Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: IUTSTJ@ML.1S, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Síminn hef-
ur fjárfest
fyrir einn
' milljarð
LANDSSÍMI íslands fjárfesti í öðr-
um fyrirtækjum fyrir 325 milljónir
króna á síðasta ári. Frá því Lands-
síminn varð hlutafélag árið 1997 og
þar til nú hefur fyrirtækið fjárfest í 25
innlendum fyrirtækjum í skyldum
rekstri fyrir um einn milljarð króna.
Landssíminn á eignarhluti í átta
fyrirtækjum á sviði netþjónustu og
fjarskipta, sex sölu- og þjónustufyrir-
tækjum, sjö hugbúnaðarfyrirtækjum,
tveimur rekstrar- og fjárfestingarfyr-
irtækjum og tveimur eignarhaldsfé-
lögum um hluti í erlendum fjarskipta-
fyrirtækjum, 75% í I.P. fjarskiptum
og Interlce að fullu. Auk þess á
'^hndssíminn smærri hluti í fjóram
erlendum fjarskiptafyrirtækjum.
Síminn á Skímu að fullu, 80% í
Grunni-Gagnalausnum og þriðjungs-
hlut í Stiklu ehf., sem áður var T-Net,
eignarhaldsfélag um rekstur Tetra-
fjarskiptakerfis, m.a. í félagi við
Landsvirkjun. Einnig á Landssíminn
rúm 10% í Median, fyrirtæki um raf-
ræn viðskipti sem til varð eftir sam-
runa m.a. fyrirtækjanna Smartkorta
og Korta. Landssíminn á 17,5% eign-
arhlut í eMR hugbúnaði hf., sem vinn-
—au^að þróun á upplýsingakerfum fyrir
heilbrigðiskerfið.
■ ■ Fjárfest/Cl
Slökkvistarf reynt um borð í togaranum Hannover á Grænlandshafí
Sá sama og ekkert í gegn-
um súrefnisgrímuna
Morgunblaðið/Porkell
Hallgrímur Guðsteinsson 1. vélstjóri og Hannover, áður Guðbjörg ÍS,
í bakgrunni.
HALLGRÍMUR Guðsteinsson, 1.
vélstjóri á togaranum Hannover,
sem dreginn var til hafnar í Reykja-
vík eftir að eldur kom upp í stjóm-
klefa skipsins á Grænlandshafi á
sunnudag, segir að hætta hafi aldrei
steðjað að neinum í áhöfn skipsins
nema sér og öðrum vélstjóra skips-
ins þegar þeir reyndu slökkvistarf
um borð. Hallgrímur var nýsofnað-
m- eftir vakt sem lauk um hádegið
en vaknaði við brunaviðvörunar-
kerfi skipsins á fjórða tímanum eftir
hádegið. „Ég heyrði hróp og köll
frammi og skildi þá að eitthvað mik-
ið var að gerast," segir Hallgrímur.
„Síðan var komið inn í klefa til mín
og tilkynnt um eldinn. Ég rölti út á
inniskónum og sá að slökkvistarf var
hafið.“
Hallgrímur tók þátt í slökkvi-
starfinu og fór fyrstu ferðina að
stjómklefanum án þess að vera í
eldvamarbúningi. „Ég komst að því
strax að það var ekki hægt að fara
inn í stjórnklefann án þess að fara í
galiann. Maður var gjörsamlega ein-
angraður inni í þessum klæðum með
súrefnisgrímuna og maður sá sama
og ekkert í gegnum glerið á grím-
unni. Það var dautt á öllu, allt var
myrkvað og aðstæður minntu mig á
myrkvun í Mír-geimstöðinni,“ rifjar
Hallgrímur upp þegar hann stóð í
gallanum sem líktist geimbúningi.
„Það endaði með því að við skut-
um kolsýrunni á, sem geymd er í
sextán kútum um borð og er staðal-
búnaður í öllum skipum til að kæfa
eld í vélarrúmi. Eldurinn kafnaði
smátt og smátt og við gerðum ekk-
ert meira eftir það.“
Fjölþjóðasamfélag um borð
í grænlenska togaranum
Fáeinum klukkustundum síðar
var skipverjum Hannover bjargað
um borð í nýjan grænlenskan tog-
ara, Polar Nattoralik, sem dró
Hannover til hafnar. „Mér taldist til
að í áhöfn Hannover hefðu verið
fimm þjóðarbrot, Austurríkismaður,
íslendingar, Þjóðverjar, Portúgalir
og einn Spánverji. Nú komu þessi
fimm þjóðarbrot yfir á Polar
Nattoralik, eitt fallegasta skip sem
ég hef komið í á ævinni og þar voru
önnur fimm þjóðarbrot, Græn-
lendingar, Danir, Svíi, Færeyingar
og Japanir.
