Morgunblaðið - 19.04.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.04.2000, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ KARL KRISTINN * KRISTJÁNSSON Mér verður um hjarta svo heitt og kalt í hvamminum, þar sem urðin valt. Hér dvelur mín sál, hér dreymir mig allt, sem drottinn oss gaf - til að unna. (Binar Ben.) + Karl Kristinn Kristjánsson fæddist á Akranesi 17. febrdar 1979. Karl lést af slysför- um 10. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Kristján Sveins- son, f. 6. maí 1949, svæðissljdri Olíufé- lagsins á Vestur- landi, og Sigrún Halla Karlsdóttir, f. 30. júlí 1951, sjúkra- liði, búsett á Akra- nesi. _ Systkini Karls eru Áinúldur, ferða- fræðingur hjá SL, f. 15. desember 1975, og Sveinn, f. 7. desember 1984, nemi. Unnusta Karls er Guð- rún Hjörleifsdóttir, f. 2. desember 1982, nemi. Foreldrar Kristjáns voru Sveinn Kr. Guðmundsson, fv. bankaútibússljóri á Akranesi, og Guðrún Þórey Ornólfsdóttir, hús- móðir á Akranesi. Foreldrar Sig- rúnar eru Álfhildur Ólafsdóttir, búsett í Bandaríkjunum, og Karl Sigurðsson, fv. kaupmaður á Akranesi. Stjúpmóð- ir Sigrúnar er Krist- ín Sigurðardóttir. Karl byijaði ung- ur að æfa bæði knattspyrnu og sund. Hann vann til fjölda verðlauna á sundferli sínum, varð Akranesmeist- ari í sundi í nokkur ár og setti einnig fs- landsmet í baksundi 1994. Karl útskrifaðist sem stúdent af hag- fræðibraut frá Fjöl- brautaskóla Vesturlands vorið 1999, var skólaráðsfulltrúi nem- enda í stjórn FVA og var bóksölu- stjdri í skólanum. Sat í miðstjórn og framkvæmdanefnd NFFA og var formaður Viskuklúbbs skdl- ans. Karl tók einnig þátt í ræðu- keppnum framhaldsskólanna fyr- ir hönd skólans. Útför Karls Kristins fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Hinsta kveðja foreldra -,;.t og systkina Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér, mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Hann Kalli okkar var strax sem barn óvenjulega ijúfur og bóngóður drengur. Þessi þáttur í fari hans var __ mjög einkennandi, auk þess sem greiðasemi og hjálpsemi voru honum í blóð borin. Það sama gilti um hressileikann, hreinskiptnina og ein- lægnina. Hann gat verið fastur fyrir en hann fór vel með það og oft var hann einstaklega laginn við að leiða mál farsællega til lykta. Hann var alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd þegar hann taldi að það mætti að gagni koma og hann ein- faldlega sóttist eftir að vemda þá sem á einhvern hátt áttu undir högg að sækja. Við sem næst honum stóðum undruðumst oft hve þetta var ein- lægur þáttur í persónuleika svo ungs manns. j*. Það var stolt fjöiskylda sem fylgd- ist með árangrinum sem hann náði í sundinu og þeim verkum sem hann tók sér fyrir hendur á þeim vett- vangi. Keppni var hluti af lífinu án þess þó að yfirskyggja nokkum tíma hið eiginleg markmið um uppbyggilegt líferni. Heilbrigt líferni var honum í blóð borið og misnotkun á lífsins gæðum og lystisemdum var honum ekki að skapi. Honum var mikið í mun að ná þeim þroska sem honum var mögu- legt og gekk jafnvel í gegnum gelgjuskeiðið á ótrúlega yfirvegaðan hátt. Fyrir nokkra hafðirðu tekið stefn- una á Samvinnuháskólann á Bifröst og í því tilliti skyldi fetað í fótspor pabba. Undirstöðum undir seinni námsáfanga hafði verið komið fyrir og stefnan að flestu leyti mörkuð. Við voram stolt að hlusta á þig flytja hátíðarræðuna í