Morgunblaðið - 19.04.2000, Page 34

Morgunblaðið - 19.04.2000, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Norrænn tregi og suðræn s<51 TOIVLIST Tónlcikasalur FÍH TÓMAS R. EINARSSON OGFÉLAGAR Tómas R. Einarsson, kontrabassa, Eyþór Gunnarsson, píanó, kongó- og bongótrommur, Matthías MD Hemstock, trommur og slagverk. Tónlistarsalur Félags fslenskra hljómlistarmanna. Fimmtudagur 13. aprfl. TÓMAS R. Einarsson ræðst ekki á garðinn þarsem hann er lægstur er hann býður uppá bassaveislu á vordögum og blandar gömlum verkum og áhrifavöldum saman við splunkunýja ópusa. Tómas var á starfslaunum hjá Reykjavíkurborg og nýtti tímann vel til tónskáld- skapar. Tómas er frægur spænskumaður og saltfiskskokkur einsog sjá mátti í matgæðingaþætti Signars B. Haukssonar á dögunum - en þó þýðingar hans á verkum Isabel All- ende séu alls góðs maklegar er það djassbassinn og tónskáldskapurinn sem er aðal hans. Tómas hóf tónleikana einn á bassann með Matthías MD Hem- stock á trommur og slagverk og fyrsti ópusinn var Night train sem Jimmy Forrest sauð uppúr Happy go lucky local úr Deep south-svítu Ellingtons. Tómas heyrði þetta fyrst með tríói Oscars Petersons þar sem Ray Brown sló bassann. Tómas slær girnistrengi bassa síns sterkt og hann er löngu hættur að nota pikkupp, en notar þó hljóm- kerfi til að auka styrk bassatónsins. Ekki er hægt að segja að lestin hafi hitað einsog Peterson-tríóið, enda þarf yfirburðamann tilað grúva með bassann sem einleik- shljóðfæri. Næst lék Tómas eitt af elstu lögum sínum, Stolin stef, sem heyra mátti á fyrstu skífu hans með Nýja kompaníinu og á nýjasta diski hans Á góðum degi. Það kviknaði ekki á skandinavísku stefjunum þarna í Rauðagerði eins- og Á góðum degi, þarsem Tómas lék þau undurfallega með Oliver Manoury á bandeoneón. Þá sló Tómas í klárinn og lék bráð- skemmtilega hestavísu: Brokk. Þetta var ekki merkileg músík - en hillbillystemmningin kætti og menn voru tilbúnir að meðtaka nýtt verk sem ekki hafði hlotið endanlega skím: Hugleiðingar í a og g kallaði höfundur það og hljómaði vel við fyrstu heym. Yfirbragðið norrænt og ljóðrænt sem einkennir fjölmörg bestu verk Tómasar, ég nefni bara Trúnað í stofunni. Þá kom Eyþór Gunnarsson á svið og settist við kongó- og bong- ótrommur sínar og þeir þremenn- ingar léku Á góðum degi. Tómas strauk laglínuna ekki með boga, sem hann brá ekki þetta kvöld, einsog á diskinum góða og svíng- yfirbragð verksins var latínuskotn- ara samkvæmt eðli meðleikaranna og úr suðrænum hita var haldið á nomænar slóðir og leikinn splunku- nýr ópus í e moll - nafnlaus. Yfir- bragðið alvarlegt og flutningur vandaður en Tómas er maður and- stæðnanna og stökk beint í sólina aftur og hóf að tína Skeljar úr kúbanskri fjöm og Eyþór og Matt- hías hömuðust á slagtólunum án þess að auðnast að vekja þann hita sem aðeins verður vakinn í Karíba- hafinu og nágrenni. Síðan settist Eyþór við slaghörpuna og það varð Logn, vals einhvers staðar á milli Kaldalóns og Johansons, yndislega leikið. Svo var skipt yfirí blús. Þann klassíska: Things aint what they used to be, sem Mercher heit- inn Ellington skrifaði um þær mundir er hann stjórnaði fyrstu hljómsveitinni sinni. Þeir sem fylgdust með Tómasi í Eldhúsi sannleikans heyrðu hann grípa í bassann meðan saltfiskurinn mall- aði á grænmetisbeði og þótti harla gott. Tríóflutningurinn gekk þó ekki upp í mínum eyrum - ég hafði meira gaman af einleiknum í sjón- varpinu. Calypsó hefur heyrst áður og ríkti þar íslensk karíbastemmn- ing. Afturá móti fylgdi í kjölfarið undurljúfur vals, Undir snjónum, einhvers staðar á milli Kaldalóns og Johanssons og stundum minntu píanólínur Eyþórs Gunnarssonar á Guðmund Ingólfsson þegar hann var að leika í anda Jans heitins Johanssons. Svo var franski söng- dansinn Laufblöð falla leikinn