Morgunblaðið - 08.04.2000, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hekla
lækkar
bflverð
umfram
vöru-
gjaldið
HEKLA hf. ætlar að lækka
verð á nokkrum gerðum bíla
umfram það sem breytingar á
vörugjaldi gefa tilefni til.
Einnig lækkar Hekla verð á
sumum bílum þótt vörugjald
af þeim hafí ekki breyst.
Fyrirtækið hefur endur-
skoðað verðskrá allra nýrra
bíla í kjölfar breytinga á
gjaldaflokkunum. Þótt gjald-
skrárbreytingin gæfi tilefni til
hækkunar á vissum gerðum
hefur Hekla ákveðið að hækka
ekki verð á neinum bíl. Með
þessu vill Hekla leggja sitt af
mörkum til að gera neytend-
um kleift að eignast bíla á
góðu verði, segir Jóhannes
Reykdal, blaðafulltrúi Heklu.
Sem dæmi um bíla sem
bera sama vörugjald en lækka
samt í verði má nefna Mitsu-
bishi Colt 1,3, sem kostaði áð-
ur 1.420.000 kr. og kostar nú
1.280.000 kr. Þá lækka Mitsu-
bishi Space Star og Carisma
Sport um 100.000 kr.
■ Verðbreytingar/18
Skæður vírus í laxeldi í Færeyjum
Unnið að tillögum
um vernd íslenska
laxastofnsins
ÓTTAST er að vírusinn ISA berist í
íslenska laxastofninn en vírusinn
greindist í laxeldisstöð í Fuglafirði í
Færeyjum með þeim afleiðingum að
Færeyingar neyðast til að slátra eld-
islaxi að verðmæti 700 milljónir
króna.
Fulltrúar NASF, verndarsjóðs
villtra laxastofna, vinna nú að grein-
ingu á vandanum í Færeyjum. Þeir
leggja væntanlega fram tillögur inn-
an skamms um það hvemig hægt sé
að minnka áhættuna á því að sjúk-
dómurinn berist tU íslands.
Landlægnr sjúkdómur í Noregi
Orri Vigfússon, formaður NASF,
segir að sjúkdómurinn hafi lengi ver-
ið landlægur í Noregi, sennilega
vegna fiskeldisins þar. „Fyrir tveim-
ur árum komst hann svo af einhverj-
um ástæðum til Skotlands. Yfirvöld
hlustuðu ekki á varnaðarorð okkar
og síðan hefur hann breiðst út og
gert mikinn usla í fiskeldinu í Skot-
landi,“ segir Orri.
Orri segir að Iíklegt sé að veiran
hafi nú borist frá Hjaltlandi til Fær-
eyja. „Auðvitað fáum við aldrei full-
vissu fyrir því en hvað sem öðru líður
er þetta komið upp í Fuglafirði. Við
höfðum strax samband við yfirvöld í
Færeyjum. Ráðherrann sem fer með
þessi mál, Finnbogi Arge, samþykkti
strax að laxinum yrði öllum fargað,“
segir Orri.
Skjót viðbrögð Færeyinga
Orri segist vera mjög ánægður
með snögg viðbrögð færeyskra yfir-
valda. „Þarna er auðvitað um gríðar-
legt fjárhagslegt tjón að ræða fyrir
Færeyinga, sennilega nemur tapað
útflutningsverðmæti um 10 milljón-
um dollara eða um 700 milljónum ís-
lenskra króna,“ segir hann.
■ Veirusýking/32
--------------
Hvalfjarðargöngin
Skipt um
500 perur
HVALFJARÐARGÖNGIN voru
lokuð þrjár nætur í vikunni vegna
viðhalds.
Meðal annars var verið að skipta
út um 500 ljósaperum, þvo og mála
h'nur á veginn og sagði Stefán Reyn-
ir Kristinsson, framkvæmdastjóri
Spalar, að þetta væri samkvæmt við-
haldsáætlun eftir 18 mánaða rekst-
ur.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Viðræður við öll verslun-
armannafélög í uppnámi
SAMNINGANEFND Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur ákvað á
fundi í gær, sem haldinn var eftir að
upp úr viðræðum við vinnuveitend-
ur slitnaði, að halda sig við fyrri
kröfur en lýsa sig reiðubúna til að
skoða útfærslur á einstökum þátt-
um áður en gripið yrði til aðgerða.
Landssamband íslenskra verslun-
armanna er í samfloti með VR í
samningaviðræðunum og hefur því
einnig slitnað upp úr viðræðum
allra verslunarmannafélaga í land-
inu við atvinnurekendur. Ingibjörg
Guðmundsdóttir, formaður LIV,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að á fundi framkvæmdastjórn-
ar og samninganefndar sambands-
ins á mánudag yrði staðan metin í
ljósi þess sem fram er komið og af-
staða tekin til framhaldsins. „Við er-
um með því sem næst sömu kröfu-
gerð og VR,“ sagði hún og kvaðst
hafa trú á að innan sinna samtaka
kæmu fram svipaðar áherslur og
hjá VR á fundinum á mánudag.
títfærsla á annan hátt
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, sagði að á fundi samninga-
nefndar VR í gær hefði komið fram
óánægja með gang mála að loknum
tveggja mánaða viðræðum. „Það var
einróma ákvörðun samninganefnd-
arinnar að halda sig við kröíúrnar
en áður en gripið yrði til aðgerða
gætum við skoðað að útfæra ein-
hveija þætti þeirra á annan hátt.“
Hann sagði að menn teldu ekki
ástæðu til að vísa deilunni til ríkis-
sáttasemjara fyrr en hún væri kom-
in á það alvarlegt stig að grípa yrði
til aðgerða.
