Morgunblaðið - 19.04.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 1 5
AKUREYRI
Fæðingar- og kvensjúkdómalæknir á FSA kærir uppsögn sína til heilbrigðisráðherra
Heildverslun Valgarðs Stefánssonar á Akureyri
Morgunblaðið/Margrét Póra
Guðmundur Gunnarsson lyá Heildverslun Valgarðs Stefánssonar við störf sín í heildsöluvöruhúsinu.
Ing-i Björnsson ráðinn útibússtjóri
fslandsbanka
Agætur tíma-
punktur til að
skipta um starfs
vettvang
INGI Björnsson hefur verið ráðinn
útibússtjóri fyrir útibú íslan-
dsbanka á Akureyri og tekur hann
við stöðunni í byijun júlí í sumar.
Ingi er fæddur á Siglufirði árið
1956, hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri árið
1977 og nam hagfræði við háskól-
ann í Gautaborg, en þaðan braut-
skráðist hann með meistara-
prófsgráðu árið 1984. Að námi
loknu kom hann til starfa á Akur-
eyri og hefur fjölbreytta reynslu af
atvinnulífi bæjarins. Hann var í
fyrstu rekstrarráðgjafí hjá Iðnþró-
unarfélagi Eyjafjarðar og síðar
framkvæmdastjóri þess félags, þá
var hann um skeið fjármálastjóri
hjá Alafossi og um eins árs skeið
var hann framkvæmdastjóri þáver-
andi dótturfélags Útgerðarfélags
Akureyringa, Mecklenburger
Hochseefischerei íÞýskalandi. Um
fjögurra ára skeið var hann fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri en frá árinu
1995 hefur hann gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra Slippstöðvarinnar
og frá því stöðin var sameinuð
Stálsmiðjunni í september síðast-
liðnum hefur hann verið aðstoðar-
framkvæmdastjóri Stáltaks. Þá hef-
ur Ingi átt sæti í stjórn fjölmargra
fyrirtækja undanfarin 15 ár.
Ánægjuleg ár í Slippstöðinni
„Þetta hafa verið ánægjuleg ár
þjá Slippstöðinni, það hefur verið
uppgangur í járniðnaði og rekstur-
Ingi Björnsson
inn gengið vel. Þannig að ég kveð
félaga mína með nokkurri eftirsjá.
Það má segja að nú séu ákveðin
tímamót, sameining Slippstöðvar-
innar og Stálsmiðjunnar hefur
gengið í gegn og fyrirtækið er kom-
ið í fastar skorður. Mér fannst því
þetta vera ágætur tímapunktur til
að skipta um starfsvettvang," sagði
Ingi. „Ég horfi björtum augum á
nýtt starf í Islandsbanka og hlakka
til að vinna með því ágæta starfs-
fólki sem þar er.“
Eiginkona Inga er Margrét
Baldvinsdóttir og eiga þau 3 böm.
Nýr deildarstjóri
Ríkisútvarpsins á Akureyri
Sigurður Þór
Salvarsson ráðinn
SIGURÐUR Þór Salvarsson hefur
verið ráðinn deildarstjóri Ríkisút-
varpsins á Akureyri.
Hann tekur við stöðunni af Arnari
Páli Haukssyni.
Sigurður Þór fékk öll atkvæði út-
varpsráðsmanna á fundi ráðsins í
gær, en alls sóttu fimm manns um
stöðuna. Sigurður Þór er fjölmiðla-
fræðingur frá Háskólanum í Gauta-
borg í Svíþjóð. Hann hefur starfað
hjá Ríkisútvarpinu í 12 ár og þar af
sem fréttamaður á Akureyri frá ár-
inu 1996.
Nýtt heildsöluvöru-
hús hefur verið opnað
HEILDVERSLUN Valgarðs Stef-
ánssonar hefur opnað nýtt heild-
söluvöruhús fyrir fyrirtæki og
stofnanir. Þá hefur nýtt vörumerki
verið tekið í notkun hjá heildversl-
uninni með tilvísun í VALgarð, þ.e.
viðskiptavinir geta nú valið um það
að koma sjálfir og velja sér vörur
úr heilum pakkningum úr hillum
eða fá þær sendar til sín eins og áð-
ur.
Valgarður Stefánsson stofnaði
heilsverslun á Akureyri sumarið
1933, en hann lést árið 1975. Frá
upphafi var lögð áhersla á þjónustu
við verslanir á Norðurlandi. Ný
stjórn og framkvæmdastjóri, Frið
rik Ingi Friðriksson, tók við rekstr-
inum í nóvember á síðasta ári og
hafa miklar breytingar verið gerð-
ar í kjölfar þess. Markmið félagsins
hafa verið skýrð, bætt hefur verið
við sölufólki og áhersla lögð á að
breyta heildversluninni í vöruhús
til að þjónusta fyrirtæki og stofn-
anir á sviði matvara og hreinlætis-
vara auk þess að þjónusta matvöru-
verslanir og söluturna sem fyrr.
Stefnt er að því að Heildverslun
Valgarðs Stefánssonar verði
stærsta heildsöluvöruhús á Norður-
landi og hafa tekist samningar við
dótturfyrirtæki Kaupfélags Eyfirð-
inga um samstarf í dreifingu og
þjónustu. Einnig hafa tekist samn-
ingar við BESTA ehf. um dreifingu
hreinlætisvara og áhalda og opnuð
hefur verið ný hreinlætisdeild með
vörum frá Besta og Sjöfn. Húsnæði
heildverslunarinnar hefur verið
endurnýjað og eru áætlanir for-
svarsmanna þess að stækka hús-
næðið fljótlega um helming.
