Morgunblaðið - 19.04.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 63 ,
Safnaðarstarf
Helgihald í
Digraneskirkju
Á SKÍRDAG eru fermingarmessur
bæði kl. 11 og 14. Sóknarprestur-
inn sr. Gunnar Sigurjónsson fermir
en til aðstoðar verða sr. Gunnar
Rúnar Matthíasson og sr. Ingimar
Ingimarsson. Skírdagur er dagur
seinustu kvöldmáltíðarinnar og því
tilhlýðilegt að söfnuðurinn komi
saman um kvöldið kl. 20:30 til þess
að eiga samfélag um borð Guðs.
Altarissakramentið verður fram
borið með sérbökuðu ósýrðu
brauði og bergt af sameiginlegum
kaleik.
Á föstudeginum langa flytur
sóknarpresturinn sr. Gunnar Sig-
urjónsson að venju fyrirlestur kl.
14. Fyrirlesturinn fjallar um orð
Krists á krossinum „Guð minn,
Guð minn, hví hefur þú yfírgefið
mig“, í tengslum við 22. Davíðs-
sálm.
Um kvöldið kl. 20:30 er sungin
litanía af sóknarprestinum og kór
Digraneskirkju. Litanían á að
minna okkur á píslardauða og
krossfestingu Krists. Einsöng
syngur Sigríður Sif Sævarsdóttir.
Litaníunni lýkur með því að kirkj-
an verður myrkvuð og íhugun
þagnarinnar tekur við.
Á aðfangadag páska kl. 22 er
páskavaka. Upphaflega var heilög
kvöldmáltíð (páskamáltíðin) mið-
punktur páskavökunnar. Páska-
vakan hefst kl. 22 við eldstæði fyr-
ir utan Digraneskirkju.
Páskahátíðin hefst að morgni
páskadags kl. 8 með morgun-
messu. Sungin verður hátíðar-
messa sr. Bjarna Þorsteinssonar af
sóknarprestinum og kór Digra-
neskirkju, einsöngur og mikil dýrð.
Einsöng syngja Guðrún Lóa Jóns-
dóttir, Sigríður Sif Sævarsdóttir
og Eiríkur Hreinn Helgason.
Altarissakramentið verður fram
borið með sérbökuðu ósýrðu
brauði. Eftir messu verður morg-
unmatur í safnaðarsal og er mælst
til þess að safnaðarfólk komi með
eitthvað meðlæti með sér. Það þarf
ekki að vera mikið sem hver fjöl-
skylda færir fram en ef flestir
koma með eitthvað verður þetta
hin stórkostlegasta máltíð. Hús-
móðir kirkjunnar hitar kaffi, te og
súkkulaði og heit rúnnstykki þar
að auki. Allir eru velkomnir.
Skátamessa á
Akranesi
SKÁTAMESSA verður haldin í
Akraneskirkju á morgun, sumar-
daginn fyrsta, kl. 11. Hálftíma áður
verður lagt af stað í skrúðgöngu til
kirkjunnar frá Skátahúsinu við
Háholt. Löng hefð er fyrir skáta-
messu á þessum degi á Akranesi.
Skátar aðstoða við helgihaldið og
Svannakórinn syngur. Ávarp eldri
skáta flytur Guðbjartur Hannesson
skólastjóri. Akurnesingar eru
hvattir til þess að fjölmenna bæði í
skrúðgöngu og kirkju á þessum
degi. Sóknarprestur.
Tónlistarfiutn-
ingur í Hafnar-
fjarðarkirkju
SVO SEM endranær verður mjög
vandað til tónlistarflutnings í
Hafnarfjarðarkirkju í dymbilviku
og á páskum.
Við gregórska messu á skírdag-
skvöldi 20. apríl sem hefst kl. 20.30
mun Inga Bachman syngja ein-
söng.
Við guðsþjónustu á föstudaginn
langa 21. apríl kl. 14 mun Ragn-
heiður Linnet messósópran syngja
einsöng. Við hátíðarguðsþjónustur
kl. 8 og kl. 11 á páskadag 23. apríl
mun Gunnar Gunnarsson skólast-
jóri Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
leika á flautu. Athugið breyttan
tíma.
Kór Hafnarfjarðarkirkju leiðir
söng í þessum guðsþjónustum og
Örn Falkner leikur á orgel.
Við kvöldsamkomu á vegum
Hafnarfjarðarkirkja
Byrgisins kl. 20 á annan í páskum
24. apríl leikur lofgjörðarsveit
Byrgisins. Prestar Hafnarfjarðar-
kirkju.
Helgihald í Bú-
staðakirkju
bænadaga
og páska
FJÖLBREYTT helgihald verður í
Bústaðakirkju um bænadaga og
póska. Miðvikudagskvöldið 19. apr-
íl verður uppfærsla á poppassíunni
Síðustu dagar Krists. Poppassían
var sýnd á Flateyri á sínum tíma
og vakti mikla athygli.
