Morgunblaðið - 15.03.2000, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 1 9
Italskur veit-
ingastaður í
hjarta bæjarins
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Á nýja veitingastaðnurn, La Vita é Bella, sem opnaður hefur verið þar
sem áður var hið fornfræga veitingahús Smiðjan. Frá vinstri: Guðmund-
ur Karl Tryggvason, Hallgrúnur Arason og Stefán Gunnlaugsson.
Héraðsdómur Norð-
urlands eystra
Fangelsis-
dómur
vegna
tveggja
árása
RÚMLEGA tvítugur maður á Húsa-
vík hefur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmdur í 6 mánaða
fangelsi fyrir líkamsárásir, en þar af
eru 4 mánuðir skilorðsbundnir tii
þriggja ára. Þá var honum gert að
greiða tvítugum manni um 125 þús-
und krónur í bætur ásamt dráttar-
vöxtum auk þess að greiða sakar-
kostnað.
Maðurinn var annars vegar ákærð-
ur fyrir að kasta grjóti að dyraverði
við veitingastaðinn Gamla Bauk í lok
ágúst á síðasta ári með þeim afleið-
ingum að hann hlaut mar og eymsl á
bringu, en hins vegar fyrir að hafa í
október á liðnu ári kastað bjórflösku í
ungan mann á Húsavík með þeim af-
leiðingum að hann hlaut tvo skurði í
andliti sem sauma þurfti saman, glóð-
arauga á báðum augum og þrota. Sá
er fékk bjórflöskuna í andlitið krafð-
ist 420 þúsund króna miska- og
skaðabóta.
Ákærði viðurkenndi brot sín ský-
laust fyrir dómi. Hvað fyrra brot sitt
varðar kvaðst hann hafa átt í orða-
skaki við dyravörðinn og í kjölfar þess
í ölvunarástandi og reiðikasti hent að
honum grjóti. Um síðamefnda atvikið
sagði hann að maðurinn hefði komið
að bifreið sem hann var farþegi í og
neitað að víkja úr vegi. Hann hefði því
rokið út úr bifreiðinni og þeir tveir
tekist á um stund en áflogunum lauk
með því að ákærði kastaði bjórflösk-
unni sem hitti manninn í andlitið.
Maðurinn hefur þrívegis hlotið
refsidóma og jafnoft gengist undir
sektargreiðslur með sáttargjörðum.
Hann var dæmdur í mars 1998 í skil-
orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Norðurlands eystra og með athæfi
sínu rauf hann það skilorð.
í dómi kemur fram að báðar hafi
árásimar verið háskalegar. Maðurinn
hafi lýst yfir iðran sinni og leitað sér
aðstoðar og því virðist hafa orðið við-
horfsbreyting hjá ákærða.
-----FH-------
Skíðasvæði
Ólafsfirðinga
vinsælt hjá
ferðamönnum
ÓlafsQBrður. Morgunblaðið.
UM það bil sextíu nemendur úr
Verslunarskóla Islands vora nýverið
í skíðaferð í Ólafsfirði. Verslingar
vora hæstánægðir með ferðina enda
fengu þeir frábært skíðafæri í Tinda-
öxl, skíðasvæði Ólafsfirðinga, og
skemmtu sér hið besta bæði á skíð-
um og brettum.
Á laugardagskvöldið skemmtu
þeir sér síðan vel í skíðaskálanum og
var umgengni og hegðun nemenda
Verslunarskólanum til sóma.
Rafn Amason, formaður íþrótta-
ráðs nemenda, var ánægður með
ferðina og sagði Ólafsfjörð frábæran
skíðastað og var ánægður með mót-
tökur heimamanna.
Fleiri skólar og félög vítt og breitt
um landið eru væntanleg í skíðaferð
til Ólafsfjarðar á næstunni og er
greinilegt að Ólafsfirðingum ætlar
að takast að laða til sín ferðamenn
jafnt sumar sem vetur. Framundan
er aðalferðamannatíminn, páskarnir,
en í fyrra var krökkt af fólki í Ólafs-
firði, mestmegnis skíðafólki. Fyrir-
huguð er samvinna milli skíðasvæð-
anna í Ólafsfirði, Dalvík og
Hlíðarfjalli við Akureyri, þannig að
fólk annars staðar á landinu getur
hugsað sér gott til glóðarinnar.
NYR veitingastaður, La Vita é
Bella hefur verið opnaður þar sem
áður var veitingastaðurinn Smiðj-
an. Þeim stað var lokað um áramót
og síðan hefur verið unnið hörðum
höndum við breytingar. Á nýja veit-
ingastaðnum er lögð áhersla á ít-
alska matseld, eins og reyndar nafn
hans gefur til kynna.
Guðmundur Karl Tryggvason yf-
irmatreiðslumaður sagði að vissu-
lega væri mörgum eftirsjá að
Smiðjunni, enda hefði staðurinn
verið rekinn í um tuttugu ár. „En
okkur fannst vera þarna ákveðið
gat í matargerð í bænum, þar sem
ítalska matarhefðin er og ákváðum
að fylla upp í það,“ sagði Guðmund-
ur Karl. Ágúst Þór Bjarnason, sem
hefur sérhæft sig í ítalskri matar-
gerð, hefur yfiramsjón með eldhús-
inu.
Á veitingastaðnum eru sæti fyrir
um 45 manns og þá er bar á efri
hæð sem tekur um 20-25 manns í
sæti en þar gefst gestum kostur á
að fá sér drykk fyrir matinn eða
dreypa á kaffisopa á eftir.
Guðmundur Karl sagði að
áhersla væri lögð á fjölbreyttan
matseðil, en í boði væri léttur og
braðmikill matur að hætti ítala á
hóflegu verði. „Fólk vill nú frekar
fara oftar út að borða, fá léttan mat
á góðu verði heldur en að fara upp-
ábúið á fínni staði og við eram að
mæta þeim kröfum með þessum
stað,“ sagði hann. Áhersla er lögð á
frjálslegra og léttara yfirbragð en
var á Smiðjunni, sem hentar ungu
fólki á öllum aldri, eins og Guð-
mundur Karl orðaði það. „Við eram
bjartsýnir á að Akureyringar kunni
að meta stað eins og þennan."
Auk þess sem á matseðli er fjöl-
breytt úrval af pítsum og pastarétt-
um er þar einnig að finna fisk- og
kjötrétti af ýmsu tagi. Opið verður
fyrst um sinn frá kl. 18 á kvöldin, en
þegar nær dregur sumri verður af-
greiðslutíminn lengdur og þá opið
frá hádegi.