Morgunblaðið - 19.04.2000, Side 64
64 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
í DAG
Heimsmeistaramótið í einmenningi ------------------------
Jón endaði
í 14. sæti
BRIDS
Aþenu, Gi'ikklandi
GENARALIMASTERS
Heimsmeistaramótið í einmenningi
fór fram í Aþenu í Grikklandi, dag-
ana 13.-15. apríl.
og vann því spilið aðeins slétt, sem
gaf AV eðlilega góða skor.
Jón var ekki ánægður með spilafé-
laga sinn í þessu spili:
Austur gefur, enginn á hættu
Norður
* Á875
v -
♦ KD1094
+ KG96
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í ein-
menningi, Generali Masters, hefur
verið haldið annað hvert ár frá 1992.
Keppt er jafnan í karla- og kvenna-
flokki, og í ár var einnig keppt í ungl-
ingaflokki.
I karlaflokki er 52 spilurum víðs-
vegar að úr heiminum jafnan boðið
til leiks. Islendingar hafa alltaf átt
þar fulltrúa og Jón Baldursson hefur
spilað í öllum mótunum
og vann árið 1994. Jón
byrjaði vel að þessu
sinni og fyrstu þrjár lot-
urnar af fjórum skiptust
þeir Piotr Gawrys frá
Póllandi, sem vann mót-
ið árið 1992, á um að
hafa forustuna. I síðustu
lotunni gekk Jóni hins
vegar ekki sem best og
endaði að lokum í 14.
sæti með 51,8% skor.
Italinn Antonio Sem-
enta átti hins vegar mik-
inn endasprett og varð
heimsmeistari með
57,15% skor en Gawrys
varð í 2. sæti með
55,51%. Rússinn Alexander Gromov
varð þriðji með 54,45%.
Þess má geta að Kanadamaðurinn
George Mittelman, sem hér spilaði á
Bridshátíð í vetur, vermdi neðsta
sætið og í neðri hlutanum voru einn-
ig Frakkinn Poul Chemla og Bretinn
Tony Forrester svo einhverjir séu
nefndir.
I kvennaflokki varð Benédicte
Cronier frá Frakklandi hlutskörp-
ust, Jill Myers frá Bandaríkjunum
varð önnur og Martine Verbeek frá
Hollandi þriðja. í unglingaflokki
varð Grikkinn Miltos Karamanlis
heimsmeistari.
Vestur
* 10
¥ AK108765
♦ -
* AD1072
Austur
A K9
v?
♦ AG8765432
+ 84
Antonio
Sementa
Suður
* DG6432
v DG943
♦ -
+ 53
Jón sat í norður og félagi hans í
suður var Grikkinn Kapayianidis.
Austur byrjaði á að passa og það
gerði suður einnig;
þetta upphaf sæist
aldrei í íslensku móti!
Vestur opnaði á 1
hjarta, Jón doblaði,
austur sagði 2 tígla og
suður stökk í 4 spaða.
Þegar vestur sagði 5
hjörtu hélt Jón áfram í
5 spaða sem vestur
doblaði þegar að hon-
um kom. Grikkinn í
suður redoblaði að
bragði og við það sat.
Vestur spilaði út
hjartaás sem var
trompaður í borði. Nú
er spilið auðunnið með
því að leggja niður
spaðaás, því sama er hvaða hliðarlit
er spilað, allir liggja þeir fyrir sagn-
hafa. En suður ákvað að nota inn-
komuna í blindan til að fría tígulinn.
Hann spilaði tígulníunni úr borði og
þegar austur lét lítið henti sagnhafi
laufi heima.
Nú hrundi spilið. Vestur trompaði
og spilaði hjarta sem austur tromp-
aði með níu. Hann spilaði laufi á ás
vesturs sem spilaði meira hjarta og
spaðakóngur austurs varð slagur.
Tveir niður, 600 til AV og toppur í
stað toppsins til NS.
Úrslit MasterCard-
mótsins að hefjast
Góð vörn
Þeim Jóni og Gawrys gekk ágæt-
lega þegar þeir spiluðu saman gegn
Andy Robson og Giorgio Duboin. Norður * G108 ¥ 10853 * 7 * KD1075
Vestur Austur
+ KD92 + 7654
¥ K72 ¥ G64
♦ 863 ♦ G104
+ A82 + 963 Suður + Á3 ¥ ÁD9 ♦ ÁKD952 + G4
Allir spiluðu 3 grönd í suður, sem
vinnast auðveldlega, aðeins var
spuming um yfirslagi. Gawrys í
vestur spilaði út spaðakóng og Jón í
austur sýndi jafna tölu í litnum.
