Morgunblaðið - 08.04.2000, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 9
FRÉTTIR
Margrét
Hallgríms-
dóttir ráðin
þjóðminja-
vörður
Margrét
Hallgrímsdóttir
„ÞETTA er mjög spennandi verk-
efni að takast á við,“ sagði Mar-
grét Hallgrímsdóttir borgarminja-
vörður, nýráðinn þjóðminjavörður.
„Ég hlakka til að taka þetta að
mér þó að það sé tregi í mér að yf-
irgefa Árbæjarsafn, sem mér þyk-
ir vænt um, bæði
safnið og fólkið
sem þar vinnur,
en þar hef ég
starfað í þrettán
ár.“
Margrét sagði
að ekki væri
endanlega frá
því gengið hve-
nær hún tæki við
nýja starfinu en
að það yrði bráð-
lega. „Ég kem til með að leggja
áherslu á að gera Þjóðminjasafnið
að góðum vinnustað þar sem öllu
starfsfólki líður vel og fá aðstoð
þess við að byggja upp safnið og
styrkja ímynd þess,“ sagði hún.
„Ég hlakka til að takast á við
framkvæmdir við safnið og nýju
sýningarnar sem settar verða upp
í endurgerðu húsi en verið er að
vinna að nýrri fastasýningu í hús-
ið. En fyrsta verkefnið verður að
kynna sér þau verkefni sem verið
er að vinna og stöðu mála.“
Sagði hún að Þjóðminjasafnið
væri vissulega stærra í sniðum en
Árbæjarsafn en sama eðlis. „Verk-
efnin eru sambærileg að vissu
leyti, en hlutföllin eru önnur,“
sagði Margrét. „Ég þekki starfs-
fólkið vel og hlakka til að verða
hluti af hópnum. Svo langar mig til
að styrkja tengsþ milli stóru safn-
anna í borginni. Á þeim vinna sér-
fræðingar á sömu sviðum og ég
held að það verði styrkur fyrir
bæði söfnin að efla tengslin þeirra
á milli."
Metaðsókn
að Yiðey
ÁRIÐ 1999 var mjög farsælt í Við-
ey og þá var sett met í gestakomu
til eyjarinnar. „Flestir komu fyrstu
12 mánuðina eftir að eyjan var
opnuð og voru þá um 25 þúsund
manns frá 18. ágúst 1988 til jafn-
lengdar 1989. Aðsóknin hefur alltaf
verið góð en þó háð veðri, farið
lægst í 17.823 árið 1992. Síðustu
tvö árin hafa svo verið einstaklega
góð, ekki síst hvað snertir aðsókn
að veitingastaðnum. Árið 1998
urðu gestir 22.123 og sl. ár vantaði
aðeins 80 manns upp á 25 þúsund.
Þetta eru 22,9% af íbúum Reykja-
víkur. Kostnaður á hvern íbúa
borgarinnar af starfinu í Viðey er
skv. þessu 203 kr.
í Viðeyjarkirkju voru 9 almenn-
ar messur og 43 helgistundir aðr-
ar. Kirkjugestir voru 1.765. Auk
þess voru 14 hjónavígslur, 4 skírn-
ir og ein útför. Best sóttu athafn-
irnar voru helgistundir við kerta-
ljós á aðventu sem haldnar voru
fyrir gesti sem komu í jólahlaðborð
í Viðeyjarstofu. Þær sóttu hátt £
1.400 manns. Hátt í 1.200 manns
komu bæði í gönguferðir og stað-
arskoðun, skólanemendur voru yfir
1.100 og um 3.500 manns hlýddu á
frásagnir af sögu eyjarinnar, áður
en þeir gengu til veislu í Viðeyjar-
stofu. Könnun var gerð tvisvar á
liðnu sumri um viðhorf gesta til
þess sem þeir nutu í eynni. Ut-
koman var þannig í öllum greinum,
að milli 90 og 100% gesta gáfu ein-
kunnina vel og mjög vel,“ segir i
fréttatilkynningu frá staðarhald-
ara.
NY5ENDING
Nýkomin sending af glæsilegum kjólum með kápum.
Einnig dragtir á frábæru verði. Verð aðeins kr. 14.900.-
Á SAMA STAÐ
Bjóðum upp á alla almenna
snyrtingu og förðun.
Engihjalla 8 • Kópavogi • 554 0744
Nýtt — Nýtt
Vor- og sumarúlpur
Margar gerðir — Verð frá 5.900
Hörkjólar
Hördress
Hörskyrtur
hjáQýtjufhhiUi
^ Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá ki. 10.00—15.00.
Rita
SKUVERSLUN
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. SS7 1730 s. 554 7030.
Opið mán,—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10-15.
kkkkki^kkk ★★★★★★★★★★★★★★★★
| DUNDURÚTSALA |
-fe Fermingartilboð: Ragmagnsgítar, magnari, ól og snúra 24.900. ★
k Kassagítarar frá 7.900 - Effektatæki frá 5.900 ★
★ Söngkerfi frá 29.900 ★
| Gítarinn f
★ ^|jL I Laugavegi 45, ★
X símar 552 2125 og 895 9376 $
kkkkkkkk kk kkk kkk kkk kkkkkrk
Vönduð regnföt
á Kringluauka
Jakki og mittisbuxur. Litir: Blátt og rautt.
Stærðir: 120—170. Verð kr. 3.500
POLARN O. PYRET
Kringlunni — s. 568 1822
4F STJÖRNUR * *
^ Barna- og unglingafataverslun
vljóddin, Alfabakka 12 • Sími 557 7711
:4íðjan, Hlíðasmára 17 • Sími 554 4744
Erum mættar í miðjuna
Kvenfatnaður - Unglingafatnaður - Barnafatnaður
f lott ■ föt
Hlíðasmára 17 • Sími 554 7300
The PENGUIN
MÖRGÆSIN
er ekki bara eyrnahitamælir
heldur er hún fjölnota hitamælir t.d. til að:
• mæla hitastigið á baðvatni barnsins
• mæla hitastigið á mjólkinni í pelanum
• mæla hitastigið á matnum fyrir barnið
• mæla hitastigið í herberginu, í útilegunni o.s.frv.
