Morgunblaðið - 08.04.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 27
Methagnaður af
rekstri Spari-
sjóðabankans
HAGNAÐUR af rekstri Spari-
sjóðabankans á árinu 1999 varð
318,5 milljónir króna en 206,9 millj-
ónir króna að frádregnum reiknuð-
um sköttum. Er þetta besti árang-
ur sem náðst hefur í rekstri
bankans frá upphafi. Arðsemi eigin
fjár nam 20,4% fyrir skatta og
13,3% eftir skatta borið saman við
13,5% og 7,9% á árinu 1998. Kostn-
aðarhlutfall bankans er 45,7%.
Heildareignir Sparisjóðabankans
námu 40.679,2 milljónum króna í
árslok 1999 og höfðu aukist um
31,1% frá fyrra ári. Heildareignir
bankans hafa aukist um nálega 30
milljarða á undanförnum þremur
árum, eða úr 10,9 milljörðum í árs-
lok 1996 í 40,7 milljarða við lok árs-
ins 1999. Þessi hraði vöxtur hefur
valdið því að eiginfjárhlutfall bank-
ans (CAD)hefur lækkað nokkuð, en
hlutfallið var 17,0% í árslok 1997,
11,0% 1998 og er 10,2% í árslok
1999. Eigið fé bankans í árslok 1999
var 1.802 milljónir króna og hafði
aukist um 381,8 milljónir króna,
sem er 26,9% aukning frá fyrra ári.
í ársskýrslu bankans kemur
fram að aukning skýrist bæði af
hagnaði í rekstri bankans og hluta-
fjáraukningu, sem fram fór á árinu.
Hlutafé að nafnverði 52,823 millj-
ónir króna var selt samkvæmt
forkaupsréttarákvæðum og nýttu
nær allir rétthafar sér kaupréttinn
á genginu 2,58 og var söluverðið því
136,283 milljónir króna. Til viðbót-
ar hlutafé sínu í bankanum hafa
sparisjóðirnir gefið út ábyrgðir
jafnháar hlutafénu til þess að
tryggja skuldbindingar hans gagn-
E ndur skipulagning hjá Yddu
Allsherjar innri
styrking
Húsnæðið við Grjótagötu og Túngötu sem Ydda fjárfesti nýlega í.
Morgunblaðið/Golli
María Björk Óskarsdóttir og Guðlaug Richter, markaðs- og þjónustustjór-
ar, Hany Hadaya, nýráðinn hönnunarstjóri, Kjartan Haukur Eggertsson,
umsjónarmaður Telmars á Islandi, og Hallur A. Baldursson, framkvæmda-
stjóri Yddu.
YDDA auglýsingastofa er á 14.
starfsári og þar stendur nú yfir alls-
herjar innri styrking, að sögn Halls
A. Baldurssonar framkvæmdastjóra.
Ydda hefur fjárfest í eigin húsnæði
og nýr hönnunarstjóri hefur tekið til
starfa, auk tveggja markaðs- og þjón-
ustustjóra.
„Nú erum við að breyta um takt og
tökum meira pláss í notkun, samhliða
endurskipulagningu á innri uppbygg-
ingu,“ segir Hallur. Ydda var stofnuð
af Halli og fjórum félögum hans árið
1986. Fyrirtækið hefúr átt aðsetur í
samliggjandi húsum að Grjótagötu 7
og Túngötu 6 síðan. Nýverið festi
Ydda kaup á húsnæðinu en hafði
fram að því leigt það. Fjárfestingin er
yfir 70 milljónir króna, að sögn Halls.
Starfsmenn Yddu eru nú 17 talsins.
„Þessar breytingar eiga sér um árs
aðdraganda," segir Hallur. „Við vild-
um leggja meiri áherslu á hugmynda-
vinnuna og gerðum Hany Hadaya því
að hönnunarstjóra. Á sama tíma er
nauðsynlegt að styrkja markaðs- og
þjónustustarf gagnvart viðskiptavin-
um okkar og því voru Guðlaug Richt-
er og Jóna Valborg Árnadóttir ráðn-
ar sem markaðs- og þjónustustjór-
ar.“
Að sögn Halls hefur veltuþróun hjá
Yddu verið jafnt og þétt upp á við síð-
ustu ár. Hann segir Yddu byggja á
stöðugleika og það hafi skilað sér.
