Morgunblaðið - 08.04.2000, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 iflKI MORGUNBLAÐIÐ
v lliL m
Reuters
Jdhannes Páll páfi II umkringdur greinum gamals ólífiitrás.
Olífuolía gegn
háþrýstingi
New York. Reuters.
ÍTALSKIR vísindamenn greina frá
því að sjúklingar með of háan blóð-
þrýsting þurfí ekki að taka eins mik-
ið af blóðþrýstingslyfjum með því að
breyta mataræði sínu og borða
meira af fæðu sem inniheldur lítið af
mettaðri fítu og mikið af ólífuolíu.
Sumir sjúklinganna gátu alveg hætt
að taka lyf eftir að hafa breytt mat-
aræði sínu með þessum hætti.
Niðurstöður dr. L. Aldo Ferrara
óg samstarfsmanna við Federico II
háskóla í Napólí birtust i vísinda-
ritinu Archives of Internal Medicine
27. mars. Rannsakaðir voru 23
sjúklingar með of háan blóðþrýst-
ing. Þeir sjúklingar sem juku neyslu
á sólblómaolíu nutu ekki sama
ágóða og þeir sem neyttu meira af
ólífuolíu.
Vísindamennirnir telja að ólífu-
olían dragi úr þörfinni fyrir blóð-
þrýstingslyf vegna þess að í henni
eru andoxunarefnasambönd sem
kunna að bæta víkkun æða og
minnka þannig blóðþrýsting. Sól-
blómaolía innihaldi ekki þessi efna-
sambönd.
Aukaverkanir
lyfja vilja gleymast
Reuters
Betur er fylgst með aukaverkunum ly'á sjúklingum sem liggja
á spítala en hjá þeim sem taka lyfín sín heima.
Medical Press Corps Ncws Service.
SJÚKLINGAR finna oft fyrir
aukaverkunum lyfseðilsskyldra
lyfja, en yfirleitt láta þeir lækna
sína ekki vita af þeim. Samkvæmt
nýrri könnun er innan við eitt af
hverjum sex tilfellum aukaverk-
ana, sem sjúklingar er ekki liggja á
sjúkrahúsi finna fyrir, skráð í
sjúkraskýrslur.
„Sjúklingar, sem ekki eru á
sjúkrahúsi, eru sjálfir ábyrgir fyrir
því að taka lyfin sín og það er eng-
inn sem fylgist með því hvernig
þeir taka þau eða hvort þau hafa
slæmar aukaverkanir," sagði dr.
Tejal Gandhi, aðalhöfundur könn-
unarinnar og leiðbeinandi við Brig-
ham og kvennasjúkrahúsið í Bost-
on í Bandaríkjunum.
Gandhi og samstarfsfólk hennar
kannaði hagi 2.248 sjúklinga á
aldrinum 20 til 75 ára, og kom í ljós
að skráð höfðu verið í læknaskýrsl-
ur tilfelli þriggja af hundraði er
höfðu fundið fyrir slæmum auka-
verkunum lyfja. Engu að síður
höfðu 18% þeirra sem tóku þátt í
könnuninni talið sig finna fyrir
slæmum aukaverkunum lyfja.
Niðurstöður könnunarinnar birt-
ust í marshefti Journal of General
Internal Medicine. Aukaverkanir,
sem þátttakendurnir í könnuninni
höfðu fundið fyrir, voru í flestum
tilfellum meltingartruflanir og
svefntruflanir. Þá fundu sjúkling-
arnir einnig fyrir þreytu, svima og
höfuðverk. Algengustu lyfin sem
þeir tóku voru sýklalyf, þunglynd-
islyf og bólgueyðandi lyf.
„Læknar gera oft ráð fyrir þess-
um viðbrögðum á meðan á meðferð
stendur. En það skiptir miklu að
gera sér grein fyrir því að sjúkling-
unum finnist þetta ekki vera sjálf-
sagðir hlutir,“ sagði dr. David Bat-
es, meðhöfundur könnunarinnar.
Þessar aukaverkanir geti orðið til
þess að sjúklingar hætti að taka
inn ráðlögð lyf og það geti leitt til
fleiri innlagna á sjúkrahús og auk-
ins kostnaðar.
Gandhi nefndi ennfremur að svo
virtist sem sjúklingar hefðu síður
áhyggjur ef þeim væri sagt við
hvaða aukaverkunum mætti búast
af lyfjunum sem þeir tækju.
Blinda vegna
næringarskorts
ÞEIR sem neyta eingöngu græn-
metisfæðu eiga á hættu að þjást
af næringarskorti ef þeir taka
ekki vítaminbætiefni, að þv/ er
fram kemur í greinargerð
franskra vísindamanna í lækna-
ritinu New England Journal of
Medicine 23. mars sl.
Segja þeir frá tilfelli 33 ára
sjúklings sem greindist með al-
varlega sjúntaugabilun, en sjúkl-
ingurinn hafði smám saman ver-
ið að tapa sjún. Hann hafði verið
grænmetisæta í „heilsubútar-
skyni,“ að því er hann sagði, frá
20 ára aldri og ekki tekið víta-
mín. Hann borðaði ekki egg,
engar mjúlkurvörur, fisk eða
önnur matvæli er innihéldu
dýraprútín. Hann reykti ekki og
neytti ekki áfengis og sjúkra-
saga hans var að engu leyti sér-
stök.