Vöruúrvali hefur verið breytt og
eigin innflutningur hefur aukist og
verður bryddar upp á ýmsum nýj-
ungum, meðal annars verða tilboð á
hinum ólíklegustu vörum á vöru-
brettum. Nú eru safndúkkur og
bökunarform á tilboðspöllum hjá
heildversluninni ásamt hefðbundn-
ari vöru eins og mat- og hreinlætis-
vöru.
Kaffisölu Hlífarkvenna
frestað um sinn
KVENFÉLAGIÐ Hlíf hefur um
árabil staðið fyi-ir kaffisölu á sum-
ardaginn fyrsta og hefur það verið
aðalfjáröflunardagur félagsins. í
ár ber hins vegar sumardaginn
fyrsta og skírdag upp á sama dag
og því mikið um fermingar og
veislur.
Hlífarkonur hafa því ákveðið að
fresta kaffisölu sinni til 7. maí nk.
Þær senda velunnurum sínum,
Akureyringum og Norðlending-
um, öllum bestu óskir um gleði-
legt sumar og þakka allan stuðn-
ing undanfarinna ára. Vonast
Hlífarkonur til að sjá sem flesta í
safnaðarsal Glerárkirkju 7. maí
kl. 15.
„Það hefði verið hægt
að fínna aðra lausn“
JÓNAS Franklín, fæðinga- og kven-
sjúkdómalæknir, sem sagt var upp
störfum hjá Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri í lok janúar sl., hefur kært
uppsögnina til heilbrigðisráðherra og
jafnframt óskað eftir því að hún verði
dregin til baka. Jónas hefur starfað
sem sérfræðingur á FSAí samfellt 18
ár og hann sagði í samtali við Morg-
unblaðið að uppsögnin hafi að sínu
mati verið óvænt, ómakleg og hastar-
leg.
Jónas sagði að uppsögn sín hinn 31.
janúar hefði verið fyrirvaralaus en
hann telur að hægt hefði verið að
finna lausn á þessu máli á annan hátt.
Ekki var óskað eftir því að Jónas ynni
þriggja mánaða uppsagnarfrest sinn.
Jónas sagði að sér hefði verið tjáð
að ýmsar ástæður lægju að baki upp-
sögninni, m.a. samstarfsörðugleikar
og mistök í starfi. Hann leitaði eftir
frekari skýringum og hefur m.a.
fengið greinargerð frá framkvæmda-
stjórn og afrit af gögnum sem máli
hans tengjast. Jónas hefur jafnframt
skilað inn greinargerð um sína starfs-
hætti við sjúkrahúsið og einnig hefur
hann lagt fram mótrök við þau atriði
sem vitnað er til. Hann telur sig hafa
hrakið þau rök sem lögð voru fram,
nema einna helst þau atriði er lúta að
samstarfsörðugleikum og persónu-
legum ágreiningi um læknisverk og
stjómun kvennadeildarinnar.
Leitað eftir málefnalegri
umfjöllun
Jónas hefur einnig leitað álits lög-
fræðinga í Reykjavík á máli sínu og
þá hefur hann
óskað eftir málefnalegri umfjöllun
um mál sitt af hendi Læknafélags ís-
lands, Læknafélags Akureyrar, auk
þess sem hann hefur leitað til land-
læknis, læknaráðs FSA og stjórnar
FSA. Jónas sagði að stjórn FSA hafi
ekkert haft um málið að segja og að-
eins fengið að vita af því eftir að hon-
um var sagt upp störfum. „Ég bíð
bara eftir viðbrögðum frá þessum að-
ilum.“
Jónas sagði að það séu dæmi þess
að menn hafi verið beðnir um að
skoða
hvort rétt hafi verið staðið að mál-
um varðandi aðgerðir og hann telur
sig hafa hreinan skjöld hvað það
snertir. Hann viðurkennir hins vegar
að það hafi fallið dómur árið 1996 í
máli konu sem hann gerði aðgerð á og
að þar hafi verið talið að um mistök
hafi verið að ræða.
Jónas hefur rekið eigin læknastofu
til fjölda ára og starfar nú eingöngu
þar.
Hann hefur óskað eftir því að fá að
vinna ferliverk á sjúkrahúsinu ef eng-
in lausn finnst á hans máli en svar við
þeirri málaleitan hefur ekki borist.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær hafa undirskriftalistar með
nöfnum um 400 kvenna frá Akureyri
og nágrenni verið sendii’ fram-
kvæmdastjóm FSA, þar sem kon-
umar mótmæla uppsögn Jónasar.
Konurnar vilja hafa hann áfram í
starfi og fara fram á að uppsögnin
verði dregin til baka.
Lífsvog borist nokkur mál
Halldór Jónsson, framkvæmda-
stjóri FSA, sagðist ekki vilja tjá sig
um mál Jónasar, enda ekki venja að
ræða mál einstakra starfsmanna
frekar en sjúklinga á opinberum vett-
vangi. Hann sagði að erindi þeirra
kvenna sem sendu framkvæmda-
stjóm FSA undirski-iftalista Jónasi
til stuðnings, yrði meðhöndlað eins
og hvert annað erindi sem til spítal-
ans berst.
Jómnn Anna Sigurðardóttir, vara-
formaður Lífsvogar, sagði að nokkuð
mörg mál hefðu borist samtökunum
sem tengjast störfum Jónasar
Franklín en samtökin aðstoða fólk
vegna meintra læknamistaka. Hún
sagðist jafnframt undrandi á því að
lagðir hefðu verið fram undirskrifta-
listar Jónasi til stuðnings, enda þyi’fti
töluvert til svo lækni væri vikið frá
störfum.