Morgunblaðið - 08.04.2000, Side 86

Morgunblaðið - 08.04.2000, Side 86
86 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Sokolov í * kröppum dansi á Grandrokk MorgunblaðiOTim Smart Hrafa Jökulsson, formaður Skákfélags Grandrokks, og Eyþór Arnalds voru meðal þeirra sem tefldu við Sokolov. STÓRMEISTARINN Ivan Sokolov frá Sarajevo í Bosn- íu lenti í kröppum dansi í fjöltefli á Grandrokk á mánudags- kvöldið. Sokolov, sem er 32 ára, er einn sterkasti skákmaður heims og getur m.a. státað af því að vera síðasti maðurinn sem lagði Garri Kasparov að velli í kappskák. Sok- olov tefldi við 18 skákmenn á Grandrokk, aðallega liðsmenn skáksveita félagsins en auk þess nokkra sérlega gesti. Skákklukkur voru notaðar og höfðu keppendur einn og hálfan tíma til umráða og þegar líða tók á kvöldið kom sér vel fyrir Sokolov að vera í góðu formi. Það er skemmst frá því að segja að Sokolov tapaði fjórum skákum og gerði tvö jafntefli en sigraði í tólf skákum. Reyndar má segja að hann hafi sloppið vel, því eins og hann upplýsti sjálfur óttað- ist hann um tíma að hann myndi tapa fjölteflinu. Þeir sem lögðu meistarann voru Kjartan Guð- mundsson, Tómas Björnsson og Flovin Þór Næs, allir úr Skákfé- lagi Grandrokk, og Sigurbjörn Björnsson, formaður Skákfélags Hafnarfjarðar. Jafntefli gerðu þeir Róbert Harðarson og Birgir Berndsen, báðir í Skákfélagi Grandrokk. Skák Róberts og Sok- olovs var æsispennandi, Róbert beitti Morra-gambít, sem er eitt leynivopna Grandrokkara, og þurfti Sokolov að verja miklum tíma og orku í að bjarga sér. Tóm- as tefldi sérlega vel og vann sann- færandi sigur í 24 leikjum en þá var staða Sokolovs rústir einar. Flovin Þór, sem var lærisveinn Sokolovs þegar hann þjálfaði í Færeyjum fyrir nokkrum árum, nýtti sér örlítið frumkvæði af mik- illi þolinmæði og sýndi að lexíurn- ar hjá Sokolov höfðu skilað sér. Sigurbjörn tefldi afar sannfærandi en þakkaði reyndar sigurinn að Sokolov fór illilega út af sporinu. Jafntefli Birgis Berndsens var síð- an kærkomið krydd í fjölteflið, en Birgir er einn hinna harðsnúnu stigalausu skákmanna Grandrokk sem hafa staðið sig með prýði í deildakeppninni síðustu tvö ár. Fjöldi skákáhugamanna fylgdist með fjölteflinu, m.a. stórmeistar- arnir Helgi Ólafsson, Wojtkewitz, Jan Timman, Hannes Hlífar og Þröstur Þórhallsson og var greini- legt að þeir öfunduðu Ivan Sokolov hreint ekki að þurfa að standa í svo snörpum orrustum á mörgum vígstöðvum í einu. f ‘í STEINAR WAAGE Sími 568 9212 Kringlu jAfmæli r Sissu tískuhúsi Fösnum 4 ára afmæli verslunarinnar 03 bjóðum viðskiptavinum okkar frábæran afmælisafslátt næstu dasa. Ath. Ný drastasendins. Verð frá kr. 14.900 Opið um helsina. &issa t-ískuhús ' Hverfisgötu 52, sími562 5ii0u^ OROBLU skrefi Fermingartilboð í Skóverslun Steinars Waage, Kringlunni, laugardag og sunnudag. 20% afslóttur af öllum OROBLU sokkabuxum. Kynning í dag kl. 13-17. oroblu@sokkar.is www.sokkar.is Nemendur í 1. B.B. sýndu Ieikritið um Rauðhettu og slepptu öllu ofbeldi; úlfarinn hvorki gleypti ömmuna né var drepinn! Arshátíð í Borgaskóla Kennaranemar við Borgaskóla sáu um að stjórna hópum 1.-3. bekkinga á árshátiðardaginn. Morgunblaðið/Jim Smart ÞAÐ FÓR ekki mikið fyrir hús- næði Borgaskóla haustið 1998 og fátt sem benti til að skólastarf væri aðhefjast. í dag er blóm- legt skólastarf í Borgaskóla sem enn er starfrækt- ur í færanlegum húsum en mun f haust taka í notk- un helming veg- legrar skólabygg- ingar sem verið er að reisa á lóðinni við Vættaborgir í Grafarvogi. Borgaskóli er eini skóiinn í Reykjavík sem eingöngu er starf- ræktur í lausum stofum. En ekki er allt sem sýnist og skóli er ekki hús heldur það sem fer fram f hús- unum, segir Árdis ívarsdóttir að- stoðarskólastjóri. Skólastjóri Borgaskóla er Guð- laug Sturlaugsdóttir og eru nem- endur skólans rúmlega 180 og mun fjölga i 250 næsta haust. Fyrsta starfsárið var í skólanum 1.-3. bekkur og í vetur stækkaði skólinn upp í 6. bekk. Á næstu ár- um mun skólinn vaxa jafnt og þétt og á endanum verða starfræktur fyrir 1.-10. bekk. Fyrstu tvö ár skólans hafa ein- kennst af jákvæðu uppbyggingar- starfí þar sem allir hafa lagt hönd á plóginn; kennarar, nemcndur, starfsfólk og ekki síst foreldrar. I síðustu viku var svokölluð árs- hátiðarvika. Þá unnu nemendur og kennarar að ýmsum undirbún- ingi og afrakstur hans kom i ljós á sjálfum árshátiðardeginum, 30. mars. Árshátíðin var tvískipt. 1.-3. bekkur sýndi skemmtiatriði, farið var í þrautabraut, horft á mynd- band, unnið saman að myndverki og haldið diskótek. Síðar um dag- inn buðu eldri nemendur foreldr- um sinum á skemmtidagskrá og að þiggja veitingar. Siðan var dansað fram eftir kvöldi eftir tónlist sem plötusnúður skólans stjórnaði. Stjórncndur Engjaskóla voru svo elskulegir að lána Borgaskóla sal Engjaskóla og var hann listilega skreyttur af myndlistarhópnum. ögnum m mm Opnunartími nán.—föstud. frá kl. 12-18 og laugard. frá kl. 11 — 14 Mörkfinni 3 - Símfi 588 0640

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.