Morgunblaðið - 10.03.2000, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Afkoma Pharmaco árið 1999
Hagnaður 332 milljónir
Pharmaco hf Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting I
Rekstrartekjur Milljónir króna 3.567,0 3.002,7 +78,8%
Rekstrargjöld 3.463,2 2882,9 +20,1%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 338,4 102,8 +229,1%
Skattar 149,1 78,9 +88,9%
Hagn. af regl. starfsemi e. skatta 293,1 143,6 +104.0%
Aðrar tekjur eftir skatta 26,7 0,0
Áhrif dóttur- og hlutdeildarfélaga 11,9 0,0
Hagnaður ársins 331,8 143,6 +131,0%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 2.663,5 2.185,6 +21,9%
Eigið fé 1.394,5 1.016,4 +37,2%
Skuldir 1.269,0 1.169,2 +8,5%
Skuldir og eigið fé samtals 2.663,5 2.185,6 +21,9%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting
Arðsemi eigin fjár 32,6% 16,4%
Eiginfjárhlutfall 52,4% 46,5%
Veltufjárh I utf al I 2,5 2,4
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 178,9 115,5 +55,0%
Morgunblaðiö/Sverrir
Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins (til vinstri) veitti ný-
sköpunarverðlaununum viðtöku úr hendi Þorsteins Inga Sigfússonar,
formanns Rannsóknarráðs Islands.
Bláa lónið hlaut Ný-
sköpunarverðlaunin
PHARMACO var rekið með 331,8
milljóna króna hagnaði árið 1999, í
samanburði við 143,6 milljóna króna
hagnað árið 1998 og jókst hagnaður
um 130% milli ára sem er besta af-
koma félagsins frá upphafi. Rekstrar-
tekjur námu 3.567 milljónum króna
árið 1999 en rekstrargjöld námu
3.463 miHjónum, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Pharmaco hf.
„Það gekk á ýmsu á lyfjamarkaði
eins og áður, en kannski einkenndist
reksturinn á síðasta ári mest af þátt-
töku okkar í öðrum verkefnum en
lyfjaheildsölu, sem setur svip sinn
verulega á reikninginn,“ segir Sindri
Sindrason, framkvæmdastjóri Pharm-
aco, í samtali við Morgunblaðið.
A síðasta ári seldi Pharmaco hlut í
Opnum kerfum hf. fyrir 213 milljónir
og í Delta hf. fyrir 80 milljónir, og
kemur söluhagnaður fram í dálkinum
fjármunatekjur/fjármagnsgjöld, en
ekki meðal óreglulegra liða í árs-
reikningnum. Einnig var keyptur
hlutur í Baugi fyrir 150 milljónir
króna.
Pharmaco náði einnig á árinu um-
boðssamningi við lyfjafyrirtækin
AstraZeneca og Aventis, sem urðu tíl
við stórsamruna erlendis og hafði
Pharmaco haft umboð fyrir annað
tveggja fyrirtækja sem sameinuðust í
báðum tilvikum. „Með þessu hefur
staða fyrirtækisins á lyfjamarkaðin-
um styrkst verulega enda bæði þessi
fyrirtæki meðal fimm stærstu lyfja-
fyrirtækja í heiminum,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Þar segir einnig að „stærsta fjár-
festing fyrirtækisins á árinu var í
búlgarska lyfjafyrirtækinu Balkan-
GUNNLAUGUR Sævar Gunn-
laugsson lögfræðingur hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri líftækni-
fyrirtækisins Urður, Verðandi,
Skuld ehf. Hann mun hefja störf í
byrjun maí. Um er að ræða nýja
stöðu sem er skref í myndun nýrrar
framkvæmdastjómar fyrirtækisins.
Framkvæmdastjóri vísindasviðs er
Reynir Arngrímsson.
pharma en það fyrirtæki skilaði tæp-
lega 1,6 milljónum bandaríkjadala í
hagnað frá samstæðureikningi fyrir
síðustu sex mánuði 1999 eftir skatta
og minnihluta. Eignarhlutur Pharm-
aco er um 20% í Balkanpharma".