Robson spilaði næst laufagosa, sem
Gawrys gaf; aftur sýndi Jón í austur
talningu. Vestur drap næsta lauf
með ásnum, tók spaðadrottninguna
og spilaði sagnhafa inn á tígul. Robs-
on gat nú tekið tígulslagina en varð í
lokin að gefa vöminni 2 slagi á hjarta
Úrslit íslandsmótsins í sveita-
keppni, MasterCard-mótsins, hefj-
ast klukkan 15:20 í Bridshöllinni við
Þönglabakka í dag. Þar keppa 10
sveitir til úrslita og Islandsmeistarar
verða krýndir síðdegis á laugardag.
Keppnin í ár gæti orðið jöfn og
spennandi, eins og hún hefur raunar
verið undanfarin ár. Að venju em
þrjár sveitir taldar sigurstranglega-
star: Samvinnuferðir-Landsýn, sem
er að reyna við þriðja titilinn í röð,
Subaru-sveitin og Skeljungur, en í
þessum sveitum em t.d. allir heirns-
meistrar og flestir landsliðsmenn ís-
lendinga. Aðrar sveitir gætu hins
vegar vel unnið mótið og em sveitir
Þriggja frakka, Jóhanns Þorvarðar-
sonar og Ferðaskrifstofu Vestur-
lands þá einna líklegastar til þess.
Þær fjórar sveitir sem eftir em,
Flugleiðir-frakt, Gísli Þórarinsson,
Hlíðakjör og íslensk verðbréf, em
einnig skipaðar leikreyndum mönn-
um og því er alls ekki hægt að útiloka
þær heldur.
Spilaðar verða tvær umferðir í
dag, þrjá á morgun, tvær á föstudag
og tvær á laugardag.
Guðm. Sv. Hermannsson
TAbiAFUTiAK
Pasta-og gufusuðupottur kr
7 ltr. 18/10 stál.
Pastavél kr. 4.500.
PIPAR OG SALT
Klapparstíg«43£mi 562 3614
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Varðandi
þjónustulund
VARÐANDI grein í Vel-
vakanda í Morgunblaðinu
15. apríl sl. um verslunina
Ólavíu og Oliver, vill ég,
eigandi verslunarinnar,
biðja Sigríði Þóm afsökun-
ar á því að hafa fengið
svona slæma þjónustu í
verslun minni. Við viljum
að allir okkar viðskiptavin-
ir fái sem besta þjónustu.
Vil ég þakka Sigríði Þóru
fyrir ábendinguna því allt-
af eru allar ábendingar vel
þegnar, sama af hvaða rót-
um þær em mnnar. Ætla
ég í framhaldi af þessu að
endurskoða starfsreglur
okkar í sambandi við vöru-
skipti á gallaðri vöm.
Einnig vil ég að það komi
fram að upphæð innleggs-
nótunnar var röng vegna
þess að slegið var af óvar-
kárni inn vitlaust vömn-
úmer og viljum við biðjast
velvirðingar á því.
F.h. Ólavíu og Oliver,
Þórunn Sigurðardóttir.
SD sjávar-og
jurtasmyrsl
MIG langar að koma á
framfæri hvað ég er
ánægður með áburðinn frá
SD-sjávar- ogjurtasmyrsl-
um. Eg hef notað áburðinn
á skeggrótina á mér, því ég
hef svo þurra húð, sem
fylgt hefur mikill kláði og
roði og þessi áburður hefur
bókstaflega tekið kláðann
og roðann alveg í burtu.
Með bestu þökkum
Guðjón Matthíasson,
Öldugötu 54, Rvík.
Markaður
í Perlunni
EG get ekki orða bundist
vegna markaðar sem hald-
inn var í Perlunni fyrir
stuttu. Eg er alls ekki að
setja út á markaðinn sjálf-
an, heldur það að það skuli
vera sameiginlegur inn-
gangur á markaðinn og
fyrir matargesti Perlunn-
ar. Markaðurinn var alveg
frábær og gerðu bæði ég
og aðrir mjög fín kaup þar.
Mér finnst hins vegar að
þegar haldnir em markað-
ir í Perlunni þurfi að vera
annar inngangur fyrir þá
sem þangað fara. Mér
fannst frekar dapurt að sjá
prúðbúna matargesti
ganga inn í þetta fallega
veitingahús á rauðum
dregli og við þeim blöstu
kaupglaðir Islendingar
með fullt af pokum og allt í
drasli í anddyrinu. Þegar
matargesti ber að garði í
stolt okkar Reykvíkinga,
Perluna, ætti aðkoman að
vera snyrtilegri en hún var
þessa daga. Þetta var ekki
fögur sjón, hvorki fyrir ís-
lenska né erlenda matar-
gesti. Eg vona að breyting
verði á aðkomu matar-
gesta í anddyrinu næst
þegar markaður er haldinn
þarna.
