Morgunblaðið - 08.04.2000, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Slökkvilið Akureyrar
Sjö luku
neyðar-
flutninga-
námskeiði
SJÖ slökkviliðsmenn í Slökkviliði
Akureyrar luku nýlega neyðar-
flutninganámskeiði sem staðið hef-
ur yfir siðasta hálfa árið hjá
Slökkviliði Akureyrar.
Alls voru 192 stundir í bóklegu
og verklegu námi á þessu námskeið
auk þess sem þátttakendur þurftu
að Ijúka 125 tíma starfsþjálfun.
Námskeiðið hófst í lok september á
liðnu ári en því lauk með verklegri
starfsþjálfun, en m.a. voru 50 tfmar
af námskeiðstímanum á slysa- og
lyfjadeildum Fjóðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri og 75 tímar í neyð-
arbifreið Slökkviliðs Reykjavíkur
Námskeið þetta er hið viðamesta
sem haldið hefur verið fyrir
sjúkraflutningamenn á Akureyri
og lögðu margir hönd að verki,
m.a. styrkti Akureyrardeild Rauða
kross Islands námskeiðið með
rausnarlegu framlagi. Sjúkraflutn-
# «
■ m 'Z¥
« f.f/
• •
Morgunblaðið/Kristján
Sjö slökkviliðsmenn í Slökkviliði Akureyrar luku nýlega neyðarflutninganámskeiði. F.v. Sigurður L. Sigurðsson,
Ingimar Eydal, Sveinbjöm Dúason, ÓlaÍFur Einarsson, Viðar Þorleifsson, Jóhann Þór Jónsson og Jón G. Knutsen.
Slysavarnadeild
kvenna á Akureyri
Sjúkraflug-
vél verði
staðsett
nyrðra
AÐALFUNDUR Slysavarna-
deildar kvenna á Akureyri,
sem haldinn var nýlega, sam-
þykkti einróma að styðja
ályktun Eyþings, samtaka
sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum, um nauðsyn
þess að velútbúin sjúkraflug-
vél verði staðsett á Akureyri.
„Vegna breyttra aðstæðna í
innanlandsflugi skapast mikið
óöryggi á landsbyggðinni þar
sem áætlunarflug leggst af til
margra smærri staða,“ segir í
samþykkt fundarins.
ingaskólinn skipulagði það f sam-
vinnu við Slökkvilið Akureyrar-
.Kennarar í bóklegum greinum
voru flestir frá FSA en sjúkraflutn-
ingamenn og bráðatæknar frá
slökkviliðum f Reykjavfk og Kefla-
vík sáu um verklega þáttinn.
Hjúkrunarfræðingar hjá FSA og
læknar á neyðarbifreið Slökkviliðs
Reykjavíkur sáu um starfsþjálfun.
AUGLYSING
UM LAUSAR
BYGGINGALÓÐIR
Norðurgata 5-7:
Lóðin er ætluð fyrir parhús á tveimur hæðum.
Þrastalundur 1:
Lóðin er ætluð fyrir einbýlishús á einni hæð.
Umsóknareyðublöð, úthlutunarskilmálar og skipulags- og
byggingaskilmálar liggja frammi á skrifstofu byggingafulltrúa,
Geislagötu 9.
Umsóknum skal skilað til byggingafulltrúa, Geislagötu 9,
3. hæð, fyrir 26. apríl nk.
Eldri umsóknir skal endurnýja.
Eftirtaldar lóðir eru einnig lausar til umsóknar.
Einbýlishús
Bakkasíða
6 ein hæð Urðargil 2-8 ein hæð
16 ein-ein og hálf hæð Urðargil 24 ein hæð
22 ein og hálf hæð Valagil 2-14 tvær hæðir
23 hæð og ris Valagil 11-23 tvær hæðir
29 hæð og ris Vesturgil 1-9 tvær hæðir
39 ein og háif til tvær Vesturgil 14-20 tvær hæðir
6 ein hæð Víkurgil 2-6 tvær hæðir
8 ein hæð Stórholt 14 tvær hæðir
10 ein hæð Miðteigur 10 tvær hæðir
16 hæð og ris Mosateigur 4 tvær hæðir
Raðhús - parhús
Valagil 1 -9 tværhæðir
Fjölbýlishús
Skessugil 7-11 2 hæðir
Iðnaðar- oq biénustulóðir utan miðbæjarsvæðis
Baldursnes 2 iðnaður/þjónusta/verslun
Kiðagil 1 þjónusta/verslun/6 íbúðir
Baldursnes 4 iðnaður/þjónusta/verslun
Óseyri 24 Lóð á hafnarsvæði
Freyjunes 4 iðnaður/þjónusta/verslun
Sandgerðisbót verbúðir
Njarðarnes 14 iðnaður/þjónusta/verslun
Úttekt á fjárhagsaðstoð fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar
Margir leita aðstoðar vegna
mikillar greiðslubyrði lána
ÖRYRKJUM sem fá fjárhagsað-
stoð hjá Akureyrarbæ hefur fjölg-
að en atvinnulausum fækkað, en
þessir tveir hópar eru fjölmennast-
ir þeirra sem fá fjárhagsaðstoð að
því er fram kemur í útttekt fjöl-
skyldudeildar á fjárhagsaðstoð
bæjarins, en þar var gerður sam-
anburður á ýmsum atriðum, s.s.
atvinnu- og hjúskaparstöðu. Fé-
lagsmálaráð óskaði eftir þessari
úttekt fyrr á árinu, en það vildi
m.a. sjá hvernig samsetning þess
hóps sem fékk fjárhagsaðstoð var
sem og aðra þætti sem skipt gætu
máli og bera niðurstöður saman
við könnun á fjárhagsaðstoð Akur-
eyrarbæjar sem gerð var 1994.
