Morgunblaðið - 08.04.2000, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Stjórnarformaður og forstjóri Samherja um Hæstaréttardóm á aðalfundi
Uppby ggingar star f áfram
tryggt í íslenskum sjávarútvegi
Morgunblaðiö/Kristján
Kári Arnór Kárason, fráfarandi stjórnarformaður Samherja, ræðir við
Óskar Magnússon á aðalfundi félagsins sem haldinn var í gær.
STJÓRNARFORMAÐUR Sam-
herja, Kári Arnór Kárason, gerði
dóm Hæstaréttar í svokölluðu Vatn-
eyrarmáli að umtalsefni í ávarpi
sínu á aðalfundi félagsins sem hald-
inn var í Nýja bíói á Akureyri í gær.
Hann sagði niðurstöðu dómsins að
því leyti afdráttarlausa að fiskveiði-
stjórnunarkerfið stæðist stjórnar-
skrá.
„Almannavaldið hefur heimild til
að takmarka aðganginn í auðlindina
og skiptingin á hinum takmarkaða
veiðirétti í samræmi við veiði-
reynslu var eðlileg og sanngjörn
regla. í ljósi þeirrar umræðu, sem
verið hefur um íslenska fiskveiði-
stjómunarkerfið eru ekki líkur á að
þessi dómur einn og sér skapi sátt
um kerfið. Umræðurnar hafa að
mestu gengið út á hvað sé réttlátt og
ranglátt í þessu efni, en þar mun nú
sem endranær reynast erfitt að
finna algildar mælistikur, sagði Kári
Arnór. Dómurinn gerir það hins
vegar að verkum að sú uppbygging
sem átt hefur sér stað í íslenskum
sjávarútvegi og byggst hefur á nú-
verandi kvótakerfi mun halda
áfram. „Pað er meginmálið og það
sem mestu skiptir bæði fyrir sjávar-
útveginn sjálfan og íslenska þjóðar-
búið,“ sagði Kári Arnór.
Hvað rekstur félagsins varðar
sagði Kári Arnór afkomuna valda
vonbrigðum en hagnaður af rekstri
Samherja var 200 milljónir króna á
síðasta ári. Stefna Samherja væri að
taka þátt í mörgum greinum sjávar-
útvegs, bæði heima og erlendis og
dreifa þar með áhættunni í rekstrin-
um, það hefði skilað góðum árangri
og gert að verkum að afkoman hefði
verið viðunandi. Sveiflurnar á síð-
asta ári hefðu hins vegar verið með
þeim hætti að áhættudreifingin í
rekstri félagsins skilaði ekki árangri
og rekstramiðurstaðan verið óvið-
unandi.
Erfítt í Þýskalandi
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, gerði á aðalfundin-
um grein fyrir rekstri félagsins á
liðnu ári, m.a. erlendra dóttur- og
hlutdeildarfyrirtækja en hann
reyndist erfiður árið 1999, einkum
þýska dótturfélagsins Deutsche
Fischfang Union, DFFU, en það var
gert upp með miklu tapi. Aflabrest-
ur í Barentshafi veldur þar mestu
um. Fimm ár eru frá því Samherji
hóf afskipti af DFFU og hefur á
þeim tíma verið varið um 2,7 millj-
örðum króna vegna endurskipu-
lagningar, endurnýjunar flotans og
kaupum á Hannover.
Þorsteinn Már gerði grein fyrir
þeim möguleikum sem Samherja-
menn sjá í félaginu, en þar er fyrst
og fremst um veiðiréttindi að ræða,
en félagið hefur langstærstan hluta
botnfiskveiðiheimilda þjóða Evr-
ópubandalagsins. Þá nefndi hann að
veiðum væri stjórnað með ströngum
rúmmálsreglum, strangar reglur
gilda um endumýjun og stærð fiski-
skipaflotans. Sagði Þorsteinn Már
þetta vera framtíðarréttindi sem
væru mikils virði. Nú er unnið að því
að selja eitt skipa félagsins, Wies-
baden, og eru samningaviðræður á
lokastigi. Þorsteinn Már sagði Sam-
herja og dótturfélög búa yfir mikilli
þekkingu á evrópskum sjávarútvegi
og menn ætluðu að láta fjárfesting-
una skila árangri.
Þorsteinn Már gerði að lokum
nýfallinn dóm Hæstaréttar að um-
talsefni og sagði að sem stjórnanda
fjölmenns fyrirtækis væri áhyggj-
um af sér létt. „Þessi dómur þýðir
að við höldum áfram því uppbygg-
ingarstarfi sem átt hefur sér stað í
íslenskum sjávarútvegi og skilað
okkur afkastamesta sjávarútvegi í
heimi; sjávarútvegi sem horft er til,
sjávarútvegi sem á stóran þátt í einu
mesta hagvaxtarskeiði Islandssög-
unnar,“ sagði Þorsteinn.
Sárnar umræður um að
sjómenn hendi físki
„Umgengni um auðlindina er lyk-
ilatriði fyrir framtíð okkar. Eg er
því mjög viðkvæmur fyrh’ sífelldum
ásökunum um að sjómenn séu að
henda afla fyrir borð og sóa stór-
kostlegum verðmætum. Enn og aft-
ur var það gert að stórmáli í umræð-
um gærdagsins. Mér sárnar mjög að
hlusta á að starfsmenn mínir og aðr-
ir sjómenn fremji lögbrot og hendi
fiski fyrir tugi milljarða. Ég er stolt-
ur af sjómönnum Samherja og ver
þá hiklaust hvar sem er og hvenær
sem er. Það er hins vegar umhugs-
unarefni að enn og aftur gera for-
ystumenn sjómannasamtakanna
ekkert til að verja umbjóðendur
sína heldur taka þátt í að gera þá og
okkur tortryggilega í augum þjóðar-
innar,“ sagði forstjóri Samherja.
