Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 r?--------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ móðir og amma, ELSA HAIDY ALFREÐSDÓTTIR, Funalind 13, Kópavogi, lést þriðjudaginn 16. maí á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Erlingur Hansson, Alfreð Svavar Erlingsson, Guðrún Sigurðardóttir, Búi Ingvar Erlingsson, Anna Gunnhildur Jónsdóttir, Hanna Erlingsdóttir, Karl Arnarsson og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Stangarholti 12, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 19. maí kl. 15.00. Sigurður Ingólfsson, Sigríður Kristinsdóttir, Erna Björg Baldursdóttir, Ólafur Ingi Óskarsson, 3 » Ingibjörg Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, PÁLS JÓNSSONAR, Hátúni 6, Vík í Mýrdal, fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn 20. maí kl. 11.00. Sigríður Sveinsdóttir, Anna Sigríður Pálsdóttir, Auðbert Vigfússon, Sóiveig Pálsdóttir, Ása Pálsdóttir, Sveinbjörg Pálsdóttir, Sveinn Pálsson, Bjarni Jón Pálsson Jón Þorbergsson, Alex Wolfram, Gunnar Þór Jónsson, Soffía Magnúsdóttir, Ásta Ósk Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, HARALDUR HANNESSON skipstjóri og útgerðamaður frá Fagurlyst, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju ( Vest- mannaeyjum laugardaginn 20. maí nk. og hefst athöfnin kl. 10.30. Unnur Haraldsdóttir, Magnús B. Jónsson, Ásta Haraldsdóttir, Hannes Haraidsson, Magnea Magnúsdóttir, Sigurbjörg Haraldsdóttir, Friðrik Már Sigurðsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við frá- fall og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HERMANNS DANÍELSSONAR frá Tannastöðum. > (p Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hrafnistu. Ragna G. Hermannsdóttir, Guðsteinn Magnússon, Jón Haukur Hermannsson, Guðrún Þórarna Þórarinsdóttir, Ólína Fjóla Hermannsdóttir, Pétur Torfason, Díana Svala Hermannsdóttir, Þorleifur K. Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ÞÓRBJÖRG ELÍSABET MAGNÚS DÓTTIR KVARAN + Þórbjörg Elísa- bet Magnúsdóttir Kvaran fæddist á Sæbóli í Aðalvík 4. mars 1923. Hún lést á heimili sínu í Aðal- stræti 8 11. maí sfð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Magnús Dósóþeusson frá Görðum í Aðalvík og Guðný Sveinsdóttur frá Auðkúlu í Svína- dal. Guðný og Magn- ús áttu sjö dætur. Þær eru: Þórunn, f. 22. ágúst 1904, d. jan- úar 1973; Margrét, f. 30. júlí 1906, d. maí 1969; Hrefna, f. 17. ágúst 1908, d. september 1999; Sigríður, f. 29. júní 1910, d. janúar 1969; Bergþóra, f. 7. júní 1914; Svava f. 18. júlí 1916, d. desember 1993. Hinn 5. september 1943 giftist Þórbjörg eftirlifandi manni sín- um, Jóni Bjartmari Kvaran. For- eldrar hans voru Ólafur Kvaran ritsímasljóri og Elísabet Bene- diktsdóttir. Þórbjörg og Jón eign- uðust tvö böm. Þau eru: 1) Hrafn- hildur Eik, fædd 28. júlí 1942, gift Birni N. Egilssyni. Hrafnhildur á tvær dætur með fyrri manni sfnum, Hassan Esmail: a) Laila, f. 27. aprfl 1964, gift Anoop Pittalwala, Glend- ale, Arizona og eiga þau þijár dætur. b) Mariam, f. 2. nóvem- ber 1967, gift Micha- ele Viannello, Fen- eyjum, Italíu. 