Morgunblaðið - 08.04.2000, Side 10
10 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Skiptar skoðanir um
ágæti biívörusamnings
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og starfandi landbúnaðar-
ráðherra, mælti s.l. fimmtudag fyrir
frumvarpi um framleiðslu, verðlagn-
ingu og sölu á búvörum en því er ætl-
að að lögfesta nauð-
synlegar breytingar
á lögum vegna
ákvæða í búvöru-
samningi sem Guðni
Ágústsson landbún-
aðarráðherra og
forsvarsmenn
Bændasamtaka ís-
lands undirrituðu
11. mars síðastlið-
inn. Frumvarpið
hlaut misjafnar við- ... .........
tökur meðal alþing-
ismanna og lýstu nokkrir efasemdum
sínum um efni búvörusamningsins.
Fram kom í framsöguræðu starf-
andi landbúnaðarráðherra að bú-
vörusamningurinn, sem er til sjö ára,
væri að verulegu leyti samhljóða
eldri samningum um sama efni.
Hann fæli þó einnig í sér nokkrar
breytingar. „í hinum nýja sauðfjár-
samningi eru fjölmörg sóknarfæri
fyrir bændur sem vilja halda áfram
búskap og bæta afkomu sína og þar
er einnig komið verulega til móts við
þá bændur sem viija hætta búskap,“
sagði Hafidór. „Þar er um að ræða
tilboð ríkisins um kaup á greiðslu-
marki til þeirra sem vilja hætta og
heimild til að framselja greiðslumark
sem gefin verður frjáls síðar á samn-
ingstímanum."
Halldór rakti efni búvörusamn-
ingsins og gerði m.a. grein íyrir því
markmiði samningsaðila að styrkja
sauðfjárrækt sem atvinnugrein og
bæta afkomu sauðfjárbænda. Jafn-
framt væri stefnt að aukinni hagræð-
ingu í sauðfjárrækt, að sauðfjárrækt
verði í samræmi við umhverfisvemd,
ALÞINGI
landkosti og æskileg landnýtingar-
sjónarmið, auk þess sem stefnt er að
því að halda jafnvægi milli fram-
leiðslu og sölu sauðfjárafurða og að
efla fagmennsku, þekkingu og þróun
í sauðfjárrækt.
Sagði Halldór
að þessum mark-
miðum hygðust
menn ná með því
að beina stuðn-
ingi ríkisins í rík-
ari mæli að
gæðastýrðri
framleiðslu.
Ennfremur
myndi því kerfi,
................ sem gildir um út-
flutning sauð-
fjárafurða, verða viðhaldið, rann-
sóknir, kennsla og þróun greinar-
innar yrði efld, unnið yrði að sátt um
mat á landnýtingu og aðstoð við þá
bændur sem viija hætta sauðfjár-
framleiðslu.
Frumvarpið flókið
með eindæmum
Hjálmar Jónsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formaður
landbúnaðarnefndar Alþingis, sagði
samninginn að mörgu leyti tíma-
mótasamning. Aðstæður sauðfjár-
bænda væru bættar verulega með
samningnum, ekki aðeins þeirra sem
halda vildu áfram sauðfjárrækt held-
ur væri hinum einnig gefið tækifæri
til að hætta með sóma. Lagði
Hjálmar jafnframt áherslu á mikil-
vægi gæðastýringarverkefnisins.
Lýsti hann þeirri von sinni að land-
búnaðarnefnd þingsins ynni málið
hratt en sagði að auðvitað væri ekki
hægt að gera of miklar breytingar á
frumvarpinu enda yrðu bændur að
geta treyst því að staðið yrði við
gerðan samning.
Matvælaeftir-
lit verði gert
skilvirkara
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra sagði á Alþingi í gær að hún
teldi brýnt að matvælaeftirlit yrði
einfaldað hér á landi. Matvælaeft-
irlit er í dag undir forsjá þriggja
ráðuneyta en Siv sagðist hlynnt því
að þetta eftirlit yrði sett undir eitt
eða tvö ráðuneyti. Að störfum væri
hins vegar nefnd, sem ríkisstjómin
hefði skipað að hennar tillögu, og
þar til sú nefnd skilaði áliti sínu
væri ekki tímabært að fjölyrða um
það undir hvaða ráðuneyti mat-
vælaeftirlitið skyldi fara.
