Morgunblaðið - 08.04.2000, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra átti fundi með viðskiptaaðilum f Kanada
Opnaði heimasíðu sem er ætlað
að tengja fsland við Ameríku
Ottawa. Morgunblaðið.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra átti í gær
fund með viðskiptaaðilum frá íslandi og Kan-
ada. Við það tækifæri opnaði hann heimasíðu
sem er ætlað að vera vettvangur fyrir tengsl ís-
lands við N-Ameríku. Davíð sagðist fagna þessu
framtaki sem er samvinnuverkefni íslenskra
stjórnvalda og íslenskra fyrirtækja.
Á fundinum kom fram að viðskipti íslands og
Kanada hafa verið að aukast á síðustu árum og
vonast er til að þau eigi enn eftir að aukast.
Binda menn vonir við að opnun íslensks sendi-
ráðs í Ottawa í Kanada í byrjun næsta árs eigi
eftir að styrkja og efla viðskipti landanna.
Heimasíðan sem forsætisráðherra opnaði í
gær ber nafnið www.icelandnaturally.com. Þar
er að finna fjölbreyttar upplýsingar um ísland.
Magnús Bjarnason, viðskiptafulltrúi á við-
skiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sagði
að heimasíðunni væri ætlað að vera vettvangur
fyrir ítarlega kynningu á íslandi með sérstaka
áherslu á viðskipti. Fyrirtækjum gæfist kostur
á að kynna starfsemi sína með því að tengja
heimasíður sínar við icelandnaturally. Sem
dæmi nefndi hann að fólki gæfist kostur á að
kynna sér íslenska ferðaþjónustu, verð á hótel-
gistingu o.s.frv. Þarna væri að finna ítarlega
kynningu á íslenskum fiskafurðum og íslensku
lambakjöti og fjölbreyttar mataruppskriftir
væri að finna á síðunni.
Mikil umfjöllun í fjölmiðlum í Kanada
Magnús sagði að á síðunni yrði hægt að lesa
umfjöllun um ísland í N-Ameríku. ísland hefði
fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum í Kanada í
þessari viku í tengslum við upphaf hátíðarhalda
í tilefni af þúsund ára afmæli landafundanna.
Hægt væri að kynna sér þessa umfjöllun með
því að tengjast heimasíðunni. Þar væri einnig
að finna upplýsingar um menningarviðburði
sem efnt verður til í tengslum við landafunda-
afmælið.
Magnús sagði að í upphafi yrði lögð mikil
áhersla á að kynna heimasíðuna í N-Ameríku.
Fólki gæfist kostur á að skrá sig á síðuna og
það fengi síðan tölvupóst með upplýsingum um
leið og þær bærust inn á síðuna. Meðan á kynn-
ingunni stæði yrði efnt til happdrættis þar sem
allir sem hefðu skráð sig yrðu þátttakendur.
Meðal vinninga verða sjö daga ferðir til íslands,
miðar á menningarviðburði eins og tónleika
Sinfóníuhljómsveitarinnar og tónleika Bjarkar
og Gus-Gus.
Heimasíðan er kostuð af stjórnvöldum, Flug-
leiðum, SÍF, Icelandic Seafood og Bændasam-
tökunum. Magnús sagði að fleiri fyrirtæki hefðu
sýnt áhuga á að koma til samstarfs við heima-
síðuna.
Svavar Guðnason
útgerðarmaður
V atney rarinnar
Einkamál
höfðað
á hendur
ríkinu
SVAVAR Guðnason útgerðar-
maður, sem var sakfelldur
fyrir ólöglegar veiðar í Vatn-
eyrardóminum, hefur ákveðið
að höfða einkamál á hendur
íslenska ríkinu.
Hann segir Hæstarétt að
engu leyti hafa tekið á þeirri
málsvörn sinni að hann hafi
orðið að hætta viðskiptum við
Kvótaþing þar sem þau hafi
ekki þjónað tilgangi sínum.
Hann hafi sótt um kvóta
nokkrum sinnum, en verið
synjað. „Það var ástæðan fyr-
ir því að ég var kvótalaus
þegar ég stundaði veiðarnar
sem Hæstiréttur sakfelldi
fyrir,“ segir Svavar.
Svavar hyggur á fund með
lögmanni sínum, Magnúsi
Thoroddsen, í dag. Hann mun
einnig fá álit annarra lög-
fræðinga á málinu. Hann seg-
ist eiga von á því að málið fari
í réttan farveg í næstu viku.
Hafin hefur verið lands-
söfnun til styrktar Svavari,
fyrir málskostnaði og frekari
málarekstri.
Morgunblaðið/Jónas Fagradai
Yiann og Oliver Pezeron voru að vonum glöð eftir björgunaraðgerðirnar enda var útlitið orðið dökkt hjá þeim.