Sérstaða stofunnar felist í vinnuferli
á stofunni, þar sem m.a. er byggt á
því að skilgreina í einni setningu við
hvað hver viðskiptavinur á að etja í
markaðssetningu, það sem kallað er
áskorun. í framhaldi af því er sú
áskorun sett í ákveðinn farveg og
hugmyndavinna hefst á þeim grunni.
„Þetta er auglýsingaferli sem systur-
fyrirtæki okkar, FCB Worldwide,
notar með góðum árangri," segir
Hallur. Samstarf Yddu og FCB hófst
árið 1992 en engin eignatengsl eru á
milli fyrirtækjanna enn sem komið
er, en Hallur segir það langtíma-
markmið að selja FCB hluta fyrir-
tækisins. FCB er stærsta auglýs-
ingastofa Bandaríkjanna og sú sjötta
stærsta í heimi, að sögn Halls.
Ydda hefur umboð fyrir Telmar
hugbúnaðinn á íslandi, en ein af
breytingunum sem felast í endur-
skipulagningu á rekstri Yddu, er að
Telmar á Islandi verður sjálfstæð
deild innan Yddu, undir stjóm Kjart-
ans Hauks Eggertssonar og mark-
miðið er að gera Telmar á Islandi að
sjálfstæðu fyrirtæki innan eins til
tveggja ára. Telmar hugbúnaðurinn
hefur verið notaður hér á landi í um
11 ár af auglýsingastofum og fjöl-
miðlaíyrirtækjum. Hann er notaður
við ýmiss konar markaðs- og vöru-
merkjagreiningar og birtingaráætl-
anir. Öll þjónusta Telmars verður
síðar á árinu aðgengileg á Netinu, að
sögn Halls.
Úr ársreikningi 1999 Sparisjóðirnir Sparisjóða- bankinn
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting 1999 1998 Breyting
Vaxtatekjur Milljónir króna 11.400,9 7.280,5 +56,6% 2.205,5 1.452,7 +51,8%
Vaxtagjöld -7.002,9 -3.383,6 +82,7% -1.874,8 -1.172,2 +59,9%
Aðrar rekstrartekjur 3.352,3 1.931,1 +73,6% 479,1 222,7 +115,1%
Önnur rekstrargjöld -4.744,2 -3.784,9 +25,3% -370,1 -288,3 +28,3%
Hagnaður f. framlag í afskriftareikn. 3.006,1 1.593,1 +88,7% 439,7 214,9 +104,6%
Framlag í afskriftareikn. úlána -1.291,2 -674,2 +91,5% -121,1 -38,7 +213,1%
Tekiu og eiqnaskattur -510.9 -243,2 +110.1% -111,7 -65.5 +70.4%
Hagnaður ársins 1.204,0 675,7 +78,2% 206,9 110,6 +87,0%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyling 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 116.373 91.899 +26,6% 40.679 31.027 +31,1%
Skuldir 105.693 83.553 +26,5% 38.877 29.606 +31,3%
Eigið fé 10.680 8.346 +28,0% 1.802 1.420 +26,9%
Skuldir og eigið fé samtals I 116.373 91.899 +26,6% 40.679 31.027 +31,1%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting 1999 1998 Breyting
Arðsemi eigin fjár e. skatta 11,30% 9,0% 11,48% 7,90%
Eiginfjárhlutfall ! 11,60% 12,20% 10,20% 11,00%
vart erlendum fjármálastofnunum.
Þessar ábyrgðir námu 602,8 millj-
ónum króna í lok ársins 1999 og
hækkar það raungildi eigin fjár
bankans í viðskiptum við erlendar
fjármálastofnanir í 2.405 milljónir
króna.
Vaxtagjöld hækka meira
en vaxtatekjur
Vaxtatekjur Sparisjóðabankans
jukust um 51,8% milli ára en vaxta-
gjöld um 59,9%, og er það annað ár-
ið í röð sem vaxtagjöld hækka
meira en vaxtatekjur. Vaxtatekjur
voru 2.205,5 milljónir króna en
vaxtagjöld 1.874,8 milljónir króna.
