Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ • '1 - • nrrrf/rf/vj _______________________________________FIMMTUDAGUR 18. MAI 2000 53 MINNINGAR SVEINN GUÐLEIFUR KRISTJÁNSSON + Sveinn Guðleifur Kristjánsson fæddist á Voðmúla- stöðum í Austur- Landeyjum, Rangár- vallasýslu, 3. mars 1913. Hann lést í Landakotsspítala 6. maí síðastliiðinn. títför Sveins hefur farið fram í kyrrþey. Ema, konan hans Sveins móðurbróður míns, sagði mér að hún hefði beðið prestinn að halda ekki langa útfar- arræðu yflr Sveini látnum. - En lestu kvæðið Fáka eftir Einar Benedikts- son, kvaðst hún hafa beðið hann. Og bætti síðan við: Hann Sveinn var eins og þetta kvæði. Ekki voru það margorð ummæli um látinn maka, enda er hið einfalda jafnan fegurst. Ég dreg í efa að margar eiginkonur hafí lýst mönnum sínum með fallegri orðum að lokinni langri samleið. Þegar ég rifja kvæði Einars upp sé ég að Erna hefur rétt fyrir sér, að sjálfsögðu, enginn þekkti Svein betur en hún. „Sem hverfandi sorg er jóreyksins fok“, kvað Einar um það sem gerist í brjósti knapans á hestbaki, sem er „kóngur um stund“. Svo sem títt er um menn átti Sveinn sorgir. Þeim feykti jóreykurinn á brott og létti byrðina, að minnsta kosti um stund. Líflð var Sveini ekki ætíð gott, hann missti föður sinn í bemsku og ólst eftir það lengst af upp hjá vandalaus- um. Það mun hafa verið gott fólk en eftir föðurmissi og langar fjarvistir frá móður varð eigi að síður eftir und sem aldrei greri til fulls. Seinna var honum gefin lítil, yndisleg fóstur- dóttir, en hún var jafn- skyndilega hrifin frá honum eftir að hann og Ema höfðu annast hana og elskað um tveggja ára skeið. Við hvom tveggja var lítið að gera, ótímabærum föðurmissi og illa frá- gengnum samningum. Nema að hýsa ekki sinn harm. Það fínnst ekki mein, sem ei breytist og bætist, ei böl, sem ei þaggast, ei lund semeikætist við íjörgammsins stoltu og sterku tök. Lát hann stökkva, svo draumar þíns hjarta rætist Það gerði Sveinn, og di’aumur hjarta hans rættist, því að lífið færði honum ekki harma eina heldur einn- ig óvenjulega gæfu. Hans norræna kapp og snerpa til líkama og sálar fann suðrænan neista í konunni sem hann kvæntist og ól honum þrjá syni. Það var gott hjónaband. Ég naut þess sem unglingur að eiga þrjá vetur athvarf á heimili Sveins og Ernu í Bólstaðarhlíð 28. Þetta voru skemmtileg ár og ég verð þeim ævinlega þakklátur fyrir þá umhyggju sem þau sýndu mér þá og um alla tíð síðan. Sveinn og Erna voru ekki tilgerðarfólk, en þau voru heldur ekki neinar hversdagsmann- eskjur. Bæði voru gædd heitum ástríðum. Hann var kappsamur um allt svo á stundum stappaði nærri ill- þolanlegri óþolinmæði, en jafnframt var Sveinn gæddur miklu langlund- argeði og gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Það var ekki síður hug- ur í Ernu, en það var oft hennar hlut- skipti að laga sig að snörum snúning- um manns síns. Saman létu þau rætast drauma sína um að sjá og kanna ísland og komast með þeim hætti út fyrir „hinn skammsýna, markaða baug“. Sjóndeildarhringur- inn var einnig víkkaður og haldið suður í álfu, til að vitja fjölskyldu Ernu og stundum í ævintýraskyni einu saman. Seinna var farið vestur um haf og ég minnist þess hve maka- laust það var að heyra hann Svein, sem var sveitastrákur úr Landeyjun- um, tala um Saltvatnsborg i Utah næstum eins og hann hefði skroppið út að Ölfusá. Nema hvað þar talaði fólkið annað tungumál en það sem honum var tamt. Og það fannst hon- um miður því að: „Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur." Þetta virðist einfaldur sannleikur en orðin eru flóknari en hljóðan þeirra. Því að eitt er að gantast með öðru fólki og hafa af því