Morgunblaðið - 10.03.2000, Side 68
\ 88 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2000
FRÉTTIR
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Fjör á
- öskudags-
balli
íVík
Fagradal - Þótt frí sé gefið í
skólanum í Vfk á öskudegin-
um taka börn í Mýrdalnum
daginn snemma og fara í
hópum og syngja í flestum
fyrirtækjum í Vík, og er
þcim launað fyrir sönginn
með sælgæti, frönskum
kartöflum og sokkum í Vík-
urpijóni.Árlegt öskudags-
ball er síðan haldið í Leik-
skálum um kvöldið. Þar
mæta ungir sem gamlir og
skemmta sér saman í grímu-
búningum.Verðlaun voru
veitt fyrir bestu búningana
en verslun KÁ í Vík gaf öll-
um sem voru i grímubúningi
tannbursta og tannkrem.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
HflPPDR Æ T TI
-þarseni
vumingarnirfájst
Vinningaskrá
41. útdráttur 9. mars 2000
Bif reiðavinningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
6 4 14 7
Ferðavinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
13648
51673
52797
75024
Ferðavinningnr
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
4763 16716 20654 25300 27669 53257
7673 18430 20687 26062 36825 71956
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
916 18064 23868 28931 40169 48171 62517 75854
1745 18315 23950 29910 40365 48349 64309 75919
2278 18963 24082 30784 41627 48413 64485 77608
3559 19222 24367 31111 41709 48464 64585 77914
3869 19808 25408 31309 41757 51340 64950 78439
4589 19993 25792 32004 42890 51643 67223 78793
4828 20403 26260 34359 43476 52560 68638 78810
6193 20810 26454 35918 44588 54381 68978 79221
6612 21582 26605 36963 46162 56015 69850 79830
11262 22339 26739 37887 46626 56547 70467
13496 23224 26790 38434 47099 56802 71036
14292 23421 27194 39051 47233 57972 74957
14537 23563 28889 39662 47889 60649 75665
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvðfaldur)
1302 16939 25573 38632 46874 54352 65104 72021
1459 17500 25708 38958 46946 54432 66057 72279
1497 17693 25875 39315 47029 54620 66274 72634
1756 17807 26677 39340 47186 54877 66292 73022
1849 18377 27981 39452 47427 54952 66628 73588
3112 18569 29299 39769 47532 55747 66810 74163
3321 19072 29415 39904 47701 55815 67148 74226
3599 19225 30119 40571 48112 56273 67156 74701
3738 19465 30610 40851 48354 56386 67413 74901
4358 20135 31459 40931 48707 56463 67534 75127
4774 20192 31764 41057 48708 56554 67705 75270
4871 20447 32219 41436 48745 56677 67708 75623
4900 20483 32334 41438 48748 56863 67825 75641
5250 20600 33025 41486 48759 57242 67918 75823
5521 20728 33053 41596 48947 57798 68023 75940
7074 21717 33098 41761 49504 57810 68460 76248
7751 22111 33439 41945 49596 59551 68472 76254
7807 22228 34471 42295 49626 59695 68692 76477
7886 22736 34621 43223 49689 59935 68824 76935
8045 22798 34691 43256 50193 60348 68855 77137
8982 22989 35160 44039 50523 60706 69001 77232
9622 23138 /35281 44408 50589 60746 69236 78186
9878 23702 36266 44532 50747 61333 69477 78865
10226 24183 36531 44672 50883 61948 69658 78866
11510 24568 36799 45209 51559 61962 70184 79252
13289 24956 36843 45713 51721 62622 70831 79461
13411 24995 36846 45782 52529 62766 70986
13480 25010 37188 45935 52699 63896 71035
13849 25031 37287 46324 53011 64046 71155
14764 25078 37556 46624 53507 64648 71527
15165 25237 37960 46771 53751 64923 71941
15833 25558 38082 46800 53895 64999 71981
Næsti útdrættir fara fram 16. mars, 23. mars & 30. mars 2000
Heimasföa á Interneti: www.das.is
VELVAKA]\DI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fuglafóður
og söngleikir
ÉG ER ein af þeim sem hef
hænt að mér fugla á sval-
irnar mínar með fuglafóðri.
