Morgunblaðið - 19.04.2000, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
11«
[m SAtAZOK
Við leigjum/útvegum þér öll þau tæki
sem þú þarft til að koma fýrirlestrinum
þínum fagmannlega til skila.
Einnig sjáum við um uppsetningu og
aðstoð, allt eftir þínum þörfum.
maus
DAVIS stafrænir
skjávarpar í úrvali fyrir
tölvur, myndbandstæki og DVD
myndspilara (Heimabíó)
Upplausn: SVCA-XGA
Birta: 800-2000 ANSI Lumens
Þyngd: 2,25 - 4,5 kg
Mimio er fest á venjulega
skriftöflu og yfirfærir allt sem
skrifað er á töfluna í tölvu sem
tengd er við tækið. Þar með er
hægt að geyma allt sem skrifað
er á töfluna og prenta út í lit
/aui seisiiauuáhi
Skiávarpastandar með di i ic __» »„
Skjávarpastandar
hæðarstillingu og
hliðarplötu fyrir tölvu
eða myndbandstæki
PLUS bókavarpar varpa
upp skýrum myndum beint
af bókum og Ijósmyndum
r
Sýningartjöld aföllum
stærðum og gerðum
fyrir fyrirtæki og heimili
HAHíftimíH
Barnabílstóll
15-36 kg
Kr. 10.900
Ath. Lokað laugordag
fyrir póska.
Klapparstíg 27,
ALLT FYRIR BÖRNIN s. 552 2522.
EG Skrifstoftibúnaður ehf.
Ármúla 20 sími 533 5900 fax 533 5901
www.mbl.is
Erlendar fjárfestingar auka stöðugleika ekki síður en íslenskar fjárfestingar erlendis
Tímaskekkja að tak-
marka fjárfestingar
Það er meira fé til f]árfestinga á lausu á
Islandi en fjárfestingartækifæri, svo
útrás fjármagnsfyrirtækja er af hinu
góða, komst Sigriin Davíðsdóttir að á
ráðstefnu Kaupþings í Lúxemborg.
ÞAÐ tilheyrir gamla tímanum að
stjómmálamenn takmarki erlendar
fjárfestingar lífeyrissjóða og haldi
þannig aftur af arðbærum fjárfest-
ingum þeirra. Það er einfaldlega
miklu meira fé í umferð á íslandi en
tækifæri eru fyrir og streymi ís-
lenskra fjárfestinga út og erlendra
fjárfestinga inn í landið gæti aukið
enn á stöðugleika í íslensku efna-
hagslífi. Þetta kom fram í samtölum
Morgunblaðsins við íslenska lífeyris-
sjóðsmenn og aðra stofnanafjárfesta
á kynningarfundi Kaupþings í Lúx-
emborg í tilefni af formlegri opnun
Kaupthing Bank Luxembourg í vik-
unni. A fundinum kynntu starfs-
menn Kaupþings fjárfestingarmögu-
leika og starfsemi fyrirtækisins fyrir
stórum hópi lífeyrissjóðsmanna og
annarra stofnanafjárfesta.
Nú liggur fyrir lagafrumvarp um
lífeyrissjóði, þar sem heimildir
þeirra til erlendra fjárfestinga verða
rýmkaðar úr 35 prósentum í 50
prósent. En í hópi lífeyrissjóðs-
manna mátti heyra að þótt þessi
rýmkun væri af hinu góða væri ein-
faldlega tímaskekkja að vera með
einhverjar takmarkanir yfirleitt. Það
besta væri að stjórnmálamenn væru
alls ekki með í spilinu, heldur létu
sjóðina um sínar fjármagnanir að
öllu leyti. „Um þetta erum við allir
sammála,“ sagði Jón Kjartansson
stjórnarformaður Lífeyrissjóðs
Vestmannaeyja.
Aukin tækifæri með Norex
Um leið og íslenskir fjárfestar
sækja til útlanda eru augu erlendra
fjárfesta einnig óðum að opnast fyrir
íslenskum hlutabréfa- og skulda-
bréfamarkaði. Viðmælendur Morg-
unblaðsins í Lúxemborg voru sam-
mála um að tækifærin á þessu sviði
ættu enn eftir að aukast og allar að-
stæður að breytast þegar Islending-
ar yrðu aðilar að norræna kauphall-
arsamstarfinu, Norex, sem verður
síðar á árinu. Um leið verður það þó
kannski annarlegt að ýmsir áhuga-
Hagur lífeyrissjóða batnaði eftir að þeir fengu heimild til að
fjárfesta erlendis á miðjuni síðasta áratug.
verðir fjárfestingarkostir, til dæmis í
íslenskum sjávarútvegi, eru háðir
takmörkunum, sem stjórnmála-
mennirnir hafa sett. Spurningin er
hvort löggjafarvaldið hefur fylgst
með þeirri hröðu þróun, sem fjár-
málamarkaðurinn er í eða hvort
þessi forsjá sé tímaskekkja.
