosemary
Gegnheil Ijós eik með bogadregnum fulningum
Teba ofn með keramik helluborði.
Burstuð stáláferð. Blástursofn,
undir- og yfirhiti,grill og grillteinn.
Verð áður: 73.600
Zanussi veggháfur úr ryðfrlu stáli.
Sogar 550 rúmmetra á klst.
Hljoðlátur. Verð áður: 32.900
Falleg og ódýr innrétting í ýmsum litaútfærslum
Suöurlandsbraut 16 • 108 Rvk • Sími 5880500
SAMH
Zanussi eldavél með 4 hellum.
Ofninn með undir- og yfirhita
ásamt grilli. HxBxD: 85x59,5x60
cm
Verð áður: 52..500
Zanussi uppþvottavél
manna stell. 4 þvottakerfi. Hljóðlát.
Verð áður: 55.900
Stór Zanussi kæli- og frysti-
skápur. Kælirými er 195 lítrar og
frystir 105 lítrar.
HxBxD: 179 x 59.5 x 60 cm.
Verð áður: 69.900