Um það hvað við væri átt með
skoðun á öðrum útfærslum sagði
hann að skoða mætti hvort vægi
yrði fært frá einum þætti til annars.
„Það sem við erum að bjóða er um-
ræður um hvort við færum vigt frá
einum þætti til annars en ekki að
hverfa frá kröfugerðinni sem slíkri
sem við teljum að sé í heild á mjög
skikkanlegum nótum,“ sagði Magn-
ús.
Magnús sagði kröfuna um 2%
mótframlag atvinnurekenda í sér-
eignarlífeyrissjóð þá einu kröfu VR
sem fram hefði náð að ganga en um
hana hafði einnig verið samið í
samningi VR við stórkaupmenn og í
samningum Flóabandalagsins og
SA. Krafa um lægstu launin sagði
Magnús að væri enn á umræðustigi.
Hann sagði að krafan um mark-
aðslaun vægi þyngst af þvi sem á
milli bæri. Yjað hefði verið að mark-
aðslaunakröfunni í viðræðum við at-
vinnurekendur árið 1995 og líkt og
verslunarmenn hefðu atvinnurek-
endur kjmnt sér fyrirkomulag
þeirra mála í Danmörku, sem næði
þar til 85% verslunarmanna og bæði
launamenn og atvinnurekendur létu
vel af reynslunni.
Þreyttir á gömlu
dönsunum
„Þetta er nútíminn og morg-
undagurinn en viðsemjendurnir
vilja halda sig við gamla kerfið sem
hefur leitt til þess að launataxtar
eru 67-84 þúsund krónur, sem þýðir
að við erum að gera samninga sem
ná til 5% félagsmanna VR,“ sagði
Magnús. „Við viljum fara út úr
þessu fornaldarkerfi. Við erum
orðnir þreyttir á gömlu dönsunum.“
Ari Edwald sagði að ákveðin skil
væru komin í viðræður atvinnurek-
enda og verslunarmanna og kvaðst
gera ráð fyrir að þráðurinn yrði tek-
inn upp aftur þótt sú niðurstaða
væri fengin að aðilar væru ekki að
ná saman á þeim grundvelli sem
kröfugerð verslunarmanna byggðist
á. Þar vægju markaðslaunin þyngst.
Grundvallarbreyting
„Við erum þarna að fjalla um
grundvallarbreytingu á samskipta-
háttum á vinnumarkaði þegai- við
erum að ræða um að verkalýðsfélög
komi með ákveðnum hætti að per-
sónubundinni launamyndun í fyrir-
tækjum, sem þau hafa ekki komið
nærri áður. Þetta er gríðarlega rót-
tæk breyting og það er afar stórt
skref fyrir atvinnurekendur að gera
slíkar breytingar," sagði Ari. „Eg
geri mér hins vegar vonir um að við
getum að einhverju leyti nálgast
málin á nýjum grundvelli þegar við
höfum farið yfir það hvor í sínum
ranni hvaða áhrif þetta hafi á upp-
byggingu samningsins."
Hægara
sagt en gert
ALÞINGISMÖNNUM var í gær
boðið að skyggnast inn í heim
heyrnarlausra og kynnast tákn-
máli, uppbyggingu þess og nokkr-
um táknum. Félag heymarlausra
bauð upp á þessa kennslustund og
nýttu margir þingmenn sér tæki-
færið. Eins og sjá má á svipbrigðum
þingmannanna er langt í frá auð-
velt að ná tökum á þessu móðurmáli
heyrnarlausra.
-----í-H----
Hannes er
meðal efstu
manna
NICK E. De Firmian, Hannes Hlíf-
ar Stefánsson og Luke J. Mcshane
unnu skákir sínar í þriðju umferð á
Reykjavíkurmótinu í skák í gær.
Þeir eru því efstir, með þrjá vinninga
af þremur mögulegum.
McShane vann Xiangzhi Bu,
Hannes lagði Harmen Jonkman og
De Firmian bar sigurorð af Tomas
Oral. Af öðrum úrslitum bar hæst
sigur Sigurðar Páls Steindórssonar,
17 ára, á Helga Ólafssyni. Sigurður
Páll er í 4.-12. sæti með tvo og hálfan
vinning.
í dag
20 Sfcift
LESBÖ
JÉ£
MOHGUNBLAÐSINS
ALAUGARDOGUM
Með Morgun-
blaðinu í dag er
dreift blaði Fé-
lags bókaútgef-
enda „Vika bók-
arinnar"
-i Sl'iU II.
••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Haukar kjöldrógu Aftureldingu
í Mosfellsbæ/B3
Nýi KR-búningurinn kynntur
til sögu/Bl
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is