Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 33 Eftirminnileg frumraun Söng- fuglar í Breið- holts- kirkju SÖNGFUGLAR - kór aldr- aðra í Reykjavík heldur söng- skemmtun í Breiðholtskirkju laugardaginn 20. maí kl. 17. A efnisskrá eru innlend og er- lend lög. I þessum blandaða kór koma einnig fram Kvennakór- inn Hvannir og karlakórinn Kátir karlar (KKK). Stjórn- andi er Sigurbjörg Petra Hólmgrímsdóttir. Undirleik- ari og stjórnandi er Arnhildur Valgarðsdóttir. Söngfuglar halda í söng- ferðalag til Vestfjarða 2.-4. júní og koma við í Búðardal og taka þar lagið. Þá verður haldin söngskemmtun á Isa- firði 3. júní. TOIVLIST S u I ii r i n ii S AMLEIKUR A FIÐLU OG PÍANÓ Olga Björk Ólafsdóttir og Paulo Steinberg fluttu fiðluverk eftir Brahms, Hándel, Beethoven, Jelin- ek og Schumann. Þriðjudaginn 16. maí. OLGA Björk Ólafsdóttir hélt sína fyrstu tónleika í Salnum sl. þriðju- dagskvöld, en hún er að ljúka námi í Bandaríkjunum og mun taka sæti í Sinfóníuhljómsveit íslands í haust. Hún hóf tónleikana á Scherzo eftir Brahms, sem gefið var fyrst út að tónskáldinu látnu þó hafi verið sam- ið 1853 er Brahms var tvítugur að aldri, og er því ásamt fjórum píanó- verkum meðal fyrstu tónsmíða meistarans. Þetta verk er gætt óþoli ungs listamanns og þannig var það leikið af Olgu og Steinberg, með töluverðum tilþrifum, og þá strax varð ljóst að Olga er mjög góður fiðluleikari. Annað viðfangs- efnið var sónata, sem merkt er op. 1 no. 12 og sögð er vera eftir Hand- el en er skráð í flokki verka, sem vafi leikur á að séu eftir hann. Þessi sónata er einnig til í E-dúr (op. 1, no. 15), en sú gerð sem Olga lék að þessu sinni er í F-dúr. Það vantaði þann glans, sem oft má merkja í kammerverkum Handels, og auk þess var leikurinn í heild frekar daufur en þó framfærður af öryggi. A-dúr-fiðlusónatan op. 30 nr. 1 eftir Beethoven þykir ekki vera meðal bestu verka meistarans, nema þá helst síðasti kaflinn, sem er tema og sex tilbrigði, enda blómstraði leikur flytjenda í bráð- fjörugum flutningi, sérstaklega hjá píanistanum, t.d. í þriðja tilbrigð- inu, en í fjórða tilbrigðinu voru þrí- og fjórgripnu hljómarnir í fiðlu- röddinni ekki í jafnvægi. í heild var leikur Olgu vel mótaður og borinn uppi af góðri tækni og miklum skýrleik í tónmyndun. Þessi yfirvegaða nákvæmni naut sín sérlega vel í verki eftir Hanns Jelinek (1901-69), sem var nokkuð áberandi persóna þegar tólftóna- tæknin var allsráðandi í tónsköpun en eitthvað hefur fennt yfir spor hans, því verk hans eru mjög sjald- an flutt. Hann var sjálfmenntaður og vann fyrir sér sem kaffihúsa- píanisti en vegna vandræða á valda- tíma nasista tók hann upp höfund- arnafnið Elin. Hann samdi sex sinfóníur. Önnur sinfónían er djass- verk, samin fyrir sinfóníuhljómsveit og „big band“, en tvær þær síðustu eru tólftónaverk. Hann samdi einn- ig tólf binda verk fyrir píanó, sem hann nefndi Zwölftonfibel og var auk þess nokkuð kunnur sem kenn- ari við tónlistarháskólann í Vínar- borg. Viðfangsefnið eftir Jelinek á þessum tónleikum nefnist Xenien, sem líklega er unnið úr óperettu með sama nafni. Þetta eru smá- þættir, þar sem leikið er með mis- munandi leiktækniútfærslur, skemmtilega gerðar, er voru sér- lega vel leiknar, með þeirri skerpu og hrynrænu stundvísi sem er svo þýðingarmikil í mótun nútímaverka. Lokaverkið á tónleikunum var fiðlusónata í a-moll op. 105 eftir Schumann. Segir sagan að hann hafi samið verkið er hann var „mjög reiður út í ákveðinn hóp fólks“ og er rétt að á þessum tíma átti hann í deilum við ráðamenn tónlistarfélagsins í Dusseldorf. Merkja má nokkurn skaphita í fyi’sta og þriðja kafla verksins og var samleikurinn sérstaklega skemmtilegur í þeim báðum, þó sérstaklega í hinum líflega loka- kafla, sem var einstaklega skemmtilega fluttur. Olga Björk er mjög góður fiðlu- leikari og lék af yfirvegun og tölu- verðum skaphita í rómantísku verk- unum eftir Brahms og Schumann. Svítan eftir Jelinek var gædd skemmtilegri skerpu og stundvísi í hryn og eins ungu fólki er oft tamt ráða óþol og leiktæknin miklu um mótun tónlistarinnar, svo sem merkja mátti bæði í Handel og Beethoven, þar sem barokk og klassík byggjast meii-a á tónrænni hugleiðslu en túlkun tilfinninga. Hvað um það, hér er á ferðinni sér- lega efnilegur fiðluleikari, sem á eftir að þroskast og mótast í átök- um við tónmál meistaranna. Poulo Steinberg er skemmtilegur píanisti og átti víða glansandi spretti. Þetta var eftirminnilegt „debut“ hjá Olgu, er gefur fyrirheit um gott leiði til framtíðar. Jón Ásgeirsson Við erum I okkar árlegu ferð um landið með nokkra af okkar bestu og vinsælustu bílum. Við verðum á AustQörðum um helgina. Nýttu tækifærið. Komdu og prófaðu bfla af bestu gerð. Austurland Laugardaginn 20. maí Egilsstöðum, Ásinn Bílasala, Lagarbraut 4, kl. 11-15 Seyðisfirði, við Herðubreið, kl. 16-18 Sunnudaginn 21. maí Reyðarfirði, Shell skálanum kl. 11-12 Eskifirði, Shell skálanum kl. 12:30-14:30 Neskaupsstað, Olís skálanum kl. 15-18 Land Rover Discovery Land Rover Defender Land Rover Freelander BMW Compact Renault Scénic Renault Laguna Renault Mégane Break Allar nánari upplýsingar: Bílasalan Ásinn, Egilstöðum, sími 4712022 Renault Mégane Classic Hyundai Starex Hyundai Accent Hyundai Sonata GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.