Morgunblaðið - 19.04.2000, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.04.2000, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Réttað yfír Kosovo- Albönum RÉTTARHÖLD hófust í gær í borg- inni Nis í Júgóslavíu yfír 145 Kos- ovo-AIbönum sem sakaðir eru um hryðjuverk gegn serbneskum örygg- islögreglumönnum. Mennirnir voru handteknir í Djakoviea í Kosovo í fyrra meðan loftárásir flugvéla Atlantshafsbandalagsins stóðu yfir. Peir eru m.a. sagðir hafa myrt þrjá lögreglumenn og geta hlotið allt að 15 ára fangelsi ef þeir verða fundnir sekir. Natasa Kandic, leiðtogi mann- réttindasamtaka í Belgrad, sagði að sögn AP að um óbreytta borgara væri að ræða er ekki hefðu gert neitt af sér. „Þetta eru pólitísk réttar- höld,“ sagði hún. BNFL í Bretlandi Ráða- menn í Sellafíeld reknir BRESKA kjamorkueldsneytis- fyrirtækið BNFL skýrði í gær frá því að gripið yrði til aðgerða á næstu tveim árum til að herða öryggisráðstafanir í Sellafield- endurvinnslustöðinni og nokkr- um af æðstu stjómendum þar yrði vikið úr starfi. Stjómvöld á Irlandi og á Norðurlöndunum óttast sjávarmengun írá stöð- inni og hafa krafist þess að end- urvinnslu kjamorkuúrgangs verði hætt í Sellafield vegna þess að öryggi hefur reynst ábótavant. Endurvinnslustöðin varð fyr- ir miklu áfalli í febrúar er birt var skýrsla þar sem upplýst var að starfsmenn hefðu falsað skýrslur um öryggiseftirlit og mun ástæðan hafa verið að þeir nenntu ekki að sinna eftirliti með framleiðslunni. Japanar sem keypt hafa plúton frá verksmiðjunni hafa hætt við- skiptum við hana vegna þess að varan reyndist gölluð. Að sögn The Irish Times verða yfirmenn starfsmanna- stjómar og íjármála meðal þeirra sem taka pokann sinn. Skipað verður í nýja stöðu yfir- manns heilbrigðismála, öryggis og umhverfisvemdar til að fylgj- ast með öryggisaðgerðum á staðnum. Að sögn netútgáfú BBC álíta írska stjómin og umhverfissam- tökin Greenpeace ekki að um- bætumar nægi og halda fast við kröfuna um lokun. Störf þús- unda manna eru í hættu ef Sella- field-stöðin verður lögð niður. IpRáTTIH ■t»f tyrlr «taf. Reuters Nokkrir Kosovo-mannanna í fylgd serbneskra varða á leið í dómsalinn. „Kristur“ kross- festur / á Italíu ÍBÚAR þorpsins Tor Lupara á ítah'u setja hér á svið krossfest- ingu Jesú Krists sem hluta af há- tíðarhöldum sem fram fóru í bænum sl. sunnudag. Á hverju ári taka þorpsbúar þátt í að setja á svið þrjá síðustu dagana í lífi Jesú og leika þeir allt frá síðustu kvöldmáltíð Krists til upprisu hans. Hundruð svip- aðra hátiða eru haldnar á hverju ári víðsvegar um Italíu dagana fyrir páska. Reuters Dómi yf- ir Sharif áfrýjað VERJENDUR Nawaz Sharifs, fyrr- verandi forsætisráðherra Pakistans, og saksóknari áfrýjuðu í gær lífstíð- ardómi sem Sharif var úrskurðaður í fyrir flugrán og hryðjuverk. Verj- endur Sharifs vilja fá dóminum aflétt en saksókn- ari krefst dauða- refsingar. „Við erum ekki sátt við úrskurð- inn og teljum ekki að dómari hafi veitt full- nægjandi skýr- ingu á því af hverju hann hafi mildað dóminn," sagði Raja Quereshi, aðalsaksóknari í máli Sharifs, í gær, en hann vill við- halda sinni fyrri kröfu um dauða- dóm. Það var í október á síðasta ári að Sharif var ákærður fyrir landráð og samsæri um að myrða Pervez Mush- arraf hershöfðingja. Herinn tók völdin í Pakistan í sínar hendur nokkrum klukkustundum síðar og lét þá fangelsa Sharif, en Musharraf lýsti sig leiðtoga ríkisins. Dómari sérstaks hryðjuverka- dómstóls fann í kjölfarið Sharif sek- an um flugrán og hryðjuverk, en úr- skurðaði hann saklausan af ákæru um morðtilraun og mannrán. Sharif sjálfur hefur hins vegar allan tímann haldið fast fram sakleysi sínu. Málaferlum kann að seinka Aætlað er að réttarhöld hefjist að nýju 2. maí nk., en áðm- verða dóm- arar að úrskurða hvort þeir eigi að verða við ósk lögfræðinga Sharifs um að hindra að eignir hans verði gerðar upptækar, líkt og fyrri dóm- urinn kveður á um, á meðan mála- ferlin standa yfir. Slíkt er talið kunna að seinka málsmeðferð um nokkrar vikur. Falli