• fjölnota hitamælir sem mælir hitastig frá 0-
Alþjóða Verslunarfélagið ehf
Skipholt 5,105 Reykjavík S: 511 4100
Líkamshitinn
Pelinn
Maturinn
Utsölustaðir: Lyfja Lágmúla, Hamraborg og Setbergi. Lyf og heilsa Kringlunni,
Melhaga, Fjarðarkaupi. Apótek Suðurnesja, Akranes Apótek, Borgarnes Apótek,
Apótek Ólafsvíkur, Apótekið Siglufirði, Apótek Sauðárkróks, Siemens-búðin Akureyri,
Apótekið Egilsstöðum, Árvirkinn Selfossi, Apótek Vestmannaeyja, Stykkishólmsapótek.
• •
vorur
Stuttar og síðar kápur
með eða án heftu,
mörg snið.
Fallegar úlpur.
Hattar og húfur
Mörkinni 6, sími 588 5518 • Bílastæði við búðarvegginn
Sitni 9090 • l a\ • Sí<)iiiiniia 2 I
Opið í dag, laugardag, kl. 12-15
EINBÝLI
Hvannhólmi. Fallegt 249,5 fm ein-
býlishús með innbyggðum bílskúr í
Kópavogi. Eignin skiptist m.a. í fimm her-
bergi, stofu,. sjónvarpshol, baðherbergi
og eldhús. Fallegur gróinn garður og
gott skipulag. Húsið er í mjög góðu
ástandi. V. 21,5 m. 9355
Látraströnd - glæsilegt ein-
býli með stórum bílskúr.
Tvílyft, glæsilegt um 274 fm einbýlishús
með innbyggðum um 63 fm bílskúr á
mjög eftirsóttum stað. Húsið er allt i mjög
góðu ástandi að utan sem innan, m.a.
nýlegt parket o.fl. Falleg lóð og ákveðin
sala. V. 25,5 m. 9409
HÆÐIR
Skipholt - sérhæð m. bíl-
SkÚr. 6 herbergja mjög skemmtileg efri
sérhæð ásamt 28 fm bílskúr og um 40-
50 fm rislofti sem hefur verið innréttað á
einkar skemmtilegan hátt. Eignin er í litl-
um lokuðum botnlanga og með friðað
óbyggt svæði sunnan hússins. Ákv. sala.
V. 15,6 m. 9401
4RA-6 HERB.
Espigerði. 4ra herb. 93 fm falleg og
björt íbúð á þessum frábæra stað. Eignin
skiptist m.a. f hol, stofu, sjónvarpshol,
þrjú herbergi, baðherbergi og eldhús.
Góð eicjn á eftirsóttum stað. Frábært
útsýni. Ákv. sala. V. 11,0 m. 9325
Safamýri. Vel skipulögð 4ra her-
bergja 100,4 fm íbúð á 3. hæð í nýlega
viðgerðu fjölbýlishúsi. Góðar vestursvalir.
Parket á gólfum og nýlegt eldhús. V. 11,3
m. 9366
Laufengi. Sérl. glæsil. og vönduð
112,4 fm 4ra herb. endaíb. í góðu fjölb. á
2. hæð í Grafarvoginum. Eignin er með
vandaðar innr. og gólfefni. Baðherbergi
flísalagt í hólf og gólf með baðkari og
sturtu. Þvottahús og búr í ibúð. Húsið er í
mjög góðu ástandi og var m.a. viðgert í
fyrra. Kíktu á þessa. V. 12,3 m. 9385
Háaleitisbraut. 3ja-4ra herbergja
snyrtileg og björt 103,7 fm á 2. hæð í
góðu fjölbýlishúsi. Eignin skiptist m.a. í
hol, eldhús, baðherbergi, stofu og þrjú
herbergi. Góð eign í góðu hverfi. V. 11,0
m.9391
Sólheimar 10. hæð - 208 fm
íbúð. Vorum að fá í einkasölu mjög
sérstaka u.þ.b. 209 fm íbúð á 10. hæð í
þessu vinsæla lyftuhúsi. Um er að ræða
tvær íbúðir sem hafa verið sameinaðar í
eina stóra og glæsilega íbúð. Möguleiki á
fjórum stofum. Tvennar svalir. Stórkost-
legt útsýni til suðurs, vesturs og norðurs.
Ibúðin þarfnast endurnýjunar í takt við
nýja tíma. Einstakt tækifæri að eignast
óvenju stóra og bjarta íbúð í lyftuhúsi í
grónu og eftirsóttu hverfi. 9396
Bólstaðarhlíð. Vorum að fá i einka-
sölu rúmgóða 135,9 fm neðri sérhæð í
þríbýlishúsi á rólegum stað. Eignin skipt-
ist m.a. í eldhús, baðherbergi, fjögur her-
bergi og tvær samliggjandi stofur. Eignin
þarfnast standsetningar. V. 13,5 m. 9381
3JA HERB.
Kaplaskjólsvegur. Vorum að fá í
einkasölu vel skipulagða 3ja herb. íbúð
á eftirsóttum stað í vesturbænum. Eign-
in skiptist m.a. í hol, eldhús með borð-
krók, stofu, tvö herbergi og baðher-
bergi. Húsið hefur nýlega verið tekið í
gegn að utan. Góð eign á eftirsóttum
stað. V. 8,8 m. 9340