Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.05.2000, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ Fjölmenn 70 ára afmælishátíð Klébergsskóla Uppgötvunar- miðstöðin A-ha á Kjalarnesi Kjalarnes NUVERANDI og fyrrver- andi nemendur, kennarar, foreldrar, embættismenn og velunnarar Klébergsskóla fjölmenntu á 70 ára afmælis- hátíð sem haldin var laugar- daginn 13. maí sl. í íþrótta- miðstöðinni á Klébergi, Kjalarnesi. Flutt var Qölbreytt tónlist auk þess sem ræður voru haldnar. M.a. sagði Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs Reykjavíkur, að stefnt væri að því að taka fyrstu skóflustungu að nýrri viðbyggingu skólans við skólaslit í vor. Með þeirri við- byggingu yrði Klébergsskóli eitt fullkomnasta skólahús í Reykjavík. Sýning opin almenningi Nemendur höfðu undir- búið viðamikla sýningu um sögu skólans í fortíð og nútíð auk þess sem spáð var í framtíðina. Einnig gátu afmælisgestir skoðað Uppgötvunarmið- stöðina A-ha sem sett hefur verið upp í íþróttamiðstöð- inni á Klébergi. Um er að ræða sýningu sem að hluta Morgunblaðið/Guðni Sigþór Magnússon skólastjóri (t.v.) kallaði gamla nemend- ur og fyrrverandi skólastjóra Klébergsskóla á svið. Morgunblaðið/Guðni Uppgötvunarsýningin vakti mikla athygli, ekki síst hjá yngri kynslóðinni. Drengurinn dregur gjörðina upp úr polli af sápuvatni og myndast við það gegnsær sápuvatns- veggur. er fengin að láni frá Discov- ery Center í Halifax í Kan- ada. Þar er um að ræða Stjömuvölundarhús og Stærðfræðigaman. Auk þess voru fjölmargir sýningar- hlutar gerðir hér á landi. Lögð er áhersla á að gestir prófi sýningargripina, at- hugi og geri ýmsar tilraunir. Uppgötvunarsýningin verður opin almenningi fram í miðjan júnf á sama tfma og íþróttamiðstöðin. Þess er óskað að hópar bóki heim- sóknir hjá skrifstofu Klé- bergsskóla. Nánari upplýs- ingar er að finna á vefsíðu skólans http://klebergs- skoli.ismennt.is/. Bókasafn Hafnarfjarðar verður flutt á Strandgötu 1 Nútínialegt bókasafn í hjarta miðbæjarins Hafnarfjördur HAFNARF JARÐARBÆR hefur keypt hlut íslandsbanka í húsi númer 1 við Strandgötu og verður bókasafn Hafnar- fjarðar flutt í húsnæðið, sem er um 1.500 fermetrar, á næsta ári. Bærinn átti fyrir 40% hlut í húsinu og er félagsmiðstöðin Vitinn þar til húsa ásamt hluta af bæjarskrifstofum Hafnar- fjarðar. Sigurður Haraldsson, forstöðumaður byggingar- deildar Hafnarfjarðarbæjar, segir bæinn hafa keypt 60% hlut Islandsbanka í húsinu á um 70 milljónir króna. Bærinn fái húsnæðið afhent hinn 15. júm' og upp úr því hefjist fram- kvæmdir sem aðallega muni fari fram innandyra. Sigurður segir að þær bæj- arskrifstofur sem séu í húsinu og starfsemi Vitans verði fljót- lega flutt úr því, bæjarskrif- stofumar verði fluttar í Strandgötu 6 þar sem aðal- skrifstofur bæjarins eru til húsa og stefnt sé að því að starfsemi Vitans verði flutt í núverandi húsnæði bókasafns- ins við Mjósund. Starfsemi bókasafnsins, Mormjnblaðiö/boJli Ilafnaríjarðarbær hefur keypt hlut Islandsbanka í húsinu við Strandgötu 1 og verður bókasafn Hafnarfjarðar flutt í allt húsið á næsta ári. sem nú er í um 600 hundruð fermetra húsi, mun aukast mikið við flutningana og segir Sigurður að framkvæmdir við húsið muni miðast við að það henti sem best undir nútíma- legt bókasafn. Knútur Jeppe- sen arkitekt sé búin að gera grunnmyndir af öllum hæðun- um þremur og kjallara og framkvæmdir við verkið verði boðnar út þegar teikningamar hafi verið samþykktar af bygg- ingamefnd bæjarins. Sigurður segir að herbergjaskipan verði meðal annars breytt, stigi tek- inn og lyfta sett, en ætlunin sé að fatlaðir hafi góðan aðgang að öllu safninu. Sigurður segir að gert sé ráð fyrir að heildar- kostnaður við framkvæmdir verði um 120 milljónir. Fjölbreyttar deildir bóka- safnsins fá aukið rými í nýja húsnæði bókasafnsins mun gefast aukið rými fyrir hinar ýmsu deildir þess. Marín Hrafnsdóttir, menningarfull- trúi Hafiiarfjarðarbæjar, segir að á fyrstu hæð hússins verði tölvu- og upplýsingaver. „Þó að flestir séu lfldega komnir með tölvur inn á heimili sín þá em það ekki allir og þetta er meðal annars hugsað til að brúa það bil,“ segir Mai-ín. Hún segir að tónlistardeild- in fái einnig vel að njóta sín, þar sé gert ráð fyrir nútíma- legri aðstöðu með góðum tölvukosti og muni gestir safnsins áfram hlusta á plötur og geisladiska. Eins verður lagt upp úr því að gera vel við böm og unglinga og segir Marín að sérstakar deildh- ætl- aðar þeim fái gott pláss og búnað. Lestraraðstaða verður á tveimur stöðum í húsinu og segir hún þær meðal annars hugsaðar fyrir hafnfirska