Siv hafði mælt fyrir frumvarpi er
víkur að matvælum en það var
samið í framhaldi af starfi nefndar
sem skipuð var til að gera tillögur
um hvemig bregðast skyldi við nið-
urstöðum skýrslu sem tekin var
saman um útbreiðslu kampýló-
bakterí umhverfi, húsdýmm og
matvælum og um orsakir sýkinga í
mönnum. Er m.a. lagt til í frum-
varpinu að ráðherra verði heimilt
að setja reglur þess efhis að þeir
sem starfa að framleiðslu og dreif-
ingu matvæla sæki námskeið um
meðferð matvæla. Ennfremur að
eftirlitsaðilar skuli vinna að því að .
fyrirbyggja að matvæli geti valdið
heilsutjóni og skuli grípa til viðeig-
andi ráðstafana ef vart verður við
matarsjúkdóma eða smithættu.
Loks er kveðið skýrar á um skyld-
ur þeirra sem annast rannsóknir
og greiningu á matvælum tíl að til-
kynna til hlutaðeigandi stofnana ef
hætta getur stafað af neyslu mat-
væla. í umræðum um frumvarpið
gerði Sigríður Jóhannesdóttir,
þingmaður Samfylkingar, að um-
talsefni þá hugmynd að matvæla-
eftirlit skyldi fært undir eitt ráðu-
neyti, en eins og málum er háttað í
dag er það undir sjávarútvegsráðu-
neyti, sem sér um eftirlit gagnvart
sjávarafurðum, landbúnaðarráðu-
neyti, sem fer með embætti yfir-
dýralæknis, og umhverfisráðu-
neytis, sem hefur Hollustuvemd
ríkisins á sínum snærum. Einnig
hafa sveitarfélög viðtækt eftirlit í
gegnum sitt heilbrigðiseftirlit.
Umhverfisráðherra tók undir
það í seinni ræðu sinni að matvæla-
eftirlit væri ekki í eðlilegum far-
vegi að hennar mati. Of mörg grá
svæði væru og þeim þyrfti að eyða.
Kvaðst Siv jafnvel telja að upp-
bygging á matvælaeftirlitinu hefði
að mestu leyti skapað grundvöll
fyrir þær uppákomur sem orðið
hefðu í sambandi við t.d. kampýló-
baktermengun í alifuglum.
„Þannig að ég styð það að mat-
vælaeftirlitið verði einfaldað og að
það verði fellt undir a.m.k. eitt eða
tvö ráðuneyti, en ekki þijú eins og
er í dag,“ sagði Siv. Upplýsti hún
að hún hefði flutt þar að lútandi til-
lögu í ríkisstjóm fyrir skömmu.
Hefði verið ákveðið að nefnd for-
sætisráðherra um opinbera eftir-
litsstarfsemi færi yfir þessi mál og
kæmi með tillögur um hvemig
gera mætti matvælaeftirlit skil-
virkara.
Frumvarp um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum var rætt á
Alþingi sl. fimmtudag.
Aðrir þingmenn vora ekki eins
eindregnir í stuðningi sínum við
framvarpið og búvörasamninginn.
Einar Már Sigurðarson, þingmaður
Samfylkingar, var þó fremur já-
kvæður en sagði hins vegar að það
væri alls ekki víst að það yrðu ein-
ungis hinir eldri bændur sem nýttu
sér uppkaupatilboð stjórnvalda, eins
og menn virtust telja öraggt. Hættan
væri einmitt sú að yngri bændur
myndu nýta sér tækifærið til að
hætta sauðfjárrækt og fara í önnur
störf.