Meginniðurstaða könnunarinnar
er sú að litlar breytingar hafa orð-
ið á þeim hópum sem fá félagsað-
stoð nú og árið 1994, en í út-
tektinni er nefnt að vert sé þó að
benda á nokkur atriði. Fyrst sé
þar til að taka að atvinnulausum
hefur fækkað en öryrkjum fjölgað
í hópi þeirra sem fá fjárhagsað-
stoð. Þessir hópar séu fjölmenn-
astir, en hlutfallslega hafi þeim þó
fækkað frá því fyrri könnunin var
gerð. Atvinnuleysi á Akureyri er
nú mun minna en var þegar þegar
fyrri könnunin var gerð.
Einhleypu fólki hafi hins vegar
fjölgað töluvert og er það sama
þróun og orðið hefur í öðrum stór-
um sveitarfélögum á landinu.
Flestir í leiguhúsnæði
á vegum bæjarins
Flestir sem fá fjárhagsaðstoð
eru á aldrinum 25-39 ára, en svo
virðist sem fjölgun sé að verða í
yngsta aldurshópnum, 18 til 25
I sóknarhug
EF VÆRI ÉG SÁ SEM ÆTTI AÐ
SEUA ÍMYND EYJAFJARÐARSVÆÐISINS...
Hádegisveröarfundur með
Einari Karli Haraldssyni, forstöðumanni
almenningstengsla CSP - Gœðamiðlunar, og
Ómari Ragnarssyni, fréttamanni á Sjónvarpinu,
á Fiðlaranum, Skipagötu 14, miðvikudaginn
12. aprfl frá ki. 12.00 til 13.00
•Hverskonar ímynd vilja þeir selja?
•Hvað þurfa heimamenn að laga til að selja þá ímynd?
•Hvernig ættu þeir að móta þá ímynd?
•Hafa Akureyri og Eyjafjörður sömu ímynd?
•Um hvað snýst ímynd?
Þetta, og ýmislegt fleira, munu Einar Karl og
Ómar fjalla um og svara spurningum fundarmanna.
Verð kr. 1.000 (léttur hádegisverður innifalinn)
Allir velkomnir
Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 461 2740
eða á netfangi benedikt@afe.is.
ára. Þá kemur fram í útttektinni
að húsnæðisaðstæður hópsins hafi
breyst á þeim 6 árum sem liðin eru
frá fyrri könnuninni. Allt að helm-
ingur þeirra sem fékk aðstoð árið
1994 bjó í leiguhúsnæði á almenn-
um markaði, en þeir sem fengu að-
stoð í febrúarmánuði síðastliðnum,
eða þegar könnunin var gerð, búa
flestir í leiguhúsnæði á vegum Ak-
ureyrarbæjar, 45% hópsins. Fram
kemur í útttektinni að nú búa ein-
ungis 15% þeirra sem fengu aðstoð
í leigu á almennum markaði.
Hugsanleg skýring á þessari
breytingu er nefnd sú að Akureyr-
arbær tók upp greiðslu húsaleigu-
bóta á tímabilinu og því gæti verið
að þeir sem eru í leiguhúsnæði
hafi meiri möguleika til að bjarga
sér, en einnig er nefnt að veruleg
fjölgun hafi orðið á íbúðum í eigu
Akureyrarbæj ar.
Greiðslubyrði vegna
lána hefur aukist mjög
í úttektinni kemur fram það
sameiginlega álit ráðgjafa á fjöl-
skyldudeild að þeir sem fá fjár-
hagsaðstoð eru langflestir fólk
með lágar tekjur, örorkubætur eða
atvinnuleysisbætir en einnig séu
mjög margir með háa greiðslu-
byrði af lánum. Ekki séu þó hald-
bærar tölur til að sýna hversu
mikið skuldabyrði skjólstæðinga-
hópsins hefur aukist. Ráðgjafar á
fjölskyldudeild Akureyrarbæjar
hafi tekið eftir því hversu mjög
skuldabyrði fólks hafi aukist meðal
þess hóps sem leitaði aðstoðar
vegna fjárhagserfiðleika.
Samkvæmt reglum félagsmálar-
áðs er ekki heimilt að taka tillit til
skulda en mörg dæmi séu um að
fólk hafi fengið aðstoð vegna
ákveðinna útgjalda, þar sem há
greiðslubyrði af lánum valdi því að
það eigi ekki fyrir nauðsynlegum
útgjöldum. í flestum tilfellum er
verið að taka tillit til barna þessa
fólks og að tryggja þeim viðunandi
aðstæður.
Ólafsfjörður
Islands-
mótið í
dorgveiði
ÍSLANDSMÓTIÐ í dorgveiði verð-
ur haldið á Ólafsfjarðarvatni í Ólafs-
firðii dag, laugardaginn 8. apríl nk.
Mótið hefst kl. 10.30 og því lýkur
með verðlaunaafhendingu kl. 16.00.
Keppt verður í tveimur flokkum og
verða veitt fjölmörg verðlaun í móts-
lok. Mótið er opið áhugasömum
veiðimönnum á öllum aldri en skrán-
ing og nánari upplýsingar eru veittar
á Hótel Ólafsfirði.