Ég varð undrandi þegar ég
sá um daginn að pokinn
kostar 78 kr. í verslunum
10-11, en sams konar poki
kostar 96 kr. í Nóatúni.
Hvernig stendur á því, að
maður heyrir aldrei neitt
eftir Ándrew Lloyd
Webber í útvarpinu, það
voru teknir upp afmælis-
tónleikar í Albert Hall og
þeir eru komnir út á geisla-
diski. Ég er búin að sjá
nokkra söngleiki eftir hann
og mér finnst hann alveg
frábær.
Margrét Matthíasdóttir
Persónuupplýsingar
í gagnagrunni
ÞAÐ hefur mikið verið rætt
um gagnagrunninn. Það,
sem varð til þess að ég
sagði mig úr honum, eru
persónulegar upplýsingar
sem munu fljóta með. Éitt
sinn fór ég til læknis vegna
þess að ég hafði meitt mig á
fæti. Fyrst spurði hann mig
hvort að ég væri gift eða í
sambúð og síðan hvort ég
væri á pillunni eða með
lykkjuna. Ég hvað svo ekki
vera, þá spurði hann mig
hvað ég notaði. Ég sagðist
ekkert nota. Þá spurði
hann mig hvort ég væri
ekki hrædd við að verða
ófrísk. Ég sagði nei, því að
það þyrfti nú tvo til. Þá
spurði hann mig að því
hvort ég lifði ekki eðlilegu
kynlífi. Ég var mjög hissa á
þessum spumingum og
sagði að honum kæmi mitt
einkalíf ekkert við, því ég
hefði komið vegna meiðsla
á fæti og bað hann að gjöra
svo vel að líta á hann.
Finnst mér að fólk eigi að
eiga smá einkalíf, þótt við
lifum á öld upplýsinga. Mér
væri sama þó það færu
upplýsingar í gagnagrunn
um mín líkamlegu veikindi,
en ég kæri mig ekki um að
upplýsingar um mitt einka-
líf fari þar með og þess
vegna sagði ég mig úr hon-
um. Finnst mér að einhvers
staðar þurfi að draga mörk-
in, hvað eigi að láta í þenn-
an gagnagrunn. Að lokum
vil ég biðja fólk, að hugsa
sig vel um áður en það læt-
ur allar upplýsingar af
hendi.
Guðrún
Oryrkjar
ÉG er að velta því fyrir mér
hvernig í ósköpunum Ör-
yrkjabandalagið hafði efni
á því að eyða mörgum millj-
ónum í auglýsingar fyrir
síðustu alþingiskosningar á
sama tíma og félagsmenn
þess kvörtuðu um sára fá-
tækt eða voru þeir ekki
spurðir? Hefði ekki verið
nær að þeir öryrkjar, sem
segjast lifa mest megnis á
hafragraut, hefðu fengið
eitthvað af auglýsinga-
bruðlinu. En það er nátt-
úrulega alltaf spurning um
forgangsröð.
Eldri borgari
Útkall á biluðum bíl
ALVEG er það furðulegt að
lögreglumenn skuli fara í
útkall á bifreið með bilaða
hemla. Ég hefði nú haldið að
þeir færu beinustu leið með
bílinn í viðgerð. Þetta hefði
verið talið ámælisvert hjá
hinum almenna borgara.
Sigurður
Lýst eftir bflstjóra
LAUGARDAGINN 4.
mars sl. varð ég fyrir því
óláni, að bakkað var á bflinn
minn, sem er dökkrauður
Legacy, á bflastæði Kringl-
unnar og brotnaði aftur-
ljósið. Bflstjórinn, sem
bakkaði á bílinn minn,
skildi eftir miða undir rúðu-
þurrkunni, en sökum rign-
ingar var miðinn rennandi
blautur og ekki hægt að
lesa á hann. Langar mig til
að biðja bflstjórann að hafa
samband við Halldór í síma
553-5170.
Hálfur fótboltavöllur
ÉG fer í sjúkraþjálfun hjá
Sjálfsbjörgu í Hátúni 12 og
langar mig til þess að
kvarta undan svellinu á
planinu þar. Klakinn er svo
mikill, að ég er viss um að
hann er eins og hálfur fót-
boltavöllur og það er stór-
hættulegt að ganga frá
bflnum að útidyrahurðinni.