María.
Endalausar hækkanir
á bensíni
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi koma
á framfæri mótmælum
vegna endalausra hækk-
ana á bensíni. Hún keyrir
um á litlum Suzuki Swift
og er hann ekki bensín-
frekur. Fyiir nokkrum
mánuðum fyllti hún bílinn
sinn íyrir rúmar 2.000
krónur, en nú er hann fyllt-
ur fyrir tæpar 3.000 krón-
ur. Finnst henni þetta vera
orðnar allt of miklar hækk-
anir á stuttum tíma. Það er
orðið svo hrikalega dýrt að
reka bfl á íslandi í dag, að
það er nánast lúxus.
Bláa lónið
EG og bömin mín fórum í
Bláa Iónið sunnudaginn 16.
apríl sl. Langar mig til
þess að hvetja fólk til þess
að koma við í þessari para-
dís okkar íslendinga. Allur
aðbúnaður er þarna til fyr-
irmyndar og yndislegt að
eyða þarna góðri stund
með góðu fólki. Þarna var
mikið af erlendum gestum
og Islendingum og gat ég
ekki betur séð en allir
væru ákaflega sáttir við h'f-
ið og tilveruna á þessum
dýrðarstað. Hafið bestu
þakkir fyrir.
Björg.
Vínmenning
ÞAD er af og til verið að
dásama hina svokölluðu
vínmenningu, en því miður
hefur þjóðfélagið allt aðra
sögu að segja, sem við er-
um að heyra næstum dag-
lega, eins og fram kemur í
orðunum „horf þú ekki á
vínið, hversu rautt það er,
hversu það glóir í bikar-
num og rennur ljúflega
niður. Að síðustu bítur það
sem höggormur og spýtir
eitri sem naðra.“ Orðskvið-
ir 23.31-32.
Pétur.
5-D úr Miðbæjar-
barnaskólanum
SIGFRÍÐUR hafði sam-
band við Velvakanda og
vildi koma því á framfæri
að bekkjarmyndin sem
birtist i Velvakanda sunnu-
daginn 16. aprfl sl. væri af
5. bekk D úr Miðbæjar-
barnaskólanum, veturinn
1929-1930. Kennarinn
heitir Sigurbjörg Þorláks-
dóttir. Ef einhver vill fá
nánari upplýsingar, er
hægt að hafa samband við
Sigfríði í síma 553-5848.
Tapaó/fundið
Svart snyrtiveski
týndist
SVART snyrtiveski með
fullbúnu innihaldi týndist
laugardaginn 15. apríl sl.
Ef einhver hefur fundið
það, þætti mér ósköp vænt
um að viðkomandi hringdi í
mig í síma 551-3938 eða
560-1375.
Blá næla fannst
á Café Romance
BLA næla fannst á Café
Romance í Lækjargötu
fyrir um það bil 2 mánuð-
um. Upplýsingar í síma
554-6298 698-6298.
Dýrahald
Tinna
fæst gefins
TINNA er gullfalleg, kois-
vört 10 mánaða læða. Hún
er inniköttur og bólusett.
Hún fæst gefins á gott
heimili vegna sérstakra
ástæðna. Sandkassi, klór-
utré og ferðabúr geta fylgt
á hálfvirði. Upplýsingar í
síma 567-0704.
BRIDS
l iusjou Uiiðmiiiiilur Páll
AniardúUir
Þegar ógnandi hliðarlitur
blasir við í borði er besta
vörnin gjarnan sú að ráð-
ast á innkomurnar. Hér er
skemmtilegt dæmi um
slíka vörn:
Norður gefur; AV á
hættu. .
Norður
+ a D65
v AK98432
♦ 10
+ D8
Vestur Austur
+G87 +104
»D5 »1076
♦ D92 ♦ KG874
+ÁKG95 +762
Vestur Suður +ÁK932 ¥G ♦ Á653 + 1043 Norður Austur Suður
- 1 hjarta Pass 1 spaði
Pass 2 hjörtu Pass 3 tíglar
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: Laufás.
Setjum okkur í spor
vesturs. Hann tekur fyrstu
tvo slagina á ÁK í laufi og
austur sýnir þrílit. Eftir
sögnum að dæma á suður
fimmlit í spaða og fjóra
tígla. Þar með eru miklar
líkur á því að skipting
hans sé nákvæmlega 5-1-
4-3. Ef vestur spilar hlut-
lausa vörn - skiptir til
dæmis yfir í tromp - tekur
sagnhafi hjartaás, stingur
hjarta, aftrompar síðan
vörnina og endar í borði.
Það verður að hindra þetta
og eina leiðin til þess er að
spila laufgosa og neyða
sagnhafa til að trompa!
