Morgunblaðið - 10.03.2000, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Forsætisráðherra beinir spjótum að stjórnarandstöðu í umræðu um fjármál flokka
Þetta er allt
saman hræsni
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra gagnrýndi
stjórnarandstöðuna harkalega fyrir hræsni í
umræðunni um fjárreiður stjómmálaflokkanna
á þingi á mánudag. Morgunblaðið óskaði eftir
nánari skýringum forsætisráðherra við ummæl-
um sínum í gær. Dró Davíð þá hvergi úr gagn-
rýni sinni og sagði að sams konar upplýsingum
og haldið væri fram að gerðu Alþýðuflokkinn að
opnasta flokki allra tíma gerði Sjálfstæðisflokk-
urinn grein fyrir á hverjum landsfundi. Davíð er
alls ekki á því að umræðan um fjármál stjóm-
málaflokka í þinginu á mánudag hafi orðið enda-
slepp og hann hafi alls ekki rokið á dyr eins og
látið hafi verið í veðri vaka í sumum fjölmiðlum.
Hvar voru leiðtogar hinna flokkanna?
„Ég flutti mína ræðu eftir ræðu Jóhönnu, ég
hlustaði síðan á ræður tveggja stjórnarand-
stæðinga og þurfti svo að fara. Þetta vora um-
ræður um fjármál stjómmálaflokka. Ég var eini
formaður stjómmálaflokks sem mættur var og
var þama í tvo tíma. Formaður Aiþýðuflokksins
lét ekki sjá sig, talsmaður Samfylkingarinnar
lét ekki sjá sig frekar en vant er, formaður
Vinstri grænna lét ekld sjá sig. Síðan er fundið
að því að eini formaðurinn sem mætti skyldi
ekki vera á staðnum nema í tvo tíma. Ég hef áð-
ur tekið þátt í umræðum um þetta sama fram-
varp, því þetta er endurflutt í þriðja eða fjórða
sinn, en þetta finnst mér afar ómaklegt og
ósmekklegt. Til að mynda var alltaf talað um
það í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 að ég hefði
rokið á dyr. Ég bara gekk út úr húsinu með
venjulegum hætti eins og gengur og gerist. Það
var engin ástæða til annars, enda hafði ég verið
þarna í tvo tíma, eini formaður stjómmálaflokks
sem það gerði,“ segir Davíð.
í ræðu sinni sagði forsætisráðherra að gjald-
keri Alþýðuflokksins hefði sagt af sér þar sem
hann hefði ekki fengið að sjá reikninga flokks-
ins. Ári áður hefði sami flokkur stært sig af að
vera opnastur flokka varðandi fjármál. „Þetta
var misminni hjá mér,“ sagði Davíð í gær. „Það
var framkvæmdastjóri flokksins sem sagði af
sér af því að hann fékk ekki að sjá reikningana;
opnasta fjármálaflokks allra tíma. Hvað héldu
menn nú ef ég segði við menn hér að reikningar
Sjálfstæðisflokksins væra öllum opnir? Svo
kæmi frétt daginn eftir um að Kjartan Gunnars-
son hefði sagt af sér þar sem hann fengi ekki að
sjá reikningana. Þetta er allt saman hræsni. Ég
margspurði Jóhönnu - og það hefur enginn
spurt hana um það - hefur hún beðið á þing-
flokksfundi Samfylkingarinnar um að sjá reikn-
ingana? Hefur hún beðið um að þeir yrðu birtir?
Hefur hún spurt hvort íslensk erfðagreining
hafi látið þá fá eina milljón eftir að Samfylkingin
réðst á það og reyndi að drepa fyrirtækið, hefur
hún spurt um þessa hluti? Það kom ekkert svar.
Svo era einhver aukaatriði gerð að aðalatriðum í
fjölmiðlum. Þetta er alveg ótrúlegt."
Davíð vék að nefnd, sem skipuð var til að
fjalla um fjárreiður flokkanna á sínum tíma,
þegar hann var spurður hvort hann teldi, burt-
séð frá þessari deilu, að fjárreiður flokka og
fjármögmm væra í réttum farvegi.