Ég get ekki ímyndað mér
annað, en að þetta sé stór-
mál fyrir fatlaða. Er ekki
eitthvað hægt að gera í
þessum málum, áður en
slys ber að höndum, sökum
hálkunnar?
Einar Guðmundsson
Tapad/fundid
Brún og gyllt kven-
gleraugu týndust
BRÚN og gyllt kvengler-
augu týndust á leiðinni frá
Fellahverfi að Hólahverfi í
Breiðholti fyrir um það bil
tveimur vikum. Fundar-
laun. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband við Elfsabetu
í síma 557-9803.
Dýrahald
Læða fæst gefíns
FJÓRTÁN mánaða læða,
hvft, svört og gul fæst gef-
ins á gott heimili. Upplýs-
ingar í síma 861-4041.
Læðu vantar heimili
YNDISLEGA átta mánaða
læðu vantar heimili vegna
ofnæmis eiganda. Upplýs-
ingar í síma 588-7371.
Morgunblaðið/Asdís
Á Miklatúni.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI dagsins hefur síð-
ustu daga, eins og flestir lands-
menn aðrir, háð hina árlegu orrustu
við skattskýrsluna. I þeirri baráttu
undrast hann alltaf jafn mikið þá
vankanta sem eru á leiðbeiningun-
um um hvernig fylla skuli út fram-
talið. Hefur satt að segja læðzt að
Víkverja sá grunur, að það, hvernig
staðið er að skattskýrslugerð á Is-
landi, sé skipulagt atvinnusamsæri
endurskoðenda. Gildrurnar eru
óteljandi. Það er engu líkara en að
þeir sem mótað hafa reglurnar um
framtalsgerðina starfi af innstu
sannfæringu eftir einkunnarorðun-
um: „Hvers vegna að hafa eitthvað
einfalt, ef hægt er að hafa það flók-
ið?“
Sem dæmi vill Víkverji nefna, að
hvergi í atriðisorðaskrár leiðbein-
ingaheftisins er minnzt á það sem
allur almenningur á íslandi þekkir
undir heitinu verktaka eða verktaka-
greiðslur. Hvað þá að minnzt sé á
hvaða reglur gildi um framtal á slík-
um greiðslum.
Þá er fólki sem staðið hefur í hús-
næðiskaupum á framtalsárinu
sannarlega ekki gert auðvelt fyrir
að rata í gegn um eyðufyllinga-
frumskóginn, með tilheyrandi upp-
flettingum í vísitölutöflum og öðr-
um útreikningum. Og hinn óinn-
vígði, sem er svo bjartsýnn að telja
sig geta ratað þetta á eðlisávísun-
inni, á á hættu að fá dálaglegan
bakreikning í hausinn nokkrum
mánuðum síðar.
xxx
FRAMTALSSLAGURINN leiðir
huga Víkverja að tengdu mál-
efni, sem honum hefur verið hugleik-
ið alllengi. Það er að hagnýtum upp-
lýsingum á borð við það hvernig
maður telur fram til skatts skuli
hvergi í íslenzku skólakerfi vera
miðlað til borgara Lýðveldisins ís-
lands. Þeir sem útskrifast úr grunn-
og framhaldsskólum landsins eru
aldrei kynntir t.d. fyrir þeim grund-
vallarréttindum sem íslenzk lög og
reglugerðir eiga að tryggja þeim.
Þegar úr vernduðu umhverfi for-
eldrahúsa og skóla er komið, rekast
allir á að þurfa að fá svör við spurn-
ingum eins og: Hver er réttur laun-
þega á vinnumarkaðnum? Hver er
réttur leigjenda á húsnæðismark-
aðnum? Hverju munar það - hvað
varðar réttindi, skatta, tryggingar
og annað - að vera skráður í sam-
búð? Hverju breytir gifting í þessu
tilliti? Hvað vinnst með því að borga í
lífeyrissjóð? Hvemigvirkar húsnæð-
islánakerfið? Og þannig mætti lengi
telja.
Víkverja skilst, að nú standi til að
mæta þörfinni á miðlun slíkrar
hagnýtrar borgaraþekkingar að ein-
hverjum hluta í skólum landsins með
því að bæta svonefndri „lífsleikni"
inn í stundatöflur nemenda. Er vel ef
það gengur eftir.