Akraneskirkju 17. júní 1999 er þú fluttir fyrir hönd nýstúdenta. Þú komst inn á í ræðu þinni að þið nýstúdentar værað á krossgötum í lífi ykkar, nú eftir margra ára skólagöngu myndi leiðir ykkar sumra skilja því þið yrðuð að fara að ákveða hvað þið ætluðuð að "*.gera og verða í framtíðinni. En þú hafðir ákveðið þig, og við voram inni- lega stolt af þinni ákvörðun. Lokaorð þín í þessari ræðu eru okkur sérstak- lega minnisstæð, en þar sagðir þú; „Það er bjart framundan hér á ís- landi þegar við nálgumst nú á hrað- flugi tuttugustu og fyrstu öldina. _ Framtíðin er björt og tækifærin hafa ‘•'áldrei verið fleiri og betri. Höldum því fast í trúna, höfum trú á sjálfum okkur, sýnum náunganum kærleika og góðvild, höfum trúna og vonina að leiðarljósi. Við búum í yndislegu landi þar sem allt er mögulegt. Ver- um því hamingjusöm, njótum þess að vera til því lífið brosir við okkur.“ Við vitum hve afskaplega lánsöm við voram að fylla með þér fjöl- skylduhópinn á Kirkjubraut 5 og fjölmargar yndislegar minningar um þig ylja okkur nú, þegar syrtir að. Þinn þáttur í samheldni okkar var mikill og það skarð sem nú er fyrir skildi verður ekki fyllt. A svipstundu blasir raunveruleik- inn í öllum sínum helkulda við. Fyr- irætlanimar og draumsýnimar sem við áttum sameiginlega munu ekki rætast, heimurinn eins og við þekkt- um hann er um margt hraninn og engin svör fást við áleitnum spurn- ingum. Við treystum á að einhver máttur, mannlegum skilningi æðri, leiði okk- ur áleiðis og gefi okkur þann þroska sem við svo sannarlega þurfum á að halda. Trú, von og kærleikur era hugtök sem enduróma í hugskoti okkar for- eldra þinna og systkina í dag og við reynum af fremsta megni að standa keik af virðingu við minningu þína, eins og við vitum að þú hefðir gert í okkar sporam. Söknuðurinn er sár og því sárari þar sem skilninginn skortir og mátt- urinn er ekki mikill til að takast á við framtíðina án þín. Kærleikurinn hefur umlukt okkur, því ótölulegur fjöldi fólks hefur sýnt minningu þinni svo ómælda virðingu með heimsóknum, blómasendingum og ljúfum gerðum, að orð fá vart lýst. Vonin um að þú sért nú í öruggri höfn í hæstu hæðum og að þar munum við að endingu hittast á ný er nokkuð sem við einfaldlega treystum á. Trúin á það að Guð almáttugur hafi byggt þennan heim og haldi honum við er eina svarið sem við höf- um við yfirþyrmandi sorg, skilnings- leysi á örlögum þínum og söknuði. í þá trú höldum við öllsömul og minningin um þig, elsku Kalli, lifir á meðan við drögum andann. Megi almáttugur góður Guð blessa þig um alla eilífð. Hafðu heila þökk elsku drengurinn fyrir þá fyrir- mynd sem þú varst okkur öllum á alltof stuttu æviskeiði. Allir sem kynntust þér einfaldlega auðguðust af því og það voru okkur mikil forréttindi að fá að njóta sam- vistanna. Við biðjum almáttugan Guð að blessa Guðrúnu, ástina í lífi þínu, fjölskyldu hennar og alla þá fjöl- mörgu sem sýnt hafa minningu son- ar okkar og bróður svo stórkostlega virðingu sem raun ber vitni. Hvort vikna og döggvast bjargsins brár, eða blinda mér sýn mín eigin tár við sumarmorgunsins unga ár og ilm vorra seigu runna? Hamma, pabbi, Álfhildur og Sveinn. Mér fmnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga því er ver. Bf værir þú hjá mér vildi ég glaður verðabetrien éger. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt Ég harma það, en samt ég verð að segja, að sumarið h'ður alltof fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Eftir að mér hafði verið tilkynnt sú harmafregn að bróðursonur minn Karl Kristinn hefði látist í hörmu- legu vinnuslysi vora þessar fallegu ljóðlínur stanslaust í huga mér, vöktu mig upp af svefni og héldu íyr- ir mér vöku tímunum saman. I kjölfarið reikar hugur manns aftur, allt aftur til þess tíma þegar hann lá í vöggu og við Kristján bróðir létum Kalla og Ingibjörgu dóttur mína liggja saman, sátum undir þeim, lét- um mynda þau og grobbuðum okkur af þessum yndislegu bömum okkar. Allt frá þessum fyrstu mánuðum mynduðust tengsl á milli þeirra sem aldrei bar skugga á og hafa þau alltaf verið líkt og systkini síðan. í æsku var Kalli ekki mikið gefinn fyrir athyglina. I fimm ára afmælinu hans rann hann undir borð og vildi hverfa þegar afmælissöngurinn hans var sunginn. Ungur fór Kalli að tefla skák og æfði það á tímabili og tefldi þá gjarnan við afa sinn og vann. Eftir að hann fór að keppa í sundinu spurði ég hann stundum hvemig gengi og var svarið yfirleitt það sama, „ágætlega“. Hann var ekkert að segja manni frá því að hann hefði unnið til verðlauna. Eitt sinn kom hann af sundmóti og foreldrar hans, sem alltaf fylgdust vel með honum í sundinu, spurðu hvernig hefði geng- ið, sama látlausa svarið kom, „ágæt- lega“, en eftir helgina birtust myndir af honum efstum á verðlaunapalli. Þó svo að hann bæri titilinn sund- maður Akraness um tíma og eða setti Islandsmet í baksundi 1994 þá tók því ekkert að vera að segja frá því og frændfólk hans frétti þetta einhvern veginn eftir öðram leiðum en frá honum. Kalli tók líka þátt í því að synda írá Reykjavík til Ákraness með félögum sínum í Sundfélagi Akraness. Einhvern tímann spurði ég hann að því hvað hann ætti marga verðlaunapeninga. Hann gerði lítið úr og nefndi enga tölu en dætur mín- ar sögðu mér að það væri vel á annað hundraðið, flestir geymdir niðri í skúffu, og þær vora stoltar af þess- um frábæra frænda þegar þær sögðu frá þessu. Kalla gekk alla tíð vel í skóla, var vinmargur og vinsæll. Hann tók virkan þátt í félagslífinu og keppti m.a. fyrir hönd FBV í ræðukeppni framhaldsskólanna. Kalli lauk stúdentsprófi af hag- fræðibraut frá Fjölbrautaskóla Vesturlands vorið 1999. Að stúdents- prófi loknu hóf hann að vinna á höf- uðborgarsvæðinu og bjó hann þá hér hjá fjölskyldu minni um skeið. Snemma í júní bað mamma hans mig að ýta við honum um að undirbúa sig vel, því hann ætti að flytja hátíðar- ræðu nýstúdenta í Akraneskirkju 17. júní. Ég bað frænda að drífa þetta nú af og ýtti oft við honum. Hinn 16. hafði ég ekki enn séð staf á prenti en hann taldi mér trú um að hann væri eiginlega búinn að semja ræðuna í huganum og myndi setja þetta niður á blað um kvöldið. Eftir að hann hafði lokið hátíðarræðunni frétti ég að vel hefði tekist til, eins og með allt annað er hann tók sér fyrir hendur. Kalli var hnyttinn í tilsvöram og er margar skemmtilegar sögur hægt að segja af svöram hans og setningum sem við fjölskylda hans geymum í huga okkar um ókomna tíð. Kalli átti unnustu, Guðrúnu Hjör- leifsdóttur, sem hann var ákaflega stoltur af og fallega brosið hans var enn stærra og innilegra er hann tal- aði um hana og sagði okkur frá henni. Elsku Stjáni, Sigrún, Álfhildur, Sveinn og Guðrún. Oll vitum við að sorgin er mikil og missir ykkar er mestur, en við vitum líka og verðum að trúa, að