lögfræðingum Sharifs síðan ekki úrskurður dómaranna tveggja, sem í málinu dæma á áftýjunarstigi, geta þeir farið með málið fyrir hæstarétt. Vinnuhópur á vegum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna mun á næstu mánuð- um ræða breytingar á framkvæmd efnahagslegra refsiaðgerða Markmiðið skilvirkari og mannúðlegri refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP. VINNUHÓPI á vegum öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna hefur verið falið að athuga, hvernig breyta megi framkvæmd efnahags- legra refsiaðgerða þannig að þær skili betri árangri. Að sögn Lloyds Axworthy, utanríkisráðherra Kan- ada, sem nú fer með formennsku í ráðinu, er markmiðið ekki einungis að auka skilvirkni aðgerða heldur einnig að reyna að koma í veg fyrir að þær bitni fyrst og fremst á óbreyttum borgurum. A málþingi á mánudag, sem haldið var í New Ýork á vegum Al- þjóðlegu friðarakademíunnar (IPA) varaði Kofi Annan, framkvæmda- stjóri SÞ, við því að vaxandi and- stöðu gætti meðal almennings vegna efnahagslegra refsiaðgerða. Nú eru í gildi efnahagslegar refsiaðgerðir gegn þremur ríkjum, írak, Líbýu og Júgóslavíu. Annan sagði á málþinginu, þar sem sendiherrar flestra ríkja er eiga aðild að öryggisráðinu voru viðstaddir, að refsiaðgerðirnar er voru samþykktar gegn Irak að loknu Persaflóastríðinu árið 1990 hefðu að margra mati haft hrikaleg áhrif á líf almennra borgara, þótt sú hefði ekki verið ætlunin. í nýrri skýrslu um refsiaðgerðir SÞ á síðasta áratug kemur fram að frá árinu 1990 hafi verið samþykkt- ar refsiaðgerðir gegn 12 ríkjum en einungis gegn 2 ríkjum síðustu 45 árin á undan. Ber skýrslan heitið „Refsiaðgerðaáratugurinn". Skýrslan var lögð fram á mánudag og rædd ítarlega í öryggisráðinu að loknu málþingi IPA. Eiga að vera hvati ekki einungis refsing Sendiherra Frakka hjá SÞ, Jean-Daniel Levitte, sagði er hann ávarpaði ráðið að refsiaðgerðir ættu í eðli sínu ekki fyrst og fremst að refsa heldur að hvetja ríki til að breyta hegðun sinni. Því væri nauðsynlegt að ákveða fyrir- fram, hvaða skilyrði ríki yrðu að uppfylla til að aðgerðum yrði af- létt. Lagði hann einnig til að refsi- aðgerðum yrði markaður ákveðinn tímarammi. James Cunningham, fulltrúi Bandaríkjanna í umræðum í ráð- inu, sagði hins vegar að ef aflétta ætti refsiaðgerðum yrði að liggja fyrir staðfesting á því að viðkom- andi ríki hefði breytt hegðun sinni. Hann sagði aðgerðir af þessu tagi vera valdbeitingu er menn ættu ekki að skammast sín fyrir enda nauðsynlegar til að binda enda á „óviðunandi hegðun" einstakra ríkja. Jafnt Levitte sem Axworthy tóku undir að refsiaðgerðir væru réttlætanlegar í sumum tilvikum enda hefðu þær stundum sannað gildi sitt. Nefndi Levitte sérstak- lega dæmi Suður-Afríku í því sam- bandi sem og að Líbýustjórn hefði ákveðið að framselja mennina, er grunaðir eru um að hafa staðið að baki Lockerbie-tilræðinu. Levitte sagði það vera skoðun Frakka að aðgerðirnar gegn írak hefðu skilað verulegum árangri en að þær hefðu verið víkkaðar það mikið út að hinn mannlegi kostnað- ur væri orðinn meiri en hugsanleg- ur árangur á öðnim sviðum rétt- lætti. Sendiherrar þeirra fimmtán ríkja, er aðild eiga að ráðinu, sam- þykktu samhljóða að loknum um- ræðum að stofna vinnuhóp til að móta tillögur að breyttri fram- kvæmd refsiaðgerða. Er honum ætlað að skila skýrslu fyrir 30. nóvember. Nýsjálendingar vilja breytingar Ríkisstjórn Nýja-Sjálands greindi frá því í gær að hún teldi rétt að endurskoða refsiaðgerðirn- ar gegn írak. Phil Goff, utanríkis- ráðherra Nýja-Sjálands, sagði Saddam Hussein vera grimman einræðisherra og að allt sem hægt væri yrði að gera til að koma í veg fyrir að Irakar kæmu sér upp gjör- eyðingarvopnum. Hins vegar væri ljóst að það væri almenningur í landinu er bæri þungann af refsi- aðgerðunum á meðan valdastéttin lifði áfram í vellystingum. „Við höf- um komist að þeirri niðurstöðu að það verði að gera einhverjar breyt- ingar á refsiaðgerðunum,“ sagði Goff.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.