Morgunblaðið - 08.04.2000, Blaðsíða 92
Netþjónar
og tölvur
COMPAa
Hefur þitt fyrirtæki
efni á að eyða tíma
starfsfólksins í bið?
Þciö er dýrt ad láta starfsfólkið biða!
Tölvukerfi sem virkar P|C~]
MORCUNBLAÐW,KRINGLUNmi,mREYKJAVtK,Stm5e9im,SÍMBRÉF569im,PÓSTHÓLF3m,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Flugvirkjar gera við-
semjendum sínum
gagntilboð á fundi í dag
30-40 af
'156 flug-
virkjum
í verkfall
Morgunblaðið/Benedikt Jónsson
Flettiskilt-
ið fegrað
ÞAÐ ER ugglaust einmanaleg og
einhæf tilvera að vera flettiskilti.
Auglýsing um ávexti, auglýsing um
pakkamat, auglýsing um ávexti,
auglýsing um pakkamat... Þess
vegna hlýtur það að vera þægilegt
þegar menn eins og Brynjólfur
koma og lappa upp á veðurbarðar
plöturnar.
Úrslitatil-
raun um
helgina
SAMNINGANEFNDIR
Verkamannasambands íslands
og Samtaka atvinnulífsins hitt-
ast á fundi í húsakynnum Ríkis-
sáttasemjara klukkan 10 í dag
en fundi aðilanna í gær var
frestað um klukkan 20.
„Það stendur fyrir dyrum úr-
slitatilraun núna um helgina
varðandi það hvort við getum
náð þessu saman eða ekki,“
sagði Ari Edwald, fram-
kvæmdastjóri SA, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöld. „Ég
vil sem minnstu spá um niður-
stöðuna. Við göngum til þessara
funda með því hugarfari að
reyna að ná niðurstöðu innan
þeirra marka sem mögulegt er.“
Um það hvort þokast hefði í
samkomulagsátt og að hverju
þungi viðræðnanna beindist í
gærkvöld sagði Aii: „Það er allt
undir og ég vil ekki tilgreina
neitt sérstakt í því sambandi.
Það verður allt undir á þessum
fundi, sem ég geri ráð fyrir að
standi allan daginn [í dag og á
morgun].“
Flest aðildarfélög VMSÍ hafa
boðað til verkfalla næstkomandi
fimmtudag.
FLUGVIRKJAR leggja væntan-
lega fram gagntilboð við tilboði
Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd
Flugleiða á samningafundi sem
hefst klukkan 13 í dag, að sögn Em-
ils Eyjólfssonar, formanns samn-
inganefndar Flugvirkjafélags ís-
lands.
* Flugvirkjar hafa boðað verkfall
hjá Flugleiðum að morgni 13. apríl
en það nær aðeins til 30-40 af 156
flugvirkjum sem starfa hjá félaginu,
að því er fram kom í samtali Morg-
unblaðsins við Emil.
Verkfallsboðunin snýr eingöngu
að vinnu vegna reglulegs flugs á
vegum'Flugleiða, en ekki að vinnu á
vegum félagsins fyrir þriðja aðila.
Að sögn Emils verður áfram haldið
vinnu í flugskýlinu á Keflavíkur-
flugvelli þar sem verið er að vinna
við farþegaþotu spænsks flugfélags.
Boðað verkfall hjá Flugfélagi Is-
lands að morgni 17. apríl mun hins
vegar ná til allra 22 starfandi flug-
virkja þess félags.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, vildi í gær
ekkert segja um stöðuna.
Alþingi gefur út rit
um kristni á Islandi
Kostnaður
rúmar 60
milljónir
KOSTNAÐUR við útgáfu ritverks-
ins Kristni á Islandi, sem kemur út
12. apríl nk., er ríflega 60 milljónir
króna. Alþingi gefur verkið út og er
það framlag þess til kristnihátíðar.
Undirbúningur verksins hófst árið
1990. „Það er gefið út í fjórum bind-
um og að hverju þeirra er einn aðal-
höfundur ásamt fjölda sérfræðinga.
Kostnaður við verkið tfl síðustu ára-
móta er rétt um það bil 60 milljónir
króna. Á þessu ári bætist við einhver
kostnaður við hönnun, umbrot og
prentun, svo þetta verða væntanlega
"5J,iflega 60 milljónir þegar upp er
staðið," segir Karl Kristjánsson,
rekstrar- og fjánnálastjóri Álþingis.
