Morgunblaðið - 19.04.2000, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Bandarískir hlutabréfamarkaðir að rétta úr kútnum eftir mikla lækkun
Nasdaq
„beygður
markaður“
SKIPTAR skoðanir eru um það í
Bandaríkjunum hvort lækkunar-
hrinan sem dunið hefur yfir á
bandarískum hlutabréfamörkuðum
sé liðin hjá og ástandið sé orðið
stöðugt.
Margir hlutabréfasérfræðingar í
Bandaríkjunum eru þeirrar skoð-
unar, að ekki sé ástæða til að ör-
vænta. Ekkert bendi til að fall
Nasdaq-vísitölunnar muni hafa
áhrif á bandaríska markaðinn í
heild, heldur miklu frekar áhrif á
verð bréfa í tæknifyrirtækjum.
Þeir benda á að þrátt fyrir lækk-
unina á Nasdaq-vísitölunni í síð-
ustu viku, hafi hún einungis lækk-
að um 18% frá áramótum, og hafi
frá sama tímapunkti á árinu 1999
stigið um 42%. Hún hafí einnig eft-
ir lækkunina á föstudag verið enn
yfir því sem hún var 15. desember.
sl., eða fyrir fjórum mánuðum.
Jafnframt segja þeir að hér sé á
ferðinni leiðrétting á verði tækni-
fyrirtækja. Slíkt hafi margoft áður
gerst á bandarískum mörkuðum
og þeir komist fljótt aftur í samt
horf.
Við lokun Nasdaq-markaðarins
á föstudaginn síðasta hafði vísitala
hans lækkað á einum degi um
9,67% og 34,2% frá 10. mars sl.,
þegar hún náði sögulegu hámarki.
Dow Jones-iðnaðarvísitalan lækk-
aði um 5,66% þennan dag og hafði
þá fallið um tæp 9% frá því á
þriðjudag.
Nasdaq-vísitalan hækkaði um
6,6% í fyrradag og Dow Jones-
vísitalan um 2,5%. Hækkunin hélt
áfram í gær, en um miðjan dag
hafði Nasdaq hækkað um 5% og
Dow Jones hafði einnig hækkað.
Líkt við aðdraganda
hrunsins mikla
Sumum hefur þótt lækkunar-
hrinan nú minna um margt á að-
draganda hruns bandaríska hluta-
bréfamarkaðarins árið 1929 og
hrunsins sem varð 19. október
1987. Fróðlegt er að rifja upp hver
aðdragandi þessara tveggja
verðhruna var og hversu mikil
lækkun varð.
Frá aldamótum fram til hruns-
ins 1929 var ekki óalgengt að
bandaríski markaðurinn lækkaði
um 40-50% frá fyrra hámarki.
Arðgreiðslur voru reyndar hærri
en nú gerist og milduðu þessi áhrif
eitthvað. Árið 1923 hófst langt
skeið hækkana og á því tímabili
Reuters
fimmfölduðust hlutabréfin í verði.
Vel áraði í efnahagslífi í Banda-
ríkjunum á þessum tíma, miklar
framfarir urðu í framleiðslu, bíla-
eign varð almennari og það fjölg-
aði í miðstéttinni.
Snemma árs 1929 fór ví rkárari
mönnum að hætta að lítas! á blik-
una, en spákaupmenn hristu það af
sér og markaðurinn flaug enn
hærra og stóð í hámarki í byrjun
september 1929, í 382 stigum.
Hann seig næstu vikurnar, en
bjartsýni var þó ríkjandi.
Slæmar fréttir bárust þetta
haust og sveiflurnar jukust. Mið-
vikudaginn 24. október 1929 féllu
bandarísku hlutabréfin í Dow Jon-
es-vísitölunni um nærri 7%. Dag-
inn eftir, hinn svarta fimmtudag,
25. október, voru spákaupmenn á
nálum og framan af deginum voru
hlutabréf í frjálsu falli. Þá reyndu
bankar í New York, með J.P.
