Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 MORGUNBL 4ÐIÐ FRÉTTIR Dómsmálaráðherra setur 29. Evrópuþing Interpol í Reykjavík Alþjóðleg lögreglusamvinna lykilatriði á breyttum tímum Frá setningu Evrópuþingsins, frá vinstri: Björn Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, Hara- Idur Johannessen rfkislögreglustjóri, Raymond Kendall, aðalframkvæmdasljóri Interpol, Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra og John Abbott fundarstjóri. Fulltrúar 43 aðildarlanda Interpol sitja þingið og er það metþátttaka á Evrópuþingi Interpol. SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmálar- áðherra setti 29. Evrópuþing al- þjóðasakamálalögreglunnar Interpol á Grand hóteli í Reykjavík í gær. Metþátttaka er á Evrópuþinginu að þessu sinni. Það er nú haldið á Isl- andi í fyrsta sinn. 140 fulltrúar 43 að- ildarlanda sitja þingið að meðtöldum áheymaríúlltrúum frá ýmsum stofn- unum sem tengjast löggæslustofn- unum. Fjórir áheyrnarfulltrúar ríkislögreglustjóra sitja þingið, en auk Haraldar Johannessen ríkislögr- eglustjóra sitja þingið Þórir Oddsson vararíkislögreglustjóri, Jón H. Snorrason saksóknari og Smári Sig- urðsson í alþjóðadeild. í máli dómsmálaráðherra við setn- ingarathöfn þingsins kom fram að Interpol hefði reynst íslendingum vel á liðnum árum og samvinna lög- regluliða milli landa væri lykilatriði í baráttu gegn alþjóðlegum glæpum. Interpol kom mjög við sögu stóra fíkniefnamálsins Haraldur Johannessen ríkislögr- eglustjóri sagði í ávarpi sínu að sag- an sýndi að gagnlegt væri að halda stóra fundi hérlendis og minntist í því samhengi leiðtogafundarins í Höfða árið 1986. Hann sagði á blaða- mannafundi að lokinni setningarat- höfninni að Interpol hefði komið rikulega við sögu í rannsókn stóra fíkniefnamálsins svonefnda og að innkoma Interpol hefði haft þýðingu fyrir framgang rannsóknar málsins. Tveir sakborninganna voru eftirlýst- ir í gegnum Interpol og handteknir í Danmörku viku eftir að málið varð opinbert 10. september. Raymond Kendall aðalfram- kvæmdastjóri Interpol hefur oftar en einu sinni lýst yfir ánægju sinni með að þingið skuli haldið hérlendis að þessu sinni og hefur ekki síður lýst yfir ánægju sinni persónulega með dvöl sína á Islandi. Hann heim- sótti m.a. Árnastofnun og Þingvelli á miðvikudag og hitti forseta íslands, ríkislögreglustjóra og dómsmálaráð- herra. Kendall ítrekaði þá skoðun í ávarpi sínu við þingsetninguna að Interpol ætti ekki að vera sérstök stofnun innan Sameinuðu þjóðanna en eiga hins vegar gott samstarf við SÞ. Interpol fékk áheyrnaraðild að allsherjarþingi SÞ árið 1996 og Kendall telur eflingu tengslanna við SÞ mikilvægustu þróunina i starf- semi Interpol á síðustu árum. John Abbott fundai'stjóri Evrópu- þingsins sagði á blaðamannafundin- um að glæpamenn virtu engin landa- mæri og það væri hlutverk Interpol að koma í veg fyrir það með öllum til- tækum ráðum að þeir stunduðu glæpi sína óhindrað þótt ekkert sam- félag væri ónæmt fyrir glæpum. Mikill vilji íslenskra yfirvalda fyrir alþjóðalögreglusamstarfi Berlega kom í ljós að vilji íslenskra yfirvalda til að eiga hlutdeild í hinu alþjóðlega lögreglusamfélagi er mik- ill enda lýsti Sólveig Pétursdóttir því yfir að ef árangur í baráttunni gegn ííkniefnavandanum og fleiri glæpum ætti að nást, væri alþjóðleg lögreglu- samvinna grundvallaratriði. „Þessi samvinna skiptir líka máli fyrir af- brotavarnir," sagði Sólveig og minnt- ist á samvinnu Islands og Noregs á þessu sviði í gegnum Schengen-sam- komulagið. „Það skiptir okkur mjög miklu máli að fá allar mögulegar upplýsingar um þróun í afbrotum, tíðni þeirra og gerð.