félagsskap, annað að blanda við það geði. Eg hygg að Sveinn frændi minn hafi ekki átt marga vini, en þeir sem hann blandaði í raun og sannleika geði við urðu ríkari eftir en áður. Nú er Sveinn horfinn úr þessum heimi og kominn út fyrir _ „hinn skammsýna, markaða baug“. Ég veit ekki hvað gerist þegar andinn hverf- ur úr brjóstinu og augun lokast í síð- asta sinn. En ég trúi að Erna hafi einnig í því þekkt Svein rétt og hann hafi tekið undir með Einari Bene- diktssyni í Fákum: Maður og hestur, þeir eru eitt, fyrir utan hinn skammsýna, markaða baug. Þar finnst, hvernig æðum alls fjörs er veitt úr farvegi einum, frá sömu taug. Þeir eru báðir með eilífum sálum, þó andann þeir lofi á tveimur málum. Ég votta Emu, sonum þeirra Sveins, Erni, Reyni og Hjalta, og fjölskyldum þeirra, Dagmar fóstur- dóttur hans, svo og öðrum aðstand- endum mína dýpstu samúð þegar þau kveðja góðan dreng. Trausti Ólafsson. ÞURIÐUR HUGBORG HJARTARDÓTTIR + Þuríður Hug- borg Hjartar- dóttir fæddist á Litla Fjalli, Borgar- hreppi, Borgarfirði, 20. september 1911. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Hjörtur Þorvarð- arson, f. 22.11. 1876, d. 4.6.1937 og Pálm- ína Sigríður Guð- mundsdóttir, f. 26.3. 1890, d. 6.5. 1976. Systkini Þuríðar Hugborgar: Anna Pálmey, f. 29.1. 1910; Guðmundur, f. 11.6. 1913, d. 28.7. 1913; Guðmundur Tómas, f. 1.11. 1914; Guðrún, f. 6.1. 1917, d. 22.3. 1999; Margrét, f. 4.11. 1919, d. 18.12. 1920; Emil, f. 25.5. 1921. Þuríður Hugborg giftist Jóni Hólm- geiri Mýrdal út- gerðarmanni, f. 13.4. 1912, d. 27.2. 1993, þau skildu. Hún var í sambúð með Guðmundi Ó. Guðmundssyni vörubílstjóra, f. 14.7. 1901, d. 12.12. 1964. Þuríður Hugborg stundaði nám við Reykholtsskóla tvo vetur. Hún vann við skrifstofustörf hjá Sigurði Skjaldberg og verslunarstörf í versluninni Vísi. títför Þuríðar Hugborgar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þegar ég heimsótti þig í ársbyrjun kæra frænka varstu bæði þessa heims og annars, en þú varst í góðu skapi og þér leið vel. Nú þegar kveðjustundin er upp runnm hrann- ast upp minningar tengdar þér. Vet- urinn 1969 til 1970 opnaðir þú heimili þitt fyrir mér. Ég man hvað ég kveið því að þurfa að flytja að heiman og búa hjá þér. En um annað var ekki að ræða því ekki gat ég sótt mennta- skóla að heiman meðan ég hafði ekki bflpróf. Þú bjóst ein og allt þitt líf var í mjög föstum skorðum. Ég skynjaði að mörgum þótti einkennilegt að þú skyldir taka mig unglinginn að þér. En kvíði minn reyndist ástæðulaus því okkur samdi vel frá fyrsta degi. Þú tókst hlutverk þitt sem uppal- anda mjög alvarlega og ræktir það af festu og alúð. í upphafi gerðir þú mér ljóst að náminu yrði ég að sinna og að þú myndir ekki líða neina vit- leysu. Ég bar mikla virðingu fyrir þér og reyndi að gera þér til hæfis. Annað kom ekki til greina þó ekki tækist alltaf sem skyldi. Þegar þér mislíkaði fór það ekki á milli mála þó þú hefðir ekki um það mörg orð. Festunni og umhyggjunni sem ég bjó við undir þínum handarjaðri fylgdi öryggi sem ég veit nú hversu mikilvægt er unglingum. Með okkur tókst vinátta sem hélst æ síðan. Þú slepptir heldur ekki alveg af mér hendinni þó ég flytti frá þér, þú hélst áfram að fylgjast með mér og vaka yfir velferð minni. Fyrir það hversu þú varst mér góð og reyndist mér vel verð ég ævinlega þakklát. Ég kveð þig kæra frænka með söknuði. Þorgerður. Hún Bogga frænka er dáin. Á skömmum tíma hafa svo margar konur kvatt sem skipuðu stóran sess í lífi mínu. Mamma, Gunna frænka, amma á Álftanesi, Gunna Stull og nú síðast Bogga frænka. Allar svo góðar og með sterkan persónuleika. Þær gerðu lífið svo litríkt. Hún Bogga frænka mín var mjög sérstök kona