Morgunblaðið - 10.03.2000, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HAGKAUP
Stretch stigvél
Stretch stigvél
Meira úrval - betri kaup
ERLENT
Tvísýnar þingkosningar á Spáni um helgina
José María Aznar, forsætisráðherra Spánar, meðal stuðningsmanna sinna á fundi í Valencia á þriðjudag.
Efnahagsbatinn er
beittasta vopn Aznars
Madríd. AFP.
MIKIL umskipti hafa orðið í efna-
hagsmálum Spánar síðustu fjögur
árin og eru þau talin beittasta vopn
José María Aznars forsætisráðherra
í baráttunni við sósíalista fyrir þing-
kosningarnar sem fara fram á sunnu-
dag. Sósíalistar hafa myndað banda-
lag með öðrum vinstrimönnum í
íyrsta sinn í marga áratugi í von um
að geta fellt stjóm Þjóðarflokksins
en forystumenn nýja bandalagsins
virðast eiga í erfiðleikum með að
sannfæra kjósendur, sem njóta góðs
af hagsældinni, að þörf sé á breyting-
um.
Á fjögurra ára valdatíma Aznars
hefur atvinnuleysið minnkað úr 23% í
15%, hagvöxturinn hefur verið um
4% á ári, skattar hafa verið lækkaðir
og fjárlagahallanum hefur verið eytt.
Þjóðarflokkurinn leggur mikla
áherslu á þennan árangur í auglýs-
ingum sínum fyrir kosningarnar og
lofar að halda áfram á sömu braut,
lækka skattana frekar, fjölga störf-
um og bæta kjör ellilífeyrisþega.
Aznar sagði jafnvel í viðtali við
þýska blaðið Der Spiegel á mánudag
að önnur ríki Evrópusambandsins
gætu nú tekið Spán sér til fyrirmynd-
ar í efnahagsmálum. Hann varaði þó
við því að efnahagslega árangrinum
yrði stefnt í hættu ef sósíalistar og
bandamenn þeirra kæmust til valda.
Sósíalistar benda hins vegar á að
atvinnuleysið á Spáni er meira en í
nokkru öðru aðildarríkja ESB og
segja að einkavæðing stjórnarinnar
hafi aðallega bætt hag forstjóra ell-
efu af fyrirtækjum landsins.
Sósíalistar komu mörgum á óvart í
janúar með því að undirrita sam-
starfssamningvið Sameinaða vinstri-
menn (IU), undir forystu kommún-
ista, og samstarf vinstriflokkanna
hefur gert þeim kleift að veita Þjóð-
arflokknum harða og jafna keppni.
Slíkt bandalag spænskra vinstri-
manna hefur ekki verið til frá árinu
1936 þegar Alþýðufylkingin var
mynduð, en félagsleg umbótastefna
hennar hratt af stað uppreisn hersins
undir forystu Francos hershöfðingja
og hún leiddi til spænsku borgara-
styrjaldarinnar.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
birt var fyrir viku, nýtur Þjóðar-
flokkurinn stuðnings 41,6% kjósend-
anna, sósíalistar 36,6% og Sameinað-
ir vinstrimenn 7,4%.
Sósíalistar voru við völd á Spáni í
fjórtán ár þar til Aznar og Þjóðar-
flokkurinn tóku við stjórnartaumun-
um árið 1996 eftir mjög nauman sig-
ur í þingkosningum. Þjóðarflokkur-
inn fékk þá 38,8% atkvæðanna og
sósíalistar37,7%.
Kjörtímabilið, sem er að Ijúka, er
hið lengsta á Spáni frá dauða Franc-
os einræðisherra árið 1975; öllum
hinum kjörtímabilunum lauk með því
að kosningum var flýtt.
Joaquín Almunia, leiðtogi sósíal-
ista og forsætisráðherraefni vinstri-
flokkanna, er gamall bandamaður
Felipe González, fyrrverandi forsæt-
isráðherra og leiðtoga sósíalista, en
ekki gæddur sömu persónutöfrum og
hann.
Óttast hryðjuverk
Vilji Aznar halda forsætisráð-
herraembættinu eftir kosningamar
er líklegt að hann verði að mynda
bandalag með flokkum þjóðemis-
sinna í Katalóníu og fleiri flokkum.
Spánverjar óttast að aðskilnaðar-
hreyfing Baska, ETA, reyni að spilla
kosningunum með hermdarverkum.
Hreyfingin batt enda á 14 mánaða
vopnahlé sitt í desember eftir að
samningaviðræður hennar við
spænsku stjórnina fóru út um þúfur
og ETA hefur verið kennt um tvö
sprengjutilræði á árinu. Spænskur
herforingi í Madríd beið bana í öðru
þeirru 21. janúar og stjómmálamað-
ur úr sósíalistaflokknum og lífvörður
hans létu lífið í hinu tilræðinu í Vitor-
i^mánuði síðar.
Spænska þjóðvarðliðið sagði á
miðvikudag að það væri „nánast al-
veg öruggt" að ETA myndi gera
sprengjuárás skömmu fyrir kosning-
arnar eða á kjördag og kvaðst því
ætla að vera með mikinn viðbúnað.
Tölvuaðstoð
Vantar þig smá aðstoö við að nota Word, Excel eða Windows?
Erum með einkakennslu og námskeið fyrir litla hópa.
Nánari upplýsingar á
www.tolst.com