Ráðgert er að halda tvær sýn-
ingar, kl. 20 og kl. 22.
Á skírdag verður messa með alt-
arisgöngu klukkan 20.30. Ein-
söngvari verður Kristín Sigtryggs-
dóttir.
Á föstudaginn langa verður
messa klukkan 14 og þar er ein-
söngvari Þórunn Stefánsdóttir.
Á páskadagsmorgun verður há-
tíðarguðsþjónusta kl. 8. Þar verður
flutt verk eftir Þórarin Guðmunds-
son við texta Ingibjargar Sigurðar-
dóttur. Einnig verða verk í flutn-
ingi Bjöllukórs, sóló-trompets og
blásarakvatetts.
Messað verður í Bláfjöllum kl.
12.30. Þetta er í tíunda skiptið sem
messa er ráðgerð í Bláfjöllum en í
tvígang hefur orðið messufall
vegna veðurs. Nú lítur vel út með
aðstæður og víst að fjölmargir
muni leggja leið sína að Bláfjalla-
skálanum og taka þátt í messunni.
Annan dag páska verður ferm-
ingarguðsþjónusta kl. 10.30 og er
það síðasti fermingarhópurinn á
þessu vori í Bústaðakirkju.
Helgihald í ísa-
fjarðarkirkju
FÖSTUDAGINN langa klukkan
10 árdegs hefst lestur Passíusálma
Hallgríms Péturssonar í ísafjarð-
arkirkju. ísafjarðarsókn stendur
að flutningnum í samvinnu við
aðra. Heimildum manna í sókninni
ber saman um að ekki hafí þetta
verið gert fyrr hér, alla vega ekki
síðustu 50 árin, eins og einn orðaði
það.
Þrátt fyrir að sálmarnir sem
slíkir séu nægilegt efni hefur verið
brugðið á það ráð að brjóta lestur-
inn upp með tónlistaratriðum og
eru það nemendur Tónlistarskóla
ísafjarðar og Listaskóla Rögnvald-
ar Olafssonar sem flytja tónlist við
hæfí auk organista kirkjunnar.
Einnig verður flutt erindi um Hall-
grím og bókmenntalegt gildi sálm-
anna.
Lesarar koma úr öllum áttum og
eru 7 talsins. Sá yngsti er 13 ára
og sá elsti 80 ára. Aðrir lesarar
spanna svo aldursbilið. Við valið á
lesurunum hefur verið reynt að
iinna ólíkt fólk, frá menntaskólan-
emum til stjórnmálamanna.
Samkvæmt dagskrá er reiknað
með að flutningurinn taki um 5
klukkustundir með öllu. Allir eru
hvattir til að mæta stundarkorn og
hlýða á lesturinn að hluta, nú eða í
heild. Kærkomin leið til að hugsa
um eitthvað allt annað en maður er
vanur.
Popppassía í Bústaðakirkju
í Bústaðakirkju í kvöld verður
sýnd hin umdeilda popppassía frá
Flateyri.
Sýningar verða kl. 20 og 22.
Fjölmargir þekktir listamenn
koma fram, m.a. Rúnar Júlíusson,
Margrét Eir og Hinrik Ólafsson.
Miðaverð er 1.000 kr.
Helgihald í
Hjallakirkju
Á SKÍRDAGSKVÖLD kl. 20.30
verður passíustund í Hjallakirkju í
Kópavogi. Atburðir skírdag-
skvöldsins verða rifjaðir upp, þátt-
takendur á stundinni feta í fótspor
lærisveina Jesú er þeir áttu samfé-
lag við hann við stofnun heilagrar
kvöldmáltíðar. Kammerkór Hjalla-
kirkju leiðir sálmasönginn.
Á föstudaginn langa kl. 20.30
verður stund sem við nefnum
Kvöldvöku við krossinn. Þá er leit-
ast við að lifa atburði dagsins á
myndrænan hátt og minnast dauða
Krists með táknrænum hætti. I
kórdyrum kirkjunnar verður reist-
ur kross sem minnir á krossinn á
Golgatahæð. Við hann munu ferm-
ingarbörn lesa sjö orð Krists á
krossinum. Fólk úr kirkjustarfinu
annast lestur píslarsögunnar og
kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng.
Þátttakendur í kvöldvökunni yfir-
gefa kirkjuna myrkvaða. I henni
verða ekki tendruð ljós fyrr en á
páskadagsmorgun. Þá hefst hátíð-
arguðsþjónusta kl. 8 árdegis, sann-
kölluð upprisuhátíð. Alda Ingi-
bergsdóttir syngur upprisuaríuna
úr Messíasi eftir Handel og Jó-
hann Stefánsson leikur á trompet.
Kór kirkjunnar syngur og leiðir
safnaðarsöng. Að guðsþjónustu
lokinni er kirkjugestum boðið í
morgunkaffí. Fólk er hvatt til að
leggja leið sína í Hjallakirkju yfir
páskahátíðina.