En suður á krók á móti
þessu bragði. Hann tromp-
ar einfaldlega ekki! En
hvort á hann að henda
hjarta eða einspilinu í
tígli? Það virðist ekki
skipta máli, en gerir það
þó. Ef hann kastar hjarta,
er það yflrlýsing um að
hann sé með tígulás og þá
er aðeins einn möguleiki
eftir í vörninni: að spila
laufi í fjórða sinn og láta
austur trompa með tíunni.
Á þann hátt uppfærist
slagur á spaðagosa. En ef
sagnhafi hendir tígli, eins
og hann eigi ekki ásinn, er
mun meira freistandi fyrir
vestur að spila tígli í fjórða
slag. Og þá á sagnhafi síð-
asta orðið.
Yíkverji skrifar...
OFT má sjá orðalag sem Vík-
verji telur hvimleitt og er
honum spurn hvort sé eðlilegt -
varla má tala um rétt eða rangt
lengur í þessu samhengi - og varp-
ar spurningunni til sér fróðari
manna um íslenskt mál.
Þegar menn tala um að veita
þjónustu eða fræðslu er oft sagt:
Þjónusta til viðskiptavina, fræðsla
til nemenda og svo framvegis.
Þetta má gjarnan sjá í auglýsing-
um en jafnvel líka í skrifuðum
texta. Er ekki betra að segja og
skrifa að veita viðskiptavinum
þjónustu og nemendur fræðslu?
Það þarf ekkert til í þessu sam-
bandi. Það þarf hins vegar ein-
hverja hugsun til. Svo mætti líka
hugsa sér að segja að hinn eða
þessi aðilinn veiti fræðslu fyrir
ákveðinn hóp manna. Þetta var
nöldur dagsins.
XXX
HJÓLREIÐAR virðast eiga
auknum vinsældum að fagna
og á þessum árstíma spretta hjól-
reiðamenn fram á götum og torg-
um og stéttum. Á góðviðrisdegi um
vor og sumar vilja þeir gjarnan
fara allra sinna ferða á hjóli eða
nota fákinn sem hreyfingu og þjálf-
un eða bara til að viðra sig á. Er
það allt saman gott og blessað.
Víkverja varð hugsað til hinnar
miklu notkunar okkar á einkabíln-
um þegar hann tók einn morguninn
eftir þessum sístækkandi hópi hjól-
reiðamanna. Við förum helst ekki
bæjarleið hér á höfuðborgarsvæð-
inu nema í bílnum okkar. í lang-
flestum tilvikum erum við ein á
ferð, oftast erum við bara á ferð
milli heimilis og vinnustaðar og
jafnvel bara kvöld og morgna. Þess
á milli stendur bíllinn óhreyfður á
vinnustað. Okkur dettur varla í hug
að nota annan ferðamáta, strætó,
hjól eða tvo jafnfljóta.
Hver getur verið skýring á því?
Getum við ekki notað strætó af því
að leiðin næst okkur hentar ekki?
Er það of dýrt? Eru ferðir of strjál-
ar? Nennum við ekki að hjóla? Eða
eigum við kannski ekki hjól?
Kannski kunnum við það ekki? Það
sama gildir ef til vill með gönguna.
Það er oft langt, veðrið er leiðin-
legt, skjólfatnaður og annar þægi-
legur göngu- eða hjólreiðafatnaður
hentar ekki þegar á vinnustað er
komið. Allt þetta er eflaust einhver
skýring. En getur ekki líka verið
að við viljum ekki finna okkur ann-
an ferðamáta? Það er þægilegast
að skella sér út í bíl og æða af stað.
Hitt er alltof mikil fyrirhöfn. Við
viljum kannski ekki draga úr notk-
un einkabílsins. Við leiðum kannski
ekki hugann að því hvort okkur
beri að gera eitthvað til að draga
úr mengun. Við viljum sýna okkur
og sjá aðra úr okkar einkabíl. Er
þetta sem sagt hin margfræga
þjóðarsál sem ræður þess
XXX
MERKILEGT var að lesa frétt
um bókastuldinn mikla hjá
Borgarbókasafninu. Þúsund bækur
á einu ári. Þetta er orðið svo mikið
vandamál að það verður að koma
upp öryggiskerfi til að reyna að
spyrna við fótum. Hvaða lestrar-
hestar eru það sem taka bókasafns-
bækur ófrjálsri hendi? Og hvað
skyldu þeir gera við þær? Skella
þeim upp í bókahillu? Selja þær?
Víkverji telur sig vita að ekki sé
mjög dýrt að notfæra sér þjónustu
bókasafna. Varla þurfa menn því að
stela bókum til að geta lesið ódýrt.