Morgunblaðið - 08.04.2000, Qupperneq 84
MORGUNBLAÐIÐ
84 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
1 FÓLKí FRÉTTUM
MYNDBOND
>Margrödd-
uð frásögn
Spilað frá hjartanu
(Playing by Heart)
DRAMA
★★%
Leikstjórn og handrit: Willard Car-
rol. 6Aðalhlutverk: Gillian And-
erson, Angelia Jolie, Ryan Philippe,
Sean Connery, Gena Rowlands,
Dennis Quaid. (120 mín.) Banda-
j, ríkin. Myndform, 1998. Myndin er
bönnuð börnum innan 12 ára.
KVIKMYND Willard Carrols er
margrödduð frásögn í anda meist-
ara eins og Alan Rudolph („Choose
Me“) og Robert
Altman („Short
Cuts“), þar sem
margar sögur og
persónur tengjast
og mynda eina
heild. Það sem
persónurnar í
þessari mynd eiga
sameiginlegt er
ástin, að afneita
henni, leita að henni eða uppgötva
Lhana aftur.
I myndinni leika gamlar kempur
eins og Ellen Burstyn, Gena
Rowlands og Sean Connery í félags-
skap ungra og upprennandi leikara
á borð við Gillian Anderson og Ang-
elina Jolie. Carroll, sem skrifar og
leikstýrir myndinni er mjög heillað-
ur af sköpunarverki sínu og blindur
fyrir þeim göllum sem eru á mynd-
inni. Nokkrar af sögunum eru virki-
lega vel sagðar og leiknar en aðrar
eru bara vel leiknar. í lokin koma
síðan allar persónurnar saman og
-iausn verður á öllum þeim fléttum
sem komið hafa fram í höndum Ru-
dolph eða Altmans hefði maður ekki
getað giskað á hvað myndi gerast
en hjá Carroll er lausnin augljós frá
upphafi. „ „ . „
Otto Geir Borg
♦ ♦ ♦
Mynd-
bandafóður
Símon segir
(Simon Sez)
SPENNUMYND
, *
^Leikstjóri: Kevin Elders. Handrit:
Moshe Diamant og Rudy Cohen.
Aðalhlutverk: Dennis Rodman,
Emma Sjoberg. (90 mín.) Banda-
ríkin. Skífan, mars 2000. Bönnuð
innan 16 ára.
VERULEGA hefur hallað undan
fæti hjá NBA-leikmanninum Dennis
Rodman sem virðist þess í stað ætla
að hasla sér völl í
spennu- og hasar-
myndum. Mörg er
léíeg spennumynd-
in, en það sést
strax í upphafi að
Símon segir er af
verstu gerð. Eftir
smávægilega plott-
uppbyggingu fyll-
ist skjárinn af bíl-
um, tækjabúnaði og mótorhjólum
sem síðan eru hrakin á flótta af hetju
í gulum mótorhjólabúningi akandi
hjóli í sama lit. Gerist varla hallæris-
lega og ekki skánar það þegar sænsk
bardagadrottning byrjar að hring-
snúast í flugspörkum og sparkboxi.
Þessum bardaga- og tækniatriðum
er síðan fleytt áfram með fremur
tilgangslausum söguþræði sem er þó
allur hinn flóknasti. Lítið reynir á
(Jfciginlega leikhæfileika hjá Rodman
sem gerir fátt annað en að glotta
makindalega og fara úr skyrtunni
við valin tækifæri. Nægir peningar
virðast þó hafa verið til ráðstöfunar
og því er mörgum sprengingum,
brellum og bílum spanderað í fram-
leiðslu á þessu myndbandsmarkaðs-
fóðri.
» Heiða Jóhannsdóttir
Seinasta sýning á Salka - ástarsaga í kvöld
Fékk hugboð
um Sölku
Þegar Magnea verður stór ætlar hún að
stofna leikhús. En fyrst þarf hún að ferðast
og fylgjast með stöðugri og spennandi
þróun leiklistarinnar í helst öllum heimin-
um. Hildur Loftsdóttir er viss að allir
draumar hennar rætast - rétt eins og
þegar hún fékk hlutverk Sölku.