“ Sólveig taldi að til þess að móta opinnbera stefnu í þessum málum þyrftu staðreyndir um þau að liggja fyrir. í ávarpi sínu sagði Sólveig að ís- lendingar hefðu fundið fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á aðferð- um og vinnubrögðum glæpamanna sem sífellt yrðu skipulagðari í starf- semi sinni og þróaðri á tæknilega sviðinu. „Þrátt fyrir ómælda vinnu og fjármagn sem sett hefur verið í baráttuna gegn fíkniefnaglæpum er þó enn á brattann að sækja. Það er grundvallaratriði að við tökum hönd- um saman gegn fíkniefnavandanum. Samfélögum okkar stendur ógn af fíkniefnunum og það munum við ekki líða.“ Sólveig minntist í ávarpi sínu einn- ig á útgáfu og dreifingu ólöglegs efn- is á Netinu, sem komið hefur til kasta íslenskra lögregluyfirvalda og ólög- legan innflutning fólks sem skipu- lagður er af glæpasamtökum. Um netglæpina sagði Raymond Kendall á blaðamannafundinum að Interpol hefði ekki mikla burði til að uppræta þá, enda væri lagagrundvallar vant. Um ólöglegan innflutning fólks sagði Sólveig í ávarpi sínu að á síð- ustu árum hefði glæpum af því tagi fjölgað mikið og væri talið að slíkir glæpir veltu jafnvel meiri fjármun- um en fíkniefnaviðskipti. Sólveig minntist ennfremur á al- þjóðlega verslun með fólk, sérstak- lega börn í klámiðnaðinn og sagði að slíkir glæpir væru lögreglu erfiðii- viðfangs. og krefðust náinnar alþjóð- legrar samvinnu. „Þess vegna eru lögregluaðgerðir sem beint er gegn glæpum í nokkrum löndum samtímis að verða æ mikilvægari og Interpol hefur sannarlega sannað gildi sitt með því að samræma slíkar aðgerð- ir.“ Sólveig sagði að ríkisstjórnir þyrftu að greiða fyrir milliríkjasam- starfi lögreglu með ýmiss konar lagasamræmingu og einföldunum og gat þess að Norðurlandasamstarf á þessu sviði hefði tekist vel og gæti orðið öðrum þjóðum til fýrirmyndar. Evrópuþingið stendur yfir í dag, fimmtudag og á morgun þegar því verður slitið fyrri hluta dags. Á þinginu mun vinnuhópar lög- reglumanna Interpol skila af sér nið- urstöðum margvíslegra verkefna sem fjalla m.a. um samræmingu og geymslu fingrafara, notkun lög- regluhunda, nýtingu DNA rann- sókna, löggæslu í Bosníu-Herzegó- vínu ogvopnaleit. íslendingar hafa verið aðilar að Interpol síðan 1971 en enginn ís- lenskur lögreglumaður hefur þó tek- ið þátt í þeirri skýrsluvinnu sem er að Ijúka á þinginu, einkum vegna kostnaðar sem af því hlýst. Tillögurum skipulags- mál ræddar í miðstiórn ASI I DRÖG að tillögum um framtíðar- j skipulag Alþýðusambands íslands voru til umræðu á miðstjórnarfundi ASÍ í gær. Tillögurnar verða svo kynntar á sambandsstjómarfundi ÁSÍ sem haldinn verður 26. maí nk. Er gert ráð fyrir að þær verði síðan teknar til afgreiðslu sem ný lög Al- þýðusambandsins á þingi ÁSÍ, sem haldið verður um miðjan nóvember næstkomandi. Samþykkt var á sambandsstjóm- arfundi ASI í nóvemnber í fyrra að fela forsetum ASÍ að vinna að til- lögugerðinni fram á vorið og kynna þær í landssamböndum og stærri að- ildarfélögum sambandsins. Grétar Þorsteinsson sagði að um væri að ræða samfellda vinnu við undirbún- ing að breytingum á lögum og starfs- háttum ASÍ. Aðspurður hvort samkomulag lægi fyrir um tillögurnar sagðist hann hafa fulla trú á að sátt væri um efni þeirra. „Eg vona að okkur takist á sambandsstjómarfundinum að gera málið þannig úr garði að það sé þokkalega góð sátt í hreyfingunni um þær tillögur tU breytinga sem við verðum með. Ég hef á þessu augna- bliki ekki ástæðu til