Morgunblaðið - 19.04.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 27
ERLENT
Mannréttindaráð
Sameinuðu þjóðanna
Komið í
veg fyrir
gagnrýni
á Kína
Washington. AP, AFP.
KÍNVERJAR komu í gær í veg
fyrir að tillaga Bandaríkjanna um
að Mannréttindaráð Sameinuðu
þjóðanna fjallaði um mannréttinda-
mál í Kína næði fram að ganga. Á
fundi Mannréttindaráðsins, sem
fram fór í Genf í Sviss, studdu 22
þjóðir gagntillögu Kínverja um að
taka málið ekki á dagskrá. Aðeins
18 þjóðir greiddu atkvæði á móti
gagntillögunni en 12 sátu hjá. Full-
trúi eins ríkis sem aðild á að Mann-
réttindaráðinu, Rúmeníu, var ekki
viðstaddur atkvæðagreiðsluna.
Tillaga Bandaríkjanna fól í sér
gagnrýni á kínversk stjórnvöld fyr-
ir bágt ástand mannréttindamála í
landinu og lögðu bandarísk stjórn-
völd mikla áherslu á að hún næði
fram að ganga. Hliðstæð tillaga
hefur alls átta sinnum verið felld á
fundum ráðsins síðasta áratug.
Bandaríkjamenn tilkynntu fyrir
nokkrum mánuðum að þeir hygð-
ust beita sér fyrir gagnrýnum um-
ræðum um kínversk manriréttinda-
mál á fundi Mannréttindaráðsins í
Genf, sem er sá 56. í röðinni. Til
marks um hversu mikilvægt
bandarísk stjórnvöld hafa talið að
tryggja tillögunni framgang má
nefna að Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, fór
sérstaka ferð til Genf í mars sl. til
að reyna að vinna henni fylgi meðal
aðildarríkja Mannréttindaráðsins.
Viðskiptahagsmunir í húfi
Bandarísk stjórnvöld telja að
ástand Mannréttindamála í Kína
hafi versnað mjög á síðasta ári og
t.a.m. hafi kúgun minnihlutahópa
aukist. Talið er að með tillögunni
hafi Bandaríkjastjórn viljað auka
líkur á því að Bandaríkjaþing sam-
þykki að taka upp eðlilegt við-
skiptasamband við Kína. Hingað til
hafa þingmenn og ýmsir forystu-
menn hagsmunahópa í Bandaríkj-
unum verið andvígir því að tekin
yrðu upp eðlileg viðskiptatengsl
við Kína af þeirri ástæðu að slíkt
hefur verið talið binda hendur
stjórnvalda að því er varðar gagn-
rýni á mannréttindabrot þar. Álitið
er að tillögunni hafi verið ætlað að
sýna fram á hið gagnstæða.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa
beitt sér fyrir því að auka viðskipti
við Kína en ein forsenda þess er að
Kínverjar fái aðild að Alþjóðavið-
skiptastofnuninni (WTO). Kínverj-
ar hafa lagt áherslu á að Banda-
ríkin verði að koma á eðlilegum
viðskiptatengslum milli landanna
áður en Kína geti fengið aðild að
WTO. Aðild Kínverja að WTO
hefði í för með sér stóraukinn
markaðsaðgang fyrir bandarískar
framleiðsluvörur í Kína.