MAGNEA Björk Valdimarsdóttir
tók sín fyrstu skref út á leiklistar-
brautina í Sjeikspírunum, litlum
hópi áhugaleikstelpna í Kramhúsinu,
undir stjórn Hörpu Arnardóttur.
Eftir það lá leið hennar í Mennta-
skólann við Hamrahlíð þar sem hún
tók þátt í verkefnum leikfélagsins;
Macbeth, Poppleiknum Óla 2 og
Náttúruóperunni. Þetta síðasta ár
sitt í menntaskólanum sat Magnea
hins vegar á áhorfendabekk þegar
félagarnir sýndu Paradísareyjuna
fyrr á árinu.
Bilun á tímabili
„Ég er stikkfrí frá félagslífinu í
skólanum, en ég varð að fara í öld-
ungadeild því við vorum að æfa
Sölku Völku á daginn,“ segir Magn-
ea sem einnig vinnur við að þjóna á
Kaffi List.
„Þetta var svolítil bilun á tímabili,
ha, ha, ha.“
Það er Magnea sem leikur Sölku
Völku á yngri árum í uppsetningu
Hafnarfjarðarleikhússins á Salka -
ástarsaga, leikgerð Hilmars Jóns-
sonar á skáldsögu Halldórs Laxness.
Hún leikur þar með atvinnuleikurum
og tveimur dögum eftir lokaprófin í
menntaskólanum verður hún komin
til Stokkhólms á leiklistarhátíðina
„Teater dagarna", þar sem Hafnar-
fjarðarleikhúsið flytur Sölku Völku
tvisvar sinnum.
„Við ætlum að reyna að sjá aðrar
sýningar líka, það er svo margt
spennandi á boðstólum þarna, eins
og leikhús frá Suður-Afríku og Sirk-
us Sirkör sem kom hingað í fyrra.“
Magnea hefur áður leikið fyrir út-
lenska áhorfendur, því í hitteðfyrra
tók hún þátt í samnorrænu verkefni
og lék Helenu í Draumi á Jónsmess-
unótt.
„Við töluðum öll okkar tungumál,
þannig að það voru fímm mismun-
andi tungumál í uppsetningunni. Það
var mjög skemmtilegt. Það gengur
alveg upp en maður verður samt að
ýkja hreyfingarnar og leikinn aðeins
til að skiljast betur.“
- Hvernig kom til að þú fékkst
hlutverkSölku Völku?
„Hilmar sá mig leika í Náttúruóp-
erunni, og hringdi í mig þegar hann
vantaði Sölku og bauð mér hlutverk-
ið. Þannig var það ákveðið.
-Hvað fannst þér um það?
„Ég fékk reyndar hugboð um
þetta. Fyrst þegar ég vissi að Hilmar
var að reyna að ná í mig hélt ég að
hann ætlaði að fá okkur krakkana í
leikfélaginu til að vera með í ein-
hverju, en svo fékk ég hugboð um að
hann ætlaði að bjóða mér að leika
Sölku Völku. Ég veit ekki af hverju.
Kannski af því að mig langaði svo
mikið til þess.“
- Vissir þú að þau ætluðu að setja
upp þetta verk?
„Nei, ég vissi það ekki þannig að
að þetta var svolítið dularfullt."
- Er þetta þá sýning sem hefur
breytt miklu fyrir þig?
„Já, ég myndi segja það. Það er
ótrúlega mikil reynsla að fá að vinna
með atvinnufólki, svo hefur Salka
Valka verið uppáhaldsbókin mín
svo lengi. Mér finnst Salka svo
skemmtileg persóna. Það er líka
gaman að fá að leika alvarlegt hlut-
verk. Ég hef mikið leikið súrrea-
lískar týpur, öfgakenndar persón-
ur og gamanhlutverk. Mig hafði
lengi langað að leika Sölku en datt
ekki í hug að það yrði að veru-
leika.“
Utþráin gengur fyrir
- Er það táknrænt fyrir þína
framtíð að þú skulir byrja hana
áþvíað fara til útlanda aðleika?