að ætla annað en að svo verði,“ sagði hann. ----------------- Ólíklegt að straumur inn- flytjenda beinist hingað JÚRGEN Storbeck, forstjóri Euro- pol, sem staddur er hérlendis sem áheyrnarfulltrúi á 29. Evrópuþingi Interpol, telur að ísland sé ekki hátt á óskalista innflytjenda og því ólík- legt að straumur þeima beinist hing- að í framtíðinni. Storbeck hélt fyririestur fyrir ís- lensku lögregluna á þriðjudag um starfsemi Europol og sagði í lok fyr- irlestur sfns í fyrirspurnartíma að þrátt fyrir góðan efnahag hefði ís- land ekki mikið að bjóða innflytjend- um. Spáði hann því að þróunin yrði e.t.v. á þann veginn að leið innflytj- enda lægi í gegnum landið áleiðis til annarra landa. Europol er löggæslustofnun Evrópu og tók að fullu til starfa á síð- asta ári. Starfsumboð Europol bein- ist m.a. að því að fyrirbyggja og vinna gegn skipulögðum innflutningi fólks frá öðram löndum, eiturlyfja- verslun, barnaklámi, hryðjuverka- starfsemi og peningafölsun. Fjölbreytt úrval korta í kortadeild Eymundsson Eyiiuindssoii Kringlunni • simi: 533 1130 • fax: 533 1131 Atkvæðagreiðsla um lögleiðingu ólympískra hnefaleika Klauf flesta flokka ALLIR þingflokkar Alþingis utan einn klofnuðu í afstöðu sinni til framvarps um lögleiðingu hnefa- leika sem féll á einu atkvæði í at- kvæðagreiðslu á laugardag. Frum- varpið hlaut stuðning meirihiuta þingmanna Sjálfstæðisflokksins; sextán þehra greiddu því atkvæði sitt en sex voru á móti. Átta þing- menn Samfylkingarinnar voru and- vígir frumvarpinu. Sex þingmenn Framsóknarflokks lögðust gegn frumvarpinu og þingflokkur Frjáls- lyndra klofnaði. Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar greiddi hins vegar allur atkvæði á móti frumvarpinu. Eftirtaldir 26 þingmenn greiddu framvarpinu um lögleiðingu ólymp- ískra hnefaleika atkvæði: Sjálfstæðismennirnir, Arnbjörg Sveinsdóttir, Árni Johnsen, Ámi M. Mathiesen, Ásta Möller, Davíð Oddsson, Drífa Hjartardóttir, Einar K. Guðfinnsson, Einar Oddur Krist- jánsson, Geir H. Haarde, Gunnar Birgisson, Guðjón Guðmundsson, Halldór Blöndal, Sign'ður Anna Þórðardóttir, Sólveig Pétursdóttir, Vilhjálmur Egilsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir. Samfylkingarþingmennirnir Ein- ar Már Sigurðarson, Gísli S. Einars- son, Lúðvík Bergvinsson, Sighvatur Björgvinsson, Svanfríður Jónas- dóttir og Össur Skarphéðinsson. ísólfur Gylfi Pálmason, Kristinn H. Gunnarsson og Valgerður Sverr- isdóttir, þingmenn Framsóknar- flokks, og Guðjón A. Kristjánsson þingmaður Frjálslynda flokksins. Þessir 27 þingmenn lögðust gegn framvarpinu: Arni R. Árnason, Guðmundur Hallvarðsson, Hjálmar Jónsson, Katrín Fjeldsted, Pétur H. Blöndal og Sturla Böðvarsson, þing- menn Sjálfstæðisflokks. Ásta R. Jóhannesdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, Guðrún Ógmunds- dóttir, Jóhann Ársælsson, Jóhanna Sigurðardóttii-, Kristján L. Möller, Rannveig Guðmundsdóttir og Sig- ríður Jóhannesdóttir, þingmenn Samfylkingarinnar. Framsóknarþingmennirnir Hall- dór Ásgrímsson, Ingibjörg Pálma- dóttir, Jónína Bjartmarz, Jón Krist- jánsson, Páll Pétursson og Siv Friðleifsdóttir. Árni Steinar Jóhannsson, Jón Bjarnason, Kolbrún Halldórsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Ögmund- ur Jónasson og Þuríður Backman, þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, og Sverrir Her- mannsson Frjálslynda flokknum. Guðni Ágústsson Framsóknar- flokki sat hjá við atkvæðagreiðsl- una. Aðrir þingmenn höfðu ýmist leyfi eða voru fjarstaddir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.