Það var því skrautlegt og
skemmtilegt um borð í nýja skipinu,
svolítil þröng á þingi en allt gekk
ótrúlega vel. Það voru töluð ótelj-
andi tungumál ásamt öllu handapat-
inu og ég held að þetta hafi reynst
ákveðin áfallahjálp fyrir suma,“ seg-
ir Haligrímur.
■ Verulegar/4
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
F(u&fre(*i
w A [ C* / A M n / 1
A ÍSLANDl!
Við fljúgum
til London og Kaupmannahafnar i allt sumar
- á daginn
jf' Sam\1nnuferöir
Netferðlr eru á www.vlsir.ls SLandsýn
Björk fékk
góðar móttök-
ur í Cannes
KVIKMYND Lars von Trier,
Dancer in the Dark, var frumsýnd
í gær á kvikmyndahátiðinni í
Cannes og fékk frábærar viðtökur.
Björk Guðmundsdóttir fékk einnig
góðar móttökur þegar hún mætti á
frumsýninguna ásamt frönsku
leikkonunni Catherine Deneuve og
leikstjóranum Lars von Trier.
■ Fékk mjög/41
Miðstjórn ASÍ varar við uppsögn
samninga vegna mikillar verðbólgu
Verið að setja
kj arasamninga
íuppnám
MIÐSTJÓRN Alþýðusambandsins
samþykkti í gær ályktun þar sem
segir að ef ekki takist að ná tökum á
verðbólgunni sé mikil hætta á að
kjarasamningnum verði sagt upp í
upphafi næsta árs. „Ef ekki verður
breyting á þessu á allra næstu mán-
uðum er verið að setja kjarasamning-
ana í uppnám, auk þess sem þetta
verðbólgustig er auðvitað óásættan-
legt miðað við þá kjarasamninga sem
við bjuggum við og erum að gera. Það
er óskaplega mikið í húfi,“ segir Grét-
ar Þorsteinsson, forseti ASI.
í kjarasamningunum sem gerðir
hafa verið á seinustu mánuðum er að
finna tryggingarákvæði þar sem
reiknað er með að verðbólga lækki.
Ákvæðið verður því virkt gangi þetta
ekki eftir.
Grétar bendir á að þrátt fyrir að í
samningsforsendum hafi verið gengið
út frá því að verðbólga færi lækkandi
væru fá merki sjáanleg um að nokkuð
hefði dregið úr verðlagshækkunum.
Ekki undan því vikist
að skera verulega niður
„Það er ekkert launungarmál að
okkur finnst að stjómvöld hefðu þurft
að ganga lengra. Það má rifja það upp
að þegar hér var alvarlegt atvinnu-
leysi hvöttum við bæði stjómvöld og
sveitarfélög til að leggja meiri fjár-
muni í hvers kyns verklegar fram-
kvæmdir til að tryggja atvinnustigið.
Með nákvæmlega sama hætti, við að-
stæður og spennuástand eins og nú er
uppi, þá verður ekkert undan því vik-
ist að skera verulega niður. Auðvitað
er það sársaukafullt en það er nú einu
sinni svo að það er eitt af því sem
stjómvöld og sveitarfélög verða að
axla á hverjum tíma. Við teljum að
þar þurfi að ganga lengra," segir
Grétar.
„Það hefur hvergi komið fram bita-
stæð skýring á því hvers vegna verð-
lag á innfluttum vömm heldur áfram
að hækka þrátt fyrir gengisstöðuna
og að Evrópugjaldmiðillinn hafi
lækkað veralega. Við teljum alveg
lágmark að gefnar séu skýringar á
þessu,“ sagði Grétar Þorsteinsson.
■ Hætta/10
-------------
Bflvelta á
Fjarðarheiði
MAÐUR slasaðist illa þegar jeppa-
bifreið valt vegna hálku og krapa á
veginum á Fjarðarheiði um fimm-
leytið í gærdag. Þrennt var í bílnum
og var maðurinn ásamt dóttur sinni
fluttur með flugi til Reykjavíkur.
Hann var talinn rifbeinsbrotinn en
ekki í lífshættu. Dóttir hans, sem er
á unglingsaldri, var minna slösuð.