Rekstrargjöld hækkuðu um 28,3%
milli ára og urðu liðlega 370 millj-
ónir króna, en voru 288,3 milljónir
króna árið á undan.
í afskriftareikning útlána voru
lagðar 121 milljónir króna vegna
ársins 1999, sem er veruleg hækk-
un frá fyrra ári. í fyrsta sinn í 13
ára sögu bankans er reiknað með
að mæta tapi vegna aðildar bank-
ans að útlánum nokkurra spari-
sjóða til fyrirtækja sem urðu gjald-
þrota á árinu. í afskriftareikningi
útlána hjá bankanum eru nú 432,3
milljónir króna, sem er 2,3% af
vegnum útlánum og ábyrgðum, en
það hlutfall var l,6%í árslok 1998.
Útlán til viðskiptamanna
jukust um 61,2%
Aðild bankans að lánsviðskiptum
einstakra sparisjóða hélt áfram að
aukast á árinu 1999. Útlán til við-
skiptamanna jukust þannig um
61,2% á árinu eða úr 4.781,3 millj-
ónum króna í 7.709,3 milljónir
króna í árslok 1999. Þessi þróun
skýrist bæði af auknum umsvifum
sparisjóðanna í heild, en einnig af
þeim breytingum sem jafnt og þétt
takmarka hámark útlána banka-
stofnana til einstakra eða skyldra
aðila. Þetta hámark var 40% á ár-
inu 1998 er 30% á árinu 2000 og
lækkar síðan í 25%, sem verður
reglan frá ársbyrjun 2001.
Sparisjóðabankinn kemur að
málum sem eru vegna umfangs of-
viða einstökum sparisjóðum og
dreifir þar með áhættu sem ella
væri einstökum sjóðum fjötur um
fót. Á árinu var aftur efnt til útboðs
á fjölbankaláni (syndicated loan), í
þetta sinn í samvinnu við Bayer-
ische Landesbank í Múnchen. Út-
boðið nam 25 milljón evrum og
tókst í alla staði vel, að því er fram
kemur í ársskýrslu bankans, og
nam áskrift erlendra banka sam-
tals 35 milljónum evra, sem sam-
þykkt var að' taka eða jafnvirði
rúmlega 2.500 milljóna króna.
\m FASTEIGNA
MARKAÐURINN j
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/
BARÐASTAÐIR 9-11
í LANDI KORPÚLFSSTAÐA
Glæsilegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir
auk 2ja hæða „penthouse“-íbúða
Höfum til sölu mjög glæsilegar 3ja og 4ra herb.
íbúðir auk „penthouse“-fbúða á tveimur hæðum í
nýjum lyftuhúsum á þessum skemmtilega útsýnis-
stað. íbúðirnar, sem eru vel skipulagðar, verða
afhentar fullbúnar í ágúst og okt. án gólfefna nema
baðherb. og þvottaherb. verða flísalögð. í íb. verða
vandaðar sérsm. innréttingar og vönduð hreinlæt-
is- og blöndunartæki. Sameign og lóð afh. fullfrá-
gengin.
Á 1 -5. hæð eru fjórar íbúðir á hæð, þ.e. þrjár 3ja herb.
93 fm og 102 fm, og ein 4ra herb. 107 fm. Síðan eru
stórar og glæsilegar tveggja hæða 257 fm
„penthouse”-íbúðir á 6. hæð og í risi. Að auki er hver
íbúð með hlutdeild í sameign hússins og sérgeymsla er
á jarðhæð eða í kjallara. Hægt er að velja um íbúðir
með eða án stæðis í bílskýli.
Frábær staðsetning, rétt við golfvöllinn með útsýni til
fjalla og návist við fjöruna.
Traustir byggingaraðilar: Byggingafél. Gylfa og
Gunnars ehf.
mm 'íQZwi'.
1-Q2mí
Sölumaður verður á staðnum í dag, laugardag, frá kl. 13-15.
Verið velkomin.