Sindri segir að gert sé ráð fyrir betri
afkomu af heildsölurekstri en áður
vegna hinna nýju umboða, AstraZen-
eca og Aventis, en um leið muni félag-
ið tapa tekjum þar sem Pharmaco sjái
Gunnlaugur Sævar hefur verið
framkvæmdastjóri Faxamjöls hf. og
forvera þess, Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunnar hf., síðastliðin 12 ár.
Hann hefur ennfremur setið í stjórn-
um fjölda fyrirtækja og síðastliðin ár
gegnt formennsku í útvarpsráði.
Gunnlaugur Sævar var einn af
fjórum stofnendum Urðar, Verð-
andi, Skuldar haustið 1998.
ekki lengur um dreifingu fyrir Delta.
Sterk eiginfjárstaða Pharmaco
Aibert Jónsson hjá Fjárvangi segir
að það sem veki athygli sé að rekstr-
arhagnaður fyrir fjármagnsliði
minnki um tæpar 16 milljónir milli
ára. „Hins vegar aukast fjármuna-
tekjur um 236 miUjónir, að mestu
vegna söluhagnaðar. Það hafa því
orðið veruleg umskipti í hagnaði. Eig-
infjárstaðan er sterk og félagið virðist
vera vel rekið,“ segir Albert.
Hann segir að sér sýnist Pharmaco
vera góður fjárfestingarkostur og
fremst innlendra lyfjafyrirtækja.
Hins vegar geti fjárfestar haft í huga
að verð hlutabréfa Pharmaco hækk-
aði kringum áramótin og lækkaði
verulega á sama tíma í nokkrum
bandarískum lyfjafyrirtiekjum, t.d.
Johnson & Johnson, Bristol-Myers
Squibb og Merck. „íslenskt lyfjafyr-
irtæki sem selur að hluta vörur þess-
ara fyrirtækja hefur hækkað í verði
meðan þessi félög hafa lækkað. Því
gæti verið eins skynsamlegt að fjár-
festa í þeim erlendu," segir Albert.
FYRIRTÆKINU Bláa lóninu voru
í gær afhent nýsköpunarverðlaun
Rannsóknarráðs Islands og Ut-
flutningsráðs Islands í ár. Verð-
launin voru afhent á Nýsköpunar-
þingi, sem fram fór á hótel
Loftleiðum. Þorsteinn Ingi Sigfús-
son, formaður Rannsóknarráðs, af-
henti verðlaunin og sagði í ávarpi
sínu að Bláa lónið væri vel að út-
nefningunni komið, enda hefð fyr-
irtækið náð frábærum árangri í
markaðssetningu á lóninu og vör-
um þess erlendis.
Grímur Sæmundsen, fram-
kvæmdastjóri Bláa lónsins, flutti
þakkarávarp og sagði verðlaunin
vera mikla hvatningu fyrir starfs-
fólk fyrirtækisins. Hann sagði að
fyrirtækið hefði í starfi sínu lagt
áherslu á að kynna Bláa lónið sem
ákveðið hugtak, enda væru vel
TALSMENN þýzka stórbankans
Deutsche Bank, sem nú þegar er
eignamesti banki heims, staðfestu
í gær að til stæði að Dresdner
Bank, þriðji stærsti banki Þýzka-
lands, sameinaðist bankanum. Á
samruninn að ganga yfir fyrir 1.
júlí nk. Þar með verður til stærsti
banki heims, með eignir sem nema
yfir 2500 milljörðum marka, and-
virði yfir 90 billjóna króna.
Stjórnir beggja banka eiga eftir
að leggja blessun sína yfir sam-
runasamninginn, en samkvæmt
honum er gert ráð fyrir að
Deutsehe Bank muni eiga á bilinu
60-64 af hundraði hlutabréfa í
hinu sameinaða fyrirtæki, en
Dresdner 36-40%.
Þessi risasamruni þykir vís-
bending um að komin sé af stað
mikil bylgja fyrirtækjasamruna á
hinum alþjóðlega fjármálamarkaði.
