Morgunblaðið - 19.04.2000, Page 70
70 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
oroblu@sokkar.is www.sokkar.is
Fermi nga rti I boð í verslunum LYFJU.
'
20% afsláttur
af öllum OROBLU sokkabuxum.
Kynning í LYFJU, Lágmúla, í dag kl. 14-1 8.
Tilboð gilda einnig í LYFJU, Hamraborg,
og LYFJU, Setbergi.
& LYFJA
Lágmúla, sími 533 2308.
Hamraborg, sími 554 0100.
Setbergi, sími 555 2306.
tuttuguogí}órirsj.ö ósKor
iesendum sínunr og lands-
mönnum ötium til sjöuar
og susitQ gleðilsgra pösKo
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Bíóhöllin, Háskólabíó og
Borgarbíó Akureyri frumsýna geimvísinda-
tryllinn Mission to Mars í leikstjórn
Brians De Palma.
I þyngdarleysi De Palmas; Sinise í hlutverki sínu í Ferðinni til Mars.
Ferðin til Mars er fyrsta geimvísindamynd Brian De Palmas
og hann segist hafa lagt alla áherslu á raunsæi.
Hættuleg
ferð til Mars
tuttuguogfjórirsjö Kemur
naest út fimmtudoginn
e?. oprll með moggonum
auglýsingasíminn er jh 247 7
QlltQf með mogganum
ö fimmtudögum
....nemo ó morgun skírðag!
SKIPAPLOTUR - INNRETTINGAR
JL plötur í LESTAR
J1 , SERVANT PLÖTUR
.111 SALERNISHÓLF
'II 1 1 BADPIUUR
ELDSHÚSBORÐPLÖTUR
Á LAGER-N0RSK
HÁGÆÐAVARA
ÞP
&CO
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 & 568 6100
íhreinsunin
gsm897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
/Ve/fatV<t
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
Innréttingar
frí teiknlvinna og tilboösgerö
Friform
IHÁTÚNI6A (f húsn. Fönix) SfMI: 552 4420
ÞAÐ ER árið 2020 og Geimferða-
stofnun Bandaríkjanna hefur náð
þeim árangri að geta sent mannað
geimfar til plánetunnar Mars. Eitt-
hvað fer þó úrskeiðis og leiðangurs-
stjóranum, Luke Graham (Don
Cheadle), tekst að senda skeyti aftur
til Jarðar um að ekki sé allt með
felldu áður en martröð hans hefst.
Geimferðastofnunin setur í gang
björgunaraðgerð og sendir annað
mannað geimfar til Mars í von um að
geta komið Luke til hjálpar. Ferðin
tekur sex mánuði en um borð eru yf-
irforinginn Woody Blake (Tim
Robbins) og Jim McConnell (Gary
Sinise) ásamt dr. Terri Fisher
(Connie Nielsen) og vísindamannin-
um Phil Ohlmyer (Jerry O’Connell).
Þannig er upphaf sögunnar í
fyrstu geimferðamynd bandaríska
leikstjórans Brians De Palma,
„Mission to Mars“ eða „Ferðinni til
Mars“, með Tim Robbins og Gary
Sinise í aðalhlutverkum, en myndin
er frumsýnd í þremur kvikmynda-
húsum nú um páskana; Bíóhöllinni,
Háskólabíói og Borgarbíói á Akur-
eyri.
„Mig hafði alltaf langað til þess að
gera ævintýramynd sem gerist í
geimnum," er haft eftir einum af
framleiðendum myndarinnar, Tom
Jacobson, sem fékk hugmyndina að
„Ferðinni til Mars“.
„Þetta er frábær saga og frábært
ævintýri," er haft eftir Brian De
Palma. „Ég hafði aldrei áður leik-
stýrt vísindaskáldskap svo það var
alveg ný hugsun fyrir mig að taka
myndir úti í geimnum og á fjarlægri
stjörnu, sem enginn hefur áður séð.
Ég reyndi að forðast allar klisjumar
sem finna má í geimævmtýrunum."
Hann lagði mikið upp úr raunsæi
að eigin sögn og minnist þess þegar
hann sá ungur að aldri myndina
„Destination Moon“, sem lagði mikla
áherslu á tæknivinnuna. „Ég man
alltaf hversu raunveruleg sú mynd
var fyrir mér. Það sem við höfum
reynt er að gera „Mission to Mars“
eins raunverulega upplifun fyrir
áhorfandann og við getum. Allt það
sem kemur fyrir leiðangrana tvo get-
ur gerst í geimferðum af þessu tagi.
Einn af ráðgjöfum myndarinnar
var stjörnufræðingurinn og Mars-
fræðingurinn Robert Zubrin, höf-
undur bókarinnar „Málsvörn fyrir
Mars“ eða „The Case for Mars“, sem
er íslendingum að góðu kunnur. „Við
sendum handritið til De Palma og
hann las það á einni nóttu og sam-
þykkti að leikstýra," segir Tom
Jacobson. Hann segir að þeir séu
báðir miklir áhugamenn um geimvís-
indi og það hafi auðveldað samstarf-
ið.
Gary Sinise lék í „Snákaaugum"
eftir De Palma og segir leikstjórinn
sérlega ánægjulegt að vinna með
honum. Tim Robbins sagði ein-
hversstaðar að hann hefði ekki getað
hugsað sér að sleppa tækifærinu á að
leika í geimvísindatrylli sem De
Palma, af öllum mönnum, leikstýrði.