Morgan fremstan í flokki, að
styðja við markaðinn með kaupum
og þeim tókst að endurvekja
traust fjárfesta og rétta markað-
inn af.
En eftir helgina héldu menn
áfram að selja, mánudagurinn var
mjög slæmur, en þá féllu hlutabréf
í Dow Jones-vísitölunni um 13% og
þriðjudaginn 29. október var sett
nýtt viðskiptamet í kauphöllinni á
Wall Street. Þá varð algjört hrun
fram eftir degi enda orðið augljóst
að bjargvættirnir í bönkunum
lögðu ekki í að setja meiri peninga
í að styðja við markaðinn. Það
varð 12% fall og við lok dagsins
stóð vísitalan í 230 stigum.
Dow Jones lækkaði
um 22,6% á einum degi 1987
Árið 1987 varð mikið verðfall á
bandarískum hlutabréfum, m.a.
lækkuðu þau um heil 22,6% á að-
eins einum degi, 19. október. Þetta
olli ekki neinni kreppu, enda gripu
bandarísk peningamálayfirvöld
snarlega inn í og greiddu fyrir við-
skiptum á peningamarkaðnum.
10% lækkun er leiðrétting
Erlendis tala margir sérfræð-
ingar um það að 10% lækkun á
hlutabréfavísitölum sé leiðrétting
á verði bréfa, en þegar markaður
er dottinn niður um meira en 20%
frá toppi tala menn um það sem á
ensku er kallað „bear market“.
Margeir Pétursson, framkvæmda-
stjóri MP Verðbréfa, þýðir þetta
hugtak og kallar „beygðan mark-
að“ í grein á vefsíðu fyrirtækisins.
5,7% lækkunin á Dow Jones-
vísitölunni á föstudaginn síðasta
var mesta gengislækkun sem orðið
hefur á vísitölunni á einum degi.
Þessi staðreynd getur þó gefið vill-
andi mynd af ástandinu. Prósentu-
breytingin á vísitölunni, sem hefur
meira gildi, var einungis sú 40.
mesta frá upphafi. Og það sem
meira er, að prósentubreytingin á
föstudaginn var, bliknar í saman-
burði við þá 22,6% lækkun sem
varð á vísitölunni 19. október 1987.
Dow Jones hefur lækkað um
12% frá því meti sem sett var í
janúarmánuði og því er talað um
að hlutabréfaverð á Wall Street
hafi tekið leiðréttingum með þess-
um lækkunum. Samkvæmt skil-
greiningunni telst Nasdaq hins
vegar „beygður markaður" eftir
lækkanirnar í síðustu viku. Til
vitnis um það er 34,2% lækkunin
frá hámarki vísitölunnar hinn 10.
mars.
Nasdaq-markaðurinn hefur frá
stofnun, 1971, verið „beygður“ í
alls níu skipti. Síðasta skipti sem
hann náði því marki var 20. júlí
1998, er lækkunin nam 29,6%.
Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni.
Hlutabréf Kögunar hf.
á Verðbréfaþing íslands
Stjórn Verðbréfaþings íslands hefur ákveðið að taka öll hlutabréf
Kögunar hf., alls kr. 90.000.000, á skrá Aðallista enda hafi skilyrði
skráningar verið uppfyllt. Bréfin verða skráð fimmtudaginn 27.
apríl nk.
Kaupþing hf. hefur umsjón með skráningunni og er hægt að fá
skráningarlýsinguna í afgreiðslu Kaupþings, Ármúla 13a, 108
Reykjavík.
Einnig er hægt að nálgast skráningarlýsinguna á vef Kaupþings;
www.kaupthing.is.
ÍS
KAUPÞING
Kaupþing hf. • Ármúla 13A • Reykjavík
sími 5151500 • fax 5151509 • www.kaupthing.is