þessum yndislega dreng sé ætlað eitthvað ennþá mikilvægara hlutverk en hann hafði hér á meðal okkar. Við Dagbjört og börnin vott- um ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja ykkur í sorg- inni og þökkum fyrir þær eftirminni- legu og góðu stundir sem við áttum saman. Far þú í friði elsku frændi, þú munt aldrei gleymast. Sigurbjörn Sveinsson. Sártervinaraðsakna, sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna, svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta, húmskuggi féll á brá, lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta, vinur þó falli frá. Góðar minningar geyma gefúrsyrgjendumfró. Til þín munu þakkir streyma. Pér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf.ók.) Elsku Kalli minn, ég trúi því varla ennþá að þú sért farinn. Hvernig getur lífíð verið svona ósanngjarnt? Eg verð víst að trúa þvi að þér hafi verið ætlað annað og meira hlutverk á öðram stað. Á stundu sem þessari reika minningar um hugann, minn- ingar um yndislegan frænda sem átti svo margt gott að gefa. Þú varst allt- af brosandi og stutt var í stríðnina. Svo varstu líka alltaf svo óspar á að taka utan um þá sem þér þótti vænt um, enda ólst þú upp við mikla ást og umhyggju foreldra þinna og syst- kina. Elsku Kalli, ég hef alltaf verið svo stolt af því að eiga þig sem frænda. Þú hefur ávallt verið svo stór hluti af þeim minningum sem ég á frá því að ég bjó á Akranesi. Allar stundirnar sem við áttum heima hjá ömmu og afa, þegar við lágum úti í garði á sumrin á litlu rauðu sólbeddunum, hjálpuðum ömmu og afa í garðinum, gerðum kastala í sandkassanum og snjóvirki á vetuma. Og þegar við fengum að sofa hjá þeim gátum við ekki verið sitt hvoram megin í hjóna- rúminu, því þá var allt of langt á milli okkar, heldur sváfum við bæði ömmu megin. Þú varst besti vinur minn og ég óskaði þess oft að þú værir tví- burabróðir minn. Mér fannst þú alltaf svo heppinn að eiga dótabúð og eru ófáar stund- imar sem við eyddum þar og lékum okkur eftir lokun. Svo áttir þú svo mikið af He-Man-dóti sem við dund- uðum okkur oft með og varst þú þá auðvitað He-Man og ég var She-Ra. Ég hlakkaði svo til þegar við mynd- um byrja í Brekkubæjarskóla sam- an, svo ílutti ég suður og það breytt- ist. Sambandið hélt samt áfram að vera gott þótt það breyttist töluvert. Það var ávallt tilhlökkunarefni þegar von var á þér í bæinn. Þú komst oft yfir helgi og gistir þá hjá Svenna. Þið komuð þá alltaf heim og við fundum okkur eitthvað að gera. Ég man á tímabili þegar við voram alltaf að fara í sund saman. Okkur fannst svo gaman að fara á stökk- brettið í Sundhöllinni, þar sem hinar ýmsu kúnstir voru reyndar. Ég man líka vel þegar við fóram í Laugar- dalslaugina og þið Svenni tókuð upp á því að hnoða snjóbolta, troða þeim í sundskýluna, hlaupa svo út í heita pottinn og láta snjóinn bráðna. Svo veltumst við um af hlátri. Þegar ég hélt upp á 17 ára afmælið komst þú og varst hjá mér yfir helg- ina og áttum við yndislega stund saman. Þú fórst með mér í fyrsta bíltúrinn eftir að ég fékk ökuskírt- einið. Á sunnudeginum keyrði ég þig niður á Akraborg, þú sóttir töskuna þína í skottið, sást æfingaaksturs- merkið og skelltii- því aftan á bílinn. En þú hlóst svo mikið þegar ég kvaddi þig að það komst upp um þig. Þetta er aðeins brot af þeim yndis- legu minningum sem ég á um þig, Kalli minn, og ég mun geyma þær í hjarta mínu