Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ 52 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 --------------------- Sól hækkar á lofti u og dagurinn lengist: AÐ GERA HREINT FYRIR SÍNUM DYRUM! Að gefnu tilefni vilja bæjaryfirvöld beina þeim tilmælum til eigenda atvinnufyrirtækja í bænum að þeir sjái til þess að rusl og annar úrgangur verði hreinsaður af lóðunum. Tekinn hefur verið saman listi yfir þau fyrirtæki í Kópavogi þar sem umgengni utan dyra er veru- lega ábótavant. Bæjaryfirvöld vilja nú gefa þeim fyrirtækjum sem hlut eiga að máli, kost á að bæta ráð sitt fyrir miðjan júní. Nú er í undirbúningi átak á vegum bæjaryfir- valda þar sem markmiðið er að öll fyrirtæki bæjarins hreinsi til hjá sér og stuðli að betra umhverfi. Jafnframt verður leitað eftir stuðningi almennings til þess að gera Kópavog að hreinni og enn betri bæ. Gleðilegt sumar! Bæjarstjórinn í Kópavogi UMRÆÐAN Fæðingarstað- ir og öryggi í BYRJUN mánað- arins kom hingað til lands, í boði Ljós- mæðrafélags íslands, bandarískur sérfræð- ingur í nýburalækn- ingum að nafni Mars; den Wagner. í kringum blaðaviðtal, sem hann veitti Morg- unblaðinu hinn 5. maí sl., spunnust umræður um þau orð, sem hann lét þar falla um fæð- ingarþjónustu í hinum vestræna heimi og þ.á.m. hér á landi. Þar vitnaði hann í rann- sóknir sem sýna að eft- ir eðlilega meðgöngu hjá eðlilegri konu er fæðing í heimahúsi a.m.k. jafnörugg og fæðing á hátækni- sjúkrahúsi og benda jafnvel til að hún sé öruggari þar sem minni inn- gripa er von heima. Þessi orð hans sviðu nokkrum læknum hér á landi sem brugðust ókvæða við. Morgun- blaðið tók viðtal við þrjá lækna, sem fengu að segja skoðun sína á mál- inu, en ekki var haft samband við eina ljósmóður, þrátt fyrir að um- ræðan snerist um sérsvið þeirra - eðlilegar fæðingar. Vil ég gera að umtalsefni viðtal sem birtist við einn þessara lækna í Morgunblað- inu 10. maí sl. Þar hafði viðkomandi læknir Wagner ranglega fyrir því að halda því fram að engin vísinda- leg rök mæltu með því að konur fæddu börn sín á sjúkrahúsi (bls. 14). Þarna gerir læknirinn ekki greinarmun á eðlilegum fæðingum og áhættufæðingum, en þar er meg- inmunur á, hvað varðar nauðsyn- lega fæðingarþjónustu. Áhættufæð- ingar eru eftir sem áður öruggari á hátæknisjúkrahúsi þar sem meiri hætta er á að grípa verði inn í fæð- inguna með nútíma tækni. Umræð- an snerist aldrei um áhættufæðing- ar hjá Wagner, einungis þær eðlilegu. Viðkomandi læknir hélt því líka fram að ekki væri hægt að bera saman sjúkrahús, þar sem fram fara áhættufæðingar, og fæðingar- heimili, þar sem útvalinn hópur með enga áhættuþætti fæðir. Rannsókn- imar sem Wagner vitnar í eru viður- kenndar rannsóknir og að sjálfsögðu var verið að bera saman eðlileg- ar konur í eðlilegri fæðingu á báðum stöð- um en ekki áhættu- fæðingar annars vegar og eðlilegar hins vegar - skárri væru það nú vísindavinnubrögðin ef svo væri ekki. Mæðraverndin hef- ur þann megintilgang að greina áhættumeð- göngur frá eðlilegum meðgöngum svo veita megi viðeigandi þjón- ustu hverju sinni og taka mið af því við val á fæðingarstað. Konur sem fæða heima eða á fæðingarheimilum Fæðingar Tel ég að konu í eðlilegri fæðingu sé best borgið þar sem hún sjálf kýs, segir Guðlaug Einars- dóttir