„Já, vonandi er hægt að segja það
því ég er svo mikið ferðalagafrík og
leiklistarfrík að þetta er gott upphaf
eftir útskrift og er eitthvað sem ég
myndi vilja gera í framtíðinni; bæði
að leika og fá að ferðast."
- En þarftu eitthvað að fara í leik-
hstarskóia? Kanntu þetta ekki ailt
eftir alla þessa reynslu?
„Nei, maður kann aldrei nóg. Mig
langar að læra meira um ólíkar leik-
listarstefnur. Síðan hef ég svo mik-
inn áhuga á alls konar tilraunaleik-
húsi og skemmtilegum litlum
leikhópum. Ég myndi vilja fara út og
kynnast því betur. Ég hef mikið ver-
Magnea í hlutverki Sölku í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
ið á Spáni og í Frakklandi og þar er
voðalega skemmtilegt líf og mikið að
gerast. En ég held að mig langi líka
að mennta mig á venjulega mátann,
eftir að hafa gert eitthvað óhefð-
bundið. Og kannski síðan stofna eig-
ið leikhús þegar ég verð stór.“
- Ferðaieikhús?
„Já, að stofna leikhús með góðum
vinum, gera það sem mann langar til
og vera frjáls og óbundinn."
- Er búið að bjóða þér hlutverk í
öðru leikriti?
„Það er ýmislegt í gangi og það
kemur í ljós hvað verður. Ég ætla
ekki að stressa mig yfir einu eða
neinu. Ég er með svo mikla útþrá að
ég verð að láta það ganga fyrir. Mig
langar að ferðast þar sem ég er ekki
lengur í skóla. Næst á dagskrá er
Suður-Ameríka. Mig langar að fá
tækifæri til að vinna þar og kynnast
menningunni í nokkrum löndum. Ég
hef ekki hugmynd um hvemig leik-
húsmenningin er þar og er mjög
spennt að komast að því.“
Ymislegt ad gerast í einkalífi fræga fólksins í Hollywood
Cage hættir við skilnað -
Goldberg einhleyp á ný
Reuters
Whoopi Goldberg og Frank
Langella eru skilin.
FRÉTTIR af ástarlífi fræga fólks-
ins ferðast fljótt og aldrei líður
langur tími frá því skilnaður, barn-
eignir eða þungun á sér stað þar til
heimspressan er komin í málið.
Fyrir sex vikum sótti leikarinn
Nicolas Cage um skilnað við eigin-
konu sína Patriciu Arquette. Sam-
band þeirra er sagt hafa verið
stormasamt en þau giftust árið
1995 en skildu á borði og sæng níu
mánuðum síðar. Síðan þá hafa þau
leikið saman í mynd og vinskapur
virst ríkja þeirra á milli. Það dró
síðan til tíðinda á dögunum er
Cage sótti um skilnað en nú hefur
hann dregið það til baka og er allt
útlit fyrir að þau hafi fundið ham-
ingjuna á nýjan leik. Whoopi Gold-
berg er hins vegar orðin ein á ný,
hætt með Frank Langella eftir
fimm ára samband. Parið kynntist
við gerð gamanmyndarinnar Eddy
og urðu strax nánir vinir. En nú er
sagan öll.
Söngkonan Diana Ross og við-
skiptajöfurinn Arne Naess gengu
frá skilnaði sínum á dögunum en
þau hafa verið gift síðan árið 1986
og eiga tvo syni.
Leikarinn Wiliiam Baldwin er
væntanlega öllu hressari en Whoopi
Goldberg enda nýbakaður faðir.
Hann er giftur fyrrverandi popp-
stjörnunni Chynna Philiips og eign-
uðust þau dóttur á dögunum sem
hlotið hefur nafnið Jameson Leon.
Vinir og vandamenn söngkon-
unnar Whitney Houston hafa
áhyggjur af henni um þessar mund-
ir, sér í lagi eftir að hún var gripin
með marijuana í fórum sínum á
flugvelli nýverið. Houston hefur oft
misst stjórn á skapi sínu undanfarið
og segja vinir hennar (sem fara síð-
an með allt í slúðurblöðin) að hún
eigi við fíkniefnavandamál að
stríða.