há- skólanemendur. Að sjálfsögðu verði bækur á öllum hæðum og einnig verði góð deild með tímaritum. Jóhann Guðni Reynisson, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála Hafnarfjarð- arbæjar, segir að ein áhuga- verð nýjung í bókasafninu verði miðstöð í upplýsinga- tækni. „Við eram að vona að hér geti orðið til svona gerjunar- pottur fyrir frumkvöðla, eða fólk með nýjar hugmyndir sem vantar aðstöðu og búnað til að vinna þær. Þetta er ekki síst ætlað ungu fólki og einnig er hugsunin að eldri borgarar geti komið hér inn með sín hugðarefni og tengst upplýs- ingatækninni. Við leggjum upp með það að fólk geti fengið einhverja aðstoð, án þess að það verði bein kennsla." Jóhann Guðni segir mjög spennandi að verið sé að bæta aðstöðu bókasafnsins á þenn- an hátt og eins muni vera þess í Strandgötunni koma til með að lífga upp á miðbæinn. „Það hefur verið mjög mikill vöxtur í starfsemi bókasafns- ins og með því að færa það héma niður í miðbæinn er ver- ið að bæta aðgengi að því. Um leið fjölgar því fólki sem á er- indi í miðbæinn og þar með er verið að auka lífið í miðbæn- um,“ segir Jóhann Guðni. Grasi lagt Austur- stræti Miðbær SVO gæti farið að Aust- urstræti yrði grasi lagt frá Lækjargötu að Póst- hússtræti frá 1. til 30. júlí í sumar, en miðborg- arstjórn hefur mælt með því við Borgarráð að gef- ið verði leyfi fyrir um- hverfislistaverki af þessu tagi, að því gefnu að hugmyndin verði skoðuð í samráði við verslunareigendur og aðra rekstraraðila við Austurstræti. Aðdragandi málsins er sá að oneoone gallerí lagði fram erindi við miðborgarstjórn þar sem kynnt var hugmynd að stóra umhverfislista- verki eftir Ólaf Elíasson sem sett yrði upp í mið- borg Reykjavíkur. Hug- myndin var sú að akrein Laugavegs yrði lögð grasi frá Barónsstíg að Bankastræti ailan júlí- mánuð. Erindið var tek- ið fyrir á fundi miðborg- arstjórnar og taldi stjórnin erfitt að koma því við að þökuleggja svo stóran hluta Laugaveg- ar, en taldi heppilegra að listaverkið yrði sett upp í Austurstræti. Lögð var áhersla á að fyrirtæki við Austurstræti gæfu samþykki sitt fyrir upp- setningu verksins en næsta skref era viðræð- ur aðstandenda oneoone viðþá. Hafnarfjörður ÞEGAR framkvæmdir við Strandgötu 1 hefjast í sumar, til að undirbúa flutning bóka- safns Hafnarfjarðar þangað, mun starfsemi félagsmið- stöðvarinnar Vitans verða flutt úr húsinu og er stefnt að því að Vitinn fái eldra hús- næði bókasafnsins við Mjó- sund til ráðstöfunar. Vitinn þjónar tveimur skól- um í Hafnarfirði, Lækjaskóla og Víðistaðaskóla, ásamt því að vera miðstöð þegar um sameiginleg verkefni félags- miðstöðvanna í Hafnarfirði er að ræða. Arni Guðmunds- son æskulýðs- og tómstunda- fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar Vitinn flytur í Mjósund segir starfsemi Vitans verða flutta til bráðabirgða í skól- ana tvo, Lækjaskóla og Víði- staðaskóla, þangað til að bókasafnið verði flutt úr hús- næði sínu við Mjósund. „Húsnæðið við Mjósund er ágætt. Það þarf varla að breyta neinu og nánast hægt að flytja beint þangað inn,“ segir Arni. „Þetta verður smá rask þarna næsta vetur en við ger- um bara það besta úr því. Við ætlum að gera tilraun með að færa starfsemi Vitans í skól- ana tvo því bókasafnið verður auðvitað áfram í Mjósundi þangað til framkvæmdunum við Strandgötuna lýkur.“ Hann segir ljóst að Vitinn muni halda áfram að vera sameiginleg miðstöð þegar um stærri verkefni er að ræða. „Við höfum álitið að það væri mikilvægt að vera með eina stofnun sem getur verið miðlæg í þessum stæm mál- um og Vitinn er í raun að hluta til nokkurs konar ungl- ingamenningarhús hér.“ Arni segist ánægður með að bókasafnið sé að fá þetta góða umgjörð og telur hann að unglingarnir muni nýta sér safnið í enn meira mæli eftir stækkunina og breyt- ingarnar. „Við höfum stungið upp á að við fengjum að halda uppi merki Vitans á Strandgötu 1 með því að hafa þar marg- miðlunartölvu sem væri sér- staklega ætluð unglingum og hún fengi þá að heita Vita- tölvan eða eitthvað svoieiðis. Það var tekið mjög vei í þess- ar hugmyndir," segir Arni. Morgunblaðið/Ómar Um helgina hópuðust íbúar Engihjallans út að sópa, mála og fegra umhverfið á hinum árlega hreingerningardegi íbúasamtaka götunnar. Hreinsunardagur í Engihjalla götunnar. Nokkuð margir létu til sín taka og voru gangstéttar sópaðar, veg- kantar og bílastæðamerk- ingar málaðar og umhverfið þannig fegrað. Kópavogur ÍBÚAR í Engihjalla í Kópa- vogi tóku til hendinni um síð- ustu helgi á árlegum hreins- unardegi íbúasamtaka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.