■ Kristni á Íslandi/D
MITSUBISHI
Búr ehf. stefnir að auknum umsvifum í nýju vöruhúsi
Oll vöruhúsaþjón-
usta verður boðin út
BÚR ehf., sameiginlegt innkaupa-
og birgðahaldsfyrirtæki Kaupáss,
Samkaups, kaupfélaganna, Olíufé-
lagsins og fleiri aðila, bauð í gær út
alla vöruhúsaþjónustu félagsins. Um
er að ræða lokað útboð á birgðahaldi
Búrs og er skipafélögunum Eimskip,
Samskip og flutningamiðluninni
Jónum boðið að taka þátt í útboðinu.
„Við teljum að þetta sé hagkvæm
lausn vegna þeirrar sérhæfingar
sem þeir aðilar, sem munu bjóða í
þetta, hafa upp á að bjóða. Menn eru
að sérhæfa sig í því að reka vöruhús
af þessu tagi og við teljum að okkar
starfsemi eigi best heima í slíku
samstarfi," segir Sigurður Á. Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Búrs.
„Við gerum okkur vonir um að
með þessu takist okkur að ná hag-
kvæmri staðsetningu fyrir vöruhús-
ið, meiri gæðum í starfseminni og
lægri kostnaði.
Eftir að hafa velt þessu mikið fyr-
ir okkur ákváðum við að velja þessa
leið fremur en að reisa eigið húsnæði
og reka þetta sjálfir."
Aðspurður um umfang birgða-
haldsins segir Sigurður að um sé að
ræða vöruveltu að verðmæti um 4
milljarðar á ári og að gert væri ráð
fyrir að 2 milljónir svonefndra heild-
sölueininga fari í gegnum vöruhúsið
á hverju ári.
Færa út starfsemina
og auka vöruvalið
Að sögn Sigurðar verður hlutverk
Búrs óbreytt þrátt fyrir þessar
breytingar. „Búr verður áfram inn-
kaupafyrirtæki en einhver þessara
þriggja aðila mun sjá um birgða-
haldið fyrir okkur sem verktaki.
Þetta er það form sem hefur rutt sér
mjög til rúms úti í hinum stóra
heimi, þar sem menn eru að gera það
sama.
Við erum að vona að við verðum
komnir inn í nýtt umhverfi fyrir 1.
júlí árið 2001,“ sagði hann.
„Starfsemi okkar mun fá tækifæri
til að stækka í þessu umhverfi. Vöru-
val Búrs mun aukast mikið og þetta
opnar nýjar leiðir fyrir okkur að ná
fram hagræðingu í öðrum vöruflokk-
um en þeim sem Búr er að með-
höndla í dag og má þar nefna kæli-
vöru, frystivöru, ávexti og grænmeti
og fleira," sagði hann.
Skipafélög undirbúa byggingu
stórra vöruhúsa
Á undanfömum fjórum árum hafa
Samskip séð um birgðahaldið fyrir
Búr í Holtagörðum. „Starfsemi okk-
ar er nú orðin það yfirgripsmikil að
húsnæðið er sprungið og við þurfum
því að leita nýrra leiða og ákváðum
að fara þessa leið,“ segir Sigurður.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að Eimskip vinnur nú að hag-
kvæmniathugun á byggingu 20.000
fermetra vörudreifingarmiðstöðvar í
Sundahöfn. Að sögn Sigurðar eru
Samskip og Jónar hf. einnig með slík
vöruhús á teikniborðinu. Stærsta
birgða- og dreifingarstöð fyrir mat-
vöru á landinu í dag er vöruhús Að-
fanga, innkaupadeildar Baugs, við
Skútuvog, sem er 10 þús. fermetrar
að stærð.
Aukin leiðni í Jökulsá
á Sólheimasandi
MITSUBISHI
- demantar ( untferb
HEKLA
Sforysiuánýrriöld!
AUKIN leiðni hefur mælst í Jökulsá
á Sólheimasandi að undanförnu.
Leiðnin gefur vísbendingu um að
efni myndist í jarðhita og berist í ár-
vatnið.
Reynir Ragnarsson, lögreglumað-
ur í Vík, mælir leiðnina í Jökulsá
reglulega. Hann segir að hún hafi
numið um 335 S/sm í gær og fyrra-
dag, en telur ekki hægt að fullyrða
að hin aukna leiðni sé undanfari
hlaups. „En það lekur úr einhveijum
jarðhitakatli í ána, svo mikið er víst.
Venjuleg leiðni er u.þ.b. 150 S/sm, en
hlaupvatn er venjulega með leiðni
upp á 5-700 S/sm,“ segir Reynir.