um gagnrýni fæðingarlæknis á Marsden Wagner. eru hraustar konur í eðlilegri fæð- ingu og eftir sem áður er fag- mennska í fyrirrúmi hjá þeim ljós- mæðrum sem aðstoða þær konur í fæðingu. Þær fylgjast grannt með því að fæðingin gangi eðlilega fyrir sig og ef önnur teikn eru á lofti hafa þær vaðið vel fyrir neðan sig og fylgja konunni á sjúkrahús ef þurfa þykir. Óhöppin gerast nefnilega ekki skyndilega nema í sárafáum tilfellum, þannig að ef ljósmóðirin er með augun opin og er faglega reynd og fær, greinir hún vandamál í uppsiglingu og bregst við í tæka tíð. Að láta allar hraustar konur í eðlilegri fæðingu fæða á hátækni- sjúkrahúsi, vegna þessara sára- Guðlaug Einarsdóttir sjaldgæfu óhappa sem gera ekki boð á undan sér, er fyrir mér eins og að við þyrftum öll að búa á gjör- gæslunni af því að við gætum mögu- lega þurft á henni að halda ein- hverntímann. En flest búum við nú bara róleg heima hjá okkur. Fæðing er eins örugg og lífið getur orðið. Læknum er tíðrætt um burðar- málsdauða til að færa rök fyrir máli sínu, enda er ekkert eins áhrifaríkt til að fá verðandi foreldra til að velja sér þann fæðingarstað sem er þessum sömu læknum mest að skapi. A sama tíma og tíðni burðar- málsdauða stórlækkaði í hinum vestræna heimi, sem samkvæmt rannsóknum er talið vera af völdum bættrar mæðraverndar, tilkomu sýklalyfja og betra heilsufars- ástands kvennanna, fluttust fæðing- ar úr heimahúsum og inn á sjúkra- hús. Þess vegna er auðvelt að fullyrða að öryggi sjúkrahúsanna hafi lækkað tíðni burðarmálsdauð- ans. Aftur á móti hefur sýnt sig að ofnotkun tækni hefur aukið óþarfa inngrip í fæðingar, sem ekki hafa leitt til betri útkomu fyrir barnið, þ.e. ekki lækkað tíðni burðarmáls- dauða enn frekar og því einungis leitt til verri útkomu fyrir móður- ina, t.d. sem óþarfur keisaraskurð- ur. Eðlilegar fæðingar eru ekki tald- ar hættulegi-i en það í Hollandi að þar fæðir þriðjungur allra barnshaf- andi kvenna börnin sín heima og hlutfallið fer yfir 80% í minni bæj- um. Þar er tíðni ungbarnadauða jafnlág, eða lægri, en í sambærileg- um nágrannalöndum, þar sem flest- ar konur fæða á sjúkrahúsi. Lykila- triðið er mæðraverndin þar sem konum í áhættumeðgöngu er ráð- lagt að fæða á tæknilega vel útbúnu sjúkrahúsi en hinar eðlilegu ættu að hafa meira val. Fæðingarheimili hefur ekkert með alla hátæknina, sem sjúkrahús hefur upp á að bjóða, að gera, þar fæðir annar markhópur kvenna með öðruvísi þjónustuþarfir. Að lokum er haft orðrétt eftir umræddum lækni að það sé „órök- rétt að sængurkonur liggi á sjúkra- húsi því að þær þurfa ekki sjúkra- rúm eins og gjörgæslusjúklingur eða alvarlega veik kona.“ Þar sem ég lít ekki heldur á konu í eðlilegri fæðingu sem gjörgæslusjúkling eða alvarlega veika, tel ég henni vera best borgið þar sem hún sjálf kýs, hvort sem það er í heimahúsi, á sjúkrahúsi eða á fæðingarheimili. Höfundur er ljósmóðir. SÍHINH-GSM í tilefni af útgáfu annarrar breiðskífu hljómsveitarinnar 200.000 naglbíta, Vögguvísur fyrir skuggaprins, verða útgáfutónleikar þeirra í Þjóðleikhúsinu í kvöld sendir út beint á mbl.is. Ef þú kemst ekki á tónleikana í Þjóðleikhúsinu smelltu RAIHO FWM03.7 þér þá á mbl.is kl. 22.00 og hlustaðu á þá í beinni!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.