og Vor hinsti dagur er hniginn af skíf- unni Þessi ófétis jass, sem bar ferska vinda inní íslenskt djasslíf á sínum tíma. Lokalagið var blúsinn MRPP. Samin fyrir stórstjörnur bassadjassins: Mingus, Ray (Brown), Paul (Chambers) og Pedersen (NHÖP). Skemmtileg lok á löngum tónleikum hlélausum og þó vildu menn meira og tríóið lék lagið sem Guðmundur Andri raul- aði í Islensku óperunni: Þú ert - og nú var það latínuskotið. Þetta voru í flesta staði vel- heppnaðir tónleikar hjá Tómasi og óhætt að óska honum til hamingju með áfangann. Sjálfur stóð hann keikur í eldlínunni nær tvo tíma og jós úr tónasjóði sínum. Hann hefur löngum verið fínn tónsmiður og það verður gaman að heyra nýju lögin í fjölbreyttari útsetningum.Það reyn- ir örlítið á að hafa bassann í eldlín- unni svo lengi - lengst af í salgtogi við slagverk og einhvern veginn kviknaði ekki fullkomnlega á pían- ótríóinu nema í lögum Tómasar. Vernharður Linnet Ljósmynd/Halldór Sveinbjömsson Beáta Joó sem situr við flygilinn hefur æft hátíðarkör Tónlistarskdla ísaflarðar. Bach-hátíð á ísafirði á í'östudag-- inn langa BACH-hátíð verður í ísafjarðar- kirkju að kvöldi föstudagsins langa, kl. 20.30, en þá flytja Hátíðarkór Tónlistarskóla Isafjarðar og kamm- erhljómsveit ásamt einsöngvurum nokkur verka Baehs. Stjórnandi tón- leikanna er Ingvar Jónasson en Beáta Joó hefur æft kórinn. Tónlistarskóli ísafjarðar annast allan undirbúning tónleikanna og segir Sigríður Ragnarsdóttir skóla- stjóri að í kómum séu fyrrverandi og núverandi nemendur og kennarar skólans ásamt fleira áhugafólki. Á föstudaginn langa í fyrra flutti hátíð- arkórinn ásamt kammersveit og ein- söngvurum óratóríuna Messias og segir Sigríður þá hafa verið ákveðið að halda áfram flutningi stórra og krefjandi kórverka. Á næsta ári er ráðgert að flytja Requiem eftir Mozart. Beáta Joó hefur æft kórinn frá þvi í janúarlok og Ingvar Jónasson hefur valið úr hópi atvinnumanna kamm- erhljómsveit sem æft hefur undan- fama daga og stjómar hann jafn- framt flutningnum. Ingvar segir ánægjulegt að geta haldið áfram þeirri gömlu hefð sem skapast hafi í kirkjunni að hafa tónlistarflutning að kvöldi föstudagsins langa. Ekki stórmál að sækja æfíngar Sem fyrr segir em í kórnum bæði nemendur og kennarar við Tónlist- arskólann, alls um 50 manns. Meðal þeirra em hjónin Helga Guðný Kristjánsdóttir og Björn Birkisson, sem búa á Botni í Súgandafirði, og dóttir þeirra Fanný Margrét. „Nei, það er ekki stórmál að sækja æfingar þegar fært er og áður en göngin komu var þá bara farið á traktor eða vélsleða, að minnsta kosti á Sunnu- Morgunblaðið/Jim Smart Ingvar Jónasson, stjóraandi tónleikanna, er hér á spjalli við þær Sigur- laugu Eðvaldsdóttur og Maríu Weiss. Ljósmynd/Halldór Sveinbjömsson Hjónin Helga Guðný Kristjánsdóttir og Björn Birkisson koma ásamt dóttur sinni Fanný Margréti frá Botni í Súgandafirði á hveija æflngu. kórsballið,“ segir Helga Guðný í samtali við Morgunblaðið en hún hefur um árabil verið í Sunnukóm- um og stundar einnig söngnám og píanónám. „Það hefur verið mjög ánægjulegt að vera með í hátíðar- kórnum og þetta verkefni er ólíkt því sem við höfum verið að gera í Sunnu- kómum.“ Tvö önnur böm Helgu og Bjöms era einnig í tónlistarnámi við útibú Tónlistarskólans á Suðureyri og hún segir yngsta barnið, fjögurra ára, vera að byrja að fikta. Á tónleik- unum verður flutt kantata nr. 140 „Wachet auf‘, Svíta nr. 1 í C-dúr og kórar úr Jóhannesar- og Matteusar- passíum. Einsöngvarar em þau Mar- grét Bóasdóttir sópran og Jóhann Smári Sævarsson bassi. Tónlistar- skólinn nýtur stuðnings Isafjarðar- bæjar, menntamálaráðuneytis og ýmissa fyrirtækja við tónleikahaldið. Forsala aðgöngumiða er í Bókaversl- un Jónasar Tómassonar. I hlekkjum hugarfarsans LEIKLIST Félagsmiðstöðin ÖðaI, llurgarnesi. Leikdeild