Þuríður Backman, þingmaður VG,
var einnig fremur jákvæð í garð
samningsins þótt að hún teldi hann
alls ekki gallalausan. Sagði hún að
margir bændur væra ósáttir en þeir
væra hins vegar óánægðir á ólíkum
forsendum. Ekkert eitt atriði stæði
upp úr öðrum fremur hvað galla
samningsins varðaði. Kvaðst Þuríður
óttast að gæðastýringarverkefnið,
sem kveðið er á um í samningnum,
yrði hið mesta bákn og gagnrýndi
hún líka hversu flókinn samningur-
inn væri. Tók Hjálmar Jónsson undir
ótta Þuríðar varðandi gæðastýring-
arverkefni í andsvari við ræðu henn-
ar.
Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, lýsti hins vegar
harðri andstöðu sinni við gerðan bú-
vörasamning. Sagði hann samning-
inn vondan og gagnrýndi Pétur harð-
lega þá forsjárhyggju sem einkenndi
samninginn. Hann tók einnig undir
að hér væri á ferð með eindæmum
flókinn og skrifræðislegur samning-
ur. Svanfríður Jónasdóttir, þingmað-
ur Samfýlkingar, sagðist telja að það
kerfi, sem hér væri verið að fram-
lengja, væri fyrir löngu gengið sér til
húðar og í sama streng tók Jón
Bjamason, þingmaður VG, sem
sagði tekið á vanda dagsins í dag með
aðferðum fyrri tíma.
Vörugjald
af snakki
fellt niður
VÖRUGJALD verður fellt
niður af tilteknum vörum og
fjárhæð gjaldsins breytt verði
frumvarp, sem Geir H. Haarde
fjármálaráðherra mælti fyrir á
Álþingi á fimmtudag, að lög-
um. Er áætlað að tekjutap rík-
issjóðs vegna þeirra gjald-
breytinga sem af frumvarpinu
leiðir verði rúmlega 150 millj-
ónir króna.
I frumvarpinu er lagt til að
vöragjald verði fellt niður af
tilteknum rafmagnsvörum,
þ.e. ýmsum raftækjabúnaði
sem nýttur er í iðnaði, svo sem
rafmagnstöflur og öryggis-
rofa. Kemur fram í athuga-
semdum við frumvarpið að
þessi aðgerð sé liður í því að
fella vörugjald af vörum sem
notaðar eru sem efnisvara í
framleiðslu niður í áföngum.
Ennfremur er lagt til að
vörugjald verði fellt niður af
vörugjaldsskyldu snakki,
poppkorni, salthnetum, salt-
kexi og saltstöngum. Er þessi
breyting lögð til þar sem mis-
ræmis hafi þótt gæta í álagn-
ingu vörugjalds á þessar vör-
ur, og hafa sumar borið vöru-
gjald og aðrar ekki. Heppi-
legast hafi þótt að gjaldtaka af
snakki yrði að öllu leyti felld
niður.
Fjárhæð vörugjalds af kakói
og vörum framleiddum úr því
verður samræmd, nái fram-
varpið fram að ganga, lagt er
til að vöragjald verði fellt nið-
ur af hjólböram, sem og af
marmara og öðram steini sem
ætlaður er til framleiðslu, svo
sem legsteinagerðar, en ekki
til klæðningar, t.d. á veggi.
Loks er lagt til að vörugjald
verði fellt niður af þeim vopn-
um og skotfærum sem enn
bera vörugjald.
Skattlagningu kaup-
réttartekna komið
í fastan farveg
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
mælti á fimmtudag fyrir frumvarpi
til laga um breytingu á lögum um
tekjuskatt og eignarskatt en frum-
varpið lýtur að skattlagningu
tekna sem myndast vegna kaupa á
hlutabréfum skv. kauprétti, breyt-
ingum á skattalegri meðferð lífeyr-
isiðgjalda og loks er lagt til að nýt-
ing hlutabréfaafsláttar nái einnig
til erlendra hlutabréfa.