„Jóhanna hefur leikið þann leik, og því miður
sumir fjölmiðlar, að tala um það að nefnd for-
sætisráðherra hafi engu skilað í þessum efn-
um,“ sagði hann. „Hvaða nefnd var þetta? Þetta
var nefnd allra stjómmálaflokka sem vann að
þessu í þrjú ár. Það kom bara í minn hlut að
skrifa skipunarbréfið. í nefndinni vora sex aðil-
ar. Þar af era núverandi flokkar í Samfylking-
unni með þijá fulltrúa og stjórnarflokkamir
þijá. Jóhönnu var boðið að vera með í nefndinni,
en hún neitaði því með fyrirslætti til að geta ver-
ið með frítt spil til að leika sér. Annars hefði
Samfylkingin haft fjóra fulltrúa í þessari nefnd
til að koma einhveiju til skila. Þessir fulltrúar
skrifuðu allir undir það að breytingar á núver-
andi fyrirkomulagi ætti ekki að gera. Af hverju
er síðan verið að herma það sérstaklega upp á
mig? Þannig var þetta gert. Og hvenær var
þetta gert? Jú, í desember 1998. Það er ekki
lengra síðan. Flokkarnir komust sameiginlega
að þessari niðurstöðu. Því er þessi sýndarskap-
ur, þessi hræsni í Samfylkingarfólkinu sérstak-
lega, sem á rót í Alþýðuflokki og Alþýðubanda-
lagi, ég er búinn að lýsa þessum Alþýðuflokki
sem birti reikninga. Ég er með það á blaði. Það
era aðeins fáeinar tölur. Það er allt sem birt var.
Þetta þætti nú Kristilega demókrataflokknum [í
Þýskalandi] vel sloppið. Segir ekki neitt um eitt
eða neitt. Þetta er allt sem birt var. Svona upp-
lýsingar látum við koma koma fram á lands-
fundum í okkar ræðum alla tíð. Þetta er ekki
það sem verið er að tala um með því að birta
reikninga stjómmálaflokka. Menn era að tala
um að það sé birt hverjir gefí. Þetta er allt sam-
an hræsni. Þetta er sami flokkur og þar sem
sjálfur framkvæmdastjórinn sagði af sér af því
að hann fékk ekki að sjá reikningana. Það held
ég að sé algjörlega óþekkt, ekki bara í Þýska-
landi, heldur um allan heim, að framkvæmda-
stjóri geri slíkt. Enda skrifaði hann grein undir
fyrirsögninni: Er Alþýðuflokkurinn leynifélag?
Það fékk enginn að sjá reikningana í þessum
litla flokki. Hann segir líka að einhverjir örfáir
menn hafi fengið að sjá reikningana, ekki þing-
flokkurinn, ekki framkvæmdastjórinn. Þetta er
opnasti flokkur allra tíma. Þetta er sama hræsn-
in.“
Skuldir Alþýðubandalagsins
Davíð vék einnig að fjármálum Alþýðubanda-
lagsins: „Við sitjum uppi með það að Aiþýðu-
bandalagið, sem Margrét Frímannsdóttir er
talsmaður fyrir, lét Landsbankann lofa ábyrgð
á skuldum Þjóðviljans. Taka hundrað milljónir á
þáverandi verðlagi. Hundrað milljónir. Þeir era
taldir skulda nú milli 30 og 50 milljónir. Þeir
bæta við sig 70 milljónum í kosningum. Ætla
þeir ekki að gera nokkra einustu grein fyrir
þessu? Svo kemur bara Jóhanna að tala við mig.
Fjölmiðlamir segja ekki neitt. Þetta er alveg
ótrúlegt."
Davíð kvaðst ekki telja mikla hættu á því að
peningagjafir til íslenskra stjómmálaflokka
hefðu áhrif á ákvarðanatöku.
„Ég hygg að þær séu flestar of litlar,“ sagði
hann. „Eg tók þó eftir því að formaður Vinstri
grænna sagði opinberlega að enginn hefði feng-
ið að gefa meira en 500 þúsund krónur - 500
þúsund krónur. Þeir hefðu síðan safnað saman í
heild um 4-4,5 milljónum. Ég held að það myndi
hvergi þekkjast í heiminum að einn aðili fengi að
gefa stjómmálaflokki yfir 12% af öllu saman.
Það held ég að myndi aldrei þekkjast. Ef það
gerðist í Sjálfstæðisflokknum held ég að menn
yrðu hræddir.
Ég spurði Jóhönnu að þessu öllu saman efnis-
lega. Ékkert af þessum efnislegu umræðum
hefur verið tekið. Hún sagði að það ætti að setja
reglur út af atburðum sem gerðust í Þýskalandi.