UmI. Skallagrfins ÉG BERA MENN SÁ Höfundar: Anna Kristín Krisljáns- dóttir og Unnur Guttormsdóttir. Tónlist: Árni Hjartarson. Leikstjóri: Þröstur Guðbjartsson. Föstudaginn 14. aprfl. KLIKKAÐ er kannski fyrsta orðið sem kemur upp í hugann þegar lýsa á Ég bera menn sá eftir Hugleikskon- umar Unni og Önnu Stínu. Þær stöll- ur sækja gjaman efnivið sinn í þjóð- sögumar, og svo er einnig hér. Saga um álfamey í álögum og sauðamenn sem finnast dauðir á jólanótt eftir gandreið mikla myndar rauða þráð- inn í verkinu en einnig koma tvær skessur við sögu, ættaðar úr trölla- sögum öllum og engri. Svo er vita- skuld draugur. En þótt rauður þráð- ur sé þama einhvers staðar hafa höfundar sleppt öllum beislum af hugarflugi sínu og „stefna í allar áttir og enga þó“ eins og meistarinn sagði. Engu tækifæri er sleppt til að skapa skringilegar uppákomur eða skjóta að orðaleik. Stundum heppnast þetta, stundum ekki eins og gengur, og ekki em það alltaf hnittnustu orðaleikim- ir sem uppskera hláturinn, það getur allt eins verið aulalegasta fyndnin sem virkar. Svo er verkið fullt af skír- skotunum til samtímamálefna sem vom efst á baugi á ritunartíma þess, má þar nefna aðför Baldurs Her- mannssonar að islenskri bændastétt og íslenskri sauðkindastétt, innflutn- ing á kalkúnalærum og fleira fyrnt. Sönglög Árna Hjartarsonar og hnittnir textar bæta síðan einum lit enn við þetta skrautlega sjónarspil. Ekki get ég neitað því að verkið er full-bláþráðótt fyrir minn smekk. Lítil tilraun hefur verið gerð til að láta hinar ólíku persónur eiga þátt í örlögum hver annarrar, þjóðsagan siglir sinn lygna sjó til endalokanna gleðilegu meðan hugarfarshlekkjaðir bændasynir, bældur bóndi og með- virk eiginkona hans, orðheppnar skessur, mglaður munkur og rapp- andi sauðir fara sínu fram allt í kring. Ég bera menn sá er köflótt verk, sumir kaflarnir em skemmtilegri en aðrir en samhengisleysið dregur nokkuð úr heildaráhrifamætti þess. Umgjörð og útlit er ágætlega unn- ið, baktjald er til að mynda fallegt og svipmikið, og það verður að teljast vel af sér vikið að koma þessu flókna verki fyrir á þröngu sviðinu. Þröstur Guðbjartsson sækir í upp- færslu sinni allnokkuð í fmrnupp- færslu Hugleiks, bæði hvað varðar útlit og „lögn“ einstakra persóna. Þetta sætir nokkurri furðu, þar sem verk af þessu tagi era galopin fyrir nýjum skemmtilegheitum og hug- myndum. Kannski á þetta líka sína sök á því að sýningin er óþarflega dauf og kraftlaus á köflurn. Stundum virðist sem leikaramir hafi ekki „gert þetta að sínu“ svo gripið sé til gamall- ar klisju. Á þessu era vissulega und- antekningai-. Þannig vora þeir bræð- ur Bölvar og Ragnar bráðgóðir og fyndnir í meðföram Axels Vatnsdal og Jónasar Þorkelssonar. Guðrún Kristjánsdóttir og Ragnheiður M. Jóhannesdóttir vora einnig for- dæðulegar og kostulegar sem hinai- trúðslegu tröllskessur Auðlegð og Ástríður. Ólafur Gunnarsson náði að gera munkinn furðulega, Meyvant, f allskemmtilegan og vel fór hann með sönginn um síðustu kvöldmáltíðina, sem að mínu viti er besta lag sýning- arinnar. Ekki er annað hægt en að geta gestaleikarans, en brottfluttur Borg- nesingur, Ingvar E. Sigurðsson, átti óvænta og fyndna innkomu í upphafi sýningar. Ekki er vert að ljóstra upp um eðli hennar, en þess verður þó að | geta að ekki hafði hann erindi sem j erfiði, enda trúir enginn leikurum, f sérstaklega ekki í leikhúsi. Að lokum vil ég benda Skalla- grímsmönnum á að taka fyrir þann leiða ósið að áhorfendur taki ljós- myndir meðan á sýningu stendur. Að þessu er traflun og óvirðing jafnt við leikara sem áhorfendur. Vonandi verða myndatökur aflagðar þegar næsti hópur sest í sæti sín í Óðali til að henda reiður á þessum brjálaða hugar-farsa. Þorgeir Tryggvason f

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.