Stjórnmálamenn
eru eftir á
Jón Hallsson stjómarmaður í Líf-
eyrissjóði verkfræðinga er einn
margra lífeyrissjóðsmanna, sem
vildu sjá rýmri möguleika á erlend-
um fjárfestingum. „Þessar takmark-
anir, sem eru á erlendum fjárfesting-
um lífeyrissjóðanna og sem enn
verða í nýja frumvarpinu eru leifar af
gömlum hugsunarhætti og ekkert
annað. Stjórnmálamennirnir eru á
eftir tímanum," segir Jón í samtali
við Morgunblaðið. „Þetta eru aðeins
leifar af miðstýringu stjórnvalda og
Seðlabankans frá þeim tíma er lí-
feyrissjóðir voru skyldaðir til að fjár-
magna húsnæðiskerfið. Þetta er
gamla góða forræðishyggjan og ekk-
ert annað.“
Almennt má segja að það sé meira
fjármagnsstreymi á Islandi en tæki-
færi eru til að fjárfesta þar. Því væri
betra að afnema fjárfestingarþak líf-
eyrissjóðanna með öllu. Jón Hallsson
bendir á að ef á annað borð er verið
að halda í reglur á þessu sviði sé nær
að miða við 60 prósenta hámark en
50. „Sextíu prósent eru algjört lág-
mark, því lífeyrissjóðimir hafa ein-
faldlega ekki tök á að koma pening-
unum á markað á íslandi," segir
hann. Jón Kjartansson bendir á að
íslenski fjármagnsmarkaðurinn sé
grunnur og nú sneyðist enn um tæki-
færin með minnkandi framboði
skuldabréfa.
íslenska lífeyrissjóðakerfið:
Dæmi til fyrirmyndar?
Hið áhugaverða í þessu sambandi
er að á meðan ýmsar aðrar þjóðir
eins og til dæmis Þjóðveijar og Italir
sjá fram á gríðarlega erfiðleika í fjár-
mögnun lífeyris handa æ stærri hóp-
um ellilífeyrisþega og æ minni hóp-
um vinnandi manna, með gegnum-
streymiskerfi, sem felst í því að þeir
sem vinna núna sjá fyrir ellilífeyris-
greiðslum handa eftirlaunaþegum er
íslenska kerfið byggt á uppsöfnun og
samtryggingu eins og Jón Hallsson
bendir á. Sjálfir mega Jón og félagar
hans í Lífeyrissjóði verkfræðinga vel
við una, því sá sjóður var í fyrra með
hæstu ávöxtun lífeyrissjóða. Góðan
árangur þakkar Jón ekki síst erlend-
um fjárfestingum.
„Þegar við fengum heimsókn frá
norskum lífeyrissjóði nýlega og þeir
sáu hvernig kerfið okkar er voru þeir
mjög hrifnir. Hvort sem þetta kerfi
okkar varð til fyrir slysni eða var
gert af fyrirhyggju öfunda allir okk-
ur af því í dag,“ segir Jón.
Smá söguleg upprifjun er áhuga-
verð því horfumar fyrir íslensku líf-
eyrissjóðina hafa þó ekki alltaf verið
svo bjartar. Jón rifjar upp að lífeyris-
sjóður verkfræðinga hafi verið stofn-
aður árin 1954-55, en kúrvan hafi
verið flöt fram að þeim tíma er verð-
trygging lána var tekin upp á miðju
ári 1979. Þeirrar breytingar fór að
gæta árið 1980. Þá tók kúrvan sveiflu
upp á við, sem síðan hefur haldist.
Fram til 1980 áttu lífeyrissjóðirnir
aldrei neitt, heldur voru bara lána-
sjóðir með neikvæðum raunvöxtum
sökum verðbólgunnar. „í raun má
segja að menn hafi á þessum tíma
tekið lífeyrinn sinn fyrirfram," bætir
Jón við. „Við höfum reiknað það út að
menn hafi aðeins greitt til baka 35
prósent lána sinna þá.“
Hagur sjóðanna batnaði enn er Iíf-
eyrissjóðunum var gert heimilt að
fjárfesta erlendis á miðjum síðasta
áratug, en þó með þessu 35 prósenta
hámarki, sem nú breytist í 50 pró-
sent ef frumvarpið nú verður sam-
þykkt óbreytt. Eins og rakið er hér
að framan þykir lífeyrissjóðsmönn-
um sem betur hefði farið á að gefa
þetta alveg frjálst. „Þeir sem sömdu
lögin þekktu ekki málið,“ bætir Jón
Hallsson við.
Af samræðum við íslenska fjár-
festa á fundi Kaupþings mátti glöggt
heyra að þar voru miklar væntingar
bundnar við íslenska aðild að Norex,
norræna kauphallarsamstarfinu. En
einnig þar valda íslenskar takmark-
anir á fjárfestingum útlendinga á Is-
landi urg í mönnum. Mönnum þykir
sem hræðsla stjórnmálamanna við
erlendar fjárfestingar á íslandi eigi
rætur að rekja til ótta við að erlend
fyrirtæki taki yfir stóra hluta ís-
lensks atvinnulífs. Spumingin sé
samt hvort það sé ekki ótti við
drauga sem ekki eru til. íslensk fyr-
irtæki, til dæmis sjávarútvegsfyrir-
tæki, hafi sýnt og sannað að þau eru
að kaupa upp fyrirtæki erlendis og
þegar best lætur að vaxa á þann hátt.
Sú útrás gæti haldið áfram eftir sem
áður.
Einn heimildarmaður Morgun-
blaðsins benti á að þegar íslenski
hlutabréfamarkaðurinn yrði kominn
á Norex og fjárfestar hvar sem er
gætu á Netinu séð íslensk fyrirtæki á
hlutabréfalistum rétt eins og önnur
norræn fyrirtæki yrði það undarlegt
að þau íslensku fyrirtæki, sem væru í
hópi áhugaverðustu fjárfestingar-
möguleikanna, til dæmis sjávarút-
vegsfyrirtæki, væru utan seilingar.
„Það verður óviðunandi til lengdar,"
ályktaði hann.
Af umræðum manna á meðal á
kynningarfundi Kaupþings í Lúxem-
borg hefur verið áhugavert að sjá að
íslenski fjármagnsmarkaðurinn og
heimur íslenskra stjórnmálamanna
virðist ekki að öllu leyti í kallfæri.
Meðan íslenskir fjárfestar og fyrir-
tæki geta nýtt sér vaxandi fjár-
magnsfrelsi erlendis gildir ekki það
sama á íslandi.