2) Gunnar Ólafur Kvaran, f. 2. nóvem- ber 1946, kvæntur Sigríði Hrefnu Þor- valdsdóttur Kvaran. Eiga þau þijú börn. Þau eru: a) Jón Þór, f. 22. september 1966, sambýliskona Björg Sigurjóns- dóttir, eiga þau þrjú börn. b) Ólaf- ía, f. 6. ágúst 1970, sambýlismaður Friðleifur Friðleifsson. Eiga þau tvo drengi. c) Gunnar Ólafur, f. 7. janúar 1972, sambýliskona Ásdi's Björk Jónsdóttir. Hún á eina dótt- ur. Þórbjörg starfaði hjá Pósti og síma frá 1940 til 1986. Utfór Þorbjargar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Mig langar að kveðja elskulega tengdamóður mína Þórbjörgu með nokkrum orðum. A stund sem þess- ari er margt sem kemur í hugann og margs að minnast eftir náin sam- skipti í gleði og sorg. Mér var tekið opnum örmum í þeirra litlu fjöl- skyldu. Man ég vel eftir kvíða mínum fyrir 33 árum, en þá var von á Þór- björgu í bæinn frá Brú í Hrútafirði til læknismeðferðar, ég þá nýgift einkasyninum og þekkti hana ekki vel, hún ætlaði að dvelja hjá ungu hjónunum í nokkra mánuði. Allt gekk þetta vel og aldrei hefur borið skugga á þá væntumþykju og virð- ingu sem hún sýndi mér. Þórbjörg var ákveðin kona, hafði skoðanir á flestum málum en var að sama skapi viðsýn og vel lesin. Hún var afar minnug á alla hluti og hafði frá mörgu að segja, hún var hafsjór af fróðleik og var gott að leita til hennar. Fjölskyldan var í fyrsta sæti hjá henni allt til síðasta dags, við, bamabömin og ekki síst langömmu- börnin, en afkomendahópurinn er Varanleg minning 6f meitlub ístein. IB S. HELG ASOIM HF í STEINSMIÐJfl Skemmuvegi 48, 200 Kóp. Sími: 557-6677 Fax: 557-8410 Netfang: sh.stone@vortex.is orðinn nokkuð stór, fimm barnaböm og níu barnabarnaböm sem öll hafa fengið að njóta umhyggju hennar. Hún var mér alltaf góð tengda- móðir og á ég eftir að sakna hennar. En á þessari stundu er ég glöð og þakklát fyrir að hafa kynnst þessari stórbrotnu konu og átt samleið með henni. Vil ég kveðja hana með þessu ljóði. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. þig umvefji blessun og bænir, égbið aðþúsofirrótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þáauðnuað hafaþighér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfm úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þórbjörg átti marga góða að sem nú sakna hennar. Eg bið Guð að styrkja þau öll og þá sérstaklega elskulegan tengdaföður minn, börn- in, barnabörnin og bamabarnabörn- in og yndislega systur, Bergþóru, og Margréti, frænku hennar og vin- konu. Guð blessi ykkur öll. Sofðu rótt og hvíldu í friði, takk fyrir allt. Þín tengdadóttir, Sigríður. Sem bam fannst mér alltaf að for- eldrar, ömmur og afar lifðu að eilífu og sem fullorðin manneskja er ég enn þeirrar skoðunar. Fjarlægðin á milli okkar hefur alltaf verið mikil, en ótrúlegt finnst mér hvað fjölskylda mín á íslandi, sérstaklega amma og afi, hafa staðið mér nærri. Síðan við systurnar fæddumst hafa amma og afi tekið H H H H H H H H H H Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 M M H M H þátt í mikilvægum atburðum í lífi okkar, jafnvel fylgst með barnabörn- unum sínum vaxa úr grasi. Þegar ég frétti að amma væri orðin alvarlega veik ákvað ég að koma til Islands og fagna jólum og nýrri öld með ömmu og afa og allri fjölskyldunni. Amma var orðin mikið veik og mér var ljóst að hverju stefndi. Hún sýni mikinn styrk og vilja til að jólin og áramótin mættu vera sem best fyrir alla. Amma átti sér dauma sem rættust. Hún fékk að taka á móti mér, fjöl- skyldunni frá Glendale og móður minni