Þá sagði þýzka dagblaðið Die
Welt ennfremur frá því í gær, að
HSBC-bankinn, sem hefur sitt
höfuðaðsetur í Lundúnum, væri að
falast eftir kaupum á Commerz-
bank, fjórða stærsta banka
Þýzkalands. Talsmenn Commerz-
bank vildu ekki tjá sig um fréttina
að öðru leyti en því, að hún væri
vangaveltur kauphallarrýna.
Þegar litið er til áberandi stórra
fyrirtækjasamruna sem hafa átt
sér stað í bankaheiminum á und-
anförnum misserum vekur athygli,
að í flestum tilvikum er um að
ræða samruna banka innan sama
lands. Yfirtaka Deutsche Bank á
bandaríska fjárfestingabankanum
Bankers Trust í fyrra var undan-
tekning frá þessu, en með þeim
samruna varð Deutsche Bank að
eignamestu bankastofnun heims,
með eignir sem nema um 840
mótuð og skýr vörumerki verð-
mætasta eign fyrirtækja á netöld.
Meginmarkmið fyrirtækisins á
næstu misserum yrði að kynna og
þróa nýtt vörumerki þess, sem ber
heitið Blue lagoon Iceland. Ætlun-
in væri að gera það að alþjóðlegu
vörumerki og tengja við heilsu,
vellíðan, íslenska fegurð og hrein-
leika.
Vörumerkið hefur að sögn Gríms
þegar verið skráð víða um heim,
m.a. í Bandaríkjunum, í flestum
Evrópulöndum og Japan.
Hann sagði ennfremur að rekst-
ur Bláa lónsins samanstæði af
nokkrum þáttum í rekstri. Meðal
þeirra væru rekstur heilsulinda-
hótels, með fjölbreyttri þjónustu,
rekstur verslana með vörur Bláa
lónsins og svo rekstur lónsins
sjálfs.
milljörðum Bandaríkjadala, and-
virði um 62 billjóna króna.
Japönsku bankarnir Dai-Ichi
Kangyo Bank, Fuji Bank og iðnað-
arbanki Japans verða - þegar um-
saminn samruni þeirra verður að
veruleika árið 2005 - að banka
með heildareign sem nálgast 1300
milljarða dala, eða um 96 billjónir
króna.
Einnig hefur verið tilkynnt að
japönsku bankarnir Sumitomo
Bank og Sakura Bank, með sam-
anlagðar eignir uppá 68,5 billjónir
króna, muni renna saman í apríl
2002.
16.500 starfsmönnum
sagt upp?
Stjórnendur þýzku bankanna
tveggja reikna með að samlegðar-
áhrif samrunans geti skilað um 2,9
milljarða evra sparnaði í rekstrin-
um, andvirði um 210 milljarða
króna. Til að ná þessu fram kann
allt að þriðjungi hinna samtals
3.800 útibúa bankanna að verða
lokað og 16.500 af hinum samtals
146.000 starfsmönnum sagt upp.
Frá þessu greindi Gerhard Renn-
er, fulltrúi stéttarfélagsbundinna
starfsmanna í stjórn Deutsche
Bank, á miðvikudagskvöld.
Einnig þykir hugsanlegt að al-
þjóðlegri fjárfestingaþjónustudeild
Dresdner Bank, Dresdner Klein-
wort Benson, verði einnig lokað, ef
marka má heimildir The Financial
Times, en það myndi þýða fækkun
um 6.000 starfa til viðbótar.
Nýi sameinaði bankinn mun í
auknum mæli einbeita sér að al-
þjóðlegri fjárfestingalánastarf-
semi, en bandarískar fjármála-
stofnanir hafa fram að þessu verið
fyrirferðarmestar á því sviði.
Með blaðinu
í dag
Blaðauki um
Formúlu-1
í Morgunblaðinu
í dag.
Urður, Verðandi, Skuld ehf.
Ráðinn framkvæmdastjóri
Stærsti banki heims verður til við samruna
Peutsche Bank og Presdner Bank
Alþjóðleg banka-
samrunaby lej a
f..rf AP APP
Frankfurt. AP, AFP.