Finnbogi Jónsson nýr
stjórnarformaður
Ný stjórn var kjörin á aðalfundin-
um, en Kári Arnór gaf ekki kost á
sér til áframhaldandi setu. í nýrri
stjórn sitja Finnbogi Jónsson,
stjórnarformaður, Hjörleifur Jak-
obsson, Óskar Magnússon, Þor-
steinn Jónsson og Kristján Jó-
hannsson, en Finnbogi Baldvinsson
og Kristján Þór Júlíusson voru
kjörnir í varastjórn.
Stjórnarformaður Granda telur dóm Hæstaréttar vekja bjartsýni
Uggur vegna karfaveiða
á Reykjaneshrygg
GRANDI stendur frammi fyrir
ákveðinni óvissu um horfur í rekstri
og afkomu og vildi stjórnarformað-
ur félagsins, Arni Vilhjálmsson,
hafa sem fæst orð um horfur félags-
ins á aðalfundi þess í gær.
„Veiðar á úthafskarfa á Reykja-
neshrygg skipta okkur miklu máli
og undanfarin tvö ár hafa þær veið-
ar gengið ágætlega og skilað okkur
miklu. Það sem snertir okkur sér-
staklega eru skorður sem settar
hafa verið um það hvernig skuli
staðið að veiðunum á komandi ver-
tíð og á hvaða dýpi afli skuli feng-
inn. Það er ógerningur að sjá fyrir
hversu íþyngjandi þessar takmark-
anir munu reynast. Vonir standa þó
til að hagnaður fyrir frádrátt tekju-
skatts verði svipaður og síðastliðið
ár þegar út hefur verið tekinn allur
söluhagnaðurinn. En þá er á það að
líta að yfirfæranlegt skattalegt tap
er upp urið svo tekjuskattur mun
leggjast með fullum þunga á skatt-
stofna," sagði Arni í ræðu sinni.
Hann sagði þó ríkari ástæðu til
bjartsýni til lengri tíma litið en áður
hefði verið. „Svo er fyrir að þakka
nýlegum dómi Hæstaréttar þar
sem komist er að þeirri niðurstöðu
að lögin um stjórnun fiskveiða
standast kröfur stjórnarskrárinnar.
Vonir hafa glæðst um að undirstöð-
um stjórnunarkerfisins verði ekki
raskað og menn nái að stilla saman
strengi sína í viðleitni til að bæta
kerfið."
Auka þarf samstarf
sj ávar útvegsfy r irtækj a
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Granda, sagði í ávarpi sínu að ljóst
væri að miðað við óbreytta starf-
semi myndi Grandi skila hlutfalls-
lega svipaðri framlegð og undan-
farin ár. „Við munum að sjálfsögðu
vinna að því að nýta enn betur tæki
og þekkingu fyririækisins í form-
legu eða óformlegu samstarfi við
önnur sjávarútvegsfyrirtæki, enda
er trú mín að ef sjávarútvegur á ís-
landi á að vaxa og þróast enn frekar
og verða öflugur samkeppnisaðili í
alþjóðlegu umhverfi sem matvæla-
framleiðandi þurfa fyrirtæki að efla
samstarf sitt með fyrirtækjaneti
eða hreinum samruna," sagði
Brynjólfur.
Að hans sögn hafa aflabrögð
heldur verið að glæðast í ár en þau
voru treg í byrjun ársins. A fyrstu
þremur mánuðum ársins hafa
veiðst 5.521 tonn en á sama tímabili
veiddust 6.070 tonn árið 1999. Verð-
mæti aflans er um 40 milljónum
minna en í fyrra. Mikil óvissa er
enn um verðlag, bæði á fiskimjöli og
lýsi, en þó standa vonir til að verð
geti farið að styrkjast þegar líður á
árið að sögn Brynjólfs. „Ekki er
búist við miklum breytingum á
verði í erlendum myntum fyrir bol-
fiskafurðir, en nú sem fyrr er mikil
óvissa um þróun gengis erlendra
gjaldmiðla og íslensku krónunnar,“
segir Brynjólfur.
A aðalfundinum voru tveir nýir
stjórnarmenn kjömir; þeir Þor-
steinn Vilhelmsson og Kristján
Loftsson. Auk þeirra voru Árni Vil-
hjálmsson, Ágúst Einarsson, Bragi
Hannesson, Einar Sveinsson og
Grétar Br. Kristjánsson kjörnir í
stjórn.
Á fundinum var samþykkt tillaga
stjórnar um greiðslu 11% arðs
vegna ársins 1999, að fjárhæð alls
162.684.500 krónur.
LAGERSALA
Faxafeni 8 opið virka daga 12-19 laugard. 12-18 sunnud. 12-17
Handmálaðir grískir
íkonar frá kr. 1.990
Tilvalið til fermingargjafa
mtmír
Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Leiðrétt
í viðskiptablaði Morgunblaðsins á
fimmtudag var rangt farið með
föðurnafn Bjarna Markússonar,
framkvæmdastjóra ITC ísland
ehf., dótturfélags Kaupþings hf.
I viðtalinu var Bjarni sagður
Þórisson en ekki Markússon. Beð-
ist er velvirðingar á þessum leiðu
mistökum.
Á fermingarborðið
Borðdúkaúrvalið
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74, sími 552 5270.