frá Kanada og eiga með okkur góðar stundir heima í Aðalstræti 8 sem aldrei gleymast. Amma vildi hafa hlutina í lagi á heimilinu. Einn morgun man ég svo vel, amma var orðin mikið veik. Hún átti von á gestum og lagði mikið upp úr því að allt væri í lagi, kaffi og kök- ur væru á borðum. Amma vildi að vel væri tekið á móti hjúkrunarfólkinu sem annaðist hana og því gefið kaffi og meðlæti í hvert skipti sem það kom að vitja hennar. A síðasta ári komu amma og afi til mín í heimsókn til Feneyja. Þar þurftu þau að fara upp 76 tröppur til að komast í íbúðina mína, ég tala nú ekki um allt það sem þarf að ganga þegar Feneyjar eru skoðaðar. Á þessum tíma var amma orðin veik, en hún lét það ekki aftra sér frá að heimsækja okkur á Italíu. Amma var vel gefin, falleg og glæsileg kona. Hún elskaði okkur ömmubörnin sín af öllu hjarta. Hún gaf okkur öllum það besta sem hún átti. Amma var sterk og bætti upp þá sem ekki voru jafn sterkir. Ég hef aldrei hitt nokkra manneskju sem var jafn ánægð með að segja frá öll- um góðu og skemmtilegu stundun- um sem hún hafði upplifað. Sem barn gerir maður sér ekki grein fyrir hvað „sögur“ eru mikilvægar, ekki fyrr en við erum orðin fullorðin. Þá er það kannski orðið of seint. Jafnvel þó amma væri orðin lík- amlega mikið veik var andlegur styrkur hennar mikill og hún hrædd- ist ekki hið óumflýjanlega. Nótt eina töluðum við lengi sam- an. Mér leið vel að heyra að hún var ekki hrædd við dauðann. Hún vissi að hún mundi fara á annan stað þar sem hún gæti fylgst með okkur í fjöl- skyldunni. Hún sagðist gera allt sem hún gæti til að vemda okkur, sér- staklega langömmubörnin sín. Amma hefur alltaf verið samofin lífi mínu. Það er eins og hún hafi átt heima í næsta húsi og hún mun alltaf fylgja mér. Ég var hjá ömmu á erfið- um augnablikum í lífi mínu. Með styrk sínum og góðum ráðum tókst henni að láta mig sjá hlutina í réttu Ijósi. Ég vona að þegar ég verð eldri verði ég eins sterk og amma og geti gefið börnum mínum og barnabörn- um það sem hún gaf mér og öllum öðrum í fjölskyldunni. Amma, ég elska þig og ég á eftir að sakna þín. Elsku afi minn, mamma, Gunnar, Sigga Begga frænka og fjölskylda mín öll, ég vildi vera með ykkur í dag en sendi mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Þín ömmustelpa, Mariam. Hún amma Góa var kona sem ég hef alla tíð elskað og litið upp til. Hún var skarpgáfuð, vel lesin og drakk í sig fróðleik og þekkingu af ástríðu. Amma var skemmtileg og ákveðin. Hún stóð fast á sinni meiningu en var fljótt að leiðrétta hlutina á góð- látlegan hátt. Amma umvafði bæði það góða og slæma í fari mínu og var alltaf tilbúin að gefa mér góð ráð, hugga mig og hvetja og leiða mig framhjá hindrun- um sem urðu á vegi mínum. Amma Góa elskaði fjölskyldu sína og ekki síður landið sitt. Þótt langt hafi verið á milli okkar landfræðilega og menn- ingarlega tókst henni með staðfestu sinni og sannfæringu að fylla mig ást á fjölskyldu minni á íslandi. Þennan kærleik á fjölskyldu minni mun ég bera áfram til barna minna, lang- ömmubarna hennar, Jahaan, Sonyu og Sureyu. Fyrir allt þetta elskaði ég hana og verð að eilífu þakklát fyrir að hafa átt hana að í mínu lífi. Við munum öll sakna hennar mikið og varðveita minningu hennar. Guð varðveiti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.