Þetta er allt á haus. Atburðirnir í Þýskalandi
gerðust ekki af því að það vantaði reglur. Var
það? Þær reglur era ekki bara í lögum, þær era
í stjómarskrá landsins, sem er mjög óvenjulegt.
Það kemur til vegna þess hvemig Þýskaland
var eftir stríðið og þeir vora viðkvæmir. Því er
þetta í stjómarskránni. Ef það hefðu verið eng-
ar reglur og því væri svo mikil spilling, þá hefðu
menn getað sagt: Já þetta er eins og á íslandi.
En dæmið er bara héma að ef Sjálfstæðisflokk-
urinn, Framsóknarflokkurinn eða Samfylkingin
myndu eiga 1-2 milljai'ða á reikningum 1 Sviss
þá mynduð þið vita það. Ég lofa því. Því þeir
skulda allir. Meira að segja Sjálfstæðisflokkur-
inn. En hann þarf minnst á svona stórgjöfum að
halda vegna þess að hann er með 30.000 félaga.
En þessir litlu flokkar, sem eru með svona fáa
félaga, þeir þurfa að snapa meira hjá fyrirtækj'
unum en við þurfum að gera.“
Stjómarandstöðuflokkarnir hafa gefið í skyn
að verið geti að Sjálfstæðisflokkurinn hafí eitt-
hvað að fela í þessum efnum.
„Er það svo?“ spurði Davíð.
,Af hverju? Af hveiju tala þau um Sjálfstæð-
isflokkinn? Era þau búin að birta reikningana
sína, eða hvað? Alveg rétt, já. Þau hljóta, miðað
við að þau eyði 70 milljónum í kosningabarátt-
una og ég eyði 40 milljónum. Af hveiju segja
þau þá að Sjálfstæðisflokkurinn hafi eitthvað að
fela. Ef forstöðumaður íslenskrar erfðagrein-
ingar lýsir því yfir að hann hafi borgað í þijá
flokka en ekki einn. Hver hefur eitthvað að fela? *
Það er búið að setja allt á haus.“
Aðalfundur Eimskipafélags Islands haldinn í gær
Stjómin skilgreinir hlutverk
og framtíðarsýn félagsins
Morgunblaðið/Jim Smart
Benedikt Sveinsson, stjómarformaður Eimskips og Hörður Sigurgests-
son forstjóri á aðalfundi Eimskipafélagsins í gær.
Mýflug hættir
flugi til
Húsavíkur
STJÓRN Mýflugs hf. hefur ákveðið
að flugi félagsins milli Húsavíkur og
Reykjavíkur verði hætt. Síðasta
ferðin verður farin nk. sunnudag.
Mýflug hf. hefur staðið að áætlun-
arflugi á milli Húsavíkur og Reykja-
víkur allt frá því í september 1998.
Mikið tap hefur verið á rekstrinum,
en tap af áætlunarflugi á flugleið-
inni var um 9 milljónir króna rekstr-
arárið 1998 og 27 milljónir 1999.
Breytingar vora gerðar á rekstri fé-
lagsins 1. febrúar sl. en ljóst þykir
að þrátt fyrir góðar viðtökur.
Þeir farþegar sem eiga miða hjá
Mýflugi geta nýtt þá í áætlunarflugi
Flugfélags íslands milli Akureyrar
og Reykjavíkur eða fengið þá end-
urgreidda á skrifstofu Mýflugs.
Á AÐALFUNDI Eimskipafélags ís-
lands á Hótel Sögu í gær kynnti
Benedikt Sveinsson nýja skilgrein-
ingu stjómar á hlutverki og framtíð-
arsýn félagsins.
Hlutverk flutningastarfseminnar
mun samkvæmt þessari samþykkt
stjórnarinnar haldast óbreytt frá því
sem verið hefur undanfarin ár en
hlutverk og fjárfestingarstefna
Burðaráss er nú skilgreind með
formlegri hætti.
Benedikt sagði hina nýju stefnu
vera í þremur liðum en í þeim fyrsta
er áhersla lögð á það hlutverk félags-
ins að auka verðmæti fyrir hluthaf-
ana með því að fjárfesta í og reka al-
þjóðlega samkeppnishæfa atvinnu-
starfsemi, einkum á sviði flutninga og
annarra valinna atvinnugreina.