Samvera í Frið-
rikskapellu
DRENGIR sr. Friðriks munu að
venju efna til samveru sumardag-
inn fyrsta í Friðrikskapellu að
Hlíðarenda Vals, milli kl. 13.15-14.
Þar mun einn af drengjunum,
Helgi Elíasson, endurflytja eina af
hinum innihaldsríku föstuprédik-
unum sr. Friðriks og söngvar hans
verða sungnir. Eftir þessa sam-
veru verður hópurinn ljósmyndað-
ur við styttu sr. Friðriks utan við
kapelluna. Fjölmennum og fögnum
einnig sumri þarna saman. Allir
eru velkomnir, einnig stúlkur á öll-
um aldri.
Biskup ræðu-
maður hjá
KFUM & K
DR. SIGURBJÖRN Einarsson,
Pulhíj
fh/JMilJl/U/l/j'jf
Silfurkristalskrossinn
Kr: 8.850.-
Gullkross með kristal
Kr: 5.950.-
Framtíðareign.
Komið og sannfærist.
Kringlunni - Faxafeni
biskup, verður ræðumaður á hátíð-
arsamkomu í aðalstöðvum KFUM
og KFUK við Holtaveg að kvöldi
páskadags kl. 20. Sonardóttir Sig-
urbjörns, Guðný Einarsdóttir, mun
leika hátíðareinleik á píanó og
Halla Jónsdóttir, fræðslustjóri
Þjóðkirkjunnar og stjórnarkona
KFUK í Reykjavík, mun ávarpa
samkomuna og flytja bæn. Stjórn-
andi verður Sigurbjörn Þorkels-
son, framkvæmdastjóri KFUM &
K. Allir velkomnir.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra í dag kl. 13.30.
Dúmkirkjan. Samvera fyrir mæður
með ung börn kl. 10.30-12 í safnað-
arheimilinu. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Allar mæður velkomnar
með lítil börn sín. Samverustund
eldri borgara kl. 14-16. Biblíulest-
ur, samverustund, kaffíveitingar.
TTT-starf fyrir 10-12 ára börn kl.
17.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12. Jó-
hannesarpassían eftir J.S. Bach kl.
20.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18. Kirkjukvöld kl.
20.30. í fótspor Krists. Krossinn
og ljós heilagrar þrenningar. Hver
var kveikjan að kórmyndinni?
Benedikt G. Gunnarsson, listmál-
ari. Kirkjukór Háteigskirkju syng-
ur undir stjórn dr. Douglas A.
Brotchie, organista.
Langholtskirkja. Messa kl. 18. AJt-
arisganga. Æðstaprestsbæn Jesú
lesin og hugleidd. Prestar sr. Kri-
stján Valur Ingólfsson og sr. Jón
Helgi Þórarinsson.
Neskirkja. Foreldramorgunn kl.
10-12. Fræðsla: Anton Bjarnason
ræðir um hreyfingu og aga barna.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu. Starf fyrir 11-
12 ára börn kl. 17-18.15.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir.
Digraneskirkja. Unglingastarf á
vegum KFUM & K og Digra-
neskirkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður.
Kirkjukrakkar 7-9 ára í Engja-
skóla kl. 17-18. Æskulýðsstarf fyr-
ir unglinga kl. 20-22 í Engjaskóla.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
17.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 ára (TTT) kl.
17.45-18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænast-
und í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Léttur kvöld-
verður að stund lokinni. Tekið á
móti fyrirbænaefnum í kirkjunni
og í síma 567-0110.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Hugleiðing, altaris-
ganga, fyrirbænir, léttur málsverð-
ur á eftir í Ljósbroti, Strandbergi,
kl. 13.
Akraneskirkja. Unglingakórinn.
Söngæfing í Safnaðarheimilinu
Vinaminni kl. 17.30.
Klctturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Boðunarkirkjan. I kvöld verður
14. hluti námskeiðs um Opinberun-
arbók Jóhannesar á sjónvarpsstöð-
inni Omega og í beinni útsendingu.
Leiðbeinandi er dr. Steinþór Þórð-
arson. Efni: Plágurnar sjö. Allir
velkomnir í Omega. Ath. þátturinn
er endursýndur utan auglýstrar
dagskrár.
Ffladelfía. Súpa og brauð kl.
18.30. Kennsla kl. 19.30, krakka-
klúbbur, unglingafræðsla, kennsla
fyrir enskumælandi og biblíulest-
ur. Allir hjartanlega velkomnir.
ANTIK
Eitthvert athyglieverðasta úrval landsins
Fornhúsgögn eru fjárfesting til framtíðar
Hólshrauni 5, 220 Hafnarfirði, sími 565 5656
Fyrlr aftan Fjarðarkaup - Opið alla helgina - WWW.islantik.CQm
Tilvalin
fermingargj öf
Didriksons
Vindgalli léttur
og regnlieldur
til í bláu og grænu
5.990 kr
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is