í framsöguræðu sinni sagði Geir
að sú þróun hefði átt sér stað und-
anfarin misseri að kaupréttur
starfsmanna á hlutabréfum í fyrir-
tækjum sem þeir vinna hjá hefði
verið að ryðja sér til rúms sem
hluti launakjara. Ekki væri kveðið
skýrt á um skattlagningu slíkra
tekna í gildandi lögum og því væri
nú lagt til að tekin yrðu af öll tví-
mæli um hvernig skattskyldu
slíkra tekna skuli háttað.
Lagt er til að tvenns konar
reglur gildi um skattlagningu þess-
ara tekna, annars vegar svokölluð
meginregla og hins vegar svonefnd
sérregla. Felst það í meginregl-
unni að til skattskyldra tekna telj-
ist mismunur á gangverði þegar
kaupréttur er nýttur og þeirri fjár-
hæð sem starfsmaður greiðir fyrir
hlutabréfin skv. kaupréttarsamn-
ingi. í sérreglunni felst hins vegar
að um tekjur starfsmanna vegna
kaupréttar fari alfarið eins og um
fjármagnstekjur að uppfylltum til-
teknum skilyrðum og þær skatt-
Heimildir vegna
frádráttar
af tekjum vegna
lífeyrissparn-
aðar rýmkaðar
lagðar samsvarandi með 10%
skatti.
27% þjóðarinnar nýtir nú
þegar möguleikann á tveggja
prósenta viðbótarsparnaði
í frumvarpinu er lagt til að tek-
inn verði af allur vafi um að lög-
aðili eða sjálfstætt starfandi maður
geti talið til rekstrarkostnaðar ið-
gjöld til öflunar lífeyrisréttinda
starfsmanna enda séu þau tekju-
færð í hendi launþegans. Jafnframt
verði tekin upp skýr ákvæði um
heimildir til að draga iðgjöld og
framlög til öflunar lífeyrisréttinda
frá skattskyldum tekjum launþega.
„í því samhengi," sagði Geir, „er
lagt til að í stað þess að launþegi
geti dregið frá skattskyldum
tekjum sínum 4% vegna lífeyrisið-
gjalda í samtryggingarsjóð og allt
að 2% vegna séreignarsparnaðar,
verði honum gert kleift að draga
frá tekjum sínum allt að 20% sam-
tals vegna lífeyrissparnaðar, þó að
hámarki 1,5 milljónir króna á ári.“
Sagði ráðherrann að þetta ætti
við hvort heldur sem iðgjald væri
greitt í sameignar- eða séreignar-
sjóði. Meginbreytingin frá gildandi
lögum væri því sú að framlag
launagreiðenda yrði nú tekjufært í
hendi launþega en á móti fengi
launþeginn mun rýmri rétt til frá-
dráttar sem næmi allt að 20%.
Ennfremur er lagt til að mót-
framlag launagreiðenda í lífeyris-
sparnaði í formi lækkunar á trygg-
ingagjaldi verði aukið úr 0,2% í allt
að 0,4%, og mælti Geir samhliða
fyrir frumvarpi um breytingu á
lögum um tryggingagjald þar sem
tekið var á þessu. Sagði Geir í
þessu sambandi að það hefði komið
ánægjulega á óvart að könnun sem
fyrirtækið PriceWaterhouseCoop-
ers gerði fyrir fjármálaráðuneytið í
upphafi árs leiddi í ljós að rúmlega
27% þjóðarinnai- nýtti sér nú þegar
möguleikann á tveggja prósenta
viðbótarsparnaði.
Loks gerði fjármálaráðherra
grein fyrir þefrri breytingu sem
víkur að hlutabréfaafslættinum
svokallaða. Er lagt til að frádrátt-
arreglurnar verði rýmkaðar frá því
sem nú er, þ.e. að heimild til þess
að draga frá tekjum einstaklinga
fjárfestingu í hlutabréfum taki
jafnt til innlendra sem erlendra fé-
laga og lagði Geir áherslu á að er-
lendu félögin þyrftu að fullnægja
öllum þeim skilyrðum sem gerð
eru til innlendu félaganna í lögun-