sem bar með sér þokka heimskonunnar. Hún hafði mjög ákveðnar skoðanir á hlutunum og var föst fyrir. Ég bar mikla virðingu fyrir henni og hún reyndist mér alla tíð góð. Heimili hennar í Skaftahlíðinni bar smekkvísi hennar og snyrtimennsku fagurt vitni. Þangað var gott að koma. Bogga frænka tók alltaf vel á móti manni, bauð manni gos og eitt- hvert góðgæti og gaman var að spjalla við hana um daginn og veg- inn. Hún var með eindæmum gjafmild en vildi fátt þiggja sjálf. Eg kveð hana frænku mína og trúi því að hún sé nú á góðum stað umvafin ættingj- um og vinum sem þegar hafa farið yfir móðuna miklu. Eg sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umveQi blessun og bænir, ég vil að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum þvíveröld erbjörtáný. (Þórunn Sig.) Hugborg Pálmína Erlendsdóttir. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útfór hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. MARGRET CHRIS TENSEN « + Margrét Christ- ensen fæddist á Fáskrúðsfirði 18. maí 1963. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 3. apríl síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 10. apríl. Mig langai- að minn- ast þín, kæra vinkona, því í dag hefðir þú orðið 37 ára. Það er ekki hár aldur, .en lífið hafði kennt þér meir en margir læra á heilli ævi. Þú varst einstök, alltaf hress, stutt í brosið og glampann í augun, sama hvað bjátaði á. Þú komst til dyranna eins og þú varst klædd og fórst þínar eigin leið- ir. Ég hafði aldrei kynnst neinni persónu eins og þér og hef ekki enn, þú kenndir mér að lífið er ekki alltaf dans á rósum. Fyrir mér varstu eins og systir, mjög kær. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt Þigumvefjiblessunog bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þínverölderbjörtáný. Égþakkaþauársemég átti þá auðnu að hafa þig hér. - Ogþaðersvomargsað minnast, svomargtsemumhug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er þós sem lifir oglýsirumókomnatíð. (Þórunn Sig.) Elsku Magga mín, við hittumst aftur. Guð geymi þig. Kristín Y. Jónsdóttir (Kiddý). t Elskulegur eiginmaður minn, SVEINN HALLDÓR SVEINSSON skipasmlður, Nesgötu 27, Neskaupstað, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað þriðjudaginn 16. maí. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Árnadóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, NANNA BJÖRNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, sem varð bráðkvödd laugardaginn 13. maí sl., verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánu- daginn 22. mai kl. 10.30 árdegis. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð. Vigdís Esradóttir, Dóra Hjálmarsdóttir, Björn Hjálmarsson, Ólafur Hjálmarsson, Eiríkur Hjálmarsson, Helgi Hjálmarsson, Einar Unnsteinsson, Hrönn Kristjánsdóttir, Herdís Haraldsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Kristín Valsdóttir, Guðrún ísberg og ömmubörnin. < I + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR V. HJALTALÍN bóndi, Brokey, síðast til heimilis á Skólastíg 16, Stykkishólmi, andaðist á St. Fransiskussjúkrahúsinu í Stykk- ishólmi þriðjudaginn 16. maí. Jóhanna G. Hjaltalín, Freysteinn V. Hjaltalín, Friðgeir V. Hjaltalín, Salbjörg Nóadóttir, Laufey V. Hjaltalín, Þorsteinn Sigurðsson, Guðjón V. Hjaltalín, Ásta Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLL J. BRIEM fyrrverandi bankaútibússtjóri, Sigtúni 39, Reykjavík, lést mánudaginn 15. maí sl. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jóhann Briem, Kristín Briem, Sigurjón H. Ólafsson, Sigrún Briem, Jón V. Arnórsson, Jóhanna Briem, Guðmundur Þorbjörnsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.