í öðru lagi verður hlutverk flutn-
ingastarfsemi félagsins að reka al-
hliða flutningaþjónustu þar sem boð-
ið er upp á bestu fáanlegu þjónustu,
einkum á heimamarkaði félagsins á
Norður-Atlantshafi, en einnig á öðr-
um tengdum mörkuðum.
Þriðja atriðið sem stjórnin leggur
áherslu á er að Burðarás hf. fjárfesti í
fyrirtækjum þar sem saman fara góð
arðsemi og vaxtarmöguleikar.
Félagið vill vera virkur þátttak-
andi í stjómun og þróun fyrirtækj-
anna og nýta þekkingu og reynslu til
að auka verðmæti þeirra.
Hlutabréfaeign Burðaráss
helmingur af markaðsverðmæti
Benedikt gerði grein fyrir helstu
þáttum flutningastarfsemi félagsins
og fjárfestingarstarfseminni. Hina
síðamefndu sagði hann smátt og
smátt hafa orðið að mikilvægari
þætti í starfsemi Eimskips og nú
væri svo komið að markaðsverðmæti
hlutabréfa í eigu Burðaráss væri um
það bil helmingur af markaðsverð-
mæti Eimskips eða um 20 milljarðar
króna.
„Meðal annarra greina sem áhuga-
vert er að horfa til eru ýmiss konar
hátæknigreinar á sviði upplýsinga-
tækni og líftækni. Á þeim sviðum
kunna að vera áhugaverðir fjárfest-
ingarmöguleikar sem bjóða upp á
mikla vaxtarmöguleika.“
í ræðunni vék Benedikt að fram-
tíðarhorfum félagsins, m.a. hvað
varðar lóðir við Kirkjutún og Skúla-
götu. „Eimskip fékk þekkt danskt
arkitektafyrirtæki til að þróa hug-
myndir að uppbyggingu svæðisins
við Kirkjutún og í samráði við
Reykjavíkurborg verður unnið að
gerð deiliskipulags fyrir allt svæðið
milli Klapparstígs og Frakkastígs
annars vegar og Skúlagötu og Hverf-
isgötu hins vegar. Gert er ráð fyrir að
stærsti hluti svæðisins verði fyrir
íbúðir, en einnig verði hluti svæðisins
fyrir skrifstofuhúsnæði og verslunar-
rými.“
Að lokinni gerð deiliskipulags er
gert ráð fyrir að stofnað verði fjár-
festingarfélag og mun það félag taka
að sér uppbyggingu á svæðinu. Eng-
in ákvörðun hefur þó verið tekin á
þessu stigi um þátttöku Eimskips í
því verkefni.
Benedikt tilkynnti einnig um þá
ákvörðun stjómar Eimskipafélags-
ins að gefa öllum fastráðnum starfs-
mönnum félagsins kost á að eignast
tölvu ásamt tilheyrandi búnaði til af-
nota á heimili sínu gegn vægu gjaldi-
Áætlaði félagið að verja 40 milljónuin
króna til verkefnisins á þessu ári.
Á aðalfundinum var 11% arð-
greiðsla til hluthafa samþykkt sam-
hljóða. Ný stjóm félagsins var kjörin
og þar bar helst til tíðinda að Hjalti
Geir Kristjánsson kaus að gefa ekki
kost á sér til endurkjörs eftir 19 ára
stjórnarsetu. í hans stað kemur
Benedikt Jóhannesson, en auk hans
eiga sæti í stjóminni Benedikt
Sveinsson formaður, Garðar Hall-
dórsson varaformaður, Jón H. Bergs,
Jón Ingvarsson, Gunnar Ragnars,
Baldur Guðlaugsson, Kristinn
Bjömsson og Kolbeinn Kristinsson.
Harry Potter and the Philosopher's Stone
Víðfræg og margverðlaunuð ævintýrasaga fyrir
börn og fullorðna eftir J.K. Rowling. Bókin sló
rækilega í gegn þegar hún kom út i Bretlandi árið
1997. Þú átt stórkostlega upplifun í vændum ef
þú hefur ekki lesið hana ennþá. Náðu þér í eintak
og njóttu þess að vera barn í annað sinn. __
The Brethren
! JOHN
jGR|SHAMí
THU
BRJE'I'HREN t
Erlendar bækur
daglega
^57 l.vmimdsson
Austurstræti 5111130* Kringlunni 533 1130 • Hafnarfirði 555 0045