um ókomin ár. Elsku Sigrún, Stjáni, Álfhildur og Sveinn, megi Guð vera með ykkur og veita allan þann styrk sem þið þurfið á að halda í sorg ykkar. Þín frænka, Ingibjörg. Þínum anda fylgdi glens og gleði gamansemin auðnu þinni réði. Því skal halda hinum megin með himnaríldsglens við mjóa veginn. Ég vona að þegar lífi mínu lýkur, ég líka verði engill gæfuríkur. Þá við skoðum skýjabreiður saman og skemmtum okkur, já það verður gaman. (LýðurÆgisson.) Elsku Kalli, það er erfitt að sætta sig við þessa staðreynd. Að þú svona ungur og lífsglaður strákur sért fall- inn frá í blóma lífsins. Það eru svo margar góðar minningar sem koma upp í huga manns um ýmislegt sem við höfum brallað saman í gegnum árin. Þær voru ófáar stundirnar sem þú komst og dvaldir hjá mér yfir helgi og var þá ýmislegt fundið sér til dundurs. Sérstaklega er mér minnis- stætt sundtímabil okkar frændsyst- kinanna. Lengi vel var Sundhöllin í einstöku uppáhaldi hjá okkur. Ég man sérstaklega eftir þegar ég ætl- aði að fara að reyna fyrir mér á stóra stökkbrettinu. Þú manaðir mig til að láta mig svífa, sem ég og gerði, og má segja að lendingin hafi verið mjög sársaukafull. Þegar ég hugsa til baka sé ég þig ennþá fyrir mér upgi á bakkanum skellihlæjandi. Ég á líka mjög góðar og skemmti- legar minningar frá heimsóknum mínum á Skagann og tengist þú þeim flestöllum. Nú þegar þú ert farinn verður skrýtið að koma á Skagann og hugsa til þess að maður fái aldrei að sjá þig aftur. Elsku Kalli, ég þakka þér fyrir all- ar góðu stundirnar sem við áttum saman og minningin um góðan frænda mun lifa í hjarta mínu. Ég bið góðan Guð að styrkja fjöl- skyldu þína, unnustu og vini á þess- um erfiðu tímum. Megir þú hvíla í friði. Þinn frændi, Sveinn Kristinn. Elsku Kalli frændi. Á stundum sem þessari streyma minningamar í gegnum hugann og það fyrsta sem kemur upp, er við minnumst þín, er brosið þitt og hlát- urinn. Hjá þér var alltaf svo gaman og stutt í brosið. En þegar svona slys ber að höndum að ungt fólk eins og þú deyr í blóma lífsins, þá á maður virkilega erfitt með að sætta sig við staðreyndir, af hverju góða fólkið eins og þú fær ekki að lifa í þessum heimi. En við verðum að trúa því að þér hafi verið ætlað mikilvægara hlutverk annarstaðar og svo deyja þeir ungir sem guðirnir elska. Við er- um hinsvegar ekki í vafa um að þarna „hinumegin“ hafi verið virki- lega vel á móti þér tekið og megi þeir þar njóta þíns yndislega persónu- leika. Takk fyrir allar þær ógleyman- legu stundir sem við áttum með þér og mun minning þín lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Þínar frænkur, Eva Mjöll og Guðrún Þórey. Harmi sleginn kveð ég vin minn Kalla. Við höfum fylgst að frá frum- bernsku, jafnaldrar og nábúar. Vart hefur liðið sá dagur frá því að við vorum agnarsmáir að ekki væri haft samband og alltaf gott samband. Heilbrigðari og heilsteyptari pilt- ur var vandfundinn. Svo laus við vandamál, svo kapps- fullur við hvert það verkefni sem leysa þurfti. Sama hvað hann tók sér fyrir hendur, skólinn, vinnan, íþrótt- irnar. Já, hann Kalli var svo dæmalaust laus við allt vesen sem ég var snill- ingur að koma mér í. Alltaf stóð hann með mér og var tilbúinn að leysa vanda fordómalaust bæði varðandi mig og vini sína. Hjálpsemi var hon- um svo eiginleg og sjálfsögð og jafn eðlileg og að draga andann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.