Við rannsúkn fundust engar
vísbendingar um eiturverkun,
sýkingu eða búlgu sem gæti ver-
ið orsök blindunnar. Eftir að
sjúklingnum hafði verið gefið
B12 vítamín daglega í viku og
önnur bætiefni hvarf sjúntauga-
bilunin með öllu, en sjún sjúkl-
ingsins batnaði ekki.
Telja vísindamennirnir að
sjúntaugabilunin í sjúkiingnum
hafí tengst skorti á B12 og B1
vítamínum, en skortur á öðrum
efnum kunni einnig að hafa haft
áhrif. Segja þeir í niðurstöðum
sínum að þeir, sem neyta ein-
göngu grænmetisfæðu, verði
nauðsynlega að taka vftamfnbæt-
iefni, einkum þar sem vítamín-
skortur kunni að leiða til al-
varlegrar og varanlegrar
sjúntaugabilunar.
Ein vinsælasta
lækningajurt heims!
náttúrulega!
heilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smóratorgi
Þegar ekkert er að
Gylfi Ásmundsson sátfræðingur svarar spurningum lesenda
Spuming: Hvað er að, þegar ekk-
ert er að, en samt er ekki allt í lagi?
Svar: Þetta er góð spuming og
spennandi að velta henni fyrir sér,
þótt kannske verði svarið aldrei
eins áhugavert og spumingin sjálf.
Ef til vill væri hún fremur við-
fangsefni fyrir heimspeking heldur
en sálfræðing. En samt er það svo
að margir leita til sálfræðinga ein-
mitt með spumingar af þessu tagi.
Þá em þeir að leita að lífsfyllingu
fremur en að um einhver tiltekin
vandamál sé að ræða.
Þau orð sem fyrst koma í hugann
við þessari spumingu era tilvistar-
vandi og tómleikakennd. Tilvistar-
vandi eða tilvistarkreppa getur
gert vart við sig á öllum æviskeið-
um, en er kannske algengust á
unglingsáram og síðan aftur á
miðjum aldri. Á aldrinum frá 15 ára
og fram undir tvítugt er ungling-
urinn að leita að sjálfum sér, finna
sér sjálfsmynd, skerpa ímynd sína
og sjálfstæði og lendir þá stundum
í andstöðu eða uppreisn gegn um-
hverfi sínu, ekki síst foreldrum sín-
um. Þetta getur verið átakatími,
þótt hið ytra sé ekkert sérstakt að,
ástríkir foreldrar, gott heimili,
traustir félagar.
Á miðjum aldri lenda margir aft-
ur í nokkurs konar tilvistarkreppu,
ekkert síður þeir sem lifað hafa
góðu lífi að svo miklu leyti sem
hægt er að meta það af ytri lífs-
gæðum. Þeir hafa náð markmiðum
sínum hvað snertir menntun og
starf, eignast fjölskyldu, íbúð og
bfl, og sigla sléttan sjó að flestu
leyti. En það er eitthvað sem vant-
ar, einhverja lífsfyllingu sem gerir
lífið ekki jafn spennandi og það var
þegar þeir lögðu út á lífsbrautina
forðum daga. Tómleikakennd fyllir
sálina. Margar spumingar sækja á
hugann. Hver er tilgangur lífsins?
Hvað er það sem gefur lífinu gildi?
Er það ekki eitthvað annað og
meira en hversdagsleg velgengni?
Margir söðla um og reyna að hefja
nýtt líf. Hjónaskilnaðir era ekki
óalgengir á þessum aldri og sumir
Lífsfylling
finna sér nýtt lífsstarf og ný áhuga-
mál, hvort sem það verður þeim til
gæfu eða ekki. Áðrir sitja inni eins
og fangar í búri og komast hvergi.
Þá getur verið gott að eiga ein-
hvern skilningsríkan trúnaðarvin
sem er tilbúinn að hlusta. Það get-
ur verið maki eða náinn vinur, en
einnig getur verið ráð að leita sér
utanaðkomandi hjálpar, eins og t.d.
hjá sálfræðingi.
Eins og áður segir er það ekki
óalgengt að einstaklingar í slíkri
tilvistarkreppu leiti til sálfræðings.
Þar fá þeir tækifæri til að tjá sig
óhindrað og mæta athygli og sam-
úð sálfræðingsins, en hans hlutverk
er fyrst og fremst að hlusta og
spegla hugsanir og tilfinningar
þess sem til hans leitar. Hann gef-
ur yfirleitt ekki ráð, en skapar skil-
yrði til þess að skjólstæðingur hans
finni eigin lausnir, finni neistann í
sjálfum sér, sem gefi honum nýjan
skilning og nýja sýn á sjálfan sig,
og uppgötvi sjálfur leiðir til að gera
lífið þess virði að lifa því lifandi. Ein
mikilvægasta forsenda þess að öðl-
ast lífsfyllingu á ný er þó að sættast
við sjálfan sig eins og maður er
með kostum sínum og göllum, svo
þverstæðukennt sem það kann að
virðast. Við það verður til skýrari
sjálfsmynd og sá grunnur sem er
nauðsynlegur til nýrra sóknarfæra.
Það era ekki aðeins „sjúklingar“
sem leita til sálfræðinga. Þvert á
móti er það oftar en ekki fólk sem
er að leita að rneiri lífsfyllingu. Það
er ekkert að hjá því, nema að það
er ekki allt í lagi.
* Lescndur Morgunblaðsins gcta spurt sál-
fræðinginn um það scm þcim liggur á
bjarta. Tekið er móti spurningum á virkum
dögum milli klukkan 10 og 17 fsfma
569110 og bréfum eða símbréfum merkt:
Vikulok, Fax: 5691222.