Bjargað á miðri leið yfir landið
FRÖNSKUM hjónum, Oliver og
Yiann Pezeron, sem voru á leið á
skíðum þvert yfir landið, var bjarg-
að til byggða á miðri leið eftir dag-
langan barning við íslenskt veður-
far á fimmtudag. Þau hrepptu ill-
viðri í námunda við Jökulheima við
Tungnaárjökul þar sem vindur fór í
28 metra á sekúndu og feykti Yiann
um koll með þeim afleiðingum að
hún meiddist á olnboga og gat því
ekki brúkað skíðastaf sinn. I fram-
haldi af óhappinu örmagnaðist hún
og hringdi þá maður hennar í
landsstjórn Slysavarnafélagsins
Landsbjargar sem hafði undir
höndum ferðaáætlun þeirra. Björg-
unarsveit frá Skaftártungu fór á 4
vélsleðum til bjargar og síðar bætt-
ist við aðstoð björgunarsveitar-
manna frá Vík í Mýrdal. Fyrir
óvænta tilviljun voru starfsmenn
Landsvirkjunar hins vegar staddir í
námunda við fólkið og óku því til
baka í skála ( Jökulheimum. Hjónin
voru orðin rennandi blaut eftir að
hafa lent í ausandi rigningu og var
færið orðið þungt vegna krapa.
Hálftíma eftir að komið var með
þau í Jökulheima komu björgunar-
sveitarmenn þangað og fluttu hjón-
in heilu og höldnu til Víkur í Mýr-
dal.
Haraldur Örn Ólafsson pólfari.
Haraldur
kominn inn á
varhugavert
vakasvæði
HARALDUR Örn Ólafsson pólfari
átti góðu gengi að fagna á fimmtudag
er hann gekk 16,5 kílómetra og mjak-
aði sér norður yfir 85. breiddargráðu.
Hann hefur lagt 226 km að baki á 29
dögum, þar af 140 km á 10 dögum og
á eftir um 540 km á pólinn.
Hann er kominn inn á varhugavert
vakasvæði sem krefst ítrustu var-
kámi, enda stendur pólförum mest
ógn af vökum, ekki síst ef þeir eru
einir á ferð. Fréttir hafa borist af pól-
förum í a.m.k. þremur leiðöngrum
sem hafa dottið í vök nýlega en verið
bjargað af félögum sínum. Einn leið-
angursmaður í breskum leiðangn
hefur lent tvisvar ofan í vök.
Færið erfitt í byijun dags
Haraldur sagði í samtali við bak-
varðasveit sína í hádeginu í gær að
færið hefði verið erfitt til að byija
með deginum áður en það skánaði er
á daginn leið. „ísinn var úfinn og
seinfarinn en færið skánaði um mið-
bik dagsins og varð þá mjög gott,“
sagði Haraldur. „Margar opnar vakir
urðu á vegi mínum og ég kom fyrst að
3-4 metra breiðri nýrri vök með há-
um bökkum. Ég komst yfir hana eftir
miklar tafir við að ganga meðfram
henni. Síðan varð á vegi mínum ein
mjó vök sem égklofaði yfir. I dagslok
kom ég síðan að 30 metra breiðri vök,
gríðarlega stórri og mikilli. Ég gekk
meðfram henni þar sem hún lá tölu-
vert mikið í norður og síðar sveigði
hún alveg til norðurs og lá samsíða
mér. Hún lokaði sér að endingu og þa
breyttist hún í íshrygg eins og títt er
með vakir sem frjósa. Þessum um-
myndunum fylgja læti og hamagang-
ur þar sem mikil spenna er í ísnum-
Mér líkaði ekki að tjalda í námunda
við þetta svæði og bætti því við einni
göngulotu og færði mig frá svæðinu.'
Allur búnaður Haralds er í ágaetu
lagi utan þess að sleði hans er orðinn
nokkuð illa farinn. Miðað er við að
senda honum matarbirgðir og nýjan
sleða 17.-18. aprfl.
Pálmi Jónsson formaður bankaráðs Búnaðarbanka íslands
Núverandi staða bank-
ans verður metin
BANKARÁÐ Búnaðarbanka ís-
lands hf. ákvað á fundi sínum í
gær að hafið yrði endurmat á því
hvort vænlegt væri að bankinn
starfaði áfram sem óbreytt rekstr-
areining á fjármálamarkaðnum í
ljósi samruna Islandsbanka og
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins,
eða hvort rétt væri að hann leitaði
samstarfs og samruna við aðra
banka eða fjármálastofnanir.
Pálmi Jónsson formaður banka-
ráðs Búnaðarbanka íslands hf.
segir í samtali við Morgunblaðið
að bankaráðið telji ekki tímabært
að skoða sameiningu Búnaðar-
bankans og Landsbanka íslands
hf. - þótt ráðið hafi út af fyrir sig
tekið vel í yfirlýsingu bankaráðs
Landsbankans um sameiningu
bankanna - fyrr en farið hafi fram
mat innan bankans á nýjum sam-
keppnisaðstæðum. „Við teljum
ekki tímabært að fara út í neinar
slíkar viðræður fyrr en við höfum
skoðað stöðuna heima hjá okkur
og á okkar eigin forsendum," segir
Pálmi.
Stuðst við gögn um bankann
í bókun bankaráðs segir að við
þá vinnu, þ.e. við mat á stöðu Bún-
aðarbankans, beri að hafa í huga
hagsmuni hluthafa bankans, við-
skiptavina hans og starfsmanna.
Pálmi bendir á að við umrædda
vinnu verði m.a. stuðst við ýrnis
gi’unngögn svo sem skýrslu sern
unnin var fyrir tveimur til þremui'
árum um samkeppnisstöðu bank-
ans og hugsanlegan ávinning af
sameiningu bankastofnana.
Aðspurður hvenær gert sé ráð
fyrir að títtnefndri vinnu ljúki seg-
ir Pálmi að ekki sé miðað við nein
ákveðin tímamörk, en bætir því þ°
við að ráðið „vilji auðvitað ekki að
sú vinna taki margar vikur.“